Morgunblaðið - 01.04.1969, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1909
PÁSKARÉTTIR
inn í heitan ofn og osturinn lát-
inn bráðna og brúnast. Súpan
borin fram mjög heit.
Newport-ostasúpa.
2 matsk. smjör eða smjörlíki
8 matsk. hveiti
% pund ostur skorinn bita
3 bollar soð (t.d. kjúklinga-
soð)
2 bollar heit mjólk
1 sneið af lauk
1 bolli rjómi, heitur
salt og pipar
Smjörið brætt í potti við lít-
inn hita, hveiti og osti bætt í.
Soðinu smám saman bætt í, hrært
stöðugt í á meðan, síðan mjólk
og lauk. Sjóðið aðeins lengur.
Þá er súpan síuð, og sett aftur
yfir eldinn og látið krauma í 10
mín, hrært stöðugt í á meðan.
Rjóminn látinn út í og súpan
krydduð með salti og pipar.
Súpur
Soup a 1‘oignon.
Lauksúpa.
6 litlir laukar, þunnt skornir
2 matsk. sjör eða smjörlíki
1 matsk. hveiti
6 bollar af soði (t.d. kjúkl-
inga)
bolli þurrt hvítvín
6 sneiðar franskbrauð, ekki al
veg nýtt
3 matsk. rifinn ostur (helzt
bragðsterkur)
Laukurinn létt brúnaður í potti
(hveitinu dreift yfir, síðan er soð
inu hellt í ásamt hvítvíni, salti
og pipar eftir smekk. Súpan lát
in smásjóða í 10—15 mín.
Franskbrauðsneiðarnar eru rist
aðar og settar í skálina, sem
bera á súpuna fram í, rifnum
osti stráð yfir. Súpuskálin sett
Kjötréttir
Svínakótilettur
8 svínakótelettur
% bolli chili-sósa úr flösku
1 matsk púðursykur
vatn
1 appelsína
Kótelettumar steikar á pönnu
Chilisósa, púðursykur og 2 mat-
sk. vatn hrært saman og lögur-
inn látinn drjúpa á kjötið, app-
elsínusneið látin á hverja kótel
ettu.Lok sett á pönnuna og kjöt
ið soðið í um það bil 15 mín.
Kjötið sett á'fat, dálitlu vatni
hellt á pönnuna og soðið svo fá-
ist sósa út á.
Trinidad-hænsnaréttur
2 Hakkaðir laukar
1—2 Hráar rifnar gulrætur
125 g. Sveppir í sneiðum
50—80 g. smjörlíki
Vá agúrka í teningum,
1 dl.rjómi
2 dl. hænsnasoð
1 unghæna
Smjör paprika, laukur, gulræt
ur, sveppir, agúrkuteningar
brúnað lítillega. Rjómi og soð
látið út í og látið sjóða. Saltað
eftir smekk. Soðin unghæna tek
in í sundur og brúnuð, 1—2 tsk.
paprika sett yfir. Jafningnum
er hellt yfir um leið og matur-
inn er borinn fram, hrísgrjón
borin með.
Ábætisréttir
Möndlukaka
6—8 epli
4—6 matsk. vatn
4—6 matsk. sykur
Möndludeig úr:
100 gr. smjör
150 gr. sykur
2 eggjarauður
50 gr. möndlur
safi úr hálfri sítrónu
2 stífþeyttar eggjahvítur
Afhýðið eplin, takið kjarnana
úr og skerið hvert epil í fernt.
Eplin bökuð þar til þau eru orð-
in meyr í sykurvatninu í eld-
föstu móti, sem kakan er síðan
bökuð í. Smjör og sykur hrært
vel saman, eggjarauðunum bætt
í ásamt söxuðum möndlunum
(eða hnetukjörnum), sítrónusaf-
anum bætt út i. Þá er stífþeytt
um eggjahvítunum bætt í og
deiginu hellt yfir eplin í eld-
fasta mótinu. Bakað við jafnan
hita í 20—25 minútur. Borðað
heitt með þeyttum rjóma.
Nokkrir félaganna í .W.I. á Long Jsland.
Við getum grafið okk-
ur gröf með gafflinum
Baráttan við pundin
JÁ, HÚN er víða háð, baráttan
við pundin. Það verður mönnum
ljósara með hverju árinu sem
líður, að offita er ekki aðeins
lýti á útliti fólks, heldur ógnun
við heilsu þess, og að neyta beri
allra ráða til þessað losna við
umfram fitu, sem safnast hefur
á líkamann. Hér á íslandi er
auðséð, að um þessi mál er meira
hugsað og talað en áður var og
er það vel. Menn og konur
stunda alls konar líkamsæfing-
ar, sem er einn liður í því að
halda líkamsþyngd sinni hæfi-
legri.En ekki er okkur kunn-
ugt um, að fólk hafi beinlínis
bundizt hér samtökum til að
hjálpa hvert öðru við að berj-
ast við pundin. Slík félög eru
þó til erlendis og einn slífcur fé-
lagsskapur er W. W. J. (Weight
Watchers InteVnational), sem
upprunnin er í Bandaríkjunum.
Upphaf þessa félagsskapar var,
að frú Jean Nidetch, sem þjáðst
hafði af offitu alla sína ævi, var
nýkomin af megrunarsjúkradeild
þar sem tekizt hafði að gera of-
urlitla „dæld“ í fitulag henn-
ar, og þar sem hfcn hafði kom-
izt í kynni við frumatriði góðs
mataræðis. Þetta var árið 1961.
Fékk hún þá hugmynd, að verið
gæti, að margar konur sem
þjáðust af þessum sama kvilla,
væru ekki nægilega vel að sér
um rétt mataræði og stefndi
nokkrum konum heim til sín, þar
sem þær ræddu þessi mál.Þetta
varð til þess að úr varð form-
legur félagsskapur, sem í voru
upphaflega sex konur, en sem
hefur vaxið og borizt til hinna
ólíklegustu staða og eru nú svo
að eitthvaðsé nefnt, klúbbar
starfandi í Puerto Rico, Canada,
Israel og Bretlandi og um gjör
Amhrosia
3 stórar appelsínur
1 dós ananeisbitar
V2 bolli gróft kókósmjöl
Appelsínurnar afhýddar og
skipt í rif, blandað saman við
ananasbita og kókósmjöl.Borið
fram vel kælt j litlum desert-
skálum eða glösum. Nægir fyrir
fjóra.
völl Bandaríkin. Hver meðlim-
ur borgar vikulega 2 dali í
gjald, og fær í staðinn eintak af
reglum, sem fara á eftir, margs-
konar mataruppskriftir og eins
fconar einkunnabók. f þennan fé
lagsskap fær engin að ganga, ef
hann er ekki að minnsta kosti
10 pundum of þungur, og hefur
jafnvel komið fyrir, að fólk hef
ur bætt við sig 1—2 kg til þess
að fá inngöngu. Verðlaun eru
veitt þeim meðlimum, sem mætt
hafa á 16 fundum í röð og hafa
létzt um 10 pund eða meir. Kon-
ur frá skrautnál, karlar slifsis-
nælu og unglingarnir fá arm-
band með viðhengi. Hver hópur
hefur stjórnanda, fyrrverandi
fituklump, sem hefur gengið
þessa píslargöngu og náð settu
marki. Stjórnandinn sér um að
vikta hvern meðlim en það er
auðvitað gert fyrir luktum tjöld-
Kökukefli við peysuþvott
Sumum finnst gott að nota
kökukefli til að rúlla yfir peys-
una með stykki undir auðvitað,
áður en hún er orðin þurr. Á
það að hjálpa til að peysan
haldi lagi og sérlega ef hún
hefur hlaupið dálítið Efcki er þó
vert að gera þetta við ,,stroff“-
prjón.
um og sér um fundinn að öðru
leyti. öllum ber saman um, að
fundirnir hjálpi mjög mikið, og
vitneskjan um, að þar eru allir
að berjast við sameiginlegan ó-
vin, og þar hafa heyrzt játn-
ingar eins og t.d. viðurkenndi
ein að hafa falið súkkulaðitertu
í þvottakörfunni sinni, svo að
hún gæti gripið til hennar svo
lítið bæri á. Önnur sagðist hafa
legið vakandi í rúmunu, þangað
til hún heyrði hroturnar í eigin
manninum, og þá gat hún laum-
ast fram í eldhús til þéss að fá
sér að borða. Sú hin sama sagð-
ist hafa haldið því fram, að
hún væri með röng efnaskipti
og gæti því, ekki gert að því að
hún væri feit.
Mataruppskriftinar, sem fólk
ið fær, eru sérstaklega sniðnar
við það, að í þeim séu sem fæst-
ar hitaeiningar og fólki kennt
að matbúa á þann hátt.
Stjórnandinn hefur sjálf geng
ið í gegnum þetta allt og veit
því um ýmsar þær freistingar,
sem á veginum verða og getur
því gefið góð ráð. Ein ráðlegg-
ing, sem stjórnandinn gefur er,
„að þegar þér er boðin kaka
eða sætindi, skaltu bara segja,
að þú hafir ofnæmi fyrir því.“
Ennfremur áminnir hún fólk
um, að grafa sér ekki gröf með
gafflinum!!!
Eftirréttir fyrir börnin
ís er nú með því allra bezta,
sem hægt er að bjóða börnum,
eins og allir vita, og hér er hann
framreiddur á dálítið frumlegan
hátt, eins og sjá má á mynd-
inni. Marengskaka er sett á disk-
ofan á hana er settur ís í brauð
formi, með toppinn upp. 3 cock-
tailberjum stungið í ísinn, og 1
sett á toppinn á forminu. Er þá
komið andlit á hirðfífli.