Morgunblaðið - 01.04.1969, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRlL 1Ö6S
STEFAHl HALLDORSSOIU
á slódum œskumar
TRAUSTl VALSSOIII
ast hafa ein.hveirja menningu
eða markmið. Þetta á jafnt
við erlenda list sem íslenzka"
Við fengum fimm ungmenni
til að segja álit sitt á þess-
ari sýningu SUM, og eins og
greinilega kemur fram hér á
eftir, sýnist sitt hverjum.
Bjarni Þórarinsson, stúdent
frá M.R. 1968, núna starf-
andi sem myndlistarkennari:
„Undur, hvað maðurinn getur
leikið sjálfan sig grátt, mis-
boðið hugmyndaflugi sínu og
þroska, vanmetið þekkingu og
kunnáttu, hæfileika og snilli.
Athyglisvert er þó framlag
Arnar Herbertssonar, sem ber
vott um, að 'hér sé töluvert
hugsandi og frjór listamaður
á ferð, sem tekst allvel að
tjá hugsanir sínar á surreal-
istisku tjáningarformi. Mynd
ir hans bera umfram allt vott
um kunnáttu, og er það greini
Bjarni: „Sem gestur þessarar sýningar SUM, naut ég henn
ar ekki."
Pétur: „Sumt á betur heima á ruslahaugum höfuðborgarinn
á ágæti sýningarinnar
Skiptar skoðanir unga fólksins
aðrir telja hana alls ekki
nógu „brjálæðislega“. En eitt
er víst, að ekki fara lista-
mennirnir hefðbundnar slóð-
ir í gerðum verka sinna. Efn-
in, sem þeir nota í verkin,
eru ekki einungis tré, járn
og litir, heldur einnig matar-
leifar, lím, súkkulaði, kítti,
og fleira og fleira.
Þau verk, sem mesta athygli
vekja eru án efa, „Galti“
eftir Sigurð Guðmundsson og
„Blómið“ eftir Jón Gunnar
Árnason. Það fyrrnefnda er
hreint út sagt heysáta og kost
ar 15.000. kr. og mun flest-
um bóndanum sjálfsagt þykja
það dýr hestburður. Um verk
sitt „Blómið" segir Jón Gunn
ar: „Blómið er vélgróður, sem
hefur áætlað vaxtartímabil
frá 1967—1977 eða 10 ár. Á
hverju ári bætir þessi vél við
sig nýjum sprotum eins og öll
fjölær blóm gera og eykur
við sig hinni upphaflegu
þyngd eða 100—120 kg.“
Magnús Tómasson, einn af
félögum SUM og listamönn-
um sýningarinnar, tjáði okk-
ur, að félagsskapurinn væri
fjögurra ára gamall og væri
þetta önnur samsýningin, sem
SUM héldi. „Hlutverk SUM,“
sagði Magnús, „er að kynna
og selja list. SUM mun aðeins
sýna það merkasta, sem gert
hefur verið í listum undan-
farin ár og áratugi, nýjar til
finningar í nútímalist og alla
tilraunakennda hluti, er virð
Gústaf: „Þetta er fyrst og
fremst fólk, sem lifir fyrir
áhugann og starfsgieðina“.
í listsköpun. Það hlýtur vissu
lega að taka sinn tíma fyrir
flesta að meta verk sem þessi,
en SUM-félagar hafa svo sann
arlega gert tilraun til að
brjóta á bak aftur hina þröng
sýnu skoðun almennings á list
með þessari sýningu. Áð lok-
um vil ég þakka þeim félög-
um fyrir þetta framlag þeirra
til menningarlífs höfuðborgar
inn.ar.“
Pétur Bjarnason, teiknari:
„Verkin á sýningunni bera
hvorki vott um hæfileika né
hugmyndaflug höfundanna.
Ef þeir geta gert betur, fara
þeir afar vel með það. Annað
hvort halda þeir félagar í al-
vöru, að þeir séu með þessum
verkum sínum að leggja is-
lenzkri list einhver verðmæti
til (og ef svo er, eru þeir
geðveikir) eða þeir stofna til
sýningarinnar af galgopaskap
(og þá er sennilegasta hug-
sjónin ágóðavon í trausti þess
að nægilega margir sýning-
argesta séu hvort tveggja í
senn geðveikir og svo fjáðir,
að þeir glepjist til að kaupa
eitthvað). Sé félögum SÚM
alvara — og þeir þar með
Framhald .v bls. 25
SUM — félag ungra lista-
manna — heldur sýningu á
verkum sínum hér í höfuð-
borginni um þessar mundir.
Hefur sýning þessi vakið
mikla athygli og umtal og þá
ekki hvað sízt meðal unga
fólksins. Það er þó ekki á eitt
sátt um ágæti sýningarinn-
ar. Finnst sumum lítið til
hennar koma, aðrir hrósa
henni upp í hástert, og enn
Anna: „SUM-félagar hafa gert
tilraun til að brjóta á bak
aftur hinar þröngsýnu skoð-
anir almennings á list með þess
ari sýningu.“
Pétur: „Verkin bera hvorki vott um hæfileika né hug-
myndaflug höfundanna."
Magnús: „Við eigum ekki að
koma til móts við almenning,
heldur á fólkið að koma til
okkar og tileinka sér hugs-
aanagang okkar. Takmark
SUM er ekki að framleiða lista
verk, sem eru til þess að
„dilla“ einhverjum góðborgar
anum eftir góða máltíð. List
okkar er alls «kki hugsuð
sem hýbýlaprýði
legt, að sá maður ræðst ekki
á garðinn, þar sem hann er
lægstur. En sem gestur þess
arar sýningar SUM, naut ég
hennar ekki. “
Anna Sverrisdóttir, banka-
mær:„Það er mjög athyglis-
vert að fá að sjá verk þeirra
SUM—félaga á einum stað og
bera saman hinar ólíku leiðir
þeirra til túlkunar á viðfangs
efnum sínum. Það, sem er einna
eftirtektarverðast við sýn-
ingu þessa, er, að SUM-félag
ar hafa nú sýnt það glögg-
lega, að þeir skapa verk sín
fyrst og fremst með það mark
með í huga að fullnægja sinni
eigin sköpunarþrá — án til-
lits til hinna hefðbundnu leiða