Morgunblaðið - 01.04.1969, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, I>RIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1%9
Troöfullt hús á íslands-
meistaramútinu í fimleikum
Kristján Astráðsson sigraði í karlaflokki,
en Cuðrún Erlendsdóttir í kvennaflokki
ÞAÐ virðist sannarlega ekki hafa
verið vanþörf á að vekja fim-
leikaíþróttina aftur til lífsins hér
lendis miðað við þær undirtekt-
ir, sem Islandsmeistaramótið í
þessari grein fékk sl. sunnudag.
Mótið var haldið í íþróttasalnum
á Seitjarnarnesi, og var þar svo
þéttskipað áhorfendum að til
vandræða horfði. Urðu margir
frá að hverfa.
íslandsmeistari í fimleikum
kania var Ármenningurinn
Kristján Ástráðsson, sem signaði
í þremur greinum af fimm, og
hlaut flest samanlögð stig eða
39,25. I öðru sæti varð Einar
Hermannsson frá Siglufir'öi með
35.80 stig en hann varð meistari
í æfingum á tvíslá. Þriðji varð
Þórir Kjartansson, Ármamni, með
34,40 stig.
Kristján hlaut méistaratitil í
þremur greinum, sem fyrr segir:
Fyrir æfingar á svifslá hlaut
hann 8,60 stig, fyrir æfingar á
hesti hlaut hann 7,50 stig og
fyrir gólfæfingar 8,25 stig. Einar
Hermannsson varð sem fyrr
segir meistari í æfingum á tvislá,
hlaut 8,40 stig og Grétar Frank-
linsson sigraði í hringum, með
8.80 stig.
f kvennaflokki sigraði Guðrún
Erlendsdóttir, Ármanni, með sam
tals 38,55 stig, enda þótt hún
sigraði ekki í neinni af grein-
unum fjórum, sem keppt var i.
í æfingum á slá sigraði Nanna
Sigurjónsdóttir með 7,75 stig, í
kistustökkum sigraði Anna S.
Indriðadóttir með 8.50 stig, í
æfingum á dýnu sigra’ði Margrét
Jónsdóttir með 8.55 stig og einnig
í gólfæfingum, með 8,55 stig.
Nanna Sigurjónsdóttir varð
önnur í keppninni um íslands-
meistaratitilinn með samtals
38,05 stig og Margrét Jónsdóttir
þriðja með samtals 33,85 stig, og
var keppnin mjög hörð, eins og
sjá má á stigatölunni.
Engin flokkakeppni varð í
kvennaflokknum, þar sem kepp-
endur voru allir frá Ármanni,
en í flokkskeppni karla sigraði
sveit Ármanns, en hver sveit er
skipuð fjórum mönnum.
Áhorfedur létu mjög vel af
framkvæmd móts þessa. Aðal-
dómarar voru hjónin Kurt og
Else Trangbæk, og átfu þau stór
an þátt í því, hve vel tókst til
með röggsamri stjórn sinni.
Dönsku hjónin munu væntan-
lega í kvöld taka þátt í fimleika-
sýningu, ásamt íslenzku fimleika
fólki, sem Fimleikasamband Is-
lands gengst fyrir í Laugardals-
höllinni.
Guðrún Erlendsdóttir Islandsme istari í fimleikum kvenna í gólf-
æfingum.
Úrslit í körfuknattleik:
ÍR og KR berjast um toppinn
ÍS berst fyrir áframhaldandi veru í 1. deild
í KVÖL.D verða síðustu leikir
íslandsmótsins í körfuknattleik
leiknir í fþróttahúsinu á Seltjarn
arnesi. ÍR og KR þeir gömlu
erfðafjendur eigast við og stend
ur baráttan um titilinn bezta
körfuknattleikslið á íslandi 1969.
ÍR stendur betur að vígi fyrir
Hafnfir&ingar ógnuðu þeim
þýzku en tókst ekki að sigra
— náðu Jbó að jafna tvivegis
Kristján Ástráðsson, íslands-
meistari í fimleikum karla
tekur á móti verðlaunagripnum.
HAFNFIRÐINGAR reyndu sann
arlegasitt bezta til að sýna þýzku
handknattleiksmeisturunum í tvo
heimana á sunnudag. Þeir höfðu
líka haft þá aðstöðu að sjá þýzka
liðið í leik gegn Reykjavíkurúr-
valinu daginn áður og móta leik
sinn eftir því. Eigi að síður tókst
Þjóðverjunum að ná góðu for-
skoti í fyrri hálfleik — svo stóru
að FH-ingar réðu ekki við þrátt
fyrir glæsilegar tilraunir. Tókst
þeim tvívegis að jafna en þýzka
liðið kunni vel að sameina bæði
reynslu og kunnáttu og á þeim
tæknilegu atriðum vann liðið
18—15.
fsl. handknattleiksunnendur
eru löngu orðnir því vanir að
þeirra lið tapi með einu, tveim
eða þremur möirkum. En á þessu
þarf þó einhvern tíma að verða
endir. Hversu lengi geta ísl. hand
knattleiksmenn gengið til kapp-
Þjóðverjarnir unnu úrval
Reykjavíkur auðveldlega
Eitt lélegasta úrval sem valið hefur verið
Þýzku handknattleiksmennirnir
frá Gummersbach höfðu heldur
lítið fyrir því að sigra úrvalslið
Reykjavíkur á laugardaginn.
Lokatölurnar urðu 19:12 eftir að
staðan var 9:5 fyrir Þjóðverjana
í hálfleik. Þjóðverjarnir höfðu
öll tök á leiknum frá upphafi til
enda og reykvíska úrvalið var
ein og leikfang í þeirra höndum,
enda var úrvalið ekki rétt valið
að dómi undirritaðs og hafði
aldrei möguleika til að sýna
meira i leik en til var stofnað. 1
Enginn leikmanna í Reykjavík
urúrvalinu náði að sýna sitt
bezta í þessum leik. Þvert á
móti voru menn leitandi eftir fé
lögum eða samspilandi mönnum.
Flestir í reykvíska Hðinu gátu
meira, en þeir sýndu en atvikin
höguðu því svo að ekki varð
meira úr en raun sýnir. En ein-
mitt í slíkum efnum skortir ísl.
handknattleik svo mikið til að
ná því fram, sem í mönnum býr.
Ef þessi leikur gæti orðið
kennslustund fyrir handknatt-
leiksmenn þá væiri vel farið en
ef vel hefði verið til stofnað hefði
Reykjavíkurúrvail vel getað far-
ið með sigurorð afg þessu þýzka
meistarailðið að mínum dómi.
Heins Schmidt var markhæst-
ur Þjóðverjanna með 7 mörk þar
af 1 úr víti en J. Feldihoff sem
leikið hefur 28 landsleiki fyrir
Þýzkaland, og sýndi nú einnig
sína góðu hæfileika, skoraði 3
mörk, Kosmehl, H. G. Bölter skor
aði 2, Bocher, Keller, Westebbe
og Brunsoheiwig 1 hver.
í 'heild var leikurinn heidur
leiðinlegur og lélegur og aldrei
spenna eða sjaidan góð tiiþrif.
leiks og gert sig ánægða með að
tapa — tapað með 1—2 eða 3
mörkum. í leikjun.um við hið
þýzka meistaralið reyndust ís-
lendingarnir í engu hinum þýzku
lakari — nema í því er leikaðferð
kallast. Það hefði verið hægt að
sigra hið þýzka lið í báðum leikj
unum að mínum dómi.
Hafnarfjarðarliðið var mun
heilsteyptara en Reykjavíkurlið
ið. En eigi að síður var í vali
þess og leik þær meinsemdir er
úrslitum réðu. Lið sem er skipað
viðurkenndum stjörnum er ekki
endilega betra en það lið sem
byggt er upp í kringum ákveðinn
kjarna og nær að sýna sitt bezta.
Félagslið er ekki veikara en lands
lið sé það gott á annað borð.
Við fengum að sjá í þessum
leikjum góðan handknattleik og
við fengum að sjá hvernig ísl.
úrvalið eiga „ekki“ að vera val-
ið. Þar á ég við að það er ekki
endilega þeir menn sem flest
mörk skora í nýafstöðnu móti
sem rétt eiga til að vera valdir.
Það er heildin sem er nauðsyn,
það er hún sem þarf að byggja
upp.
Gangur leiksins á sunnudaginn
var, að Þjóðverjarnir náðu í byrj
un öruggri forustu og þeir sýndiu
að þeir kunnu að halda henni.
Að vísu tókst Hafnfirðingum tví
vegis að jafna ieikimn, en það
náðist aðeins með ítrustu heppni
og framúrskarandi keppnisvilja.
En í byrjun og reyndar allan
fyrri hálfleik var eins og Hafn-
firðingarnir léku í uppgjöf og
voru ánaggðir með það, sem kall
ast verður lágmarksuppskera.
leikinn í kvöld, þeir unnu KR í
fyrri umferð mótsins og hafa
því tveggja stiga forskot fram
yfir KR. Ef KR sigrar í kvöld eru
liðin því jöfn og verða að leika
aukaleik til úrslita í mótinu. Lið
in eru mjög jöfn að getu um
þessar mundir og útilokað að
geta gert sér til um úrslit leiks-
ins.Bæði liðin munu tefla fram
sínum beztu mönnum þessara
liða.
Leikir ÍR og KR hafa í sex ár
verið helzti viðburður innlendur
á sviði körfukna'tleiks. Yfirleitt
hafa þetta verið mjög góðir og
skemmtilegir leikir og það þó
styrkleiki liðanna hafi verið
breytilegur. — ÍR-ingar voru
„einvaldar“ meistaraflokks frá
því í íslandsmótinu 1960 þar tii
síðari umferð íslandsmótsins 1965.
Á þessu tímabili léku þeir 44 leiki
við innlend félög og unnu alla
leikina, skoruðu samtals 3143
stig gegn 1989, sem segir sína
sögu. í íslandsmótinu 1965 sigr-
uðu KR-ingar ÍR í síðari umferð-
inní og KR vann aukaleikinn.
Síðan má segja að KR hafi tekið
við hlutverki ÍR á toppnum, þó
áfram hafi úrslitaleikir þessara
aðila verið nokkuð óvissir fyrir-
fram.
Nú á síðasta Reykjavikurmóti
sigraði svo ÍR aftur og unnu ÍR-
ingar KR í fyrri umferð þessa
íslandsmóts með 69:60 og þannig
má segja að síðasta hálmstrá KR
inga til sigurs í mótinu sé sigur
í leiknum í kvöld.
Á undan leik KR og ÍR eig-
ast við ÍS og Átrmann í 1. deild.
ÍS þarf að vinna þann leik til
þess að tryggja sér setu í 1. deild
en tapi þeir leiknum, þá verða
þeir að leika aukaleik við KFR
og fellur það lið niður í 2. deild,
sem tapar þeim leik. Verður þessi
leikur vafalaust ekki síður spetnn
andi en leikur ÍR og KR því
Stúdeniar hyggja á framtíðar-
setu í 1. deild.
Á undan þessum tveimur leikj
um er leikur í 3. aldursflokki
milli Skallagríms frá Borgarnesi,
og Þórs frá Akureyri og leika
þau til úrslita í þessum flokki.
Leikur ÍS og Ármann hafst
kl. 20.00, en lieikuir ÍR og KR um
klukkan 21.15.