Morgunblaðið - 16.04.1969, Blaðsíða 15
MORGUIN’BLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1&69
15
Ásmundur Brekkan yfirlæknir Röntgendeilðar skýrir frá notkun hins nýja tækis. Ljósm Sv.Þ.
í&v, < ' " .4
Afhentu Borgarsjúkra-
húsinu myndsegulband
Evrópuþing Kiwanisfélaga hér í sumar
S.l. föstudiag afhentu félags-
menn úr Kivauiisklúbbnum
Kötlu Röntgendeild Borgarsjúkra
hússins myndseguflbamd að gjöf
við hátíðlega athöfn. Jón Sig-
urðsson borgarlæknir formaður
stjórnar sjúkrahússins þakkaði
gjöfina, en Ásmundur Brekkan
yfiriæknir Röntgendeildar sýndi
hið nýja tæki og skýrði mikil-
væga þýðingu þess. Við þetta
tækifæri töluðu einndg Harald-
ur Dungal núv. forseti Kötlu og
Páll H. Pálsson fyrsti forseti
klúbbsins.
Kom þar fram að aðal-mark-
mið Kiwanisklúbba er að rétta
hjálparhönd í sínu bæjarfélagi,
þar sem félagar telja hennar
vera mest þörf. Að þessu sinni
var ákveðið, í samráði við
lækna Röntgendeildar Borgar-
sjúkrahússins, að ráðast í kaup
á nýtízku myndsegulbandi, sem
er hið fyrsta sinnar tegundar
hér á landi. Tæki þetta er að
verðmæti kr: 350.000.00 en fé til
þessa var að mestu aflað með
sölu á sælgætispokum, sem eru
boðnir borgarbúum til kaups um
jólin og erum við í þakkarskuld
við alla þá, sem sýndu því máli
stuðning.
Kiwanisklúbburinn KATLA
var stofnaður árið 1965. í dag
eru 44 virkir félagar í klúbbn-
um.
Á undanförnum árum hefur
starfsemi KÖTLU einkum falizt
í því, að styrkja ýmsar mann-
úðarstofnanir og sjúkrahús með
fjárframlögum og tækjakaupum.
Við þetta tækifæri var einnig
skýrt frá því að hér á landi
yrði haldið Evrópumót Kiwanis
klúbba og verður mótið hér í
Reykjavík dagana 13.—15. júní í
sumair. Er gert ráð fyrir að þing
þetta sæki um 500—600 manns
frá 11 Evrópúlöndum.
Akureyrarbær tekur 3ja milljón
kr. lán vegna Slippstöðvarinnar
Þessa daga verður
mikið um dýrðir
á Króknum
Sauðárkróki 12. apríl — Hin
árlega Sæluvika Skagfirðinga
hófst á Sauðárkróki sunnudag-
inn 13.4. og lýkur næsta sunnu-
dag. Þetta er eina vika ársins
hjá Skagfirðingum, sem telur
átta daga. Félagsheimilið Bifröst
;Sér um framkvæmd vikunnar eins
og undanfarin ár.
Sæluvikan hófst með guðsþjón
usitu í Sauðárkrókskirkju, sókn
arpresturinn, séra Þórir Step-
hansen prédikar. Að venju var
fjölmargt til skemmtunar, Leik-
félag Sauðárkróks sýnir gaman
söngleikinn Allra meina bót eftir
Patrek og Pál með tónlist Jóns
Múla Árnasonar. Leikstjóri er
Kristján Skarphéðinsson. Verka
mannafélagið Fram sýndi revíu,
er nefnist Út í hött, karlakór-
inn Feykir og Samkór Sauðár-
króks söng og Sauðárkróks-
bíó sýndi fjölda úrvalskvik-
mynda al'la daga vikunnar. Dans
leikur var á þriðjudag, en
á fimmtudag verða gömlu dans-
arnir. Síðan verður dansað hvert
kvöld fram undir morgun vik-
una út. Hljómsveitin Flamingó
leikur.
Mánudagurinn var helgaður
yngri kynslóðinni, þá hélt
Gagnfræðaskóli Sauðárkróks fjöl
breytta skemmtun, þar sem m.a.
var sýndur sjónleikurinn: Happ-
ið eftir Pál J. Árdal. Leik-
félagið sýnir Allra meina bót
um kvöldið verður barna- og
unglingadansleikur. Að venju má
gera ráð fyrir að mikill fjöldi
fólks víða að sæki Sæluvikuna
og að þessa daga verði mikið
um dýrðir á Króknum.
— Jón.
íbúð óskast
4ra—6 herb. íbúð óskast til leigu 14. maí n.k. Helzt f Vestur-
bænum, (þó ekki skilyrði). -
Tilboð sendist afgr. blaðsins fyrir föstudagskvöld merkt:
„14. maí — 2713".
Húsgagnasmiðir
Óskum eftir að ráða húsgagnasmiði vana véla- og bekkvinnu.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Smíðastofa Jónasar Sólmundssonar
Sólvallagötu 48 R.
— Miklir greiðsluerfiðleikar fyrirtœkisins
Akureyri, 11. apríl.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar kom
saman til aukafundar í dag til
að fjalla um lánstilboð Avinnu-
málanefndar ríkisins til bæjar-
sjóðs vegna rekstrarörðugleika
Slippstöðvarinnar h.f., sem fyrir
nokkru hafi sent nefndinni
beiðni um lánveitingu.
Svar nefndarinnar var á þá
leið að hún gæti samþykkt að
Akureyrarbær tæki lánið að upp
hæð 3 milljónir króna, en endur
lánaði það sifðan. Hins vegar
taldi hún sér ekki fært að lána
Slippstöðinni beint, þar sem
mjög væri gengið á höfuðstól
fyrirtækisins og eignir þess
væru að hennar dómi ekki leng-
ur veðhæfar, vegna mikilla
skulda.
Láni þessu er ætlað að vera al-
gjör bráðabirgðalausn á greiðslu
erfiðleikum Slippstöðvarinnar og
fleyta henni áfram meðan alls-
herjarath’.igun fer fram á fjár-
hagsstö'ðu hennar, en að dómi
kunnugra mun lónið ekki nægja
til skemmri tíma en sú atihugun
tekur. Jafntframt verður því að
leita annarra ráða til bjargar
Slippstöðin.ni sem er hið mesta
nauðsynjafyrirtæki og fjórði
hæsti kaupgreiðandi á Akureyri.
Orsök greiðsluerfiðleikanna er
einkum sú, að annar aðalþáttur-
inn í staríi stöðvarinnar, skipa-
viðgerðir hefur nær alveg brugð
izt í langan tíma, fyrsit vegna
uppsetningar nýju dráttarbraut-
arinnar, en síðan vegna verk-
efnaskorts. Áhvílandi lán eru
yfirleitt til skamms tíma og með
háum vöxtum, svo að greiðslu-
birgðin er þung. Akureyrarbær
hefur gengið í ábyrgð fyrir lán-
um, serti nema 27 til 28 milljón-
um króna en auk þess skuldar
Slippstöðin bæjarsjóði og bæjar-
stofnunum einhverjar upphæð-
ir.
Tveir menn unnu fyrir nokkru
að athugun á reikningum Slipp-
stöðvarinnar h.f. 1967 og bráða-
birgðarreikningum 1968, en
skýrsla þeirra er ókomin enn.
Hún getur þó ekki talizt nein
rannsókn á fjár'hagsstöðu fyrir-
tækisins. Bjarni Einarsson bæjar
stjóri gat þess m.a. í framsögu-
ræðu sinni á bæjarstjórnarfund-
inum í dag, að mat á eignum
’Slippstöðvarinnar væri frá því
í apríl 1968, en við endurmat
'vegna verðhækkana síðan gæti
veðhæfi eignanna aukizt mikið.
En þar að auki þyrfti eigið fé
Slippstöðvarinnar að aukast að
’mun, svo að hún gæti staðið
traustum fótum.
Auk bæjarstjóra tóku til máls
IngóLfur Árnason, Sigur'ður Óli
Brynjólfsson, Haukur Árnason
bg Stefán Reykjalín. Tveir hinir
síðastnefndu töldu rétt að frek-
ari atihugun færi fram á því,
hvort ekki fyndist víðtækari og
heppilegri lausn á fjárhagsvanda
fyrirtækisins en fyrrgreind lán-
taka og hvort Slippstöðin sjálf
gæti ekki fengið rekstarlán
beint án milligöngu bæjarins.
Tillaga þess efnis var felld með
7 atkvæðum gegn 4, en síðan
samiþykkt eftirfarandi tillaga frá
bæjarstjóra:
„Bæjarstjórn Akureyrar lýsir
óánægju sinni með þá starfsað-
ferð, sem fram kemur í tilboði
'Atvinnumáianefndar ríkisins, en
samþykkir með tilliti til að-
stæðna að taka tiiboð nefndar-
innar.“
— Sv. P.
Ms. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
18. þ.m. Vörumóttaka í dag til
Hornafjarðar, Djúpavogs, Breið-
dalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Reyðarfj., Eski-
fjarðar, Norðfjarðar og Seyðis-
fjarðar.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Týr - F.U.S.
efnir til kynnisferðar á Keflavíkurflugvöll laugardaginn 19. april
kl. 15.00.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í ferð þessari hafi sam-
band í síma 40708 í Sjálfstæðishúsinu Kópavogf milli kl. 20
og 22 miðvikudagskvöld.
STJÓRNIN.
Einbýlishús til leigu
EINBÝLISHÚS, 130 ferm ásamt bílskúr, er til leigu í Kópa-
vogi frá 1. júní.
Nánari upplýsingar í síma 40848.
Skipstjóri
Vanan sildarskipstjóra vantar á nýlegt 300 tonna sildarskip,
sem mun stunda síldveiðar fyrir Norður- og Austurlandi í sumar.
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 20. þ.m. merkt „Síldarskip-
stjóri — 2676".
Frnnskir góbelíndúkor
vírofnir, fóðraðir í 8 stærðum.
Fást aðeins í Reykjavik hjá okkur .
Skoðið hið glæsilega úrval af alls konar gjafavörum.
til tækifærisgjafa.
GJAFABÚÐ, Skólavörðustíg 8.
DÝRFIRÐINGAFÉLAGIÐ
Dýrfirðingar
Síðasta skemmtikvöld vetrarins verðuc haldið í Domus Medica
föstudaginn 18. april kl. 21.00.
Skemmtiatriði — Dans.
Dýrfirðingar fjölmennum og tökum með okkur gesti.
STJÓRN OG SKEMMTINEFND.