Morgunblaðið - 16.04.1969, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.04.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1969 19 — Varahluia- og Framhald af bls. 11 kr. 100.—, þótt við verðum að kaupa hann næsta dag eða skömmu síðar á kr. 200.—. Þetta stríðir auðvitáð gegn heil brigðri skynsemi. Hverjum dett ur t.d. í hug að selja gamla íbúð, bíl eða annað á upprunalegu verði, þegar verð þess, sem kaupa skal í staðinn, hefur stór- hækkað og jafnvel margfaldast? Vitaskuld engum; enda er þetta fullkomlega löglegt, þegar ein- staklingar eiga í hlut, þótt verzl- uninni sé bannað að bjanga sér á sama hátt. Ég spyr því aftur: Hvar á að taka það fé, sem þarf til að við- halda varahlutabirgðum, þegar svona er í pottinn búið? Ekki af álagningunni, því að hún hrekk ur ekki fyrir þeim mikla kostn- aði, sem er við innkaup, geymslu og dreifingu varahluta, sem geta skipt tugum eða hundruðum í hverja einstaka gerð tækis eða vélar. Sannleikurinn er nefni- lega sá, að varahluta- og við- gerðaþjónusta hefur löngum ver ið baggi á flestum fyrirtækjum, borinn uppi af hagnaði af öðrum liðum starfseminnar. En nú er ekki á slíkan hagnað að treysta. En er þá ekki verið að fórna hagsmunum fárra fyrir hags- muni fjöldans á erfiðum tímum? Það er fullkomin fjarstæða að halda slíku fram. Það lýsir al- gerri vanþekkingu eða áfoyrgðar lausu lýðskrumi. Hér tapa allir, ekki síður neytendur, sem eiga hér raunar mestra hagsmuna að gæta. Eins og nú horfir, má búast við, að fyrirtækin neyðist til að minnka varahlutabirgðir sínar um helming, eins og raunar bú- og vinnuvélainnflytjendur hafa þegar auglýst í blöðuim. Hlýtur það að hafa í för með sér stór- kostlega röskun á allri viðgerða þjónustu, vegna biðtíma eftir sér pöntuðum varahlutum. Það rýr ir og stórkostlega gildi þeirra varahlutabirgða, sem fyrirliggj andi kunna að vera, því að ef til viðgerðar þarf fed. 3 hiuti, nœgir ekki að 2 séu til, og liggja þeir þvi ónothæfir, þangað til sá þriðji kemur. Þessir sérpöntuðu varahlutir yrðu einnig dýrari, m. a. vegna tiltölulega hærra flutn ingsgjalds á smárendingum, svo ekki sé talað um fluggjald. Einn ig er algengt, að sjálfur fram- leiðandinn afgreiði aðeins lág- marksmagn eftir langan af- greiðslufrest. Smásendingar til skjótrar afgreiðslu yrði því oft að panta frá smásölum eða öðr- um endurseljendum, jafnvel er- lendum umboðsmönnum fram- leiðandans, m.a. af samgöngu- ástæðum. F.o.b. verð slíkra sér- pantaðra varahluta yrði og mikl um mun hærra, því auðvitað þurfa þessir erlendu milliliðir sína álagningu. Þetta sýnir, hvernig útkoman vill verða, þegar hindraður er eðlilegur gangur mála: Hér tapa þeir mestu, sem ætlunin er að vernda. þ.e. neytendurnir. Þeir fá sem sé lélegri þjónustu, sem þeir þó verða að greiða hærra verði. Og álagning, sem innlendum aðil- am er neitað um, rennur til er- lendra. Að lokum þetta: Það er ekki hægt að halda uppi viðihlítandi varahluta/þjónustu með 33% á- lagningu á þá almennt, þegar hver vinnumínúta þjálfaðs starfs manns kostar um eða yfir tvær krónur og haft er í huga, hve öll meðferð varahluta er tímafrei* ■ birgðaeftirlit,, samantekt pant- ana, vélritun þeirra, greining í fjölda tollflokka, verðútreikning ur á mörgum eyðublöðum eftir tollflokkum, móttaka og röðun í hirzlur, afgreiðsla, oft mjög sein leg, reikningsskrift og inn- heimta. Þá er auðvitað ótalin hlutdeild í húsnæði og öðrum fastakostnaði fyrirtækja, sem of langt yrði upp að telja. Gott skipulag varahlutabirgða krefst og mjög dýrra hirzlna, gera þarf ráð fyrir vöxtum af því fjár- magni, sem bundið er í tiltölu- lega miklum birgðum, miðað við veltu, auk þess sem erfitt er að komast hjá því, að nokkur hluti birgðanna liggi að lokum verð- laus, þegar eftirspurn eftir vara hlutum í einstakar gerðir véla og tækja linnir. Erlendis er álagning á vara- hluti miklu hærri en hér, stund um margföld. Þar er þjónustan hins vegar langoftast mjög full- koinin, enda almennt skilið og við urkennt, að góð og greið vara- hluta- og viðgerðaþjónusta er i eðli iínu alldýr, þótt margfalt dýrara sé að vera án hennar. Auðvitað skilja íslenzikir neyt- endur einnig þýðingu góðrar þjónustu og meta hana að verð leikum, á sama hátt og fólki er ljóst, hve misbrestur í þessum efnum er bagalegur og raunar oft til stórtjóns. Á þetta jafnt við um einstaklinga, atvinnurek endur og stofnanir, því ailir þess ir aðilar nota margvísleg tæki og vélar. Það er því vægast sagt undar- legt, að til skuli vera öfl, sem telja hag umbjóðenda sinna vera vel borgið eða eiga sér vísar þakk ir þeirra, með því að skammta verzluninni svo naumt í þessum efnum, að enga hliðstæðu á sér í nágrannalöndunum. Vonandi átta ráðandi öfl sig á því, að mikið uppbyggingarstarf á sviði varahluta- og viðgerða- þjónustu, sjálfsagt og þjóðhags- lega hagkvæmt, hefur þegar beð ið hnekki, og getur hæglega hrun ið, ef ekki er að gert STRAX. Með hliðsjón aif framansögðu og reynslu nágrannaþjóðanna er ég því sannfærður um, að al- mennt verzlunarfrelsi, frjáls sam keppni kaupmanna innbyrðis og annarra rekstrarformá, ásamt dómgreind almennings, er sú lausn, sem tryggir neytendum sanngjarnt verð og lanigbezta þjónustu, og þekki satt að segja ekki aðra færa leið í þessum efnum. - MINNING Framhald af bls. 22 Ástráður Helgfell búsettur í Eg- ilsstaðakauptúni. Barna og ba rn abarnabar na - börnin eru nú fjörutíu og tvö, óllum þeim reyndist hún um- hyggjusöm og elskuleg amma og liaragamma, geyma þau öll hug- ljúfar minninigar um hana. Tvö systkin hennar eru á lífi vestur í Helgafellssveit, þau Þor steinn sem dvelst hjá fóstursyni sínum að Kóngsbakka og Guð- rún húsmóðir að Svelgsá, bæði í hárri elli. Þegar þau Ásthildur og Magn ús brugðu búi settust þau um kyrrt hjá Jónasi syni sínum er tók við búinu að Uppsölum. Þar höfðu þau unað bezt, þar höfðu draumar þeirra ræzt og þaðan Ásthildur átti hin síðari árin við erfiðain og þrálátan sjúkdóm að stríða, svo hún vairð að segja má stöðugt að vera undir læknis- hengi, en bæði var að hún vildi ekki frá Uppsölum fara og hitt að maður hentjar, sonur og tengda dóttir lögðust öll á eitt með að hugsa um hana og hjúkra svo að til fyrirmyndar var. Það var heldui ekki erfitt að geona henni til hæfis, hún var svo lítillát og ljúf. Sjúkdóm sinn bar hún með stakri þolinmæði og hugprýði en þar kom þó að heilsan var orðin það bág og sjónin það döp ur að ekki þótti lengur hægt að veita henni þá umönnum og hjúkrun í heimahúsi, sem henni var nauðsynleg. Því var það þrautalendingin að dvelja síð- lustu stundimar á sjúkradeild Elli og hjúkrunairheimilisins Grundsir í Reykjavík. Það var ástvinum hennar þung raun að verða að sjá á eftir henni þangað, að geta ekki haft hana hjá sér síðuistu dagana. Á Grund varð hún fyrir því slysi að detta og lærbrotna, það ofan á aillt annað varð heilsu hennar ofviða og eftir mánaðar legu á LandakotsspítaLa lést hún. Það var þungur og erfiður mán urður en hún bar kross sinn með sannri prýði og hetjulund, vitandi að hverju stefndi. Með Ásthildi er hnigin í val- inn merk sæmdarkona sem skildi eftir sig mikið ævistarf. Hún er formóðir mikils og traust ætt- stofns í landinu sem bera mun svipmót hennar um aldir, þjóð- inni til 'heilla. Ég kveð þig rneð þökk og virð ingu kæra tengdamóðir mín. Blessuð veri minning þín. Kristján M. Jónsson. - ÖLFRUMVARP Framhald af bls. 14 áfengisvarnarráðs. Sagði Lúðvík að tillögur þessar væru sam- hljóða tillögum er komið hefðu frá milliþinganefnd er fjallaði um áfengiislöggjöfina. Mætti telj- ast eðlilegt að veitingahúsunum væri gert að halda uppi þessari þjónustu fyrir ungmenni. Pétur Sigurðsson gerði grein fyrir tillögu er hann flytur ásamt Jóni Skaftasyni, Matthíasi Bjarnasyni, Steingrími Páls- syni og Birni Pálssyni, þess efn- is að leyft verði að brugga öl til sölu innanlands og útflutnings, sem hafi inni að ha'lda allt að 4% af vínanda að rúmmáli. Skal fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta ákvæði 1970. Sagði Pétur að fordæmi væri fyrir slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu um atriði áfengislöggjafarinnar og í sumum tilfellum væri beinlínis svo fyrir mælt að almennar at- kvæðagreiðslur færu fram t.d. um hvort leyfa skyldi áfengisút- sölur eða banna í einstökum bæjarfélögum. Sigurvin Einarsson flutti breytingartillögu við breytingar- tillögu allsherjarnefndar og lagði til að grein sú er fjallaði um vínveitingarhúsin yrði felld niður. Sagði Sigurvin það óeðli- legt, að vínveitingarhús yrði á þeim stöðum þar sem fólk hefði samþykkt með almennari at- kvæðagreiðslu að ekki skyldi vera áfengisútsala. Þyrftu veit* mgahúsaeigendur á þessum stöð um aðeins að hafa menn sér hlið holla í meirihluta bæjarstjórnar til þess að geta selt áfengi í hús- um sínum. Þá ræddi Sigurvin einnig um til'lögu Péturs Sigurðssonar og fl. um bruggun áfengs öls. Sagði hann að reynsla Norðurlanda- þjóðanna væri mjög slæm af áfengu öli og vitnaði hann í rit- gerð er Alfreð Gíslason læknir hefur tekið saman um það mál, svo og grein sem komin var frá áfengisvarnarráði í Svíþjóð. Kom þar fram að drykkjuskap- ur, einkum ungmenna, hefur vaxið mjög mikið á Norðurlönd- um við aukið frjálsræði í sölu áfengs öls. Skúli Guðmundsson taldi til- lögu fimmmenninganna sprottna af minnimáttarkennd sem þeir hefðu vegna vaxtarlags síns. Teldu þeir fínt að Ihafa bjór- vömb. Miklu hagkvæmara væri að senda þá til sumardvalar á ölkrær Kaupmannahafnar en að iamþykkja tillögur þeirra. Jón Skaftason sagðist þekkja af eigin raun málflutning manna í eldri deild Framsóknarflokks- ins. Þeir gæfu sér forsendur og fjölluðu um mál út frá þeþn. Sagði Jón að upplýsingar þær sem Sigurvin hefði vitnað til væru mjög villandi. Sjálfur vitn aði Jón í blaðið Nordisk Kon- takt sem gefið er út af opinber- um aðilum, og kom fram í því að áfengisneyzla í Sví'þjóð hefði minnkað um 4,4% á síðasta ári, og var það talið mest að þakka að menn drykkju minna en áð- ur brennda drykki. Sagði Jón að tillagan um bruggun öls hérlend- is væri flutt af þeirri einu ástæðu að það væú trú flutningsmanna hennar að með sölu á áfengu öli mundi fljótlega batna það slæma ástand sem ríkti í áfengismálum á Islandi. ÞETTA GERÐIST í JANÚAR VEÐUR OG FÆRÐ. Stórviðri með 13 vindstigum í Vestmannaeyjum. Hús fýkur (5). ísrastir teygja sig í átt að Horni (7). Stórviðri gengur um allt land (16). Dregur úr veðurhæðinni. Krap veldur vaxandi erfiðleikum við Sogsvirkjun (17). Innanlandsflug hafið aftur eftir óveðrið (18). ís við Straumnes (19). ís lokar höfninni í Stykkishólmi (21). Jökulsá á Fjöllum stíflast og flæðir yfir bakka sína (21). Klakastífla í Markarfljóti (23). ÚTGERÐIN. Heildarafli landsmanna um 554 þús. lestir 1968, en var 1240 þús. lestir 1966 (3). Heimir SU 100 fær fyrstu síld árs- ins fyrir austan (9). Stórar síldartorfur 250 mílur austur af landínu (12). Rækjuaflinn á Vestfjörðum sl. haust 990 lestir (15). Skipverjar á Erni RE 1 farnir aftur utan (16). Borgarstjórn Reykjavíkur samþykk ir að togararnir landi sem oftast heima (17). Saltfiskframleiðslan jókst um 70% árið 1968 (25). Bolungarvíkurbátur veiðir hörpu- disk til vinnslu (29). FRAMK VÆMDIR. 286 stiga heitt vatn mælist í bor- holu á Reykjanesi (3). Aða'áfangi 1 i éiðholtsframkvæmda boðinn út (3). Skipastóll landsmanna 144.621 brÚLtóiúmiest um áramót (7). Vélakostur keyptur í skóggerð á Egilsstöðum (8). Álframleiðsla hefst 1. apríl í tilrauna skyni (8). Eimskip semur um smíði tveggja skipa í Danmö-ku (9). Landhelgisgæzlan fær tvo flugbáta af Grumman-Albatrosgerð 10, 11). Niðursuðuverksmiður að hefja störf eftir nokkra töf (10). Húsbyggingar í Reykjavík 627.925 rúmmetrar s.l. ár (12). Áformað að tvöfalda framleiðslugetu kísilgúrverksmiðjunnar (12). Unnið að gerð skautahallir í Reykja vík (16). Skagstrendingar kaupa bát og reisa frystihús (18). Fáskrúðsfirðingar kaupa tvo nýja báta (22). BÚR leitar tilboða í einn til tvo skuttogara (29). Áformuð bygging nýrrar sútunar- og prjónaverksmiðju á Sauðárkróki (29). FÉLAGSMÁL. Bætur atvinnuleysistrygginga hækk aður verulega með bráðabirgðalög- um (3). Ingibjörg Björnsdóttir kosin for- maður Félags ísl. listdansara (4). Klemenz Jónsson kosinn formaður Félags ísl. leikara (4). Á 7. hundrað atvinnulausir í Reykja vík (5). Deilur milli læknanna á Húsavík (8). Bandalag íslendinga í Suður-Þýzka- landi stofnað. Sigurður Dagbjartsson kjörinn formaður (14). Þorvaldur Garðar Kristjánsson end- uikjörinn formaður Lögfræðingafé- lags íslands (14). 962 skráðir atvinnulausir í Reykja- vik (16). Verkfall vélstjóra kemur til fram- kvæmda (16). Guðjón Sv. Sigurðsson endurkjör- ínn formaður Iðju í Reykjavik (17). Samkomulag um að 300 millj. kr renni til atvinnuaukningar (18, 19). Frú Teng Gee Sigurðsson opnar lát- bragðsskóla (18). Jón Ásgeirsson kosinn fcrmaður Tónskáldafélags íslands (21). Verkfall sjómanna hefst víðsvegar um land (21). Guðmundur H. Oddsson endurkjör- inn formaður Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins öldunnar (22). Atvinnumálanefnd ríkisins stofnuð (22). Ragnar Meinander frá Finnlandi kosinn formaður stjórnar Norræna hússins (22). Umferðamálaráð stofnað, er H- nefndin hættir störfum (26). Atvinnumálanefnd ríkisins á fund- um (28). Hafísráðstefna haldin í Reykjavík (28.—31.). Leikfélag Sauðárkróks segir sig úr Ðandalagi ísl. leikfélaga (31). MENN OG MÁLEFNI. Ingólfur Þorsteinsson skipaður yfir- lögregluþjónn rannsóknarlögreglunn- ar (3). Kristján frá Djúpalæk, Indriði G. Þorsteinsson og Thor Vilhjálmsson hljóta styrki úr Rithöfundasjóði Rík- isútvarpsins (3). Magnús Árnason, veitingamaður, ráðinn veitingastjóri í Hafnarbúðum. Einar Eiríksson, læknir, ver doktors ritgerð við háskólann í Lundi (9). Sverrir Magnússon, fyrrv. framkv- stj. Iceland Products, stefnir sex bankastjórum og tveimur ráðherrum (11). Minningarsjóður til styrktar björg- unarsveitum stofnaður af Helga Th. Bruun (11). Gylfi Gröndal ráðinn ritstjóri „Úr- v<i;s“ (17). Mayo A. Hadden, aðmíráll, tekur við yfirstjórn varnarliðsins á Kefla- vikurflugvelli (17). Guðjón Guðnason skipaður yfirlækn ir Fæðingarheimilis Reykjavíkur (17). Frú Else Mia Sigurðsson ráðin bóka- vörður Norræna hússins (18). LM plata Hljóma valin „hljómplata ársins 1968“ (19). Halldór Laxness hlýtur Silfurhest- inn (19, 21). Bernard Newton, skipstjóri á brezka togaranum Brandi, náðaður (19). Plastfilmutæki Jóns Þórðarsonar vekur heimsathygli (22). Jón Laxdal, leikari, getur sér mik- inn orðstír erlendis (23). Geir Hallsteinsson, FH, kosinn Jþróttamaður ársins" (25). Dr. Borek Zofka, framkv.stj. Al- þjóðlegu hjarta- og æðaverndarsam- takanna í heimsókn (29). Guðmundur Guðmundsson ráðinn sparisjóðsstjóri í Hafnarfirði (30). BÓKMENNTIR OG LISTIR. Jóhannes Geir, listmálari, tekur páu í norrænni samsýningu á Charlotten borg (7). Kentner og Foster leika með Sin- fóníuhljómsveitinni (9). Fálkinn h.f. gefur út hljómplötu með Gullna hliðinu (11). Leiksmiðjan sýnir Galdra-Loft, eft- ír Jóhann Sigurjónsson (15). Ljóð Snorra Hjartarsonar gefin út í norskri þýðingu (15). Ölöf Pálsdóttir, myndhöggvari, sýnir með „Lille gruppe" í Kaupmanna- höfn og hlýtur frábæra dóma (16. 29). Árni Egilsson, bassaleikari, hlýtur lof í Sviss og Bandaríkjunum (17). Lee Luvisi frá Bandaríkjunum leik- ur einleik með Sinfóníuhljómsveit- innt (18). Elín Karitas Thorarensen heldur n.álverkasýningu (19). Leikfé^ag Reyk.javíkur sýnir Orfeus og Evrydís, eftir Jean Anouilh (21). Fjögur ung dönsk skáld lesa hér úr veikum sinum (23, 25). Ljóð eftir Einar Braga í franskrl pýðingu (25). Þjóðleikhúsið sýnir Candidu, eftir Bernard Shaw (28). Herranólt 1969: Bubbi kóngur (Ubu rji), eftir Alfred Jarry (30). SLYSFARIR OG SKAÐAR. Tugmilljónatjón er verksmiðjur Ið- unnar á Akureyri brenna (4, 5, 7). Sjö ára dren^ur bíður bana í bíl- slysi í Reykjavík (4). Miklar skemmdir á íbúð að Hverfis- ;.ötu 82 í bruna (4). Skriístofu- og birgðabygging Hochtief í Straumsvík brennur (14). Skemmdir á Gullfossi í brotsjó (14). Sumarbústaður brennur í ölfusi (15). Hundar leggjast á fé og drepa á Snæfellsnesi (16). Jón Pétursson, háseta, 46 ára, tekur út af togaranum Harðbak og drukkn- ar (17). ' Miklar skemmdir á Korpúlfsstöðum í bruna (21). Nokkrar skemmdir, er eldur kom upp í trésmíðaverkstæði Slippfélags- ins í Reykjavík (22). Verzlunarmaður fær hnifsstungu i brjóstið (24 , 25). 5 ára drengur bíður bana í umferð- arslysi á Akureyri (25). Vélbáturinn Sv'anur ÍS 214 ferst í róðri. Mannbjörg. (30, 31). Einar Ásgeir Þórðarson, 46 ára, tek- ur út af v/b Sæfara og drukknar (31). ÍÞRÓTTIR. K.S.Í. gefur 20 bikara til vetrar- keppni í knattspyrnu (11). Tékkar vinna íslendinga í tveimur leikjum í handknattleik, 21:17 (14) . og 13:12 (15). *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.