Morgunblaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 5
MORGUN’BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1969 Rannsakar skólakerfi Norðurlanda Spjallað við dr. Braga Jósepsson DR. Bragi Jósepsson hefur unnið að rannsóknum á skóla- löggjöf Norðurlanda ásamt 5 öðrum mönnum einum frá hverju hinna Norðurland- anna. H.efur hann staðið fyr- ir umræðufundum um þessi mái í höfuðborgum landanna og einmitt um þessar mundir eru slíkir fundir haldnir hér í Reykjavík. Bragi gerir þar að umtalsefni helztu atriði fræðslumálanna er varða yf- irstjórn þeirra og skólakerfið sjálft. Síðhn er valinn hópur lögfræðinga og skólamanna til þess að ræða einstök atriði og skýra lögin frá sögulegu, efnahagslegu, þjóðfélagslegu og stjórnarfarslegu sjónar- miði. Nýlega ræddi Mbl. við dr. Biraga Jósepsson um niður- stöður þessara funda, en rann sóknir hans eru gerðar fyrir styrk frá Western Kentucky University. Bragi sagði: — Megintilgangur þessara funda er að athuga á hvern hátt fræðslulögin í hverju landi urn sig móta dkólakerfið og hinn stjórnfræðilega grundvöll fræðslumála al- mennt. Umræðurna(r byggjast að mestu á einstökum fræðslu lögum, sem valin hafa verið í þesisum tilgangi. — Eins og ætla má eru skólakerfi Norðurlandanna í mörgu svipuð hvert öðru. Þegar fræðslulög þes'sara landa eru athuguð og slkýrð, kemur þó í ljós mjög veruleg- ur mismunur í einistökum atr- iðum. — f Noregi hefur t.d. verið lögð áiherzla á að sikapa aukin menntaskilyrði fyrir þann stóra hóp, sem hyggst ekki stunda akademiskt framhalds nám. Það kom greinilega fram í umræðunum að ein- hver milkilvægustu lög um norsk Skólamál eru lögin um skólarannsáknir frá 1954. Þesisi lög hafa virkáð sem eins konar „öryggistælki“ fyrir slkólákerfið, sem í eðli sínu er mjög íhaldssamt. Sjóvinnu- skólar og fisikiðnaðarskólar, sem stofnaðir hafa verið í Þrándhekni og víðar eiga upp runa sinn að rekja til þessara laga. Enda þótt sumir telji nonsku fræðslulögin tiltölu- lega rúrð, þá er greinilegt að umrætt svigrúm gefur ekki tilefni til verulegrar aðlögun- ar að breyttum aðstæðum. — Skólákerfi og skólalög- gjöf Finna er að mörgu leyti frábrugðin því, sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Finnar hafa nú nýlega sam- þykkt ný skólalög, sem ganga í gildi 1. ágúst 1970. Stefnan gagnvart æðri menntun hef- ur greinilega breytzt. Þegar litið er á þróun slkólamála frá því fyrir aldamót, er athyglis vert að virða fyrir sér hinn upprunalega tilgang gagn- fræðamenntunar. Með auk- inni þeklkingu varð barna- fræðslan ekki talin nægileg menntun fyrir hinn almenna borgara. Lágmanksnám færð- ist því upp, og fyrir no’klkmm árum varð svo gagnifræða- menntunin slkoðuð sem hæfi- leg lágmahksmenntun fyrir Dr. Bragi Jósepsson almenning. Þannig má segja að grundvöllurinn fyrir gagn- fræðastiginu hafi algerlega horfið og í Finnlandi er það nú svo, að gagnfræðastigið hefur orðið að beinni fram- lengingu á barnafræðslunni Framhald á bls. 8 VERÐLÆKKUN Kostar nú kr. 260.000 Vegna hagstæðra samninga við FÖ RD-verksmiðjurnar í Englandi getum við boðið yður Ford Cortina á kr. 260 þúsund. — Verð til öryrkja 790 Jbúsund kr. ATH.: Lækkun þessi er timabundin — Gerið hagstæð bilakaup — Margs konar bilaskipti möguleg. UMBOÐIÐ SVEINN EGILSSON H.F. LAUGAVEG 105 SÍMI 22466 Umboðsmenn úti á landi: Bílasala Akraness: Bergur Arnbjörnsson. Vestmannaeyjar: Sigurgeir Jónasson. ísafjarðarsýsla: Bernódus Halldórsson, Bolungavík. Siglufjörður: Gestur Fanndal. Frímerkjovél - skjoloskápur Notuð frírnerkjavél og eldtraustur skjalaskápur óskast til kaups. Tilboð ásamt upptýsingum um tegund og verð óskast send á afgreiðslu Morgunblaðsins i síðasta lagi fyrir hádegi 25. júní n.k., merkt: „8422-'. ‘ SKRIFSTOFUMENN KYRRSETUMENN Þessi undraverði árangur er eftir fyrstu 2 mánuði BULLWORKER þjálfunar (aðeins 5 mínútur á dag) Bullworker Þessar 2 Ijósmyndir af skrif- stofumanni, voru teknar með 2ja mánaða millibili. Sú neðri áður en hann byrjaði að nota BULLWORKER 2, sú efri eftir 2ja mánaða notkun (aðeins 5 mín. á dag). Á þessum stutta tíma jókst axlamál hans t.d. um 7 sm. og brjóstmál um 8yz sm. Ef þér aðgætið myndirnar, sjáið þér hvernig BULLWORK- ER 2 þjálfunin hefur stælt líkamann og gætt vöðva hans lífi. Líkamsþjálfunartækið BULL WORKER 2 hefur náð vinræld- um almennings í öllum aldurs- flokkum. l»að telst til aðalkosta tækis- ins, að það hentar fólki, sem i hefur lítinn tíma til íþrótta- og leikfimisiðkana vegna annríkis, og það hefur jafnframt vakið verð- skuldaða hrifningu þeirra, sem höfðu gefizt upp á öllu öðru en að láta reka á reiðanum og héldu sig alls óhæfa til að ná nokkrum árangri I líkamsækt. Æf-\ ingarnar eru ekki einung- is ótímafrekar — tækið vekur líka furðu manna vegna þess live lítillar á- reynslu æfingaiðkanir með því krefjast, og hve árang- ur af þeim er samt skjótur og óvefengjanlegur. Rann- sóknir hafa sannað að með 60% orkubeitingu næst 4% vöðvastæling á viku hverri þar til hámarkslíkamsorku er náð og á þetta jafnt við um vöðvastælta sem vöðva rýra líkami. Við sendum ókeypis nán ari upplýsingar um Bull- worker, þér þurfið aðeins að fylla út miðann hér að neðan og senda okkur. BULLWORKER UMBOÐIÐ Pósthólf 69 - Kópavogl. Vinsamlegast sendið* mér lltmyndabœkiing yðar um BULLWORKER 2 mór að kostnaðarlausu og án skuld- bindinga frá minnl hálfu. Nafn Heimilisfang Skrifið með prentstdfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.