Morgunblaðið - 06.07.1969, Síða 4
MORG-UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6 JÚLÍ 1960
fVIAGrMÚSAR
4KiPHom21 simar21190
eftir lokun »lml 40381
BÍLALEIGANFALURHF
carrental service ©
22-0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
1-44-44
Hverfiseötu 103.
Simi eftlr lokun 3110«.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
Steypustöðin
41480-41481
VERK
0 Velvakandi hcfur spurt
Á forsíðú Þjóðvilians í fyrra-
dag birtist með þessari fyrirsögn
svohljóðandi athugasemd við skrif
Velvakanda sl. miðvikudag:
„Síðla á ferð og harla óvenju-
legar eru þær spumir sem Vel-
vakandi Morgunblaðsins hefur af
einum alræmdustu fangabúðum
nazista á stríðsárunum, kvenna-
fangabúðunum í Ravensbruck.
Vitnar Morgunblaðið í frétt Þjóð
viljans um för íslendinga á Eystra
saltsvikuna og segir:
...... Þá er ennfremur I frétt-
inni þessi setning: „Á miðviku-
deginum geta konurnar skoðað
kvennafangabúðirnar í Ravens
burg (sic) . . . “ — Nú hefur Vel
vakandi að vísu spurt, að þessar
kvennafangabúðir séu til fyrir-
myndar og aðbúnaður kvenfang-
anna þar með ágætum. Kann það
og að vera ástæðan til þess að sér
stök áherzla er lögð á að sýna
þær norrænu konunum. . . . “
Má reyndar vel vera, að þeir
Morgunblaðsmenn telji aðbúnað-
inn í fangabúðum nazista forð-
um til fyrirmyndar, en rétt er að
upplýsa þá um að nú eru engir
fangar lengur hvorki í Ravens-
bruck, Buchenwald né öðrum
fangabúðum frá tímum nazista;
hins vegar standa þessi fangelsi
enn sem víti til vamaðar opin
þeim sem skoða vilja.“
0 Villzt á kvennafang-
elsum
Velvakandi biður Þjóðviljann
einlögrar afsökunar á því að hann
skyldi villast á kvennafangelsum
í kommúnistalöndunum og hinu
illræmda fangelsi nazista. Hefur
hann ekki annað sér til máls-
bóta en það, að í frétt Þjóðvilj-
ans stóð skýrum stöfum „Ravens-
burg“, en ekki „Ravensbruck“.
sem nú er upplýst að förinni er
heitið til. Velvakandi áleit því
af sjálfsögðu að „kvennafanga-
búðirnar í Ravensburg" væru í
hópi þeirra fjölmörgu kvenfanga
búða, sem starfræktar eru í komm
únistalöndum. Ravensburg kom fyr
Lokað
mánudaginn 7. júlí vegna sumarleyfisferðar starfsfólks.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
íbúðir í smíðum
Vorum að fá til sölu 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir að
Dvergabakka 6 og 8.
Ibúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk og málningu, ásamt
frágenginni sameign.
Ibuðir þessar verða tilbúnar til afhendingar fyrri hluta næsta
árs.
FASTEIGNASALAN HATÚNI 4A.
Símar 21817, 20998.
Kvöldsimi 38745.
ir sjónir sem eðlilegt þýzkt nafn,
sem það líka er, en upplýst skal
nú, að borg með þessu heiti er
í Vestur-Þýzkalandi.
Þá biður Velvakandi Þjóðvilj-
ann einnig veivirðingar á því, að
hann skyldi láta á þrykk út ganga
það sem hann hafði spurt, að að-
búnaður kvenfanga í tilteknu
kommúnisku kvennafangelsi væri
með ágætum. Hitt mun víst öllu
algengara, að góðum aðbúnaði sé
ekki til að dreifa £ þeim stofnun-
um.
0 Píningartækin flutt inn
frá Þýzkalandi Hitlers
Þjóðviljinn upplýsir, að nú séu
ekki lengur fangar í Ravens-
briick, Buchenwald, né öðrum
fangabúðum frá tímum nazista.
Það eru fréttir út af fyrir sig.
En hitt getur Velvakandi upplýst
Þjóðviljann um, að kvennafang-
elsi, sem lítið gefa eftir kvenna-
fangelsinu í Ravensbriick í tíð naz
ista hafa um langt skeið verið
starfrækt víða í kommúnistalönd-
unum. Kona, sem á annan áratug
sat í slíkum fangabúðum fyrir
það eitt að vera grunuð um að
vera ekki nógu einlægur komm-
únisti hefur lýst lífinu í fanga-
búðunum. Samfangi hennar, kona,
sem hafði þolað meðferð Gesta-
po, en flúði frá Þýzkalandi nazism
ans til þess eins að verða hneppt
í kommúniskar fangabúðir í Rúss
landi, sagði, er hún hlustaði
á kvalaóp samfanga sinna
að píningatækin væru flutt
inn frá Þýzkalandi Hitlers.
Það gefur því auga Xeið, að nóg er
að sýna íslenzku konunnm gömlu
fangabúðimar í Ravensbriick til
þess að þær geti gert sér grein
fyrir því sem gerzt hefur í fanga
búðum kommúnistaríkjanna að
undanförnu. Sjálfsagt skortir ekki
að leiðsögumennirnir i Ravens-
brUck gefi greinargóða lýsingu á
þeim pyntingum, sem kvenfang-
amir í Ravensbruck urðu að þola
en nazistar notuðu þær til ýmis-
legra tilrauna, sem kunnugt er.
0 Kefli hefur verið
stungið í munn hennar
Hér skal að lokum birtur stutt
ur kafli úr áminnztri bók, er lýs
ir stund í rússnesku kvennafang
elsi. Höfundur lýsir því sem hún
heyrir úr klefa sínum:
„Fótatak margra manna. Háv-
aði heyrist eins og líkami sé
dreginn eftir steingólfinu. Hálf-
kæft vein. Skyndilega brýzt fram
örvæntingaróp, sem yfirgnæfir allt
annað. Það helzt lengi í sömu
tónhæð, en þagnar snögglega.
Ljóst hvað er að gerast. Einn
af kvenföngunum hefur sýnt mót
spymu, er færa átti haná í hegn-
ingarklefann. Hún æpir aftur. Svo
þagnar hún skyndilega. Kefli hef
ur verið stungið í munn hennar".
Velvakandi vill að lokum end-
urtaka orð sín frá miðvikudeg-
inxrni var, að örlög kvenna í
kommúniskum fangabúðum megi
leita á hug íslenzku kvennanna,
er þær skoða kvennafangabúðir
nazista í Ravenbriick á mið-
vikudaginn kemur.
Iðnfyrirtœki
óskar að ráða konu til að sníða. Þarf helzt að vera vön.
Tilboð merkt: „336", sendist afgr. Morgunblaðsins.
ANTIQUE — húsgögn
Yfir 100 ára gömul húsgögn, skreytt tréskurðarmyndum, m. a.
úr Gamla testamentinu, eru til sölu af sérstökum ástæðum.
Sófi. borð, stólar og skápur, hvert um sig sérstætt listaverk.
Uppl. gefur Sigríður Johnsen, Laugavegi 82 (Barónsstígs-
megin), kl. 17—21 í dag og næstu daga.
að BEZT
er að
auglýsa í
Morgunblaðinu
V
KORATROn
KORATRON
KORATRON buxumar gara yðwr fmrl m8
yera yyi klæddur á farðologinn
Koð þorf aldrai o8 pre«o KORATRON - þótt
tendið i miijofnum v«8rum, þurfið ai þvo
bwxurnar, *ða gongið i þoim i langri Nma.
V
J
15 dagar á Spáni með eigin bíl kr. 11.500.—
(Söluskattur innifalinn)
TIL iTALÍU: Cattolica og Róm/Sorrento
um London — 17. og 31. ágúst.
TIL COSTA BRAVA: Lloret De Mar um
London — 20. júlí, 24. ágúst.
TIL BÚLGARiU: Gullna ströndin um
London — 12. september.
TIL COSTA DEL SOL: Torremolinos —
8. og 22. ágúst, 5. og 19. sept., 3. okt.
25% FJÖLSKYLDUAFSLATTUR.
Kynnizt heillandi fegurð Suður-Spánar á ferða- lega 4 stunda þægilegt þotuflug frá íslandi lend-
lagi með góðum félögum I eigin bil. Eftir rúm- ið þið í Malaga á miðri Sólarströnd Spánar, þar
sem nýr bíll bíður, og þið eruð frjáls eins og
- M fuglinn fljúgandi. Allt í kring eru fegurstu og
J V merkustu staðir Spánar, með suðræn ævintýr.
H Aðeins sæti ráðstöfunar. Brottfarardagar:
\ 8. og 22. ágúst, 5. og 19. september.
L ^ 1. flokks hótel eða glæsilegar nýtízku
M''1—^ _ lucuDNAQ^Hyjjjj íbúðir — einkabað, svalir — sundlaug
/ — og bezta baðströnd Spánar.
Ferðaskrifstofan
UTSYNARFERÐ ER URVALSFERB FYRIR VÆGT V™ÚTSÝN
COSTA DEL SOL - BEZTA BAÐSTRÖND EVRÓPU
Austurstræti 17.
Símar 20100, 23510.
NÝJUNG I SPÁNARFERÐUM