Morgunblaðið - 23.07.1969, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 106®
7
Undarleg sýning í SÚM
Kristján hjá einu verka sinna, scm hann ncfnir landslag —
Mánudaginn 21. júlí opnaði Krist
ján Guðmundsson sýningu á verk-
um sínum í Galleri SÚM, Vatnsstíg
3B. Hann sýnir að þessu sinni
skúlptúr, málverk og bækur: alls
12 verk, sem öll eru gerð á þessu
ári. Sýningin verður opin 1 þrjár
vikur frá kl. 4—10.
Kristján Guðmundsson er Reyk-
víkingur, fæddur 1941. Hann hefur
tekið þátt í nokkrum samsýning-
um og í fyrra átti hann þrjár
myndir á Ungdoms biennale í Hels
ingfors. Kristján hefur haldið eina
einkasýningu áður Hann er félagi
í SÚM og átti verk á síðustu sam-
sýningu SÚM í marz — apríl sl.
Boðun Fagnaðarerindisins
Samkoman að Hörgshlíð 12 fell-
ur niður í kvöld
Kristniboðssambandið
Tjaldsamkomum er lokið, en í
kvöld er almenn samkoma i kristni
boðshúsinu Betaníu kl. 8 30 Gunn-
ar Sigurjónsson guðfræðingur talar.
Allir velkomnir.
II jálpræðisherinn
Samkoma miðvikudagskvöld kl.
8.30 Reigar Molander talar og
sijóinar. Engin samkoma á fimmtu
dagskvöld.
Fjallagrasa- og kynningarfcrð
NLFR
Náttúrulækningaféiag Reykjavík-
ur efnir til þriggja daga ferðar að
Hveravöllum laugard. 2. ágúst kl.
10 frá matstofu félagsins, Kirkju-
stræti 8. Nauðsynlegt að hafa góð
an viðleguútbúnað, tjöld og mat.
Ferðagjald kr. 900, — Upplýsingar
í s. 16371 og 10263. Þátttaka tilk.
fyrir fimmtudagskvöld 31. júlí.
Húsmæðraorlof Köpavogs
Dvalizt verður að Laugum í Dala
sýslu 10.—20. ágúst. Skrifstofan verð
ur opin í Félagsheimilinu miðviku
daga og föstudaga frá 1. ágúst, kl.
3—5.
Verkakvennafélagið Framsókn
fer í sumarferðalagið föstudag-
inn 25. júlí. Komið aftur sunnu-
dagskvöldið 27. júlí. Farið verður
um Snæfellsnes og gist að Búðum.
Uppl. veittar á skrifstofu félags-
ins, Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
símar 20385 og 12931
Verð fjarverandi
til 5. ágúst. Séra Garðar Þor-
steinsson prófastur þjónar fyrir
fyrir mig á meðan. Séra Bragi
Friðriksson.
Kvæðamannafélagið Iðunn
fer sína árlegu sumarferð
26. júlí til Hveravalla. Lagt verður
af stað kl. 8.30 að morgni frá torg-
inu við Hallgrímskirkju. Ekið um
Selfoss og Hreppa. Sýndur verður
fæðingarstaður Fjalla-Eyvindar og
dvalarstaður hans í bernsku. öll
leiðin kynnt. Meðal leiðsögumanna
verður Helgi bóndi á Hrafnkels-
stöðum. Gist verður að Hveravöll-
um. Uppl. í símum 34240, 30112 og
42544
Óháði söfnuðurinn
Sumarferðalag Óháða safnaðar-
ins verður síðari hluta ágústmán-
aðar. Nánar auglýst síðar um fyr-
irkomulag fararinnar.
Leiðbeiningastöð húsmæðra
verður lokuð um óákveðinn
tíma vegna sumarleyfa. Skrifstofa
Kvenfélagasambands íslands er op
in áfram plla virka daga nema
laugardaga kl. 3—5, sími 12335.
liáteigskirkja
Daglegar kvöldbænir eru i kirkj-
unoi kl. 18.30. Séra Arngrímur
Jónsson.
Sjódýrasafnið í Hafnarfirði
Opið daglega kl. 10—10
Langholtsprestakali
Verð fjarverandi næstu vikur.
Sera Sigurður Haukur Guðjónsson.
ÆSKAN, 7.-8 tbl júlí — ágúst
1969 er nýkomið út og hefur ver-
ið sent blaðinu. Það er að venju
ákaflega fjölbreytt og virðist Grími
Engilberts ritstjóra einkanlega sýnt
um að velja efni blaðsins við hæfi
barna og unglinga. Af efni blaðs
ins má helzt nefna: Grein með
myndum um fegurðarsamkeppni
ungu kynslóðarinnar. Skógardísin,
ævintýri eftir H.C. Andersen. Villi
ferðalangur og fíllinn hans. Mál-
fræði, skemmtilegasta námsgrein-
in. Lóa litla landnemi, saga frá
Nýja íslandi eftir Þóru M. Stefáns
dóttur, með myndum eftir höfund-
inn. Jón Gauti leiðbeinir ungling-
um um smíði lítilla tréskipa. Jón
úr Vör á kvæðið: Ég vaknaði
snemma. Litlu ambáttirnar tvær,
saga frá Malaja eftir Hugh Cliff-
ord. Sagt frá barnastúlkunni Stjörn
unni á Akranesi. Happdrætti, ný
framhaldssagá. Sindbad sjómaður.
Tónlistarþáttur Ingibjargar. Tarz-
an apabróðir. Skákþáttur. För
Gullivers til Putalands. Þættir úr
sögu okkar undursamlegu veraldar.
Heimilisþáttur Þórunnar. Tunglið
og geimferðir. Ævintýri Stínu. Hvað
viltu verða? Kennari. íþróttaþátt-
ur Sigurðar. Norræna sundkeppnin
1969. Esperantó. Ekki fer allt sem
ætlað er, eftir Sigurð Ó. Jónsson
á Eskifirði. Frímerkjaþáttur Sig-
urðar. Flugmálaþáttur Arngríms.
Mary Hopkin segir frá. Fegurðar-
drotmingar. Spurningar og svör
með mörgum myndum. Myndasög
ur og ótaimargar myndir prýða
Æskuna, eins og venjulega. Stór-
stúka íslands gefur Æskunna út.
Framkvæmdastjóri er Kristján
Guðmundsson, en ritstjóri hennar
er Grímur Engilberts.
65 GRÁÐUR. tímaritið annað,
sem út er, gefið á ensku hér á
landi, maíheftið er nýkomið út, og
hefur verið sent Morgunblaðinu til
umsagnar og hér skal hún gefin
með gleði. því að margt er gott
við þetta tímarit. Á forsíðu er ei-
lítið sneitt að lækninum, sem skor
aði Bretadrottningu á hólm, og að
verðleikum.
Af efni ritsins má þetta tina til:
Lesendabréf, íslenzkur annáll eftir
Jón H. Magnússon, en Kristinn
Guðmundsson, fyrrum sendiherra
skrifar um sambúð íslands og Sov-
étrikjanna. Þá er grein eftir rit-
stjórann, Amaliu Lindal: A case in
point, og fjallar hún um hólmgöngu
áskorun Skúla augnlæknis til henn-
ar hátignar Elísabetar Englands-
drottningar.
Stefán Júlíusson skrifar grein-
ina: The Icelandic Authors' Dil-
emma. Listamaðurinn Baltasar
skrifar greinina An art style of
my own, og margar myndir prýða
þá grein. Næstu grein á Dr. Sturla
Friðriksson erfðafræðingur, og kall
ar hana The Importance of grass.
Ræðir Dr. Sturla í grein sinni um
hin ýmsu áhrif, sem grasvöxtur
hefur í íslenzku þjóðlífi, og jafn-
framt kemur fram í grein hans
áhrif uppblásturs og hver nauðsyn
er á aukinni landgræðslu. Dr. Finn-
ur Guðmundsson á þarna skemmti-
lega grein, sem heitir Bird Life
in Iceland. Getur Dr. Finnur flestra
þeirra fuglategunda, sem á íslandi
finnast, og margar myndir fylgja
ritgerð han.s Þá er greinin: An
American Psychiatrist Looks on Ice
land eftir David J. Vail, M.D. Ým-
islegt smáefni er og í ritinu. Eins
og áður segir er ritstjóri og útgef-
andi Amalia Líndal og eru rit-
stjórnarskrifstofur á Laugavegi 59
sími 18865.
Bókabíllinn
Miðvikudagur 23. júli:
Verzl. Herjólfur kl. 3.30-4.30,
Álftamýrarskóli kl. 5.30-7, Kron
við Stakkahlíð kl. 7.30-9.
vit> SKULUM NÚ NÍÓTA ÞESS Aö E«GA
SUMARFRÍ, OG GERA VÍ£ 6ÍLÍNN OKKAR /
Sjálfsþjónusta
Njötið sumarleyfisins. Geriö við bilinn sjálfir. Veitum
alla aðstöðu.
VIL KOMAST í bréfasamband við skelja- safnara og kuðungasafnara á NA landi (á 90 teg. af hvoru), með skipti i huga. Vigfús Andrésson, Ásaveg 2, Vestmannaeyjum. GET TEKIÐ BÖRN i GÆZLU á dagino frá 1 nóv., helzt á aldrinum 1—3ja ána. TH gr. kæmi að taka eitt ungt barn allan sólarhringinn. Tilb. ti'l Mbl. f. 29. jíHí m. „Laugarás- 1 hverfi 3505".
MÆÐUR Get tekið 3 börn yftr dagino, meðan dagheimifio eru iokuð. Er vön gæzlustörfum. Tek einnig börn um verzluna'rm.- helgina. Uppl. í síma 30242. rAðskona Embættismaður úti á landi óskair eftir ráðskonu. Ágætt húsnœði. Lítið he'tfnHi. TH við- tafs á City Hótel, Ránargötu 4 A, sími 18650.
2 MILLJÓNIR Kaupi viðskiptavíxla, tryggða víxla, veðskuldabréf og ríkis- tryggð bréf. Tilboð merkt „Samvinna 3508" sendist Mbl. strax. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu
mammammmmmmm? mmmmmmmmmm
Skrifsfofubúsnœði
Til leigu er 150 ferm. skrifstofuhúsnæðí á bezta stað
í Miðbænum. — Nánari upplýsingar veitir
BARMI BEINTEINSSON. HDL..
Austurstræti 17 — Símar 13536 og 17466.
Ungur maður
vel menntaður og algjör reglumaður, þaulvanur afgreiðslu-
störfum, talar bæði ensku og Norðurlandamálin óskar eftir
starfi í herrafataverzlun, bókaverzlun eða bókasafn.
Þeir sem vildu sinna þessu vinsamlega sendi tilboð til Morg-
unblaðsins fyrir 28. þessa mánaðar, merkt: „Reglusamur —
3506".
Verzlunarhúsnœði
Óskum eftir verzlunarhúsnæði til kaups eða leigu, um 150—
200 ferm. í eða við Miðbæinn.
Tilboð óskast send Mbl. merkt: „3507" fyrir 1. ágúst n.k.
Hef kaupanda að
3ja—4ra herb. íbúð í blokk, helzt á 1. eða 2. hæð.
Góð útborgun í boði.
FASTEIGNASALAN.
Óðinsgötu 4, sími 15605.