Morgunblaðið - 23.11.1969, Síða 17

Morgunblaðið - 23.11.1969, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NOV. 19&9 17 10 ára afmæli 10 ára afmælis ríkisstjómar- innar var rækilega minnst hér í blaðinu hinn 20. nóv. Þess vegna er ekki ástæða til að ritfja niú uipip eimstatear aithatfnir teruniair. Svo sem verða vill hief- ur henni misjafnlega til tekizt, enda dómamir um hana ærið misjafnir. Ekki verður þó um það deilt, að ólíkt betuir hefur flarið en andstæðingarnir sögðu fyrir. í upphafi var fullyrt, að hún stefndi að því, að hér yrðu „móðuharðindi af mannavöld- um“, eins og orðslyngasti stjórn arandstæðingur á Alþingi komst að orði. Raunin varð þvert á móti sú, að lengst af á þessu tímabili hafa orðið hér örari framfariir og meiri velgengni en nokkim sinni áður í sögu þjóð- arinnar. Sá geigvænlegi aftur- kippur, sem hófst fyrir tveim þremur árum, varð ekki af mannavöldum helduir af utanað- komandi ástæðum, íslendingum með öllu óviðráðanlegum. Þrátt fyrir hann hefur tekizt að halda hér mun betri lifskjörum en þjóðin átti við að búa áður en núverandi ríkisstjóm tók við Háhýsin í Laugardalnum séð frá stúku Laugardalshallarinnar. Reykjavíkurbréf ---—- Laugardagur 22. nóv. - völdum. Þá hefur með einarðleg- um aðgerðum að verulegu leyti lánast að ráða bug á örðugleik- unum, sem ýmsir óttuðust að leiða mundi til algers hruns. Það lýs- iir sér m.a. í því að í ár hefur verið safnað á ný ámóta miklum gjaldeyrisforða og í fyrra eydd- ist. Nænri lætur að þessi munur nemi 3 þúsund milljónum króna. Auðvitað hafa menn orðið að leggja að sór til að gera slíkt stórátak og fjarri fer, að allur vandi sé enn úr sögunni En ótvírætt hoirfir í rétta átt. Að- staðan eir nú öll önnur og miklu betri eu á horfðist, þó að enn verði að hafa fulla gát á til að spilla ekki því, sem áunnist hefur. „Settir til hliðar44 Stjómarsamvinna Sjálfstæðis- manna og Alþýðuflokks átti sér langan aðdraganda. Eram til árs ins 1959 hafði Eramsóknarflokk uirinn, vegna ranglátrar kjör- dæmaskipunar, verið í lykilað- stöðu í íslenzkum stjómmálum. Sjálfstæðismenn og Framsóknar menn störfuðu tveir saman í rík- isstjórn á árunum 1950—56. í því samstarfi gekk á ýmsu, enda gerðu Framsóknarmenn sig bera að stöðugum óheilindum. Loks slitu þeir samstarfinu á árinu 1956, einkum með þeim skýring- um, að hin mest aðkallandi mál væri ekki hægt að leysa með Sjálfstæðisflokknum. Ætl- un þeirra var sú að halda völd- um með Alþýðuflokknum einum, og var „hræðslubandalagið“ myndað í því skyni. Þrátt fyrir augljósa misnotkun á kjördæma- skipuninini hlaut þetta bandalag ekki nóg þingfylgi, og var þá vinstri stjómin mynduð með þátt töku kommúnista, þvert ofan í yfirlýsiinlgtair fyrir toosrminigar. Samlyndið innain vinstri stjórn- arinmar reyndist hins vegar svo bágborið allt frá upphafi, að skjótt varð ljóst, að hún var í rauninni óstarfhæf. Engu að síð- ur iafði hún við völd í liðlega 2 ár. Undir lokin kunni forsæt- isráðherra hennar, Hermann Jónasson, helzt að segja stjóm sinni það til ágætis, að henni hefði þó tekizt að setja Sjálf- stæðismenn til hliðar, eins og hann hældist um yfir á fundi á Hólmavík haustið 1958. „Ekki samstaða um nein úrræði“ Framsóknarmenn nutu þessar- ar ánægju þó ekki lengi, því að Hermann Jónasson kom hinn 4. des. 1958 á fund í Sameinuðu al- þingi og hélt þessa eftirminni- legu ræðu: „Herra forseti. Ég hef á rík- isráðsfundi í dag beðist lausn- ar fyrir mig og ráðuneyti mitt. Forseti íslands hefur beðið ráðuneytið að gegna störfum fyrst um sinn, og hafa ráðherr- ar að venju orðið við þeinri beiðni. Fyniir liá að (hinin 1. dles. átti að taka gildi ný kaupgreiðslu- vísitala, sem fól í sér 17 stiga hækkun. Til þess að koma í veg fyrir nýja verðbólguöldu, sem af þessu hlaut að rísa, óskaði ég þess við samráðhenra mína, að ríkisstj. beitti sér fyrir setn- ingu laga um flnestun á friam- kvsemd hinnar nýju vísitölu til loka mánaðariins, enda yrðu hin fyrrgreindu 17 vísitölustig þá gneidd eftir á fyrir desember, nema samkomulag yrði um ann- að. Leitað var umsagnar Alþýðu- sambandsþiings um lagasetningu þessa samkv. skilyrði, sem sett var fram um það í ríkisstj. Al- þýðusambandsþing neitaði fyrir sitt leyti beiðni minni um frest- un.. Boðaði ég þá ráðherrafund að morgni laugardags 29. nóv., en þar náðist ekki samkomulag um stuðning við frv. Af þessu leiddi að hin nýja kaupgreiðslu- vísitala kom til íramkvæmda um mánaðamótin, og ný verð- bólgualda er þar með skollin yfir Við þessu er svo því að bæta, að í ríkisstj. er ekki samstaða um nein úrræði í þessum mál- um, sem að mínu áliti geti stöðv- að hina háskalegu verðbólgu- þróun, sem verður óviðráðanleg, ef ekki næst samkomulag um þær raunhæfu ráðstaflanir, sem lýst var yfir að gera þyrfti, þegar efnahagsfrumvarp ríkisstj. var lagt fyrir Alþingi á s.l. vori.“ Mesta aflaár Til þess að meta þessa upp- gjöf rétt verður að hafa í huga að árið 1958 yar mesta afla og veltilár, sera ísleodinigar (höfðlu þanigtað til lilflaið. Enigu að síður, gafst ríkisstjórnin upp mieð þessum hætti og flýði flrá vandanum. Það er rétt, að öðr- um ríkisstjómum síðasta aldar- fjórðung hefur ekki heldur tek- izt að leysa verðbólguvandann. En hvorki fyrr né síðar hefur verðbólguþróunin leitt til slíks öngþveitis í efnahag og stjóm- málum eins og við blasti þessa desemberdaga. Minnihlutastjórn Alþýðutfliolkíkisinis tókst og þagiar á árinu 1959 fyrst og fremst með atbeina Sjálfstæðismanna að af- stýra þeinri geigvænlegu þróun, sem Framsóknarflokkurinn gafst upp fyrir. Verðbólgan hefur sið- an eins og áður haldið áfram að skapa margháttaða örðug- leika, en hún kom ekki í veg fyrir þær öru framfarir, sem urðu á árunum 1960 til 1967. Og þó að hún yki á örðugleikana, sem á fór að bóla síðari hluta 1966 og síðar stórmögnuðust, þá voru aðrar og okkur óviðráðan- legar orsakir þar fyrst ogfremst að verki. Eftirtektarverðust eru þó hin ólíku viðbögð við að- steðjandi vandamálum. Sundrað lið Nú hefur ekki verið hlaupið frá vandanum, heldur tekist á við hann. Stjómarandstæðingar hafa og ekki verið settir til hlið- ar of öðnuim hivorlki Fraimsóikiniar- merun né aðrir. Þegar ljóiðt vanð síðari Wuita suimaiiTs 1068, hvilfk hætta voflði yfir veginia veriðlflalls, aflahrestis o,g söluitregðu, þá leit- aði rikisstjórtniiin saimstarfls við stjórnairandstæðinga. Þeim var gefinn kostur á að fylgjast með gagnasöfnun og undirbúningi málefnalausnar á sama veg og sjálf ríkisstjómin og flokkar heninar. Þetta varð þeim mun mikilsverðara sem mál voru þá rækilegar undirbúin og betur íhuguð frá öllum hliðum en nokkru sinni áður hefur hér á landi verið gert um slíkan mála- tilbúnað. En þegar á reyndi fengust stjómmálaandstæðingar ekki til að sinma öðru en auka- atriðum. Aldrei varð út úr þeim togað hverjum meginúrræðum þeir vildu beita. Mesta áhuga- mál þeiirra virtist vera að stjóm in segði af sér og ný stjómar- stefna yrði tekin upp, án þess þó að segja hver sú stefna ætti að vera í því, er úrslitum hlaut að ráða. Með þessu má segja, að stjómarandstæðingar hafi sett sjálfa sig til hliðar í íslenzku þjóðlífi. Ógerningur reyndist að tosa þeim til ábyrgrar afstöðu þegar mest á reið. Ástæður til þessa eru ýmsar. Þar veldur ekki minnstu, hversu stjómar- andstæðingar eru innbyrðis sundraðir. Ekki er nóg með að flokkana greini á um margt, heldur hefur sundurlyndið inn- an flokkanma reynst yfirgengi- legt. Framsóknarmenn hafa helzt getað sameinast um að yfirbjóða kommúnista í vitleysunni. Að öðru leyti virðist óstöðvandi valdalöngun vera þeinra áhrifa- ríkasta sameiningarafl. Sundr- ungin á meðal kommúnista blas- ir við alþjóð. Alþýðubandalag- ið, sem nokkur brestur var kom- inn í stnax við kosningamar 1967, er nú opinberlega þríklof- ið. Víst væri það ömurlegt hlut- skipti, ef þessi sundrungaröfl ættu að fá úrslitaáhrif í íslenzk um stjómmálum. Þriggja flokka formaður Svo er að sjá sem Hanni- balsistar hafi nú loks komið því í verk að stofna nýjan flokk. Raunar kalla þeir hann ekki því nafni, heldur „samtök". Og eru þau kennd við frjálslynda og vinstri menn. Þó að samtökim sýnist býsna losaraleg hafa þau margreyndan formann. Hammibal er eini íslendingurinn, er hefur verið formaður í þremur stjórn- málaflokkum, sem enn eru allir á lífi. Geri aðrir betur! Nafngift- in minnir annars helzt á það, þegar hjónum kemur ekki sam- an um hvaða nafn skuli velja barni og það ráð er tekið, að því em þess vegna fengin tvö möfn. Nema hitt komi til, að Hannibal hyggist með þessu gefa til kynma, að vegferð hans sé enn ekki lokið. Því að það hefur áður komið fyrir, að flrjálslynd- ir runnu saman við íhaldið. Ef svo skyldi enn fara, má Bjarni formaður fara að ugga að sér. Vildu ekki hlusta á æskulýðsmál! Athygli vakti, að í upphafi fundar í neðri deild Alþingis s.l. mánudag var kominn á þing- palla allstór hópur æskulýðs. Hrekklausir þingmenn héldu, að þessi áhugi stafaði af því, að á dagskrá var frumvairp til laga um æskulýðsmál og fögnuðu því, að unga fólkið væri þó ekki svo sinnulaust um velferð sína, eins og sumir svartsýnismenn stundum hafa á orði. En svo kynlega brá við, að um leið og þetta mál var tekið á dagskrá, þá þusti allur æskulýðshópur- inn út. Erindið hafði sem sé alls ekki verið að fylgjast með hvað gert yrði í æskulýðsmálum, held ur hitt að hlusta á Jónas Árna- son og klappa honum lof í lófa. Þetta var því skrítnara, sem Jónas talaði um mál, er alls ekki var á dagskrá. Um málflutning hans gat þess vegna enginn vit- að annar en sá, sem um hann hafði fengið sérstök boð. Mál Jónasar lýsti gremju hans yfiir því, að tekið hafði verið fram í útvarpsfréttum, að fundur í Há- skólabíó hefði farið friðsamlega fram. Jónas taldi, að með þvi orðalagi hefði verið gefið í skyn, að á fundinum hefði mátt vænta einhvers annars. Hann sagði það grófa móðgun, að með þessu hefði í rauninni verið gefið til kynna, að þarna hefði verið bú- ist við skrílslátum. Þingmenn urðu að sjálfsögðu ánægðir yf- ir að heyra fordæmingu Jónasar á þvílíku athæfi. Nokkuð dró þó úr trú á einlægni fordæm- ingarinnar, að Jónas skyldi ekki minnast á skrílslætin, sem skoð- anabræður hans höfðu haft í frammi á Keflavíkurflugvelli sama morgunn og útvarpið hafði skýrt frá skömmu áður en þing- fundur hófst. Og tiltrúin hvarf alveg, þegar mienn lásu uim ait- hæfi Jónasar sjálfs á skrifstofu sjónvarps og útvarps daginn áð- ur. Sambandið aldrei nánara í síðaiStla Reykj avíkuirtrréfi var skýrt frá vinsamlegum um- mælum Svenska Dagbladet um hugsanlega aðild ísla-nds að EFTA. Ymisir flleiri haifla vilkið vinsamlega að íslandi af þessu tileflni. Sérsitak ástæða er til að minnast Terkels M. Terkelsens, aðalritstjóra Berlingske Tid- ende. Hann hefur oft komið til íslands á undanfömum árum og iðulega skrifað ágætar greinar um laindið í blað sitt, sem nú er hið stærsta í Danmörku. Hinn 3. okt. birtist þar t.d allöng grein eftir Terkelsen, er hann kallar „Island pa skillevejen", þe ísland á vegamótum. Grein- inni lýkur á þessa leið í laus- legri þýðingu: „Það er alveg í íslenzkum anda, að samvinna við Norður- lönd er ekki háð sömu fyrir- vörum og beitt er gegn ýmsum öðmm löndum. Það er væntan- lega einnig hin kröftuga nor- ræna þátttaka í EFTA, sem hef- uir fengið ísland til að beina at- hygli sinni að Fríverzlunarsvæð iniu flremiur en öðruim marikaðs- bandalögum. Bent er á það sem mikilvæga röksemd fyrir um- sókn íslands um aðild að EFTA, að 40 prs. af utanríkisverzlun landsins er á EFTA-svæðinu. Af norrænni hálfu og e.tv. ekki sízt frá danskri, hafa menn sýnit skilning á hinum sérstöku vandamálum fslands, bæði varð- andi nauðsyn á því að hefja iðn- væðingu og að tekið sé tillit til hinna sérstöku fiskveiðihags- muna Það hefur ekki farið fram hjá mönnum á íslandi, að sam- bandið á milli Danmerkur og ís- lainidis en niániara niú 2i5 ámm eflt- ir algjöran aðskilnað landanna, en það var nokkru sinni meðan hin aldagömlu ríkistengsl þjóð- ainmia tveggja stóðu. Nornæmt blóð er þrátt fyrir aUt þýklkiaira en vatn.“ Hafast ólíkt að Því fleiri erlendir menn sem bera íslendingum vel söguna, verður athyglisverðara að ein- stakir landar okkar skuli leggja sig niður við að afflytja þjóð- iinia erlenidis. Norðtmiaiður, rná- kunnugur hér á landi, sendi fyr- ir niOkkru kuniningjia sínium hér 2 úrklippur með greinum, er hon- um grömdust mjög. Önnur var eftir Ólaf Gunnarsson, og sýnir, að hann heldur áfram sinni gömlu iðju. Hin var með sam- tali við Njörð Njarðvík, og er fyr- irsögnin þannig: „fsland er korr- umpert og gjennem pólítisert!" Slíkt orðbragð Njarðar er því leiðara sem hanm hefur á stund- um skrifað hlutlaust og rétt um málefni hér. Það eru dapurleg örlög, að góðviljaðir menn skuli setja hann nú á bekk með Ólafi GunnarssynL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.