Morgunblaðið - 23.11.1969, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. NÓV. 1969
21
Sveinn Kristinsson:
Skákþáttur
VESTUR-þýzkir skákmenn virð-
ast vera að eflast mjög að styrk-
leilka uim þessar mundir. Kom
það ein'kar glöggt fram á svæða-
mótunum í Grikklandi og Aust-
urríki í haust. — í Grikklandi
komst Hiibner, ungur og ekki
mikið þekktur vestur-þýzkur
Skákmeistari, í úrslit, varð í öðru
og þriðja sæti, og á mótinu í Aust
urríki átti landi Húbners, Hecht,
möguleika á úrslitasæti allt fram
að síðustu urnferð.
Má meðal annars minna á, að
Hecht var eini maðuriinn, sem
tókst að sigra Uhlmann á þessu
móti.
I»á stóð Vestur-Þjóðverjinn
Dueball sig einnig ágætlega á
saana móti, en hann hefur ekki
verið mikið þekktur utan síns
heimalands fram að þessu. —
Dueball var einn af þremur
ákákmönnum þessa móts, sem
tókst að sigra Guðmund Sigur-
jónsson. (Hinir voru, sem kunn-
ugt er, Uhlmann og Portisch).
Nú hafa Vestur-Þjóðverjar að
vísu átt allsterkar akáksveitir á
Olympíumótum hin síðari árin,
enda hafa þeir undanfarið átt
talsverða „breidd“ svona slött-
ungsstenkra meistara. Þjóðverjar
eru líka góðir keppnismenn að
skapferli, í hvaða grein aem er,
ekki sízt ef um það er að ræða,
að standa þétt saman í keppnis-
hópi.
En fram undir þetta hafa Vest-
ur-Þjóðverjar aðeins eignazt
einn stórmeistara, sem náð hef-
ur miklu öryggi og styrkleika á
heimsmælikvarða. Er það
Wolfang Unzicker, en hann mun
flestum skákunnendum vel
kunnur. — En nú bendir, sem
sagt flest til þess, að stórkost-
legar framfarir eigi sér stað á
stkáksviðinu í Vestur-Þýzkalandi,
sem gaman er að geta sér til um,
hvar staðar muni nema. •—
Kannski stefnir föðurland Eman-
úels Uaskers á nýjan leik á
heimsmeistarastólinn?
í eftirfarandi skák frá svæðis-
mótinu í Austurríki, á Vestur-
Þjóðverjinn Dueball í höggi við
Búlgarann Radulow, sterkan al-
þjóðlegan meistara, sem varð í
áttunda sæti á þessu móti.
Hvítt: Radulow
Svart: Dueball
Sikileyjarvörn.
1. e4, c5
2. Rf3, d6
3. d4, cxd4
4. Rxd4, Rf6
5. Rc3, g6
6. Be3, Rc6
7. Be2, Bg7
8. Dd2, 0-0
9. 0-0, Rg4
(Þvingar hvítan til að láta bisk-
up fyrir riddara. Það á þó ekki
að koma mjög að sök, því að
drottningarbiskup svarts er ekk
ert stórmenni í þessu afbrigði
Sikileyjarvamar).
10. Bxg4, Bxg4
11. f4,
(Hótar að leika f5 og lóka bisk-
upinn á g4 „úti í kuldanum“)
11. — Rxd4
12. Bxd4, «5
13. Be3, exf4
14. Bd4
(Eftir 14. Bxf4 gæti komið 14.
— Db6f og síðan Dxb2).
14. — Be5
(Ekfki er annað sýnna en svart-
ur ætli að halda peðinu, sem
hann vann á f4, en nú kemur
skemmtilegur leikur af hvíts
hálfu)
15. Hxf4!
(Snjöll skiptamunarfórn, sem
Dueball má ekki þiggja, ef hann
vill lífi halda. Kóngsstaða hans
yrði of veik, ef hann léti bisk-
upinn fyrir hrókinn)
15. — Be6
16. Hf2, Hc8
17. Hdl, Da5
18. 19. Bxe5, Rd5 dxe5
(Allar vinningsvonir, sem hvítur
kann enn að ala í brjósti, eru
bundnar við að reyna að not-
færa sér hina veiku kóngsstöðu
svarts. En leiðin til þess er ekki
að skipta upp drottningum, held-
ur beina drottningunni og öðrum
tiltaekum liðsafla að svörtu reit-
unum á kóngsarmi. — Raunar er
ekki ljóst, hvort sú áætlun
mundi heppnast yfirfleitt, en hvít
ur ætti þó a.m.k. ekki að vera í
taphætbu).
19. —
20. Hdlxd2,
21. b3,
22. Hxd5,
23. c4?
(Eftir 23. Hxe5, Hdlt 24. Hfl,
Hxfl 25. Kxfl, Hxc2 26. He7
0.3.frv., er staðan no'kkurn veg-
inn í jafnvægi).
23. — Hxd5
24. exd5, f5
25. Hc2, Kf6
26. c5, e4
27. b4
(Hvítur stendur verr að vígi í
peðakapphlaupinu, vegna þess
að kóngsstaða hans er lakari).
27. — Ke5
28. d6, f4
29. Kfl, g5
30. Hd2, e3
31. Hdl, g4
32. d7, Hd8
33. b5. f3
34. gxf3, gxf3
35. Hd3, Ke4
36. Hd6, Ke5
37. Hd3, Ke4
38. c6?
(Eftir 38. Hd6 er erfitt að eygja
vinning fyrir svartan. T.d. 38.
Hd6, Hg8 39. He6f Kf4 40. Hföt,
Kg4 41. He6 o.s.frv. Eða 39. —
Kd3 40. Hd6t Kc2 41. d8 D
o.s.frv.).
38. — bxc6
39. bxc-6, Hg8
(Nú á hvítur enga vöm. T.d. 40.
Hxe3f Kxe3 41. c7, f2 og svartur
mátar).
40. Hd4t
(Örvænting). 40. — Kxd4
41. c7, Ke4
42. d8, D e*t
43. Kf2, Hg2t
44. Kel, Hglt
45. Kd2, el Dt
46. Kc2, Dblt
og hvítur gafst upp.
Dxd2
Kg7
Bxd5
Hf-d8
ÁnægÖ
með Dralon
■
v •. v.v
Gluggatjöld, dúkur og áklæði frá GEFJUN, Akureyri,
Alls staðar getið þér fengið hin
fegurstu efni úr Dralon. Gluggatjöld,
dúka og húsgagnaáklæði í sam-
stilltum litum. Það, sem skiptir
mestu máli er að hér er um að ræða
úrvals efni í hreinum litum, sem upp-
litast ekki og hafa mikið slitþol.
Með efnum úr Dralon — úrvals-trefja-
efninu frá BAYER — vitið þér hvað
þér fáið .. . gæði fyrir alla peningana.
dralori
BAYER
Úrvals trefjaefni