Morgunblaðið - 03.12.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1969
19
Sjötugur Árni
Guðmundsson læknir
MEÐ LJÚFUSTU minningum
bernslkiu minnair eru geymdar
myndir a.f Ingibjörgu og Áma
læikni á Akureyri. Bftir hinn
míkla og algera húsbruna á
Möðruvöllum í 1. v. vetrar 1937
íóru foreldrar mínir til Akur-
eyrar og höfðu þar vetursetu.
Tókust þá ævinlegar tryggðir
með þeiim og Árna lækni og fjöl-
skyldu hans. Voru þau lítið eitt
kunnug Árna frá síkóladögunum
í Lækjargötu, en hann las þó
lengst af utanskóla og varð
stúdent 1925, ári síðar en þau.
En Ingibjörg (fcona hans var
Sunnlendinguir sem þau og hafði
verið um árabil í Reykjavík.
Var því margs skylds að minn-
ast og um að ræða. En öllu öðru
fremur var þó girundvöllur vin-
áttunnar samhygð og hjálpsemi
læknishjónanna, sem stóð eigi
aðeins þennan vetur, en þraut
aldrei — eins og það, sem stend-
ur rótum í skilningi hins góða.
Hvenær, sem mest var, í sorg og
gleði, voru þau læknishjónin
fyrst á vettvang.
Minningar Okkar systkinanna
um þessa nákomnu vini bernsku
heimiliisins á Möðruvöllum
verða efcki raktar hér. Bæði
vegna þess, að þær er vandi að
tjá á prentuðu rnáli og af því,
að þær eru aðeins persónulegt
undirspil að því ljóði, sem hjart-
að geymir, helgiletur hugans,
sem kemur fram í dag í falleg-
um hendingum — á sjötugs-
afmæli Áma læknis.
Hann er fæddur á Lóni 1
Keldúhverfi 3. des. 1899. Voru
foreldrar hans hjónin Guðmund-
ur B. Árnason bóndi að Lóni,
en síðar bæjarpóstur á Akur-
eyri, og Svava Daníelsdóttir
pósts frá Ólafsgerði í Keldu-
hvarfi, Jónssonar.
Árni ólst upp í fögru umhverfi
fjölbreyttrar náttúru og í náinni
snertingu við lífsbaráttu ís-
lenzkrar alþýðu. Á skólaárunum
var hann m.a. sauðamaðlur á Fjöll
unum. Tók hann stúdentspróf
utaníikóla hálf-þrítugur og mun
hafa hlotið að verja meiri tíma
til annarrar vinnu en lestrar,
eins og eiklki var óaigengt um
námfúsa, fátæka sveitapilta. En
vegna áhuga hans á náttúrufræð
um var það hlutskipti honuim
léttara en ella, og síður eftirsjá
í ólífrænni slkólasetu. Skal þó
sízt dregið úr því, að leið hans
var erfið og því aðeins fær, að
hann var gæddur milklutn mann
kostum, stilltur og stefnufastur,
en snernma þroSkaður til a@ una
því, sem var og vita hvernig
hann vildi að lífið yrði. Eftir
stúdentsprófið varð hann enn
að sætta sig við örlögsíma
verðandinnar, hann hugði á
nám í náttúruvísindum í Kaup-
inhöfn, en á þeim árum gat að-
eins einn íslenzfbur stúdent
fengið styrk í þeirri veru. Stein-
dór Steindórsson frá Hlöðum
fór til Hatfnar, en Árni lagði
stund á þá háskólagrein, sem
sikyldust var, læknisfræðina.
Varð hann kandidat 1932 og fór
þegar til framihaldsnámis í Dan-
mörku, þá kvæntur fyrir þrem-
ur árum Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur bónda í Hellnatúni í
Neðri-Holtaþingum, Hróbjarts-
sonar.
Vorið 1933 fluttust þau hjónin
til Akureyrar, þar sem Árni hóf
almennar læikningar ásaimt að-
stoðarlæknisstörtfum á spitalan-
um, en yfirlæknir þar var hann
frá hausti 1935 til jafnlengdar
1936. Þá var hann staðgöngu-
maður héraðslæknisins í Akur-
eyrarhéraði (Eyjatfj.sýsflu út að
Fagraskógi) þann vetur, en sett-
uir héraðslæknir allt árið 1937.
Var hann síðan læknir á Akur-
eyri, á spítalanum og utan, til
haustsins 1954, er hann tók stöðu
röntgenlæknia á Landspítalan-
um og fluttist til Reykjavíkur,
þar sem hann hefur jafnframt
haldið stofu síðan.
Heimili þeirra hjóna, sem
lengst stóð að Bjartmastíg 9 á
Akureyri, en syðra að Barða-
vogi 20, er fallegt. Er þar eitt
með öðru, drenglund, tfiræðin og
híbýlaprýði. Árni læknir er einn
hinn fjölfróðasti maður utan
sinnar eigin greinar. Áhugi hans
og þekking í húmaniskum fræð-
um yfirleitt, víðtækur lestur og
frábært minni gefa persónuleiika
hans þá fyllingu, í hæð og dýpt
mannlegs færis, sem tvímæla-
laust er óvenjuleg. Vegna ann-
ríkis kaupstaðarlæknisins hetfur
hann eklki getað lagt þá stund,
sem hann vildi á gömlu etftirlæt-
isgreinina, náttúrufræðina. En
fjölbreyttan gróður hetfur hann
ræktað við hús sín, ferðazt eftir
föngum og þá oft notið friðsæll-
ar fegurðar við bergvatnsárnar.
Þau hjónin eiga 4 börn, sem
ölll eru fædd á Akureyri, nema
eldri sonurinn, Guðmuindur Örn
ákógfræðingur. Hin eru: HaUkur
læknir, Þórunn ljósmóðir og hús
firú í Reýkjavík og Svava, ung-
írú í foreldrahúsum. Eru þau
systkinin hreinlynd og mann-
kostafóltk eins og foreldrarnir.
Er einkum sérstakt gleðiefni að
synirnic völdu hvor sína vís-
indagreinina, sem föður þeirra
eru kærastar.
Það er svo margt, eem kemur
í hugann á tímamótum svo góðls
og merkss vinar. Þar bregður
fyrir einni myndinni atf ann-
arri, þær koma í hendingum allt
frá bernsiku, og verða að því
Ijóði, sem fegrar lítfsskilninginn,
af því að þær eru frá svo góðum
manni.
Fyrir alllt ljúfar þakkir fjöl-
skyldunnar, sem einu sinni var
á Möðruvöllum. Og óákir allrar
blessunar.
Ágúst Sigurðsson
í Vallanesi.
Hann verður að heiiman í dag.
Ég þaklka ljúft þá liðnu tíð
í lífsinis sjúkdóms stríði,
mér náðarsól Guðs birtist blíð
sem barn ég engu kvíði,
því Drottinn stendur stýrið við
í stormi lítfs og gleði
og altatf sendir englalið
mér inn að sjúkrabeði.
Það enginn læknir er sem þú
á ævi minnar vegi,
þín hógværð blíð og hreina trú
í heimi bregzt mér eigi,
þú hlusta 'kannt á hjartans mál
með harðar sjúkdóms þrautir
og leiðir bæði líf og sál
svo ljúft á hreinar brautir.
Til hamingju með helgan dag
þó hæfcki áratugur,
þú bugast ei né brestur lag
svo beint þinn stetfni hugur,
að kenna, vinna, læknislist
svo ljúft á hverjum degi,
í starfi fyrir konung Krist
á kærleilksríkum vegL
Beztu hamingjuóskir með af-
mæflisdaginn og þaifcfclæti fyrir
góða læknishjálp.
Aðsetur Landgræðslu- og náttúru-
verndarsamtaka Islands
er fyrst um sinn að LÁGMÚLA 9, Reykjavík.
Sími samtakanna er 82230.
Raflögn
Höfum opnað verzlun að Tryggvagötu 26, sími 16459.
Höfum á boðstólum útiljósasamstæður á svalir og til skreyt-
ingar, Inniseríur og litaðar perur og allt efni til raflagna.
SINFÓNlUHLJÓMSVEIT ÍSLAIMDS
Tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 4 desember kl. 21.00.
Stjórnandi: Alfred Walter.
Einleikari: Marc Raubenheimer.
Flutt verða verk eftir Mozart, Kalabis, Schumann og Hindemith.
Aðgöngumiðar I bókabúð Lárusar Blöndal og bókaverzl. Sigf.
Eymundssonar.
Skólatónleikar fyrir Háskólastúdenta, Menntaskóla-, Kvenna-
skóla-, Kennaraskólanemendur o. fl. í Háskólabíói föstudag-
inn 5. desember kl. 14.00.
Stjórnandi: Alfred Walter. Einleikari: Marc Raubenheimer.
Flutt verða verk eftir Mozart og Schumann.
Aðgöngumiðar í skólunum og í bókabúð Lárusar Blöndal,
Skólavörðustíg 2 og við innganginn.
Tilkynning fil
viðskiptamanna
l byrjun ársins tók sú regla gildi, að I viðskiptum skyldu
kröfur og reikningar greindar í heilum tug aura.
Að liðnum reynslutíma er tímabært að reglan nái skilyrðis-
laust fram að ganga við peningastofnanir.
Því hafa bankar og sparisjóðir nú ákveðið, að frá og með
1. janúar 1970 muni þeir. án undantekninga, afgreiða tékka
og önnur greiðslufyrirmæli eftir reglunni, jafnvel þótt greiðslu-
skjöl kunni að berast, þar sem fjárhæðir eru eigi greindar
í heilum tug aura.
Reykjavík, 28 nóvember 1969.
Samvinnunefnd banka og sparisjóða.
Margrét Jónsdóttir
frá Búrfelli.
H júkrunarkona
Hjúkrunarkonu vantar nú þegar eða 1. febrúar n.k. til starfa
að dvalarheimilinu Ási í Hveragerði.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni í slma 16318.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Saumastofa
Saumastofa I fullum rekstri. Stofan er í góðu leiguhúsnæði.
Mikið af úrvals vélum, gott verð, góð kjör.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
TUNGATA 5, SlMI 19977.
------ HEIMASÍMAR--------
KRISTINN RAGNARSSON 31074
SIGURÐUR Á. JENSSON 35123
Filtteppin nýkomin i miklu
litnúrvoli — Gott verð
Veggfóðrarinn hf.
Hveríisgötu 34 - Sími 14484