Morgunblaðið - 15.02.1970, Side 8

Morgunblaðið - 15.02.1970, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR lt5. FEBRÚAR 1970 Samanburður á verðlagi — í nokkrum höfuðborgum Norðurlönd og norræn mál- efni hafa mjög verið á dagskrá undanfarna daga vegna fundar Norðurlandaráðs, sem nýlega er lokið. Hinar Norðurlandaþjóð- imar eru einmitt þser þjóðir, sem við berum okkur helzt saman við á flestum sviðum, svo sem um verðlag á vörum, laun og lífs- kjör yfirleitt. Þó er jafnan mjög erfitt að koma slíkum saman- burði við, enda aðstæður oft ólíkar, þótt um frændþjóðir sé að ræða. Fyrir nokkru gerðu blaða- menn brezka blaðsins „Financial Times“ samanburð á verðlagiog kaupgjaldi í ýmsum höfuðborg- um víða um heim. Blað þetta nýt ur mikils trausts, bæði í Bret- landi og annars staðar og þyk- ir það brezkra dagblaða, sem einna bezt má treysta. í yfir- liti blaðsins er ekki getið um verðlag hér á íslandi, og því miður er erfitt um samanburð á því miðað við þann grundvöll, sem hið brezka blað byggir á. Hins vegar verða birtar hér nokkrar tölur um verðlag og kaupgjald í höfuðborgum hinna Norðurlandanna, svo og í Lond- on og Washington, ef einhverj- um kynni að þykja það fróðlegt aflestrar. Nú skal tekið fram, að í yfirliti „Financial Times“ kem- ur ekkert fram um skattgreiðsl- ur í þessum höfuðborgum, sem sjálfsagt eru nokkuð mismun- andi, þannig að þessar tölur gefa kannski ekki fyllilega rétta mynd af lífskjörum í þeim höf- uðborgum, sem nefndar eru. í þeim tölum, sem hér fara á eftir eru vikulaun iðnaðar- manns í byggingariðnaði lögð til grundvallar, en getið um verðlag á ákveðnu magni matvæla, karl- mannafatnaði, kvenfatnaði, sígar ettum, áfengi og húsaleigu. Verðlag á matvælum á Norð- urlöndum virðist einna hagstæð ast í Danmörku, a.m.k. fyrir iðn aðarmanninn okkar. Hann hefur 131 Bandaríkjadal í vikulaun, en matarkarfa „Financial Times“, sem hefur að geyma ákveðið magn af sambærilegum matvælum, kostar í Kaupmanna- höfn tæplega 25 dali, þannig að hinn danski iðnaðarmaður getur keypt rúmlega 5 matárkörfur af þessu tagi fyrir sín vikulaun, Starfsbróðir hans í Osló kemur næstur á eftir. Hann hefur í vikulaun 105 dali, og getur keypt fyrir það rúmlega 4 mat- arkörfur, en þar kostar hver matarkarfa rúmlega 25 dali. Iðn aðarmennirnir í Stokkhólmi og Helsingfors standa nokkurn veg inn jafnt að vígi. Sá sænski hefur 125 Bandaríkjadali í viku laun, og fyrir þessa upphæð get- ur hann keypt í Stokkhólmi nær 4 matarkörfur, en þar kostar slík matarkarfa um 32 dali. Iðn- aðarmaðurinn í Helsingfors get- ur keypt nokkurn veginn sama magn af matvælum fyrir sín vikulaun, kannski ívið meira. Hann hefur rúmlega 95 dali í vikulaun, en hver matarkarfa kostar þar rúmlega 23 dali. Ef við lítum svo til Lundúna til samanburðar, þá getur iðnað-' armaður í byggingariðnaði þar keypt um 414 matarkörfu fyrir sín vikulaun, hann fær 65 dali í laun á viku og matarkarfan kostar þar rúmlega 14 dali. Starfsbróðir hans í Washington býr við allt önnur kjör. Hann hefur 177 dali í vikulaun og get- ur fengið fyrir það nær 9 matar- körfur en þar kostar hver matar- karfa tæplega 20 dali. Húsaleigan er miðuð við þriggja herbergja, nýtízku- lega íbúð, sem búin er öllum húsgögnum og tækjum. í þess- um efnum stendur iðnaðarmað- urinn í Osló bezt að vígi af starfsbræðrum sínum á Norður- löndunum. í Osló er mánaðar- leigan fyrir slíka íbúð 160 dalir og hann mundi vinna fyrir þeirri leigu á einni og hálfri viku. Næstur í röðinni er Daninn. í Kaupmannahöfn er mánaðarleig- an fyrir íbúð af þessu tagi 266 dalir, og iðnaðarmaðurinn þar mundi vinna fyrir þeirri leigu á rúmum tveimur vikum. Þriðji i röðinni er fulltrúi hins sænska velferðarríkis. Hið brezka blað segir að íbúð af þessari tegund kosti 325 dali í leigu í Stokk- hólmi og er því sænski iðnaðar- maðurinn rúmlega tvær og hálfa viku að vinna fyrir þeirri leigu. f Helsingfors kostar þessi sama íbúð 288 dali á mánuði og iðnað- armaðurinn mundi vera um þrjár vikur að vinna fyrir þeirri leigu. Bretinn er öllu ver staddur. f Lundúnum er mánaðarleigan fyrir íbúðina 336 dalir, og það mundi því kosta hinn brezka iðnaðarmann rúmlega fimm vikna laun að leigja slíka íbúð. f Washington kostar hún hins vegar 300 dali eða einn og tvo þriðju vikulauna Bandaríkja- mannsins. Verðlag á fatnaði virðist hag- stæðara í Svíþjóð en á hinum Norðurlöndunum. Karlmanna- fatnaðurinn, sem hið brezka blað gerir ráð fyrir í sínum út- reikningi eru ein föt, góðir skór og góð skyrta. í Stokkhólmi kosta þessi föt rúmlega 118 dali, og Svíinn á því tæpa 7 dali eft- ir af sínum vikulaunum, þegar hann er búinn að kaupa þau. Vikukaup Norðmannsins nægir nokkum veginn. í Osló kosta þessi föt 106 dali, en vikulaun hans eru 105 dalir. Danir eru þriðju í röðinni. í Kaupmanna- höfn kostar þessi fatnaður nær 136 dali, svo að Danann vantar fimm dali til þess að vikulaun- in nægi fyrir þeim. En verðið á þessum fatnaði er óhagstæðast fyrir iðnaðarmanninn í Finn- landi. Hann vantar 25 dali í við bót við sín vikulaun, til þess að geta keypt þessi föt. í Hels- ingfors kosta þau 120 dali. Lundúnabúann vantar um 40 dali til þess að vikulaun hans nægi fyrir fötunum, þau kosta þar rúmlega 104 dali. Banda- ríski iðnaðarmaðurinn er bezt settur í þessum efnum. Þegar hann er búinn að kaupa þennan fatnað fyrir 152 dali á hann eft- ir af sínum vikulaunum 25 dali. „Financial Times“ hefur ber- sýnilega ekki gert ráð fyrir jafn- miklum fjárútlátum í kaup á kvenfatnaði eins og karlmanna- fatnaði. Þar er gert ráð fyrir sumarkjól á miðlungsverði, nylonsokkum og skóm. Verðið er miðað við fjöldaframleiðslu þekktra framleiðenda. Eins og í fyrra tilvikinu er verðið hag- stæðast í Svíþjóð fyrir iðnaðar- manninn. Þessi kvenfatnaður kostar í Stokkhólmi um fjórð- ung af vikukaupi sænska iðnað- armannsins, eða rúmlega 33 dali. Finnar og Danir standa nokkurn veginn jafnfætis á þessu sviði. f Helsingfors kostar þessi sami fatnaður tæpan þriðjung af vikulaunum finnska iðnaðar- mannsins eða rúmlega 28 dali og í Kaupmannahöfn er verðið hlutfallslega hið sama, rúmlega 39 dalir eða tæpur þriðjungur af vikulaunum Danans. En í Osló eru þau nokkuð dýrari, eða rúmlega 43 dalir, sem eru um 40 prs. af vikulaunum Norð- mannsins. Brezki iðnaðarmaðurinn mundi verja tæpum þriðjungi vikulauna sinna til þess að kaupa þennan kvenfatnað. Hann kostar í London um 20 dali, en í Washington mundi hann kosta tæpan fjórðung af kaupi Bandaríkjamannsins. Þar kostar þessi kvenfatnaður rúm- lega 41 Bandaríkjadal. Þá er komið að sígarettunum og á Norðurlöndunum er verð- lag þeirra hlutfallslega hagstæð ast í Osló. Norski iðnaðarmaður- inn getur fengið 150 pakka af sígarettum eða 714 karton fyrir sitt vikukaup. Svíinn fær 125 pakka, eða rúmlega 6 karton. Danir 90 pakka, eða 414 karton og Finninn 55 pakka eða tæp- lega 3 karton. Bretinn fær 100 pakka eða 5 karton. En af þess- um sex löndum er verð á sígarett um lang hagstæðast í Bandaríkj- unum. Fyrir vikukaup sitt get- Ur iðnaðármaðurinn í Washing- ton keypt 600 pakka af sígar- ettum eða 30 karton. Á Norðurlöndunum virðist verðlag á áfengi hagstæðast fyr- ir iðnaðarmanninn í Danmörku. Kaupmannahafnarbúinn getur fengið 16 flöskur af skozku whiskýi fyrir vikulaun hins danska iðnaðarmanns. Norð- maður fær 1114 flösku, Finninn tæplega 11 flöskur og Svíinn 914 flösku. Bretinn fær aðeins 7 flöskur af þessum þjóðar- drykk sínum fyrir vikulaun iðn- aðarmanns en í Washing- ton getur Bandaríkjamaðurinn keypt hvorki meira né minna en 2314 f lösku af whiskýi fyrir vikulaun iðnaðarmannsins. Eins og áður hefur verið bent á, er varlegast að draga sem fæstar ályktanir af þessum töl- um. Með yfirliti hins brezka blaðs fylgja ekki nægilegar upp- lýsingar til þess að hægt sé að gera sér grein fyrir hversu sam- bærilegar þær eru. Þó má telja víst að þær gefi töluverða vís- bendingu um verðlag, kaupgjald og lífskjör í þessum löndum. Og þá vekur það kannski einna helzt athygli okkar hér á fs- landi, að Svíar virðast ekki skara fram úr hinum Norður- landaþjóðunum í lífskjörum, ems og oft er haldið fram. Brýn ustu lífsnauðsynjar almennings, matvæli og húsnæði fást fyrir hlutfallslega hagstæðara verð, bæði í Danmörku og Noregi, mat væli eru á beztu verði í Dan- mörku, og síðan í Noregi. Húsa- leiga er lægst í Noregi og síðan í Danmörku. Það er fyrst og íremst á sviði fatnaðar, sem Svíar standa sig betur, en hin- ar Norðurlandaþjóðirnar. En ef litið er á munaðarvörur eins og áfengi og tóbak, kemur í ljós, að verðlag á áfengi er hlutfallslega hærra í Svíþjóð en á hinum Norðurlöndunum og Svíar eru aðeins í öðru sæti í sígarettu- kaupum. Þessar tölur benda því tvímælalaust til þess, að ekki sé allt gull sem glóir í hinu sænska velferðarríki! Að lokum skal þess getið til gamans, að í tveimur höfuðborg- um í yfirliti hins brezka blaðs, eru matvælin dýrust. í Tokýó kostar matvælakarfan 34,28 Bandaríkjadali, en dýrust eru matvælin í háborg sósíalismana, Moskvu. Þar kostar þessi sama matvælakarfa 34,63 dali. Höfuð- borg Japans tekur þó öllu fram í húsaleigu, en þar kostar þriggja herbergja íbúð 1900 Bandaríkja dali á mánuði, eða 88 þúsund ísl. krónur. Styrmir Gunnarsson. Siglingaklúbburinn Siglunes Reykjavikur- og Kópavogsdeildir Fræðslu- og skemmtifundur í Tónabæ mánudaginn 16. febrú- ar klukkan 8 eftir hádegi. Skemmtiatriði: kvikmyndasýning og umræður um starf klúbbsins. Siglingaklúbburinn Siglunes. Bragi Hannesson bankastjóri SPILAKVÖLD SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður þriðjudaginn 17. febrúar kl. 20.30 að Hótel Sögu. ÁVARP: Bragi Hannesson, bankastjóri. SPILAVERÐLAUN, GLÆSILEG UR HAPPDRÆTTISVINNINGUR. SKEMMTIATRIÐI. Kristinn Hallson, óperusöngvari. DANSAÐ TIL KL. 1. Húsið opnað kl. 20.00. Sætamiðar afhentir á skrifstofu Varðar Suðurgötu 39 á venjulegum skrifstofutíma. Sími 15411. Skemmtinefndin. Kristinn Hallsson, óperusöngvarí. HEIMDALLUR - ÚDINN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.