Morgunblaðið - 15.02.1970, Page 11
MORG U N’ arAÐIÐ. SUNN UDAG UR 15. FRBRÚAR IffTO
11
vitleysu. Að nokkrum skuli detta í
hug að bjóða manni upp á þetta! En
samt verðum við að gera ráð fyrir
öllu. Einar Benediktsson segir:
Hugann grunar, hjartað finnurlögin,
heilinn greinir skemmra en nemur
taugin.
Ég læt þar við sitja. Ég hef ekki
komizt í nánari tengsl en þetta við
sálina og allífið. Kannski að sálin
sé til, ég veit það ekki. Þú veizt það
ekki. Eða guð? Ef einhver finnur
fróun eða gleði í því að trúa á eilíft
líf og persónuléga sál, fagna ég ein-
ungis og segi: mikil er trú þín. Ég
læt mér aðeins nægja mína vit-
neskju. Guð hefur ekki orðið á vegi
mínum, nema í blindum náttúruöfl-
um. Fyrir mér er guð og náttúran
eitt og hið sama. Lykillinn að lífs-
reynslu minni er þessi: úthlutun nátt-
úrunnar á gáfum virðist vera eins-
konar happdrætti, ef svo mætti
segja. Sumir hljóta stóra vinninga
og aðrir minni. En ég hefði ekkert
á móti hinu.“
„Hverju?"
„Að öðru vísi væri í pottinn bú-
ið. Að við lifðum af þennan hruna-
dans, sem kallaður er dauði. Ef ég
vakna upp hinum megin segi ég ein-
ungis: hvemig áttum við að sjá fyr-
ir öll hom? Og þó finnst mér sú
hugsun fremur ógeðfelld og tek und-
ir það sem vitur maður sagði: mesta
gæfa mannsins er að hafa ekki fæðzt.
Við böfum víst hvoruigtur reyrut
þessa mestu gæfu. Og siem betur fer
höfum- við ekki heldur reynt þessa
eilífu glötirn, sem þeir hreppa eftir
dóminini, sem mieð vantrú oig þrjóziku
hafa hafniað guðis ruáð. Já, þetta var
mannd kennt, hugsaiðu þér arnnað
einis! Nei, má ég þá heldiur biðja um
kennimtgar D>arvifn;s,“
„En þú hefðir ekkert á móti sál-
inni, Egill, ef guð og allífið færðu
þér hana á silfurbakka."
„Þegar við tölum um sálina, kem-
ur mér Einar Benediktsson ósjálfrátt
í hug. Hann hlýtur að hafa haft sál.
Stóra sál.
Ég kynntist honum lítillega, en
það var mér nóg.
Ég er fæddur í Vogum, eins og þú
veizt, en fór í Flensborg. Það var
skemmtilegur tími. Ég lauk kenn-
araprófi og lagði fyrir mig kennslu.
Það væri saga til næsta bæjar, ef ég
væri enn kennari. Þá mundu for-
eldramir og líklega kirkjan öll rísa
upp og hrópa pereat yfir þennan
hræðilega kennara, óvin guðs. En
tímarnir hafa breytzt og ég er orð-
inn gamall. Og nú get ég talað út
úr pokahominu. Ég vona að ég hafi
komið unglingunum til nokkurs
þroska. Ég talaði ekki við þá um
guð eða sálina, en reyndi að kenna
þeim að hugsa. Ég sveigði áhuga
þeirra að náttúrunni og lögmálum
hennar. Reyndi að draga úr þeim
vígtennumar, sem við fengum í arf
úr frumskóginum, búa þau undir
mannlíf. Ég reyndi aldrei að gera
þau að guðsbömum, heldur mann-
eskjum. Vona að mér hafi tekizt
stundum.
Ég stundaði kennslu í Baraaskóla
Reykjavíkur, en sótti jafnframt nám-
skeið í landmælingum. Að því búnu
var ég valinm til að mœla í bæjar-
landinu oig kortleggja. Þá er það eámn
góðan veðúrdag sumarið 1923, að
Einar Benediktsson kemur í skrif-
stofu bæjarverkfræðings hér í
Reykjavík og biður um að ég mæli
og geri uppdrátt að Skildinganes-
landi og tenigi „Port Reykjaví'k" við
bæinn, þ.e. sýni afstöðu og vega-
lemgid, en í „Port Reykjavik" huigð-
ist hann gera höfn eins og þú veizt.
Það varð að saimkamiulagi okkar í
milli að ég kæmi heim til hans til
frekari viðræðna um málið.
Hann bjó í Þrúðvangi við Laufás-
veg.
Þegar ég barði að dyrum hjá
skáldinu, var ég að vonum eftir-
væntingarfullur, því ég bar mikla
virðingu fyrir honum. Hann heils-
aði mér glaðlega og bauð mér inn.
Þá voru staddir hjá honum tveir
Þjóðverjar, sem höfðu komið til
landsins að rannsaka Miðdals-
námurnar og hafði hann verið að
sýna þeim margar stækkaðar ljós-
myndir af hinvun fornu papahellum
í Ramgárvallasýslu. Fóru Þjöóverj-
arnir rétt eftir að ég kom.
Myndirnar voru á víð og dreif í
herberginu. Einar sýndi mér þær
fullur áhuga og sagði mér margt um
papana, komu þeirra hingað og dvöl
þeirra hér á landi. Hann var ákaf-
lega mælskur og skemmtilegur.
Af því að ég var landmæliniga-
maður hélt Einar víst að ég væri
miklu meiri stærðfræðingur en ég er.
Hann fer að tala um menntun mína
og barst þá talið að grein, sem hann
hafði skrifað í Skírni eða Eimreið-
ina og ég hafði lesið með mikilli at-
hygli og þótt mjög merkileg.
Einar skýrði mér frá því, þegar
við ræddum um landmælingar og
stærðfræði í sambandi við þær, að
eitt sinn er hann lá úti í garðinum
heima hjá sér í London og lét hug-
ann reika út f geiminn, hafði hann
fengið það hugboð að lína sé ekki
bein, heldur fari hún í boga og komi
aftur að sama punkti.
Þegar Einar var í Osló sagðist
hann hafa fært þetta í tal við stærð-
fræðiprófessor við Oslóarháskóla
sem vildi fyrst ekki ræða málið við
hamn, þar eð Einar var hvortki
stærðfræðingur né stjöraiufræðimigiur,
heldur lögfræðingur, en samt fór svo
að lokum að þeir hittust og ræddu
málið, að því er hann sagði mér.
Þetta var í fyrsta skipti sem ég
heyrði afstæðiskenninguna, en Einar
orðaði reynslu sína ekki við hana.
Samt hefur skáldið uppgötvað þessa
kenningu á sinn sérstæða hátt. Ef
Einstein hefði ekki fundið- afstæðis-
kenninguna, hefði Einar Bene-
diktsson gert það. Arkimedes fann
eðlisþyngdina, úrlausnin flaug hon-
um í hug meðan hann lá í baði. New-
ton fann þyngdarlögmálið, þegar
hann sá eplið detta. Deseartes hnita-
fræðina þegar hann lá í rúmi sínu
einn morgun.
Og Einar Benediktsson fékk hug-
boð um afstæðiskenninguna þegar
hann lá úti í garðinum sínum í
London.
Ég hef alla tíð haft mikinn áhugá
á stærðfræði. Ég kaupi enn stærð-
fræðirit. „Stærðfræðin eiin út af fyrir
sig er hrein hugvísindi, en sem skýr-
ing og í sambandi við raunvísindi er
stærðfræðin öflugasta hjálparhella
þeirra.“
Þegar ég kom með uppdráttinn til
Einars, lét hann í Ijós að hann væri
ánægður með hann og sagði að hann
væri vandlega gerður. Það hafa ekki
allir fengið slíkt hrós af vörum
sjálfs Einars Benediktssonar. Það
hefur ekki farið mikið fyrir mér í
þjóðfélaginu, en samt verð ég að við-
urkenma að eimhvern vegiimn hef ég
giaiman af því að komia þessiu hrósi
skáldsins á framfæri!
Þegar ég kom með uppdráttinn
barst talið að skáldskap, og þó
einkum kvæðum Einars. Og þegar
hann heyrði að ég hafði lesið ljóð
hans og kunni sum þeirra, varð
hann glaður við. Ég dáðist að ljóð-
um hans, en taldi þau nokkuð tor-
sikilm. Mér eru viðbrögð hams við
þessari athugasemd minni afar
minnisstæð. Hann trúði mér fyrir
því að hann hefði mikið fyrir að
yrkja ljóðin sín, og sagðist fara oft
yfir þau og breyta þeim. „Skáldin
hafa ekki leyfi til að láta ljóð sín frá
sér fara lítt huigsiuð að efnd og óvönd-
u!ð að búninigii," sagði haran við mig.
Mér var í senn óskiljanlegt og
ógleymanlegt að hann skyldi trúa mér
af öllum mönnum fyrir þessu. En lík-
lega hefur hann verið að segja mér
að ljóð, sem lengi hafa verið í smíð-
um, geti ekki verið torskilin. Einar
Benediktsson var lífandi sönnun
þess sem sagt hefur verið: að það
bezta er óvinur hins góða.“ ,
★ '
„Ertu að fara?“ spurði Egill, þeg-
ar ég stóð upp, „viltu ekki vindil?"
„Nei, ég reyká aldrei vindla.“ ‘
„Það er gott fyrir sálina,“ saigði
hann.
Við hlógum báðir.
Á leiðinni út sagði hann mér að [
hann hefði verið sessunautur
Kjarvals í Flensborg.
„Hann var mildur og góður og
glaður og flaugst aldrei á nema í \
góðu. Hann var alltaf að teikna, en
las lítið. Þegar hann teiknaði jóla-
kort í borðstofunni í skólanum,
þyrptumst við allir í kringum hann, ‘
þangað til hann gat ekki hreyft
handleggina. Hann teiknaði með alla
vega litu bleki og skar laufin út. I
Kortin seldi hann á nokkra aura og
þau runnu út. í tímanum teiknaði
hann feermiarainia, sýfent og beilagt.
Seinna minntist hann á hvað það
hefði verið skemmtilegt, þegar við i
vorum að fljúgast á í nærbuxunum
einum saman. Kjarval hafði sál. Þú
sást sálina hans uppi á veggnum í ,
stofunni. Er hægt að huigsia sér p
fallegri sál en mynid eftir hanm.
Kjarval var afskaplega fátækur í
kringum 1930. Þá stóðu tærnar út úr \
strigaskónum hans. i
1 hundruð ára var íslenzka þjóðin
á slíkum strigaskóm. Ég átti afa,
hann hét Ámi Hallgrímsson. Hann
var smiður og dó þegar hann vann >
að smíði tumsins á Dómkirkjuna í
Reykjavík. Það þótti mér vænt um,
því að hann átti þá trú, sem mér hef- ,
ur ekki verið gefin. Hann var snyrti- i
menni, sagði mér móðir mín, og gekk
með greiðu í vasanum. Og þvoði sér
alltaf um hendurnar, áður en hann ,
borðaði. Þá var hlegið að honum. t
Nú hefur rætzt úr fyrir íslenzku
þjóðinni. Sem betur fer. En þrosk-
inn hefur, því miður, ekki aukizt að ,
sama skapi og veraldargæðin. Það •
yrkir enginn betur en Einar Bene-
diktsson. Og hver málar betur en
Kjarval? En við höfum lært að setja ,
upp. Ég vann að því í frístundum
mínum um helgar að gera lóðaupp-
drætti fyrir Laufásbúið. Ég fékk
alltaf meira borgað en ég setti upp.
Ég sagði Ásgeiri Ásgeirssyní, fyrr- ’
um forseta, frá því ekki alls fyrir
löngu. Þá sagði hann: „Það var af
því að þú hefur ekki kunnað að setja .
upp.“ Svo einfalt er lögmál náttúr- 1
unnar: Það skiptir öllu máli hvort
við feuminiuim að setja upp. Við —
grimmiasitia dýrið í skóigiiniuan. Jörðin i
er tilrauraaigarður náttúrunnar. Hins 1
hlutlaiusa gisðs. Lemgra teymirðu mig
etkki.“ M.
Laust starf
Starf skrifstofustúlku (bókara) vifi bæjarfógetaembættið i
Keflavík er laust til umsóknar nú þegar.
Laun greidd eftir 11. launaflokki starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri störf skulu sendar
embættinu fyrir 25. febrúar n.k.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
T ilkynning
frá Heilsuvemdarstöð Kópavogs, barnadeild.
Frá 1. janúar 1970 varð sú breyting á starfsemi Heilsuvernd-
arstöðvarinnar að eingöngu verður um pantaðan tíma að ræða
til ónæmisaðgerða og ungbarnaeftirlits. Forsvarsmönnum
• barna á aldrinum þriggja mánaða til 7 ára ber því að panta
viðtalstíma fyrir þau. Pantanir teknar í síma 40400 mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 9—12 f. h.
Stöðin er starfrækt eins og áður fyrir börn 0—2ja ára mánu-
daga kl. 9—11 f.h. fyrir börn úr Vesturbæ, þriðjudaga kl.
9—11 f.h. fyrir börn úr Austurbæ og fyrir 2ja—7 ára föstu-
daga kl. 2—3 e. h.
Stjóm Heilsuvemdarstöðvar Kópavogs.
r ! Geymið auglýsinguna.
Góðar vörur!
Gott verð!
NÝKOMID:
Japanska terylene
5 Irtir, breidd 150 sm, 436,- m.
Hvítt, röndótt damask
breidd 140 sm, 87,50 m.
Blátt, dún- og fiðurhett léreft
breidd 140 sm, 138,-
Frotti, rósótt, breidd 90 sm,
7 litir, 167,- m.
Frotti, eimlitt, breidd 90 sm,
6 litir, 116,- m.
Poplin, hvítt, breidd 90 sm,
50,- m.
Poplin, mislitt, 10 litir, 60,- m.
Baðmullarteppi tilvalin i bíla og
ferðatög, 283,-.
Nælonblúnda. bróderuð blúnda.
baðmullarblúnda.
MUNIÐ merkistafina og smá-
vöruna.
Póstsendum — sími 16700.
Véladeild — verzlun
Traustur og reglusamur maður, 34 ára, með góða reynslu í
vezlunarstörfum og stjóm. óskar eftir framtíðarstarfi hjá
traustu fyrirtæki. Sérstakur áhugi á vélaverzlun eða bifreiða-
umboði, annað kemur þó vel tif greina. Ensku- og dönsku-
kunnátta, hefur mjög góð persónuleg sambönd.
Tilboð óskast vinsaml. send afgr. Mbl. fyrir 20. febr. merkt:
„SALA — 2805".
BYGGINGARVÖRUR
Pípur og fittings
Skolprör úr potti og plasti
Tjöru- og rörhampur
Rennilokar
Bakstreymislokar
Ofnkranar
VERZLUN
Sigurbjörns Kárasonai
Njálsgötu 1.
A J. Þorláksson & Norðmann hf.