Morgunblaðið - 05.03.1970, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.03.1970, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1»70 Wmœm Bjöm Pálsson formaður Félags náttúrufræðinwna í stofu í gamla Atvinnudeildarhúsinu, þar sem verkleg kennsla í nátt- úrufræði fer fram. Guðjón Magnússon formaður Félags læknanema er hér inni á lesstofu læknanema, en á borðunum má sjá bein, sem lækna- nemar skoða jafnframt lestrinum. Háskóiadagurinn hefst með guðsþjónustu í háskólakapellunm. Gylfi .Tónsson, formaður Félags guðfræðinema, stendur hér fyr- ir framan grátumar. Prédikun og daglegt starf prestsins Háskóladagurinn hefst kl. 10 með guðsþjónustu í kap- ellu Háskóla íslands, og því var eðlilegast að fá fyrst að heyra hvað guðfræðinemar ætla að gera. Gylfi Jónsson formaður Félags guðfræði- nema varð fyrir svörum: — Dagskráin hjá okkur hefst með messu, þar sem Sigurður Sigurðsson guð- Kvikmynd og fyrirlestur u m fíknilyf Það verður margt að sjá og heyra á Háskóladeginum, sem verður í fyrsta skipti n. k. sunnudag. í viðtali í Mbl. s.l. þriðjudag sagði Baldur Guðlaugsson, laganemi, for- maður undirbúningsnefnd- ar, frá skipulagi þessarar kynningar og kom þar fram að hver háskóladeild hefur undirbúið dagskrá, sem á að sýna sem gleggst og skemmti legast hvað stúdentamir em að fást við í háskólanáminu — og að hvaða gagni þaö kemur. Við leituðum því til forsvarsmanna deildarfélag- anna átta til að heyra nánar um hvað verður á dagskrá í hverri deild. fræðinemi prédikar, en mess- ur eru einn þáttur í námi okkar. Að henni lokinni mun um við koma saman og ræða prédikunina — flutning hennar, uppbyggingu, orða- val o.s.frv. Slíkar umræður eru nýmæli hjá okkur, en að þessu sinni verður öllum kirkjugestum heimilt að taka þátt í umræðunum — spyrja og gagnrýna. — Eftir hádegi kl. 14.15— 17 verða umræðufundir. Þeir falla ekki beint undir náms- kynningu, en eiga að varpa ljósi á það starf, sem bíður okkar að námi loknu, þ.e.a.s. fyrir utan hin hefðbundnu prestsverk, og hvernig við get um búið okkur undir það. Séra Jón Bjarman æskulýðs- fulltrúi mun ræða um starf kirkjunnar að æskulýðsmál- um, en það fer stöðugt vax- andi. Dr. Björn Björnsson prófessor mun stjórna fundi, þar sem rætt verður út frá félagslegri siðfræðd um eitt- hvert þeirra vandamála, sem presturinn á við að etja í starfi sínu. Síðan mun séra Ólafur Skúlason segja nokk uð frá því starfi, sem bíður prestsins í söfnuðin- um — t.d. í sambandi við félög, sem starfa innan hans, svo sem bræðrafélög, kven- félög og æskulýðsfélög. Allt eru þetta mál, sem vænta má að almenningur hafi áhuga á að fræðast um og munu fyrir lesararnir þrír svai'a spurn- ingum stúdenta og gesta og ræða við þá. — Að loknum dagskrárlið- um alira deilda háskólans munu guðfræðinemar svo annast kvöldbænir í kapellu skólans, sagði Gylfi. í skjalatösku sinni er Bergþór Konráðsson viðskiptanemi með allan fróðleikinn um staðgreiðslukerfi skatta, en það verður á dagskrá viðskiptanema á Háskóladegi. (Ljósim. Ól. K. M.) ur þáttur um ávana- og fíkni lyf. Kl. 14.30 hefst sýning á bandarískri kvikmynd um á- vana- og fíknilyf, en í henni er sýnt er lögreglan gerir innrás í „marihuanapartí“ og síðan er rætt við þá, sem þar eru handteknir, um hvers vegna þeir nota þessi lyf o.s.frv. Kvikmyndin tek- ur um hálfa klukkustund og að henni lokinni flytur Pálmi Frímannsson læknanemi er- indi um þessi lyf og svarar fyrirspurnum. Ef leyfi fæst munum við jafnvel hafa sýn ingu á þessum helztu lyfjum. — Frá klukkan 14 til 17 munu læknanemar verða í kennslustund hjá prótf. Jó- hanni Axelssyni og fram kvæma lífeðlisfræðilegar til- raruirúr á dýruim, aöallega kan- íinum og rottuim og er öllum heimilt að fylgjast þar með. Á sama tíma gefst gestum kostur á að skoða líffæra- safn læknadeildar. Staðgreiðslu- kerfi skatta til umræðu Viðskiptanemar munu taka fyrir eitt efni, sem mjög er á dagskrá nú, en það er hvort æskilegt sé að taka upp staðgreiðslukerfi skatta. Bergþór Konráðsson er einn fjögurra viðskiptanema, sem unnið hafa að undirbúningn- um, og hann sagði: — Einn liðurinn í námi okkar eru svokölluð seminör, og á hver stúdent að flytja tvö slík í síðari hluta náms- ins. Efnin veljum við í sam- ráði við prófessor, en höf- um annars mjög frjálsar hendur um val þeirra og flutn ing. Það er ýmist að einn stúdent vinnur og flytur sem inar, eða við vinnum það tveir eða fleiri saman. i M Guðjón Magnússon formað ur Félags læknanema sagði um kynningu sinnar deildar: — Okkar dagskrá getur eingöngu orðið á grundvelli þeirrar kennslu, sem fer fram í sjálfum skólanum, því ekki er framkvæmanlegt að sýna það, siem fram fer í sjúkrahúsunum. — Það sem ætla má að veki hvað mestan áhuga verð Hvað verður að sjá og heyra á Háskóladegi?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.