Morgunblaðið - 05.03.1970, Page 12

Morgunblaðið - 05.03.1970, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1970 Kynning frambjóðenda Magnús Jóhannesson trésmíðameistari, Bústaðavegi 61. 49. ára. Maki: Bertha< Karlsdóttir. Hvers vegrta eru einhver mál öðrum áhugaverðari? Verðum við sem íbúar ekki að hafa vak- andi áhuga á ölium þáttum borg- armála, svo mjög sem þau grípa hvert inn á annars svið. Þó verða atvinnu- og uppeldismál ætíð sá grundvöllur, sem byggja verður farsæla lausn borgar- mála á og þá um leið velferð okkar sem íbúa borgarinnar. Borgin er í örum vexti og því fylgja miklir örðugleikar, sem við þarf að glfma jafnóðum og leita sem beztrar lausnar á hverju sinni. Það þarf að varð- veita kosti borgar okkar og bægja í tíma frá dyrum þeim vágesti sem mengun umhverfis- ins er. Næg atvinna verður að vera handa öllum, svo að hver vinnu fús hönd fái notið sín og tryggja verður launakjör fólks til sem beztrar afkomu. Stöðug athygli verður að beinast að breyttum viðhorfum vegna hinnar öru tækniþróunar og með því skapa þær aðstæður, sem tryggja at- vinnuvegum borgarinnar þann grundvöll að þeim sé gert kleift að þróast og eflast um leið og búið er í haginn fyrir nýjar at- vinnugreinar. Tryggja þarf uppvaxtarmögu- leika æskunnar, svo að atgerfi og frumkvæði hennar fái notið sín og veiti með þvf nýjum straumum inn í atvinnu- og fé- lagslíf borgarinnar. Sigurbjörg Lárusdóttir starfsmaður Pósts og síma, Baldursgötu 9. 61 árs. • Makt: Bragi Steingrímsson, dýra.’æknir. Þegar ég var að alast upp hér í borg var atvinnuspursmál ungl- inga ofarlega á baugi sem nú, þó segja megi að ég muni tfm- ana tvenna. í þá daga vorum við í sendiferðum, við barna- gæzlu eða við fengum vinnu við að breiða fisk. Þó tímar séu breyttir og at- vinnumarkaður hafi rýmkað, hefur fólkinu fjölgað og er at- vinnuspursmál unglinga því enn mikið vandamál sem þyrfti að leysa með . sameiginlegu átaki eldri og yngri. Því þykir mér stefna sú óæskileg sem borið hefur á hin sfðari ár að unglingar skera sig úr öðrum aldursflokkum og á þá litið sem sérstakan kynflokk. Ég áift að stjórnmál öll verði þvi aðeins farsællega til lykta leidd að aldursflokkarnir vinni sam- an. Við sem lifum í nútima þjóð- félagi erum uggandi um fram- tiðina, samfara því sem meng- un lofts og sjávar ógnar heilum samfélögum, leggur aukin vel- megun það eitt til að alls kyns úrkynjun gerir vart við sig s.s. neyzla allra þeirra nautnalyfja er fiæða yfiir mainkað'inm i dag. Því er ástæða nú fremur en okkru sinni fyrr að standa vörð um velferð barna og unglinga, þyngst er þar á met- unum að veita þeim félagslegt öryggi. Skóla og fræðslumál þurfa að fullnægja kröfum tim- ans. Kanna þarf atvinnumál ör- yrkja og hvort hægt sé að lifa af örorkubótum. Reykjavík sem ferðamanna- miðstöð er það sem koma skal, þarf því að hlúa að ferðamál- um yfirleitt, veitinga og gisti- húsakostur aukinn og bættur. — Reykjavik skal vera sú borg sem öllum öðrum borgum er fýsi- legri að gista. Sigurlaug Bjarnadóttir menntaskólakennari, RauCalæk 20. 43 ára. Maki: Þorsteinn Ó. Thorarensen, rithöfundur. Ætli hugsanlegum borgarfull- trúa megi vera nokkuð mann- legt óviðkomandi? Annars býst ég við, að þessa stundína hljóti atvinnumálin að vera í brenni- púnkti, ekki sízt þegar líður að lokum skólaárs og þúsundir skólafólks, sem sannarlega veit- ir ekki af sínu, streyma á þeg- ar yfirfullan vinnumarkað. Hverskyns uppbyggingarstarf í þágu barna, unglinga og æsku- fólks hlýtur að verða þungt á metunum meðal hinna margvis- legu verkefna borgarstjórnar. Auðvitað þarf að byggja fleiri MORGUNBLAÐIÐ hefur snúið sér til allra frambjóð enda í prófkjöri Sjálfstæð- ismanna í Reykjavík og óskað eftir að þeir svari eftirfarandi spurningu: A hvaða þáttum borgarmál- efna hafið þér mestan áhuga? Fara svör nokk- urra frambjóðendanna hér á eftir. leikskóla, dagheimili, leikvelli, félagsheimili og allt það. En það er ekki nóg. Heimili, skólar og borgaryfirvöld þurfa í samein- ingu að leggja stóraukna áherzlu á hið uppbyggjandi innra starf, til eflingar siðgæði og persónuþroska, vakandi hugs un og ábyrgðarkennd, sem geti hamlað á móti upplausn, múg- mennsku — eða klíkuhætti. Félagsmálin hafa sett áber- andi svip á yfirstandandi kjör- tímabil í Borgarstjórn Reykja- víkur og mörg verkefni eru á döfinni. Megi þau stefna að því að tryggja ungum sem öldnum betri skilyrði til að lifa ham- ingjusömu lífi, — frið til að vera manneskja. Ég viildii gijairna'n, að borgar- stjómimáliim — og stijánnimál'iin hjá oiklkiuir yfirlleitt — gætiu orð- ið „ópóllitliisikairi", svo slkriingii'liega sem það kamin að hilljóma. Við sjiáuim það gre'im'iiliegaist af gamgii ‘heiimisimiáliam.na, fwte ihiinair jám- hörðiu póil'iitísiku btokitór eru 'hásikateg fyriinbæri. Pólktísik þnöngisýnii og flokkas'trcrta gera engiu góðu málii gaigm. Þvii mimma af slilku því betra. Reyk/javiilk, sem höfuðborg flamd'S'imis og meniniiinga'nm'iðstöð, ber að gamga hér á undam í aulkmiu póliitisku frjáPslynd'i — í þágu ReýkvSkimga og ail'lna la'n'dismamina'. Sindri Sigurjónsson póstmaður, Básenda 14. 49 áian Maki: Sigríður Helgadóttir. Undanfarin ár hafa verið okkur Islendingum býsna þung í skauti vegna erfiðleika í at- vinnumálum. Orsaka er m.a. að leita í aflabresti og verðfalli á þeim afurðum, er náðst hafa á land. Nú virðist bjartara fram- undan og vænta má vaxandi bata í efnahagslífi okkar. Góð lífskjör og félgslegt ör- yggi eru höfuðþættir velferðar- samfélags, en það er einmitt það. er við öll viljum að borgin okk- ar sé og verði. Undirstaða þess er að takast megi að halda uppi fjölbreyttu og þróttmiklu at- vinnulífi, er veitt geti íbúum borgarinnar næga atvinnu. Sem svar við þeirri spurn- ingu, er lögð var fyrir mig þá eru bindindismál og hvers kon- ar varnir gegn eiturlyfjaneyzlu — þar með talið áfengi — áhuga mál mín. Ég geng þess ekki dul- inn, að þetta eru mjög vandmeð- farin mál, en þau krefjast tafar- lausrar úrlausnar eftir ráðum sérfróðra manna og með stuðn- ingi áhugamanna og hópa. Dr. Sturla Friðriksson erfðafræðingur, Skildingatanga 2. 48 ára. Makl: Sigrún Laxdal. Réttsýni og framsýni þarf að viðhafa í úrlausn hinna marg- breytilegu málefna, sem borg- ina varða, og borgarfulltrúi hlýtur að hafa fyllztan hug á farsælli lausn viðfangsefnisins hverju sinni. Borgin er ekki einangraður landshluti, þótt hér sé afmörk- uð miðstöð . íslenzks atvinnulífs og menningar. Því þarf hún að hafa farsæl tengzl bæði við dreifbýlið og umheiminn og vera móttækileg fyrir utanaðkomandi áhrifum og geta brugðizt við þeim á hagstæðan hátt. Hið innra þarf borgarkerfið að vera í samstillingu. — Því þarf að stuðla að eðlilegum sam- skiptum borgarbúa. Nauðsyn- legt er að viðhalda öryggi og tryggingu fyrir góðri afkomu íbúanna og jafnvægi í athafna- lífi og allri félagslegri þróun, þar sem jafnt er séð fyrir þörf- um ungra sem aldraðra, hraustra sem sjúkra. Borgarbú ar njóti fræðslukerfis, sem breytist með nýjum viðhorfum og sé í stöðugri menningarlegri þróun, þar sem völ er á hinni beztu almennu menntun jafnt og fjölbreyttri sérfræðimenntun. Því þurfum við að eiga traust- an og lifandi háskóla og önnur menntasetur, þar sem borgarbú- ar og þjóðin öll getur aflað sér staðgóðrar menntunar sem er undirstaða hagsældar þjóðarinn- ar. Borgin þarf að vera íbú- um sínum geðfellt og heilnæmt umhverfi, þar sem stuðzt er við alla nýjustu tækni í skipulagi og byggingu án þess að skert sé um of svipmót íslenzkrar nátt- úru. Sem meðlimur í náttúruvernd arnefnd borgarinnar finnst mér veigamikið atriði að geta unn- « að því, að höfuðtcorg Isitamds megi vera skipuleg, hrein og fög ur borg, sem ber vott um at- orku, velmegun og vellíðan íbú- anna. Sveinbjörn Hannesson verkstjóri, Stigahlíð 61. 48 ára. Maaki: Halldóra Sigurðardóttir. Öll borgarmál snerta hvern þann, sem kosinn er borgarfull- trúi, hvort sem það eru at- vinnumál, félagsmál, fræðslumál eða önnur, sem koma fyrir borg- arstjórn. Mín aðal áhugamál eru at- vinnu- og félagsmál. Atvínnu- leysinu þarf að útrýma, ekki með nefndum, heldur með fram- kvæmdum og skipulagi. Atvinnu leysið er blettur á okkar þjóð- félagi, og alveg ástæðulaust hér í Reykjavík. Allir eiga rétt á að lifa mann- sæmandi lífi, og búa í góðum íbúðum, hvort sem þeir eru rík- ir eða fátækir, menntaðir eða ómenntaðir, ungir sem gamlir, öryrkjar, sjúkir og aðrir þeir, sem eiga í erfiðleikum í lífinu. Ég vil vinna að öllum þeim málum, sem gera lífið léttara og betra fyrir alla, og svara spurn- ingu Morgunblaðsins: Allt fyrir Reykjavík og Reyk- víkinga. Sveinn Björnsson verkfræðingur, Sigtóni 31. 43 ára. Maki: Helga Gröndal Björnsson. Þegar haft er í huga, að það var ekki fyrr en á áratugnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.