Morgunblaðið - 17.03.1970, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.03.1970, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1070 ® 22*0-22- RAUÐARÁRSTIG 31 MAGIMÚSAR 4K1PHOLT)21 S1MAR2119Ö eWrlokurnlmi 40381 -;=^—25555 ÆA A A \mm BILALEIGÁ HVERFISGÖTU 103 YW SenÆferðaNfreið-VW 5 manna-VW svefnvagn YW 9 manna - Landfover 7manna bilaleigan AKBRA UT Lækkuð leigugjöld. r v 8-23-41 sendwm Fjaðrír, fjaðrablöð. hljóðkútar, púströr og fleiri varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bilavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. Loðhaus skriíar: 0 Lætur ekki klippa sig „Heiðraður Velvakandi! Ég heí alltaí mikla ánægju af því að fá áskorun frá hinum gömlu. Gömlu I raun, gömlu í útliti og hinum gömlu í anda. En enn meiri ánægju hef ég af því að hafna hinum fáránlegu áskorunum þeirra, eins og þess- ari i bréfinu um það, að bréf- ritari vildi, að við „loðhausarn- ir”, eins og það er nefnt, létum skera hár okkar og gengum með húfur. 0 Eyrun falin í aldir hefur fólk, bæði karl- menn og kvenfólk, gengið með sítt hár. Þó aðallega kvenfólkið, og enginn hefur sett út á það. En svo þegar við hinir ungu viljum breyta til, svo að við verð- um ekki jafn-ljótir ogvenjulegir og þeir gömlu og látum hár okkar vaxa aðeins niður fyrir eyru „til þess að ljótu útstæðu eyrun, sem öllum finnst svo ljót, sjáist ekki”, þá hvín í því garrila, eins og heimsendir sé í nánd. En það er bara ekki heimsendir, heldur bylting okkar ungu, sem erum að verða leið á þessu sama venju lega, sem skeður á hverjum degi. 0 Engar mútur þegnar Og við gerum það, sem okkur sýnist og þið megið hlæja og þið megið hneykslast og þið megið bjóðast til að klippa okkur og gefa okkur peninga fyrir, múta okkur, en það þýðir bara ekk- ert því að peningarnir eru bara ekki lífið. H afnarfjörður Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins verður haldinn í kirkjunni að lokinni guðsþjónustu sunnudaginn 22. þ.m. Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. MIÐSTÖÐVAR i bíla og báta Þessar miðstöðvar eru léttar og fyrirferða- litlar. Þær geta brennt dieselolíu, steinolíu, . gasolíu eða benzíni, eftir þörfum og eru fyrir 6 volta, 12 volta og 24 volta spennu. /nr ínns\ mi r r * \ W Leitið upplýsinga. — Stuttur afgreiðslufrestur — Simi 21240 Laugavegi 170-172 bílavörudeild — Laugavegi 170—172 — Sími 21240. 0 Lús <og sápa Nei vinur minn, ég læt ekki klippa mig, og áreiðanlega ekki nokkur sála, þó að þú hafir rit- að áskorun til okkar. Heldur gengi ég með lús, en það er bara ekki svona einfalt, þetta með lúsina, því að það er til nokkuð, sem nefnist sápa og mað ur notar hana til að þvo sér hár ið, og það er líka til nokkuð sem nefnist greiða, og það fellur ekki ryk á það hérna megin djúpsins á milli kynslóðanna. Hár mitt verður óskert, því að ég vil ekki verða ljótur, ber- hausaður með nokkur strá á hausnum og útstæð eyru. Loðinhaus.” 0 Hvað er að gerast í Biafra? Þannig spyr piltur nokkur og skrifar síðan (bréfið örlitið stytt): Velvakandi! Ég hef verið að velta fyrir mér einni spurningu, sem sé hvers vegna vildi Nigeríustjórn ekki samþykkja að kirkjusamtökin flyttu matvæli til Biafra eftir uppgjöfina? Ég hef heyrt þá skýringu, að Nigeríustjórn hafi viljað sanna almenningi, að hún bæri hag Biaframanna og væri fullfær um að forða þeim frá hungursneyð. Þessi tilgáta er al- gjörlega út í bláinn (svo að ekki sé meira sagt), því að nú er orðið augljóst, að hverju Nigeríu stjórn stefnir. Hún gerði allt sem í hennar valdi stóð til að draga hjálpina á langinn. Ef hún hefði alls ekkert hjálpað, hefði hún hlotið aiþjóðafordæmingu. Nei, það vildi hún ekki, heldur notaði hún gamla, góða, kommabragð- ið: hún sá svo um, að aðeins vil- hallir menn yrðu vitni að at- burðunum þar. Þegar hún leyfði blaðamönnunum að skoða sig um í Biafra, ætlaðist hún til, að þeir sæju aðeins björtu hliðam- ar (eru þær annars nokkrar?) á þessu máli, og til verst stöddu svæðanna fengu blaðamenn ekki að koma, nógu var þó ástandið slæmt á þeim skárst stöddu. Þeg- ar svo blaðamennirnir sáu á- standið 1 réttu Ijósi, stóð ekki á NigeríustjórH að reka þá úr landL Þetta bragð fór alit öðru vísi en Nigeríustjórn ætlaðist til. Allir þeir, sem bezt þekkja Biafra, hafa lýst yfir því, að ekki sé allt með felldu austur þar (sbr. von Rosen, trúboðana og hertogaynjuna). Nú, þegar sjónarvottar voru engir, var til- valið tækifæri til að ná sér niðri á fornum erkifjendum. Með íbóa í fullu fjöri var yfirdrottn un norðanmanna í hættu, íbóarn- ir standa norðanmönnum nefni- lega miklu framar. Og nú þegar íbóar gátu enga björg sér veitt, hvers vegna ekki að nota beztu, ódýrustu, og kvalafyllstu aðferð ina — hungrið? Nigeriumenn vissu, að það, að hafast ekki að, var bezta aðferðin. Þeir skipu- lögðu hjálparstarfið lítið sem ekkert, svo að ástandið varð verra en nokkru sinni fyrr. Og árangurinn lét ekki á sér standa: a.m.k. ein og hálf milljón íbóa dauðar í viðbót við þær rúm- ar tvær milljónir, sem þegar höfðu verið drepnar. Og án vopna — bara að sitja í höllinni sinni og eyða hjálparpeningun- um í svallveizlur. Og íbó-þjóð- flokkurinn, sem fyrir stríð var sá efnilegasti í Afríku og taldi rúmar níu milljónir, stendur nú eftir með rúmlega 5 og hálfa milljón — og þar af tæp milljón manns, sem aldrei verða annað en aumingiar vegna langvarandi hungurs og uppþornunar. Helm- ingur íbó-þjóðarinnar er orðin hungrinu að bráð. Nigeríumenn eru nú örugglega búnir að Uyggja, að íbóarnir ógna þeim ekki í bráð. En er þetta búið? Láta Nigeríumenn hér staðar numið, eða útrýma þeir allri þjóðinni? Það er nú berlega komið í ljós, að Sameinuðu þjóð irnar láta þetta viðgangast. U Thant... hefur jafnvel sagt, ber um orðum, að hann sé sammála Nigeríumörmum um lausn deil- unnar. Auðvitað fær hann fréttir af ástandinu en hefst ekki að. Það er eins og allir kæri sig kollótta um örlög fremstu þjóð- ar Afríku, meðan þeir æsa sig upp yfir venjulegum — og jafn- vel eðlilegum — smá — stríðs- glæpum í Víetnam.” Söluumboð: K. JÓHANNSSON HF. (Reynir Lárusson - Karl Jóhannsson) P.O. Box 1331 - Sími 2-51-80 - Hverfisgötu 82 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.