Morgunblaðið - 17.03.1970, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.03.1970, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1070 fltwgMitWftfrifr Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveirvsson. Rrtstjórar Matthías Johannessen. Eyjótfur Konráð Jónsson, Ritstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fréttasljóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ami Garðar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6. Simi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. Askriftargjald 165,00 kr. á mánuði innaniands. I lausasölu 10,00 kr. eintakið. ÞJÓÐARHAGUR j gær hófust í Washington viðræður um loftferða- samning íslands og Banda- ríkjanna og fara þessar við- ræður fram að ósk banda- rískra stjórnvalda. Augljóst er, að viðræður þessar eru hinar þýðingarmestu, þar sem margvíslegar breytingar eru nú að verða á fluginu yf- ir Norður-Atlantshafið og Loftleiðir hyggjast taka þot- ur í notkun á þessari flug- leið um ísland. Flug Loftleiða milli Islands og Bandaríkjanna hefur jafn- an byggzt á einföldu grund- vallaratriði, að fljúga hægar fyrir lægra verð. Vegna lægri fargjalda hefur Loftleiðum tekizt að afla farþega, sem ella hefðu farið með skipi yfir N-Atlantshafið eða alls ekki farið þessa leið. Þessir farþegar hafa hins vegar orð- ið að sætta sig við, að ferð- in tæki lengri tíma og að ýmiss konar þægindi væru minni en hjá öðrum flugfé- lögum. Þótt Loftleiðir taki nú þotur í notkun verður félagið eftir sem áður að millilenda á íslandi og tekur ferðin því að sjálfsögðu lengri tíma en hjá þeim flug- félögum, sem fljúga beint án viðkomu. Loftferðasamningur íslands við Bandaríkin er af svo- nefndri Chicago-gerð, en meginefni hans er, að engar takmarkanir eru settar á ferðafjölda og tíðni ferða og ákvæði um fargjöld eru held- ur engin. Aðeins örfá ríki hafa gert loftferðasamning við Bandaríkin af þessari tegund en flest önnur ríki hafa gert loftferðasamninga á grundvelli hins svonefnda Bermuda-samnings, en í hon- um eru margvísleg ákvæði og takmarkanir um ferðafjölda, fargjöld o.fl. Ekki er vitað til þess, að Bandaríkin hafi nokkru sinni sagt upp loft- ferðasamningi við annað ríki. í samningaviðræðum þeim, sem nú fara fram, er einnig á það að líta, að Loftleiðir hafa á löngum tíma og með miklu starfi unnið þann markað, sem þeir nú hafa. Það má því með sanni segja, að flug þeirra um N-Atlants- hafið byggist á langri hefð. Loftleiðir hafa á undanförn- um árum haft ákveðið hlut- fall af farþegafjöldanum yfir N-Atlantshafið. Þetta eru far- þegar, sem hafa ekki haft efni á að fljúga með öðrum flug- félögum. Hið íslenzka flug- félag hefur alls ekki í hyggju að auka þetta hlutfall, ein- ungis að halda því óbreyttu. Fyrir aðrar og stærri þjóðir skiptir farþegaf jöldi Loftleiða litlu, en fyrir íslendinga skiptir hann miklu. íslendingar munu fylgjast af athygli með viðræðunum í Washington. Hér er um hags- munamál allrar þjóðarinnar að ræða — ekki einvörðungu eins flugfélags. Loftleiðir eru svo mikilvægt atvinnu- fyrirtæki í íslenzku efnahags- lífi, að það yrði íslendingum mikið áfall, ef samdráttur yrði í starfi þess eða stoðun- um kippt undan rekstri þess, eins og raunverulega hefur verið gert á Norðurlöndun- um. Bandarísk stjómvöld hafa jafnan sýnt mikinn skilning á þýðingu Loftleiða fyrir ísland og íslenzkt at- vinnulíf. Þess vegna eru Is- lendingar vongóðir um, að viðræðumar í Washington beri jákvæðan árangur. Hopa á hæl 17'ramsóknarmenn og komm- ■* únistar hlaupa nú úr einu víginu í annað í áróðri sínum gegn Búrfellsvirkjun. Þeir hafa nú gefizt upp við fyrri staðhæfingar um, að kostnaðarverð Búrfellsvirkj- unar hafi farið fram úr áætl- un eða að kostnaðarverð raf- orku sé hærra en söluverð til ísal. Fullyrðingar þeirra um þetta hafa verið hraktar og stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi þeirra um það efni. Nú hafa þeir hins vegar gripið til þess ráðs að halda því fram að lánakjör Búrfells virkjunar hafi verið óhag- stæð. Alþjóðabankinn lánaði 18 milljónir dala til fram- kvæmdanna til 25 ára með 6% vöxtum. Þetta er mjög hagstætt láii og meira en helmingi hærra en öll lán Is- lands hjá Alþjóðabankanum áður samanlögð. Sýnir það bezt traust bankans til ís- lendinga. Önnur lán eru með nokkuð hærri vöxtum en engu að síður mjög hag- kvæm. Hins vegar geta menn velt því fyrir sér hvernig okkur hefði gengið að afla lána og með hvers konar kjörum, ef farið hefði verið að ráði Framsóknarmanna og framkvæmdum frestað. Á Hvers stríð? EFXIR ÓLA TYNES ÞAÐ er eimfeemndleg árátta hjá sumnu fólki að eigna Bandaríkjumiuim flest þau stríð, sem brjótast út í heimimum. í sam- rærni við hernaðarba.ndalóg, sem gierð hafa veri’ö við stjórnir ýmissa landa veita þau oft aðstoð, en sú aðstoð er veitt vegna þess, að árás er gierð á við- feomandi land. Tvö nærtætoustu dæmin eru Vietmam og Laos. Stríðið í Vietniam hófst mieð innrás Norður-Vietraam í Suður-Vieitnam, og stríðið í Laoa hófsit eiraraig me'ð innrás Norður-Vietnam. Aðstoð Bandaríikjanna hefur orðið til þess að kommúnistum hefur ekki tekizt að leggja þessi lönd algerlega undir ság og því væla þeir há- stöfum úim hemaðaríhlutun Bandiaríkj- aniraa. Vietnam hefur horfið í stouiggann af Laos undanfarraa daga og margir ótt- asit ,að þar brjótist út sityrjöld, sem verði jafn mitoil að umfaragi og sú, sem geisar austan megin landamæranna. Þessa ótta gætir ekiki sízt í Banda- ríkjuraum, sem væru löngu búin áð bindia enda á stríðið í Viietniam, ef ektoi toærni til óbilgimi kommúnisita, siem etoki vilja láta af þeim fasta áisetninigi að brjóta allt landið uradir sdg. Þeir hafa ektoi viljað viðurkenraa neinn samnings- grundvöll, sem hindraðd þennan ásietn- irag eiras og glöggt kom í ljós, þegar þeir höfnuðu algerlega þeirri tillögu að allir utaraaðkomandi aðilar draegju hersveitir síraar frá landirau. Þeir heimtuðu þá og heimta eran, að allir þeir aðilar, sem stýöj a Suður-Vietraam dragi skilyrðis- laust hersveitir sánar burt og létu her- sveitir kommúnista um að ákvarða ör- lög landsiras. í sambandi við flest átök, sem eiga sér stað í heimiraum nú, er vert að minn- ast þess, að þar er okki eingöngu um að ræða tvo „lotoal“-aðila, siem em að jafna deilur síraar. Bandaríkin og Sovétríkin eru í þeirri aðsitöðu, að vegna vopna- búnaðar þeirra er útiloka'ð fyrir þau að heyja beina styrjöld hvort við annað. Slík átök gætu vel byrjað með venju- legum vopiraum, en það er svo til ör- uggt að þegar halla færi á anraan hvom aðilan, myndi hann grípa til kjam- orkiuvopraa fremiur en tapa. Hiras vagar geita þau háð óbeinar styrjaldir eins og t.d. í Vietiraam og Laos eða anniars staðar þar siem þau telja sig eiga hagsmuraa að gseta, og það er ein- mitt það, siem svo oft hefur gerzt. I stórum dráttum em þa'ð því tvær huig- sjónir, sem eigast við: lýðræði og kommúniismi. Menn geta sjálfsaigt etoki orðið alveg sammála um hivor aðilinn það svo er, sem kemur þessum óbednu styrjöldum af stað, en nýjustu og gleggstu daemin eru Vietraam og Laos, þar sem átökin hófuist í báðum tilvikum mieð innrás frá Norður-Viietnam. Og Norður-Viietnam fær mestöll sín vopn frá Sovétríkjun- um. Það má taka anraað dæmi til sönnun- ar því áð kommúnistar eru árásaraðil- inn. Miklar breytimgar hafa orðið í heim inium frá lokum síðari heimsstyrjaldar- iraraar. Lönd, sem Bamdaríkin hernámu eða voru á áhrifasvæði þeirra, hafa aft- ur endurheimt sjálfstæði og sjálfsitjóm, oftast með ríflagri aðstoð frá hernáms- laradirau. Eitt nýjasta dæmið er eyjan Okinawa, sem Japanir hafa að nýju feragið yfirrá'ð yfir. Rússar halda hins vegar enn í heljar- greipum þrælkuiraar og ófrelsis því, sem þeir náðu, og bæta frekar við sig en hitt. Reyrasla undianfarinna ára hefur líka sýnt að þeir taka óblíðleiga á þeim, sem sýraa þess einhver rnerki að vilja öðlast meira frelsi og sjálfstæði. Ef við snúum okkur aftur að Laos hiefur það vaikið athygli að Bandaríkja- stjórn er treg til að láta í té upplýsiragar um þátt henmar í strföinu þar. Þarna þykjaist kommúnistar hafa femigið mikið vopn í hendurnar og veifa því óspart. Það mætti jafnvel haldia af öllu offors- irau, að þeirra fólk berðist fyrir opnum tjöldum. Þeir ættu að hafa í huga, að Norður-Vietraam hefur enn ekki viður- kerarat að það tatoi þátt í Vietnam-stríð- irau, þvert á móti harðraeitar Hanoi að hermenn þa'ðian eigi nokkurn hluit þar að. Komimúraistar hafa einnig gert mikið úr óánæigjuröddium í Bamdiaríkjumum sjálfum og vitnia óspart í þær, máli sínu til stuðrainigs. Þeir æt-tu að hafa í huga að þetta er eiramitt edmt af þeirn atrið'um, sem veikja málstað þeirra. í Bandaríkj- uoum er fólki frjálst að mótmæla opim- berri stefnu stjómarinnar. En það er ebki aðeins í Bandaríkjunum, sem stríð- um er mótmælt. í Rússlandi mótmælti hóþur fólks iranrásinni í Tékkóslóvakíu. Muraurinn var aðeiras sá, að það var þegar sett í fangelsi. Þjó'ðviljinn skrifar um stríðið í Laos þriðjudaginn 10. þessa mánaðar. Sá, sem ritar þá grein, kiennst að eftirfarandi niðurstöðu: „Og það á við um Laos eins og Viet- nam að landið hefði fyrir löngu verið sameinað undir eina stjórn þjóðfrelsis- vina, ef Bandaríkin hefðu ekki með íhlutun sinni komið í veg fyrir það“. Þetta eru orð að sönrau, landið væri áreiðanlega komið uradir eina stjórn. Við getum tekið tvö dæmi. Baradiaríkin komu EKKI í veg fyrir með íhlutun simmi að ein stjórn „þjóðfrelsiisvina“ tæki völdin í Ungverjalandi. Baradaríikin komu EKKI í veg fyrir rnieð ílhlutun sinni áö ein stjórn „þjóðfrelsiiisviraa“ tæki völdin í Tékkóslóvakíu. Og mikið er það raú frjálst og ham- inigjuisamit fólk, sem býr í þessum lönd- um í dag — eða hvað? Lundúnatríóið í heim- sókn til Akureyrar þeim tíma, sem síðan er lið- inn hafa lánskjör versnað mjög og vextir stórhækkað. Þá hefði vissulega verið hægt að tala um óhagstæð lán. En ráðum Framsókmarmanna var ekki hlýtt. Lántökur til Búrfellsvirkj- unar sýna það traust, sem Is- lendingar njóta á erlendri grund. Það traust var ekki fyrir hendi, þegar Framsókn- armenn voru við stjórn. Þá var hvergi hægt að fá lán nema ganga með betlistaf fyrir erlenda stjómmálafor- ingja og biðja þá ásjár. Og það gerðu Framsókniarmenn. Akureyri 14. marz. LUNOÚNATRÍÓIÐ (Trio of Lond on) er væntanlegt til íslands í næstu viku á vegum Tónlistar- félags Akureyrar og mun halda tónleika á þremur stöðum hér á landi, Akureyri, ísafirði og Reykjavík. Tríóið skipa Carmel Kaine, fiðluleikari, Peter Willison, selló leikari og Philip Jenkins, píanó- leikari, kennari við Tónlistar- skóla Akureyrar. Tríóið hefur farið margar hljóm- leikaferðir um Bretlands- eyjar og meginland. Evrópu frá því það var stofnað árið 1964 og auk þess leikið oft í brezka út- varpið og á hljómplötur, og hvar vetna hlotið hina beztu dóma. Á miðvikudag leikur tríóið í Borgarbíói fyrir skóla á Akur- eyri, fyrir Gagnfræðaskólann kl. 5, og Menntaskólann kl. 9. Opin- berir tónleikar verða á sama stað á fimmtudagskvöld kl. 9. Að göngumiðar að þeim tónleikum verða seldir í bókabúðinni Huld. Á föstudag 20. marz leikur tríó ið á ísafirði og í Norræna hús- inu í Reykjavík þriðjudaginn 24. marz kl. 9 síðdegis. — Sv, P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.