Morgunblaðið - 19.03.1970, Síða 3

Morgunblaðið - 19.03.1970, Síða 3
MORGWNBiLAÐIÐ, FKMMTUDAGUR 119. MARZ 1970 3 Ncfndarálit á Alþingi; V er ðgæzluf r um varp verði samþykkt Kynning á verkum þriggja ljóðskálda í Norræna húsinu MEIRIHLUTI Allsherjar- nefndar efri deildar lagði í gær fram á Alþingi nefndar- álit um frv. ríkisstjórnarinn- ar um verðgæzlu eg sam- keppnishömlur. Leggur meirihlutinn til að frv. verði samþykkt, en að því áliti standa Auður Auðuns, Jón Þorsteinsson, Ólafur Björns- son og Sveinn Guðmundsson. í nefndarálitinu eru dregin fram rök nefndarmanna fyr- ir stuðningi við frv. og eru þau þessi: 1. Með frumvarpinu er mörk- uð ákveðin stefna í verðlagsmál- uan, grun'dvölkið á frjálsri og virkri samSkeppni, sem líkleg er til þess, þegar fram líða stundir, að verða bæði framleiðendum og neytendum til hagsbóta. 2. Saimlkeppnina á að tryggja með sterfeu aðhaldi stjórnvalda og verðgæzlu. 3. ítarleg ákvæði eru í frum- varpinu um samkeppnidhömlur og ráð til að vinna gegn þeim, en lagafyrirmæli á þes'su réttar- sviði hefur Skort til þessa. Þegar sam'keppni er ta'krmörkuð eða horfur eru á ósanngjarnri þróun verðlags og álagningar, er verð- gæzluráði heimilt að ákveða há- marlksverð og hámarlksálagningu svo og verðstöðvun um tiltekinn tíma. 4. í frumvarpinu eru ýmiis ný- mæli, sem tryggja rétt neytenda og einstakra atvinnufyrirtækja gegn óbilgjömum viðskipta- háttum. 5. Hæstiréttur skal södpa tvo menn í þriggja manna nefnd og verðgæzluráð. Með því móti koma til fagleg og hlutlaus sjón- armið við úrlausn verðlagsmála, og er það tvímælal'aust til bóta. Þá er í nefndarálitinu bent á, að fyrirmynd að frv. þessu hafi verið sótt til nágrannaþjóðanna á Norðurlöndum og sé ekki að efa, að við getum milkið lært af þeirra reynslu. FÖSTUDAGINN 20. marz kl. 20.30 stendur Stúdentafélag Há- skólans fyrir bókmenntakynn- ingu í Norræna húsinu. Kynnt verða verk ljóðskáldanna Einars Braga, Stefáns Harðar Gríms- sonar og Jóns Óskars. Sigurður A. Magnússon, rithöfundur, ræð ir um skáldin, og síðan lesa þeir úr verkum sínum. Allir eru vel- komnir á kynninguna, meðan húsrúm leyfir, og aðgangur er ókeypis. ísafjörður Sjálfbtæðiskvennafélag Isa- f jarðar (heldur aðaltfrmd í kvöld, fimmtudaginm 19. marz, ikJL 21, Á fumdinum verðia venjuöeg aðal fundianstörtf. Höigcrm Þórðarson, bankamaður, heldiur ræðu. — Þá venða Ikalfifiveitiingiar. Fulltrúaráðs- fundur Sambands ísl. sveitarfélaga FUNDUR fulltrúaráðs Samhands íslenzkra sveitarfélaga hefst í dag og lýkur á morgun. Formaður sambandsins, Páll Líndal, borg- arlögmaður, setur fundinn, en ávörp fjytja Emil Jónsson, fé- lagsmálaráðherra og Geir Hall- grímsson, borgarstjóri. Þá flyt- ur Ólafur Davíðsson, hagfræð- ingur, erindi um þátt fasteigna- gjalda í tekjuöflun sveitarfélaga og verða umræður um erindi hans að því loknu. Síðdegis í dag verður m.a. flutt skýrsla stjórnar sambandsins, en á morgun hefst fundur kl. 10 með erindi Birgis Ásgeirssonar, lögfræðings um innheimtustofn un sveitarfélaga. Fundi lýkur sið degis á morgun. 1 Ungmenni frá Akureyrar- kirkju heim- sækja Garða- kirkju Akureyri, 15. marz. Um síðustu helgi fóru 6 ungmenni úr Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju í heimsókn til Garðakirkju á Álftanesi og tóku þar þátt í kirkju- legu starfi. 1 gær komu svo 3 stúlkur og 3 piltar úr Garðakirkju í heimsókn til ÆFAK til endurgjalds. Tóku þau þátt í guðsþjónustu í dag ásamt ungmennum á Akur- eyri. M.a. flutti Anna Soffía Daníelsdóttir prédikun ásamt Pétri Þórarinssyni úr ÆFAK. Eftir messu sátu gestim- ir árshátíð ÆsJkulýðsfélags- in,s sem fram fór í Sjálfstæð- ishúsinu. Við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tek- in, en á henni em í fremri röð frá v.: Elín Magnúsdótt- ir, Anna Soffía Danielsdótt- ir, Ingibjörg Siglaugsdóttir, formaður ÆFAK og Sigur- björg Hauksdóttir. Aftari röð: Sr. Birgir Snæbjömsson, Gunnar S. Gíslason, Jón M. Jónsson, varaformaður Æsku lýðsfélags Garðakirkju, Björn Helgason og sr. Pétur Sigur- geirsson, vigslubiskup. — Sv. P. ÞAD ER EKKI VÍST að þér hafið athugað hve auðvelt það er að eignast borðstofu- borð og stóla eða heilt sett með skáp. FYRIR 1000 KRÓNUR á mánuði eða 1500 eða 2000 eignist þér gullfalleg vönduð hús- gögn. SPARIÐ YÐUR 3,5% verzlið hjá okkur bis r>oi UIU * * 1 1 Sími-22900 Laugaveg 26 STAKSTEIMR Kommúnistar bjartsýnni Kommúnistar eru skyndilega orðnir mjög bjartsýnir um þróun íslsnzkra efnahagsmála. Hingað til hafa þeir ekki séð neina ljós- glætu, en á þvi hefur orðið býsna snögg breyting. Ástæðan er sú, að í vor renna út kjarasamning ar verkalýðsfélaganna og þá þarf að gera nýja samninga. Kommúnistum er allt í einu orð ið ljóst, að batnandi hagur þjóð- arbúsins er röksemd fyrir bætt- um kjörum launþega. Þetta er skarplega athugað — og alveg rétt ályktað. Eins og Morgun- blaðið hefur margsinnis bent á, gefur batnandi afkoma vonir um að hægt verði að veita launþeg um nokkra kjarabót í vor. Það verða svo sjálfsagt skiptar skoð anir um það, hvað sú kjarabót geti orðið mikil. í þeim efnum verður að, hafa í huga, að ekki má stefna í voða því, sem áunn- izt hefur á síðustu misserum í betri stöðu þjóðarbúsins. Hin nýja bjartsýni kommúnista er fagnaðarefni. Vonandi sjá þeir ljósglætu á öðrum árstímum en síðustu vikunum fyrir kjara- samninga. Þátttaka Tímans Tíminn lét ekki sinn hlut eftir liggja í skoðanakönnun Fram- sóknarmanna í Reykjavík. Einn af frambjóðendum í þeirri skoð anakönnun var íþróttafréttarit- ari blaðsins. Tvo aðal kosninga- dagana, laugardag og sunnudag, birti Tíminn á forsíðu furðufrétt ir, sem þessi íþróttafréttaritari blaðsins skrifaði og voru merkt ar honum. Það var engin tilvilj un, að þessi skrif birtust einmitt þessa tvo ðaga og á forsíðu Tím- ans. Málgagn Framsóknarflokks ins var nefnilega að koma á fram færi orðs-endingu til flokks- manna sinna um hvern þeir ættu að kjósa. „Gómsæt og fiskræn heild4* Maður nokkur var fenginn til þess að flytja ræðu um annan mann á bókmenntakynningru í Háskólanum fyrir nokkru. Þótt maðurinn, sem ræðan var flutt um, sé stundum titlaður ritböf- undur, er hann líka einn af al- þingismönnum kommúnista. — Þess vegna er ræðan birt í komm únistablaðinu í gær. Hinum „fjöl mörgu hliðum á persónuleika" þingmannsins er lýst með þess- um orðum í ræðunni:.þá ætti ég að geta sannfært ykkur um þá skoðun mína, að hvorug hliðin á kolanum sé í rauninni annarri brosl-egri eða alvarlegri, heldur myndi þær til samans eina hollustusamlega, gómsæta og fiskræna heild“. Þá vitum við það. Jónas Árnason er „holl- ustusamleg, gómsæt og fiskræn heild“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.