Morgunblaðið - 04.04.1970, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.04.1970, Blaðsíða 7
MOBGUÍNBLAÐIÐ, L.AUG ARDAGU R 4. APRiL 19-70 Hvar er súpan okkar? 'WWW9 Spitzen HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS 1920-1970 ISLAND 650kr UL ....na, wo bleibt denn heute unser Suppchen?“ 1 þýzku frímerkjatímariti rákumst við á þessa mynd af nýja fri- merkinu með Hæstarétti, og þýzkir virðast lítið hrifnir. Þeir halda víst helzt að dómaramir séu með smekki, enda stendur undir myndinni: „Og hvar er svo súpan okkar í dag?“ ÚR ÍSLENZKUM ÞJOÐSÖGUM FÓSTURDÓTTIR ÁLFKONUNNAR Einu sinni var barn á öðru ári, nýfarið að tala. Sýndist því móðir sín ganga fyrir hól í tún- iniu, elti það hana, þangað til hóllinn varð milli bæjarins og barnsins. Elti það þá konu þá, er fyrir því fór, inn í hólinn. Þetta var stúlkubarn, og ólst það upp hjá hinni öldruðu konu, þangað til það var þrettán ára. Mjög var álfkonan góð við stúlkuna, kenndi hún henni mjög margt gott til munns og handa. Lærði hún þar sálma og söngva, er tíðkuðust í landinu, en marga fleiri, og voru þeir að vísu andríkir, en frábrugðnir og undarlegir. Aldrei varð stúlkan vör við fleiri en konu þessa, og undi hún sér vel hjá henni, en minntist þess þó eins og í þoku, að hún hafði ver ið annarstaðar. Að þessum tíina liðnum tók álfkonan sótt, er hana leiddi til bana. Þakkaði hún þá stúlkunni dygga þjón- ustu og kvað henni nú vera holl ast að fara til foreldra sinna, sagði hún, að þeir mundu kann- ast við hana og hún mundi gift- ast, bjargast vel og verða vel látin. Ýmsa menjagripi gaf álf konan henni að skilnaði og þar á meðal fald einn með líni. Sagði álfkonan, að hvenær sem að faldinum yrði, mundi hún eiga skammt eftir ólifað. Síðan kvöddust þær með virktum. Stúlka þessi varð hinn mesti lánsmaður. Giftist hún vænum og auðugum manni, bjó lengi með honum og átti margt barna. Voru þau öll nómsmenn miklir. Á gamalsaldri var hún einn góðan haustdag til altaris með manni sínum, og faldaði hún þá álfkonunaut. Um kvöld ið, þegar frá kirkju var komið, tók hún faldinn af sér til að læsa hann niður. Sá hún þá, að faldlínið var rifið. Hún kallaði þá mann sinn og börn til sín og sagði þeim þessa sögu og gaf þeim góð ráð og áminningar, gekk síðan til sængur og sofn- aði, en vaknaði aldrei aftur. (Þessa sögu heyrði ég ungur í Vatnsdalnum.) (Sagnakver Skúla Gíslasonar). VISUKORN Amma raular við rokkinn sinn. Einn er lítill flokkur frjáls flæktur þó í vanda. Málefnin hjá meiðum stáls mjög til beggja handa. Hægri og vinstri hagfræðin hrella mjög að vonum. Áhrifalaus auminginn . Eymdin fylgir honum. Erfitt reynist anginn minn eftir fjarvist langa. Að koma þér í ylinn inn, eintóm píslarganga. TumL Lá andvaka óveðursnótt á Norð urlandi i nágrenni Húnavalla. Skellast hurðir, skjálfa gluggar, skrambans ári er mikill garrinn, ein ég kúri, ekkert huggar, út af keyrir margur marrinn. Sigriður Jónsdóttir frá Stöpum við Reykjanesbraut. Blöð og tímarit Marz-hefti Úrvals er komið út fyr id nokkru. Efni er m.a.: Expo 70 — heimssýningin í Japan, grein um William P. Rogers utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, kafli úr bók Bayards Taylors um þjóðhátíðina 1874, grein um Turgenj og Tolstoy, eftir Sergei Tolstoy, Kvennabær- inn Bousbirs í Casablanca, grein um Andrés J. Johnson í Ásbúð, eft Guðmund Þorsteinsson frá Lundi, Blindbylur í landi indiána, eftir Thomas Gallagher, grein um Gregor Orloff, elskhuga Katrínar miklu, Eitthvað, sem unga fólk- ið getur trúað á, eftir Billy Gra- ham, grein um laumufarþega frá úbu, greijj um hlauparann Bill Em- erton, ellr Don Levin og grein um tónskáldið Bach. — Úrvalsbókin er að þessu sinni Poppo, drengur- inn úr fátækrahverfinu, eftir Josef Berger. GAMALT OG GOTT Gymbill mælti og grét við stekkinn: „Nú er hún móðir mín mjólkuð heima, því ber ég svangan um sumar langan munn minn og maga í mosaþúfu.“ Gymbill eftir göturann, hvergi slna móður fann, þá jarmaði hann. LEIÐRÉTTING Upplag Æskunnar er ekki 1700 eintök eins og misritaðist í frétt í gær, heldur 17000 eintök — sautj frf »y ist hér með. ARNAÐ IIEILLA I dag verða gefin saman í hjóna- band af sr. Jóni Thorarensen ung- frú Sigrún Valbergsdóttir, og Gísli Már Gíslason. Heimili ungu hjón- anna er að Fellsmúla 6. í dag verða gefin saman í hjóna band í Rissakirkju í Noregi ung- frú Sigurbjörg Ingvadóttir frá Prestsbakka og Tore Gamo, stud ingeniör. Heimili þedrra verður að Leirarissa, pr. Trondheim, Noregi. STUÐLUM AÐ NATTURUVERND SENDIBlLL — VINNUSKÚR óskai&t til kaops. Uppl. í síma 41976 eftiir kil. 6 e.h. BAKARASVEINN óskar eftir v innu strax. — Upplýsingair í síona 83385. VANTAR góða 4ra—6 herbergja ib'úð sem fynst, teiguturri 5—6 máouði. Regliuisemi og góð umgengnti. Uppl. í síroa 25773 oæstu dagai. 18 ARA STÚLKA óskor eftir atvino'u hálfao daginn, margt kemur til gr. Uppl. í síma 37667 miWi kil. 4 og 5 næstu daga. ÓSKA EFTIR VW-fótksbifreið tíl kaups, ©k'ki eldni eo árg. 1966. Há úttborgun. Upptýsingar í síma 18361 eftiir kil. 7 e.h. KEFLAVlK 3ja—4ra herbergija íbúð ósk- ast til leigu strax. Futtorðið í heimilii. Upptýsingair í síma 1835 eða 1420. MÓTATIMBUR — VINNUSKÚR óskast til kaiups. Upplýsiog- ar í síma 30703. KEFLAVÍK Ung hjón með tvö born óska eftir 2ja—3ja herbergja íbúð strax. Upplýsingar i sima 7117. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu HÚSNÆÐI I HLlÐARHVERFI Ti'l leigu mú þegar 4ra herb. íbúð, sem er á 1. hæð í tví- býtishúsi. Sérinng., teppi á gótfum og bílsk. Tilib. merkt „Htíðarhverfi 2841 tif Mbl. strax. Úr Morsárdal. „Landvernd" Landgræðslu- og náttúruvemdarsamtök íslands hafa boð- að til fulltrúaráðsfundar 1 Norræna húsinu kl. 14.00 í dag laugardaginn 4. apríl. Þar verða teknar til afgreiðslu tillögur, sem fram komu á aðalfundi samtakanna, en eigi vannst tími til að afgreiða þá. Á undan- förnum árum hafa nokkur þeirra félaga, sem að samtökunum standa unnið mikið að landgræðslu víða um land. Verður það starf stóraukið og jafnframt verður unnið að ýmsum öðrum þáttum náttúruverndar, og fræðslu og kynningu á þeim málum. Skrifstofa Landverndar er að Klapparstíg 16, R. Breiifirðingar - Rangæingar - Reykjavík Munið spilakvöld félaganna í Breiðfirðingabúð laugardaginn 4. apríl kl. 21.00. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. SKEMMTINEFNDIN. Framtíðarstarf Maður vanur bílamálun óskast til starfa strax hjá kaupfélagi sunnanlands. Upplýsingar gefur Gunnar Grimsson, starfsmannastjóri Sambandsins. Til ferminganna REYKELSI SERVIETTUR STYTTUR KÖKUBLÓM KERTI í miklu úrvali BLÓMASKREYTINGAR BLÓMAÚRVAL Sendum heim á sunnudag. — Sendum heim alla daga. BLÓM & GRÆNMETI Skólavörðustíg 3 — Sími 16711. Fyrir fermingardaginn — SNITTUR AÐEINS 18.00 KR. SNEIÐIN — — KÖLD VEIZLUBORÐ — B3ÖRNINN Njálsgötu 49 - Sími: 15105 Sendum ybur að kostnaðarlausu, et óskað er — Sími 15105 r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.