Morgunblaðið - 04.04.1970, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.04.1970, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1970 Slökkviliðsmenn i enskutíma — kennari er Anna Jónasdóttir. Ljósm. Mbl. Sveinn Þorm. Slökkviliðið á skólabekk SLÖKKVILIÐSMENN í Slökkvi liðinu í Reykjavík hafa í vetur setið á skólabekk og numið ensku og mun þetta vera fyrsta sinni, sem kennarar í Námsflokkum Reykjavíkur fara á vinnustað til þess að kenna námfúsum. Sum- ir slökkviliðsmannanna eru al- gjörir byrjendur í enskunáminu, en aðrir hafa tekið þátt í nám- skeiðinu til þess að skerpa kunn- áttuna. Rúmar Bjarnason, slökkviliðs- stjóri tjáði blaðinu, að ensku- kunnátta slökkviliðsmannenna væri mjög gagnleg. A ensku er gefið út mikið af sértímarit- um um eldvamir og slökkvi- störf. Hefur aðsðkn að náminu verið allgóð — fjórðungur slökkviliðsins hefur tekið þátt í því. Finnur Richter slökkviliðs- maður, sem annazt hefur und- irbúning námskeiðanna sagði og Mbl., að hann vonaðist til þess að áframlhaid yrði á kennslunni næsta vetur. Mikið er unnið að því að mennta slökkviliðsmeinn næste vetur. Mikið er unnið að í störfum þeirra. í hinni nýju slökkvistöð hefur skapazt allt önnur aðstaða til æfinga og að- búnaður til a'llrar fræðslusitarf- semi er þar mjög góður. Rúm- lega 30 slökkviliðsmenn hafa nú lokið námi úr brétfaskóla norskra slökkviliðsimanna og 5 af varð- stjórum slökkviliðsins hafa sótt yfirmannanámskeið erlendis. — Aukið fé Framhald af bls. 12 þjónustugreina. Frá þessum sjónarhóli virðist ekki óliklegt, að árið 1969 verði í framtíðinni talið marka tímamót að því er varðar atvinnuþróun og iðnvæð ingu. Á því ári hófst útflutning- ur nýrrar framleiðsluvöru, álSj sem væntanlega á eftir að verða drjúgur þáttur í útflutningi ís- lendinga í framtíðinni. Jafnframt var í lok ánsins á'kveðin aðild ís lands að BFTA, sem nú er orðin veruleiki. Enginn vafi leifcur á því, að aðild íslands að EFTA kallar á einihverja rækilegustu endurskoð un, sem hingað til hefur farið fram á íslenzkum efnahagsmál- um. f stað hagkerfisins, sem treyst hefur á eina sterka útflutn ingsgrein, sjávarútveginn, sem aðrar framleiðslugreinar hafa notið góðs af bak við háa vernd- armúra, er nú stefnt að opnu hag kerfi, þar sem reyna mun á sam- keppnisþrótt íslenzks iðnaðar bæði á innlendum og erlendum mörkuðum. Þegar litazt er um í dag, er ljóst, að bæði hagstjórnaraðferð ir og iskipulag þeirra stofnana, er fjalla um stjórn efnahagsmála, hafa mótazt af þeirri atvinnu? uppbyggingu, sem rtkt hefur um árabil. Margs konar misræmi hef ur skapazt af þessum sökum, — svo sem í skattlagningu, tolla- meðferð, lánskjörum, aðgangi að fjármagni og hvers konar opin- berri fyrirgreiðslu, — sem ekki mun eiga lengur rétt á sér, þeg- ár áhrifin af EFTA-aðild fara að koma fram að ráði. Er því nauð- synlegt, að hafðar séu hraðar hendur að fraimkvæma þær breytingar, sem hér er þörf, svo að aðiögun atvinnuvegaima verði sem greiðuist og ávextir þátttölku í hinni stóru markaðsheild komi sem fyrst fram. Eitt þeirra sviða, þar sem end urskoðunar er þörf af þessum sökum, eru peninga- og lánsfjár- mál, og mun ég í því, sem eftir er af máli mínu, fjalla um nokk- ur þeirra verkefna, sem þar eru framundan og varða Seðlabank- ann beint eða óbeint. Er þá fyrst að nefna ýmsar ráðstafanir, sem þegar hafa ver- ið * gerðar eða eru í undirbún- ingi til þess að leysa sérstök vandamál, er fylgja aðild að EFTA. Mikilvægust þeirra er að sjálfsögðu hinn norræni iðnþró- unarsjóður, sem settur hefur ver ið á laggirnar beinlínis í sam- bandi við inngöngu íslands í EFTA, en hann mun veita mjög aukn-u fjármagni til eflingar og aðlögunar íslenzks iðnaðar á næstu árum. í öðru lagi er í und- irbúningi stofnun útflutnings- lánakerfis, er tryggi samkeppn- isaðstöðu framleiðenda fjárfest- ingarvara á fslandi að því er varðar útflutningslán og lán vegna samkeppni við innflutning á sams konar vörum til landsins. Er gert ráð fyrir því, að Seðla- bankinn verði einn af þremur stofnaðilum sjóðsins. í þriðja lagi er rétt að nefna það hér, þótt það standi ekki í beinu sam bandi við EFTA, að Landsbank- inn hefur nýlega gerzt aðili að norrænum viðskiptabanka i London, en slík samvinna milli íslenzkra og erlendra viðskipta- banka getur orðið mjög mikil- væg til að greiða fyrir þjónustu bankakerfisins við íslenzk fyrir tæki, sérstaklega þau, sem vinna á erlendum mörkuðum. Auk þátttöku í útflutnings- lánasjóðnum, mun bankastjórn Seðlabankans stefna að endur- SVAR MITT ri EFTIR BILLY GRAHAM ÉG er roskinn maður og hef lifað lífi mínu fjarri Guði. Er hægt að vænta árangurs, ef ég leita miskunnar Guðs svo seint á ævinni? ÞAÐ er fremur óvenjulegt, að menn hugsi svo alvar- lega um sál sína á yðar aldri. Venjulega lokast menn gagnvart andlegum málum, þegar árin fserast yfir þá, og mjög sjaldan leita þeir hins rétta samfélags við Guð. Þér eruð undantekningin, og þér eruð gæfusamur. Vissulega vill Guð taka á móti yður. Þér spyrjið, hvort vænta megi árangurs, hvort það sé sanngjamt af yður að leita Guðs svo aldraður. Guð er, góðu heilli, ætíð sanngjarn, þótt við kunnum að vera ósanngjarn- ir. Við köllum þetta „miskunn“ Guðs. Sinnti hann okk- ur einungis, ef við værum sanngjamir, er ég hræddur um, að flestir okkar yrðu út undan. Ég sé engin aldurstakmörk í Biblíunni. Boðið beinist til allra, til aldinna jafnt sem annarra. „Þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burtu reka“. Auðvitað er betra að gefa Guði líf sitt á unga aldri. Þá frelsast ekki aðeins sál okkar, heldur fáum við einnig að lifa öðrum til frelsunar. Ég veit ekki, hve gamall hann var, ræninginn, sem bað til Krists á dauðastundinni. En ég veit, að bæn hans var heyrð og að Drottinn sagði: „í dag skaltu vera með mér í paradís“. skoðun á reglum um endurkaup og önnur útlán bankans með það fyrir augum að greiða fyrir fjár- streymi til þeirra framleiðslu greina, sem mesta vaxtarmögu- leika hafa og bezt geta nýtt tækifæri til aukinnar gjaldeyris- öflunar. Við hlið sjálfkrafa út- lána út á birgðir er æskilegt að komi í vaxandi mæli lán byggð á áætlunum um framleiðsluaukn- ingu og arðbæran rekstur, en með því móti á að vera hægt að tryggja mun betri nýtingu fjár- magnsins en ella. Reynsla sú, sem fengizt hefur af rekstrar- lánum Seðlabankans til iðnaðar- ins, hefur sýnt, að nauðsynlegt sé að hvetja viðskiptabank- ana til að veiita fyrirtækjum meira aðhald um gerð rekstrar- og greiðsluáætlana og byggja út lánaákvarðanir í vaxandi mæli á slíkum áætlunum. Þessar og aðrar ráðstafanir til þess að auka framboð á lánsfé til atvinnUveganna eru þó eng- ann veginn einhlítar. Það er löngu orðið ljóst, að einn meg- inveikleikinn í fjárhagslegri byggingu íslenzkra fyrirtækj a er skortur á eigin fé í formi hlutafjár og eigin sjóða, en ekki skortur á lánsfé. Hér er um að ræða vandamál, sem athygli Seðlabankans hefur lengi beinzt að bæði vegna afskipta hans af lánsfjármálum almennt'og vegna þess, að honum er með lögum ætlað að vinna að því, að kaup- þingsviðskipti komist á hér á landi. Enginn vafi er á því, að þetta verkefni er enn brýnna nú en nokkru sinni fyrr, ef íslenzk fyrirtæki eiga að vera samkeppnishæf og nýta þau tækifæri, er aðild að EFTA veit ir þeim. Mun Seðlabankinn leggja megináherzlu á það, að undirbúningi að stofnun kaup- þings verði lokið þegar á þessu ári, en ýmsar athuganir hafa ver ið framkvæmdar á bankans veg- um því máli til undirbúnings. Jafnframt er rétt að taka það skýrt fram, að allar athuganir bankans hafa eindregið bent til þess, að lítil von sé til, að við- skipti með hlutafé og sparnaður í formi hlutabréfakaupa aukist að mun hér á landi, nema gerð- ar verði veigamiklar breytingar á skattalögum, er örvi til hluta- bréfaeignar og jafni metin á milli hennar og annarra sparn- aðarforma, sem almenningur á völ á. Endurskoðun skattalaga, er væntanlega stefnir í þessa átt er í undirbúningi, og er æski- legt, að reglur Seðlabankans um starfsemi kaupþings geti orðið tilbúnar sem fyrst, eftir að sú endurskoðun hefur náð fram að ganga. Ég kem svo að lokum að þeirri spurningu, hvaða frekari breytinga sé þörf, ekki aðeins á starfsháttum, heldur einnig á stofnunum íslenzka bankakerfis ins, svo að það geti stuðlað sem bezt að þróun arðbærs atvinnu- rekstrar í landinu. Skipulag bankakerfisinis hefur ekki síður en aðrir þættir hagkerfisins mót azt af uppbyggingu og innbyrð- is afstöðu atvinnuveganna. Hef- ur verið rík tilhneiging til þess, að hver banki fyrir sig sérhæfi sig í viðskiptum við ákveðinn atvinnuveg, sjávarútveg, land- búnað, iðnað, verzlun, í stað þess að reyna að dreifa lánsfé sínu á milli atvinnuvega, eins og yf- irleitt tíðkast í öðrum löndum. Tveir ríkisbankanna, Landsbank inn og Útvegsbankinn, hafa al- gerlega staðið undir útlánum til sjávarútvegs með stuðningi Seðlabankans í formi endur- kaupa afurðavíxla, en á móti hafa þessir bankar notið þeirrar sérstöðu að hafa einir rétt til gj aldeyr isviðskipta. Af þessu hefur leitt, að auk tvískipting- ar í ríkisbanka og einkabanka hefur bankakerfið skipzt í gjald eyrisbanka annars vegar en hins vegar banka, sem ekki hafa haft rétt til erlendra viðskipta. Allir hafa svo þessir bankar, nema Landsbankinn, fyrst og fremst þjónað einum eða tveimur at- vinnuvegum. Reynslan hefur sýnt, að þessu kerfi fylgja ýmsir ann- markar. Sveiflur í afkomu ein- stakra framleiðslugreina, ekki sízt sjávarútvegsins, hafa vald- ið tilsvarandi breytingum á kröfurn um útlán frá einstökum bönkum. Oft hafa slíkar kröfur reynzt umfram útlánagetu við- komandi banka, svo að þeir hafa lent í greiðsluerfiðleikum, á með an aðrir bankar hafa haft rúmt um útlánsfé, sem þeir hafa beint til þarfa, sem minni forgang hefðu átt að hafa. Sérhæfing bankanna hefur með öðrum orð- um leitt til þess, að hreyfan- leiki fjármagnsins á milli fram- leiðslugreina hefur verið miklu minni en æskilegt væri og nýting þess lakari. Getur þessi veik- leiki haft alvarlegar afleiðingar í framtíðinni, þar sem streymi fjármagns til nýrrar og vaxandi efnahagsstarfsemi mun verða ein meginforsenda þess, að hægt verði að nýta þau framleiðslu- tækifæri, er iðnaðarþróun og að ild að EFTA ættu að veita. Bankastjórn Seðlabankans er þeirrar skoðunar, að tímabært sé, að þessi mál verði tekin til gagngerðrar endurskoðunar, er stefni að því, að allir bankarnir geti með timanum veitt alhliða þjónustu, en dreifi jafnframt fjármagni sínu jafnar á atvinnu- greinar. Ef þessu markmiði á að ná, er óhjákvæmilegt, að smám saman sé breytt því skipulagi, er nú ríkir, að aðeins tveir við skiptabankanna hafi rétt til gjaldeyrisverzlunar. Á hinn bóginn er ljóst, að ekki er hægt að veita nýjum bönkum slík rétt indi, nema tryggilega sé frá því gengið, að þeir taki um leið á sig útlánaskuldbindingar, sem slíkum réttindum hafa fylgt til þessa. Hér er óneitanlega um við kvæmt og vandasamt mál að ræða, og er Ijóst, að skipulags- breyting af þessu tagi verður að gerast í áföngum á alllöngum tíma. Mun Seðlabankinn á næst- unni taka upp viðræður við við- skiptabankana um það, hvernig koma megi slíkri kerfisbreyt- ingu í framkvæmd án óeðlilegra truflana eða erfiðleika fyrir ein staka banka og á sem hagkvæm- astan og ódýrastan hátt. Ekki verður svo skilizt við þetta mál, að ekki verði ítrek- uð sú skoðun, er látin var í ljós af hálfu bankastjórnar Seðla- bankans á ársfundi fyrir tveim- ur árum, að rétt sé að athuga og vinna að samruna bankastofn- ana hér á landi í stærri og sterkari heildir. Er lítill vafi á því, að unnt væri að bæta þjón- ustu bankanna við atvinnuveg- ina og tryggja meiri hreyfan- leika fjármagns, ef hér væru þrír eða fjórir viðskiptabankar í stað þeirra sex, sem nú eru starf andi. Er rétt að minna á, að í öllum nágranpalöndum íslend- inga er tilhneiging til þess, að bankar sameinist í stærri eining- ar, en þó þannig, að tryggð sé eðlileg samkeppni og aðhald. Hefur bankakerfið orðið að fylgja í þessu efni hinni al- mennu viðskipta- og tækniþró- un. Samruni og stækkun at- vinnufyrirtækja í sífellt stærri einingar hefur valdið því, að litlir bankar hafa ekki megnað að veita þeim örugga og alhliða þjónustu, jafnframt því sem tækniframfarir í bókhaldi og skýrslugerð krefjast stærri rekstrareininga í bankastarf- semi, eins og annars staðar. Að svo miklu leyti sem ekki er hægt að ná þessum markmiðum með sameiningu banka hér á landi, er æskilegt, að reynt verði að ná þeim með því, að viðskiptabank arnir komi á miklu nánara sam- starfi sín á milli, sérstaklega um útlán til stærri verkefna og fyrirtækja, en einnig um rekst- ur og þjónustu. íslenzka bankakerfið er ungt. Helmingur viðskiptabankanna er stofnaður á síðustu tveimur áratugum. Þess er því að vænta, að menn séu ekki um of bundn- ir fortíðinni, heldur reiðubúnir til endurskoðunar á skipulagi og starfgháttum bankanna svo að þeir geti leyst sem bezt af hendi það mikilvæga hlutverk, sem þeir hafa að gegna í þágu aukinnar framleiðslu og velmegunar í landinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.