Morgunblaðið - 20.05.1970, Qupperneq 17
MOBGUÍNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1970
17
Skógrækt hafin í sumar við
Árbæjar- og Breiðholtshverfi
Skógræktarstöðin í Fossvogi heimsótt
EKKI er vist, að öllum Reyk-
víkingum sé kunnugt um það,
að suður í Fossvogi, rétt á mörk
um Kópavogs og Reykjavíkur,
er rekin stærsta garðplöntusala
landsins í trjám, og þar eru nú
í jörðu kringum 2 og lA milljón
trjáplantna á ýmsum aldri.
Þegar ekin er heimreiðin frá
Fossvogsvegi inn í Skógræktar-
stöðina standa við hana á þeim
tíma, sem við heimsóttum stöð-
ina í fyrri viku, ber og brún
birkitré í röðum, en framundan
eru sígræn sitkagrenitré, lund-
urinn, sem var plantaður 1944,
og er nú staðarprýði.
Myndarlegt skrifstofu- og
geymsluhús er vestan við þann
lund, og þar hittum við Vil-
hjálm Sigtryggsson, stöðvar-
stjóra Skógræktarstöðvarinnar í
Fossvogi.
Hann var svo vinsamlegur að
ganga með okkur um stöðina,
sýna okkur ýmsar trjáplöntur,
bæði þær, sem selja á nú í vor
og hinar, sem verið var að flytja
til í græðireítunum, og ekki sízt
þau tré, sem þarna eiga að
standa öllum til augnayndis í
framtíðinni.
„Hvað er land stöðvarinnar
stórt, Vilhjálmur?"
„Eins og er, mun það vera um
10 hektarar, en nýlega misstum
við tæpa tvo hektara undir
Kringlumýrarbrautina, en vonir
standa til, að við fáum það bætt.
Um þessar mundir erum við að
hefja sölu á trjáplöntum, og er
þetta stærsita trjáplöntusala
landsins. Auk þess sjáum við
um trjáplöntur í Heiðmörk, og
Vilhjálmur Sigtryggsson, forstöðumaður skógræktarstöðvarinn-
ar í Fossvogi við eina röðina af sitkagreni.
fleiri greinar og væri ekki eins
beinvaxnari, yrði ekki eins há.
Þá var þarna broddfura, amerísk
tegund, frá brezku Kólombiu,
hægvaxta en ótrúlega seig. Stór
skógur af birkitrjám varð nœst
á vegi okkar og voru unglingar
að stinga trén upp, pakka rót-
inni inn í plast, en allt þetta
birki er ætlað til sölu í sumar.
í einúm hópnum með Sigríði,
Hilmari og Sigurði Lárusi, var
Reynir á Elliðavatni, sem gætir
Heiðmerkur á sumrin. Hann er
búinn að starfa við skógrækt-
ina hér um 20 ár, og þeir kalla
hann í gamni „Gráreyni", lík-
lega vegna þess, áð hann er ei-
lítið farinn að grána í vögn-
um.
í öðrum hópnum voru Egill.
Jón og Ástríður Sif, allt ungt
og áhugasamt fólk, og birkið,
sem það var að stinga upp og
pakka, var beinvaxið og fallegt,
og innan tíð'ar mun það prýða
garða Reykvíkinga.
Og íslenzka reyninum er ekki
gleymt í skógræktarstöðinni.
Þarna stóðu þau í röðum, stolt
og beinvaxin, tilbúin til sölu í
garða. Einnig sólberjarunnar og
ribs. Sem sagt eitthvað fyrir alla,
og garðar Reykvíkinga ættu þess
Sigríður pakkar birkirótunum
inn í plast.
„Við höfum gert víðtækar til-
raunir með sitkagrenið, ogflokk-
um það eftir upprunastöðum, köll
um það „kvæmi“, kennum það
við heimkynni þess, og tvö
„kvæmi" skera sig örugglega úr,
hvað vaxtarhraða og þol snertir.
Annars vegar eru það tré Cord-
ova í Alaska, en þaðan eru ein-
mitt grenitrén við suðurhorn
gamla kirkjugarðsins við Suð-
urgötu, sem hafa dafnað einstak
lega vel og hafa vakið óskipta
athygli borgarbúa. Hitt „kvæm-
ið“ er frá Homer í Alaska, og
(heÆuir líka tnejyinzit inljög vel“.
Skógræktarstöðin í Fossvogi er
sannikölluð borgarprýði, og hef-
ur þegar gegnt geysiþýðingar-
þar er að vaxa upp skemmtileg-
ur skógur. Þá eru tvö nýmæli,
sem líklega verður byrjað á í
suimiair, en íþa® ar áklólgnæikt midð-
an við Árbæj arhverfið, með-
fram Elliðaánum, og eins ofan
við Breiðholtshverfið nýja, í ás-
unum og holtunum þar fyrir of-
andi útivinna, þar sem ungling-
arnir komast í snertingu við nátt
úruna, og getur líka stuðlað að
auknum kynnum þeirra að skóg-
rækt á íslandi, öðrum störfum
fremur.“
Við gengum nú þar að, sem
tvær ungar stúlkur voru að
Líney og Olga búnta tveggja ára stafafurur.
an. Er ekki vafi á, að þetta verð- vinna við að búnta tveggja ára
gamlar stafafuruplöntur. Þær
beita Líney Þórðardóttir og Olga
Jóhannsdóttir, og sá ekki á þeim
leiðindi, þær gerðu að gamni
sínu við verkið. Plöntum þess-
um er síðan plantað dreifðara í
aðra reiti.
Rétt þar hjá eru nokkur lítil
gróðurhús úr plasti, ódýr í bygg
ingu, en inni í þeim voru falleg-
ar silfurreynisplöntur, blómstr-
andi syringarunni, dvergmispill,
sembrafura og margt annað
skemmtilegt.
í reitum þar austar af er evr-
ópiskt lerki, fjallaþinur og bals-
amþinur. Stórar breiður voru
þarna af bergfuru frá Pyrenea-
fjöllum og stafafuru frá Alaska.
Vilhjálmur sagði báðar tegund-
irnar harðgerðar, en stafafuran
yxi beinna upp. Bergfuran bæri
Egill, Jón og Astríður Sif pakka birkitrjám inn í plast.
vegna að geta orðið borgarprýði.
Nú vantar bara áhugasamar
hendur til að planta þessum
trjám út. Til dæmis er áætlað,
að unglingarnir í vinnuskólan-
um planti m.a. 150.000 trjáplönt-
um út í sumar.
„Hvaða tegund af sitkagreni
bentar bezt hér á Reyikjavífcur-
svæðinu, Vilhjálmur?“
miklu hlutverki í sambandi við
garða borgarbúa og mun svo
sjálfsagt verða um langa fram-
tíð.
Og við kvöddum Vilhjálm,
héldum frá 1944-lundinum norð-
ur heimreiðina. Innan tíðar verð
ur birkið allt laufgað, og þá
verður sannarlega komandi í
þessa fallegu stöð. — Fr. S.
fer gróðursetning senn að byrja
þar. Börn og unglingar úr Vinnu
skóla borgarinnar vinna við þá
gróðursetningu, eins og fleiri
verk á vegum stöðvarinnar.“
„Hvar víðar en hér og í Heið-
mörk vinnið þið að skógrækt?“
„Við sjáum um trjágróðurinn
sunnanvert í Öskjuhlíðinni, en
ur til mikils yndisauka fyrir
íbúa þessara hverfa.“
„Hvað vinna hér margir núna,
Vilhjálmur?"
„Liklega um 20 manns, en eft-
ir mánaðamót verða þeir milli
30 og 40. Ég álít þessa vinnu
sérlega góða fyrir unglingana í
Vinnuskólanum, þetta er þrosk-
Tala búfjár sl. 3 ár
f HAGTÍÐINDUM frá í apríl
1970 er tafla yfir tölu búfjár,
uppskeru garðávaxta og heyfeng
fyrir árin 1967 til ’69. Samkvæmt
þeirri töflu voru 52.289 nautgrip-
ir á landinu 1967. 52.274 árið
1968 og 53.406 árið 1969. Þar af
voru kýr 36.001. Saufé var árið
1967 829.067, 1968 820.166 og 1969
780.834. Tala hrossa var 1967
34.885, 1968 voru þau 34.671 og
1968 34.204.
Heyfeinigur talinn í rúimimetruim
— þunrlhey var 1967 2.638.280.
Árið 1968 voru þurihey 2.763.330
og úthey 62.261 rúmimetrar. 1969
■vtatt1 þunr tiaiða 2.'2i6'5.1l5ö iriúim-
mietrar og úthey 38.839. Vothey
var 1967 97.562 rúmmetrar, 1968
114.158 og 1969 152.113.
KairtöfluiuppsJkieran 1968 nam
65.214 tuinnum, 1968 56.040 tiunn-
um og 1969 44.647 tuinnuim. Rófu
uppsfcer'ain nam 1967 5.582 turun-
um, 1968 4.974 tuinnuim Oig 1969
4.530 tunmum. Tekið skal fraffn
að tölurnair eriu miðaðar við tölu
búfjiár að haiusiti að lokinni slát-
urtíð. Ein tunna garðiávaxta er
100 kg.
ri
Hér er verið að stinga upp birkihríslur til sölu. Rótin er sett í plast. Á myndinni eru Reynir á
Elliðavatni, Sigríður, Hilmar og Sigurður Lárus. — (Ljósmyndirnar tók Sveinn Þoi-móðsson).