Morgunblaðið - 06.10.1970, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓÐER 1970
19
DÓMARAFULLTRÚAR
Að gefnu tilefni skal opinberlega ítrekað, að í lögum er ekki
bannað, að dómarafulltrúar hafi opnar skrifstofur og stundi
lögfræðistörf.
Stjóm Félags dómarafulltrúa.
Orðsending
til síldarsaltenda frá
Síldarútvegsnefnd
Að gefnu tilefni vill Síldarútvegsnefnd
ítreka, að söltun síldar er ekki heimil á þeim
söltunarstöðvum sem ekki fullnægja þeim
lágmarkskröfum um útbúnað og hreinlæti,
sem nefndin hefir sett sem skilyrði fyrir sölt-
unarleyfum.
Síldarútvegsnefnd.
fllveg
ný
skriftækni
Við hugsuðum sem svo:
Þar sem kúlupennar eru mest
notaðir allra skriffæra í heiminum,
er þá ekki hægt að smíða
kúlupenna, sem er fallegri í lögun
og þægilegri í hertdi,
nákvæmlega smíðaður —
með öðrum orðum hið
fulikomna skriffæri.
Svo var hugmyndin undir
smásjánni árum saman. —
Síðan kom áranðurinn.
6-æða blekkúlan,
sem tryggir jafna blekgjöf
svo lengi sem penninn endist.
Og til viðbótar hin demant-harða
Wolfram-kúla í umgerð úr ryðfríu stáli,
Ekki má þó gleyma blekhylkinu,
sem endist til að skrifa
10.000 metra langa línu.
Að þessu loknu var rannsakað
á vísindalegan hátt hvaða
penna-lag væri höndinni hentugast.
Þá var fundið upp Epoca-lagið.
Ennþá hefur 'ekkert penna-lag
tekið því fram.
REYNIÐ BALLOGRAF-EPOCA
OG ÞÉR HAFIÐ TILEINKAÐ
YÐUR ALVEG NÝJA
SKRIFTÆKNI.
Sænsk gæðavara, sem ryður sér til rúms
um víða veröld.
Umboð: ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F.
KLÚBBFUNDUR
Stjórn Heimdallar F. U. S. boðar til
KLÚBBFUNDAR fimmtudaginn' 8. októ-
ber n.k. í Hliðarsal 2. hæð Hótel Sögu
kl. 19,30.
Ræðumaður verður Jóhann Hafstein, for-
sætisráðherra, og mun hann m.a. ræða
um: STÖÐU SJÁLFSTÆÐISFLOKKS-
INS. — MYNDUN NÝS RÁÐUNEYTIS.
— VERKEFNI KOMANDI ÞINGS.
Við viljum eindregið hvetja félagsmenn til þess að mæta og taka
með gesti á fyrsta klúbbfundinn á þessu hausti.
Þeim sem ekki taka þátt í kvöldverði er bent á, að umræðúr munu
hefjast um kl. 20,30. Stjórn Heimdallar F.U.S.
við erum
ekki eins
Sannleikurinn er sá, að við erum
töluvert öðruvísi en aðrir.
Við (hjá Husqvarna) erum nefni-
lega langt á undan tímanum.
Tökum til dæmis Husqvarna
kæliskápana. Kælikerfið er öðru-
vísi en almennt tíðkast.
Við teljum líka Husqvarna frysti-
kistur vera í sérflokki.
KYNNIÐ YÐUR MUNINN
í verzlun okkar strax í dag.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16
sími 35 2 00
r ^ " -i
ium^ wlmém
! j — a
Husqvarna ^
— á undan tímanum
i