Morgunblaðið - 22.11.1970, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUMNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1970
29
Borgarbókasafnið við I>inglioltsstra‘ti.
varzla verið, enda bæjarbragur
oft heldur óyndislegur. Sátu
menn þar gjarna með höfuðföt,
sumir að vísu með öllu
ódrukknir, en sumir með öllu
veldrukknir. Gestabók var
gjarna útkrotuð með alls kon-
ar ógóðum munnsöfnuði, og
ekki hélzt safninu vel á lit-
myndasíðum í Salmonsens lexi-
kon. Vildu gestir gjarna kippa
þeim með sér.
Það mætti ætla, að gestir
þessir hafi verið sama sinnis og
sr. Eggert í Vogsósum, sem
gaf Lestrarfélagi Árnesinga
Salmonsens-lexikon. Þegar
stjóm safnsins flutti honum
þakkir, spurði einhver að því,
hvers vegna engar litmyndir
væru í bókinni.
>á sagði sr. Eggert: „Ég reif
þær út og gaf krökkum. Hvað
á að gera við myndir í einu
lexikoni? Þær eru algerlega
óþarfar."
Ég held, að þessi salur hafi
ekki þjónað mjög miklum til-
gangi, þótt aðsókn væri hreint
ekki lítil og þar margt forvitni
legra bóka, en sá lélegi aðbún-
aður, sem þama var, hafði bók
staflega alið upp í sumum al-
gert virðingarleysi fyrir safn-
inu.
Beint á móti innganginum í
afgreiðslusalinn var móttaka
bóka, og þar stjórnaði gjarna
Sigríður Jakobsdóttir frá
Auðsholti. Þekkti hún lítillega
til mín og tókst fljótlega góð
vinátta við Sigriði, þannig að
henni urðu stundum á þau emb
ættismistök að hleypa mér inn
fyrir afgreiðsluborðið og leyfa
mér að gramsa i nýinnkomnum
bókum. Þetta olli stundum
óánægju. Einhvern tíma spurði
einhver með þjósti, hvað þetta
ætti að þýða, en Sigríður lét
sér hvergi bregða og sagði eitt
hvað á þessa leið: „Hann er að
hjálpa mér, strákgreyið."
Stundum lá ekki eins vel
á Sigríði og þá rak hún mig
burt með harðri hendi með
þelm orðum, að það yrði lag-
ieg't. ástand, ef aillir ætluðu að
ryðjast inin fyrir í nýju bæk-
urnar.
Þetta var ekki nema satt, þvi
að fyrir innam borðskomdð var
allt á kafi i bókastöflum.
Nú var gengið inn smágang,
og þaðan inn í allsæmilegan
sal. Þar var allur bókakostur-
inn, sem ætlaður var til útlána.
Til vinstri með veggnum voru
íslenzku bækumar. Þær bæk-
ur, sem maður sóttist þar eftir,
voru ekki allar i anda Bene-
dikts frá Auðnum. Merkust
bók þarna var vafalaust Mað-
urinn með stálhnefana, en
fleira góðgæti var þarna eins
og til dæmis Leyndardómar
Parisarborgar og bækur Saba-
tínis. Þar nefni ég Sægamm-
inn og Víkinginn, hina gagn-
merku sjóræningjasögu um
garpinn Blood kaptein og Ara
bellu hina fögru. Af velsæmis-
ástæðum — einkum af ótta við
Sigríði og annað ráðsett fólk
og mér vinsamlegt, þorði ég
aldrei að fá eina bók Sabatin-
JOLAKORT
eftir filnuim
yöar
pantiö í tíma
mMWMWQDTG!)
Austurstraeti,
Lækjartorgi
is, þótt ég handléki hana ótal-
sinnum, því að hún hét
Drabbari.
Hins vegar forðaðist ég eins
og heitan eldinn að óska leið-
beininga, bæði vegna uppburð-
arleysis og eins vegna hins, að
þegar ég kom 1 eitt fyrsta
skipti einn á safnið, og var að
rangla í vandræðum um gólfið,
sagði Sigríður mér að koma
með miðana og demibdi í þá
þrem kortum rétti mér þrjár
bækur og sagði: „Þetta eru
ágætar bækur.“
Ég man ekki lengur nafn á
nema einni bókanna, og það
er ekki enn farinn úr mér hroll
urinn, þegar ég rifja upp nafn-
ið: Anna Fía giftist“. Þess þarf
að sjálfsögðu ekki að geta, að
ég þorði ekki annað en hlíta
þessari stjómsemi og fara heim
með bókina, en datt að sjálf-
sögðu ekki í hug að opna hana.
Nú — við hliðina á íslenzku
bókunum komu ýmsar hagfræði
bækur og timarit, en á hillu í
miðjum sal andspænis voru m.a.
bækur um landafræði og nátt-
úrufræði, en hinum megin tóku
við erlendar bækur.
Úr salnum kom útskot og þar
Skoðið NÝJU
ÁTLAS
kæliskápana
ö
Skoðið vel og sjáið munmn í . . .
# efnisvali frágangi tækni litum og formi
FROST ATLAS býður frystiskápa (og -kistur), sam-
KULDI byggða kæli- og frystiskápa ög kæliskápa,
SVALI með eða ón frystihólfs og valfrjálsri skipt-
ingu milli kulda (ca. + 4°C) og syala (ca.
+ 10°C).
MARGIR ATLAS býður fjölbreytl úrval, rii.a. kæli-
M'ÖGU- skápa og frystiskápa af sömú stærð, sem
LEIKAR geta staðið hlið við hlið eða hvor ófan á
öðrum. . Allar gerðir ha'fa innbyggingar-
möguleika og fást með hægri eða vinstri
opun.
FULL- Alsjálfvirk þiðing — ekki einu sinni hnapp-
KOMIN ur — og þíðingarvatnið gufar upp! Ytra
TÆKNI byrði úr formbeygðu stáli, sem dregur
eky til sfn ryk, gerir samsetningarlista
. óþarfa og þrif auðveld.
O SÍMI 8 44 20 f SnillUiHA ÍO ♦
Ef þú lítur í alheimsblöð
... er ávallt
CAMEL í
fremstu röð
URVALS TOBAK
ÞESS VEGNA
ÚRVALS
SlGARETTUR.