Morgunblaðið - 08.12.1970, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.12.1970, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAOUR 8. DESEMBER 1970 39 ur tíminn oft sett Jónasi svo þröngar sfeorður, að harrn hefur orðið að láta hvert orð standa, eins og hann skrifaði það fyrst á pappirinn — raunar hefur það verið geíið í skyn af ýmsum mönnum, sem þekktu vinnu- 'brögð hans. En slik vinnubrögð krefjast auðvitað mikiliar ná- kvæmni, sjálfstrausts og ótvi- ræðra hæfi'leika. Við hinu er efcki að búast, að ritsmiðar, sem svo eru samdar, komist nokkru sinni í töJu úrvalsritgerða. Vandalaust er að benda á máls greinar hjá Jónasi, sem mættu vera betur orðaðar. t>að var ekki málsniUd, sem skerpti greinar hans í augum kjósenda og ann- arra aðdáenda, heldur nafn hans sjálfs eða réttara sagt þau málefni, sem barizt var um, þar sem hann lék sjálfur veigamiQdð hlutverk, stundum aðalhlutverk ið. Hins vegar má benda á tvennt, sem Jónas hefur haft fram yfir margan samsvarandi pólitískan skrrbent: 1 fyrsta lagi kom hann jafnan strax að því efni, sem hann var að skrifa um hverju sinni. 1 ððru lagi skrif- aði hann svo ijóst og skýrt, að hver hlaut að skilja — skrifaði um landsmálin, eins og þau væru hreppapólitik; skrifaði um menn, þó deilt væri um málefni. Óþarft er að bæta hér við sem þriðja atriði, að Jónas skrifaði helzt um þau mál, sem á döfinni voru i andartakinu, en það kom af sjálfu sér vegna starfa hans. —O— Eiginkonur læknanna heitir ný laefcnasaga frá Slaughter. Áratugir eru liðnir, síðan Ldf í læknis hendi kom hér út, en sú bók var í tödu fyrstu „lækna- bókanna" og undanfari ís- lenzkrar læknarómantíkur með Ingibjörgu Sigurðardóttur og aðra forstandskvenmenn í farar- broddi. Ekki þarf að lesa margar síð- ur í þessari bók Slaughters, til að uppgötva, að ný viðhorf eru nú komin fram í ritun skemmti- sagna. Til skamms tima voru ástarsögur (flestar skemmtisög- ur eru af því taginu) mestan part andlegar, elskendumir jafnan alklæddir og oftast spari- búnir; til að mynda sitjandi og snakkandi yfir stei'k og rauðvini á fínu hóteli eða þá í notalegri plussstofu heima hjá sér ellegar á skurðstofu sjúkrahúss og umræðuefnið teprulegar kjafta- sögur af heldrafólki: hjóna- skilnaðir, stefnumót og svoleið- is; síðan augnagotur og hálf- kveðnar vísur og að lokum púntaröð ... Nú er eins og allir vita runn- ið upp timabil „táknmáls ástar- innar" með heldur svona lítiUi viðhöfn í klæðaburði og ennþá klénni samtölum, en þeim mun meiri liffærafræði. 1 rauninni þýðir nú efcki að opna nýiázku ástarsögu nema hafa mynd- skreytta anatómiu við höndina, og helzt með 'litmyndum. Auk þess er það nú svo — og það er líklega sálfræðinnar að skýra frernur en liffræðinnar — að sumt fólk virðist vera síþyrst eftir öllu, sem við kemur veik- indum: spitölum, læknum, hjúkr- unarkonum, pillum, sprautum og hvltum sloppum. Sá, er þetta ritar, viðurkennir, að þeir hlut- ir séu allir góðir, gegnir og gagniegir, en botnar ekki í, hvernig þeir geta í sumra aug- um sýnzt svo heillandi sem raun ber vitni. Líklega verðum við að segja eins og í Helga- kveri, að það „fáum vjer eigi skilið í þessu lifi.“ Erlendur Jónsson. TRESMIÐIR Bútsagir 10” og 12” fyrirliggjandi. G. Þorsteinsson og Johnson M. Grjótagötu 7 — Sími 2-42-50 — Ármúla 1. Cluggatjaldaefni HÖFUM FYRIRLIGGJANDI ACRYL GLUGGATJALDAEFNI. MARGAR TEGUNDIR í FALLEGU LITAVALI. Þórður Sveinsson & Co. M. SÍMI 18 700. Telpa óskast til sendiferða á skrifstofu blaðsins. Vinnutími klukkan 9—5. Spennandi og skemmtileg skáldsaga um mið- aldra mann, sem verður ástfanginn af ungri og fallegri stúlku. Hann er reiðubúinn að. fórna miklu fyrir ást sína, en örlögin kref[ast meiri fórna en hann hafði átt von á. — Snilldarlega skrifuð saga eftir heimsfrœgan höfund. — Þekktasta verk hans er sennilega (UUðJÍ* FYRIR ALLA — — Hárkrem Við framleiðslu á Naglalakkaeyðir Adrett-vörum Svitalyktareyðir er tvennt Hárlagningavökvi f hávegum haft: Shampó í glösum Vöruvöndun Hárlakk unga fólksins Verði stillt í hóf Shampó í túpum — — „JUGEND 77" Viðskiptamenn: Berið saman — sannfœrist Adrett er alltat til í verzlun yðar Heildsölubirgðir: FARMASÍA hf. Síuif 25385 I. Konráðsson & Hafstein — Sími 11325 skáldsagan „Lolita", sem kvikmynduð var OSKILA ISAISX 313 Þetta er hugnæm og spennandi skáldsaga, sem fjallar um móðurást og sannar mannlegar tilfinningar. Kjörin bók handa eiginkonunni eða unnustunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.