Morgunblaðið - 08.12.1970, Side 10
42
MORG-UNBL.AÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1970
HÉRLENDIS hirtast árlega fréttir um, að samningar hafi
verið gerðir milli Sovétríkjanna og islenzkra aðila um söiur
sjávarafurða, ullar- og niðursuðuvöru fyrir tugi og hundruð
milljóna króna. Fáir vita livernig viðskiptin fara fram og
enn færri hafa nokkra hugmynd um, hvernig sovézki mark-
aðurinn raunverulega er. Með það í huga, að Sovétríkin eru
með stærstu viðskiptalönduni Islendinga, er í eftirfarandi
grein leitazt við að varpa nokkru ljósi á þessi mál.
SOVET
I SÚLNARIT. ÚTFLUTNINGUR ISLANDS Á HRAÐFRYSTUM
SJÁVARAFURÐUM TIL SOVÉTRÍKJANNA 1959-1970
SMÁLGSTIRi
1000
19.19 1960 1961
1963 1964 1965 1966 1967 1968 1969 1970
□ FISKFLÖK
[jl*j HEILFRYSTUR FISKUR
FRYST SÍLD
[77| SAMNINGUR '1970
Mikilvægur
markaður fyrir
Eftir Guðmund
Ibúafjöldi
Samkvæmit síðasta manntali,
sem tekið var í Sovétríkjunum
15. janúar 1970, var íbúafjöldinn
241.7 milljónir. Frá næsta mann-
tali á undan, sem tekið var árið
1959, hafði íbúum fjölgað um
15.8%.
Sovétríkin eru mynduð af 15
ríkjum og er Rússland stærst
með 130.1 millj. íbúa. Næst kem-
ur Úkraína með 47.1 miilj. og
Kazakhsitan er 3ja í röðinni með
12.9 millj. íbúa. Minnst er Eist-
land nrveð aðeins 1.4 millj. íbúa.
Á síðustu 11 árum hefur orðið
mikil breyting á búsetu. Árið
1959 bjuggu 48% íbúanna í borg-
uun en 52% í sveiitum. Árið 1970
voru borgarbúar 56%, en í sveit-
um bjuggu 44%. Hér gætir
hraðra breytinga iðnvæðingar og
fóilksfliU'tninga m.a. til nýrra
borga, sem hafa risið upp í Asíu-
hluta Sovétríkjanna.
LÍFSKJÖR
Á síðustu árum hafa lífskjör
batnað í Sovétrikjunum og kaup-
geta almiennings að sama skapi.
Þess sjást víða merki, sérstak-
lega í stórborgum. Hin bættu
lífskjör og miiklir tilfliuitniingar
fólks úr sveitum í þéttbýli hef-
ur haft í för með sér breyttar
krröfur og Mfsvenjur. Allt frá ár-
iniu 1956 hefur veirið lögð meiri
áherzla á að mæta hinum nýju
aðstæðum með aukinni áætlana-
gerð og framkvæmdum í ibúðar-
byggingum og neyzluvörufram-
lieiðsliu. Samhliða hefur dreifing-
arkerfið verið bætit m.a. með
byggingu stórra verzlanasam-
stæðna i helztu borgum.
Erlendir ferðalangar koma
flestir til Moskvu, en þar hafa
breytingamar orðið mestar. Þar
biasa við augum manns breið
stræti, risaíbúðarhús, sem sum
hver hýsa allit að 6000 manns,
nýtízkulegar verzlanir I nýju
íbúðarhverfunúm og svo að sjálf
sögðu Kreml. Gamla Moskva er
að víkja fyrir nýbyggingunum.
VERZLANASAMSTÆÐUR
1 Moskvu eru nú margar ný-
tízkuilegar verzlandr, sem stand-
ast samanburð við vestrænar
verzlanir i ýmsu öðru en vöru-
úrvald. Verzlanasamstæður sér-
verzlana eru í nýju íbúðarhverf-
unum. Skipulagslega virðast þær
vera hagkvæmar og daglega má
jafnan sjá þar mikinn fjölda við-
stoiptavina. Nýlendu- og matvöru
verzlanár eru þýðingarmikffi þátt
ur í retostri þessaira verzlanasam-
stæðna. Sjávarafurðir eru seldar
í sérstakri deiild. Þar eru á boð-
stólum ferskar, frystar, saltaðar
og reytotar fiskafurðir auk mik-
ils framboðs niðursoðinna og nið
urlagðra sjávarafurða. Vörurnar
eru auðkenndar og verðmerktar
og þess jaínvel getið hvaðan
þessi eða hin fisktegundin, sem
á boðstólum er, sé upprunniin.
1 nýjustu verziununum eru
auglýsiruga- og kynningarspjöld.
Hreinlæti er á háu stigi og starfs
fóllkið virðist vera duglegt við að
afgreiða hinn mitola skara við-
stoiptavina. Etotoi er óalgengt að
margfaMar raðir fólks séu við
afgreiðsluborð sumra sérverzl-
ana t.d. þar sem vefnaðarvörur
eru seidar.
Enn er h'in fræga GUM-verzlun
vlð Rauða torgið við lýði. Um
þá verzlun fer sitöðugur straum-
ur fólks frá morgni til kvölds.
Stoiptir það tugum þúsunda. 1
GUM er selt alilt mffii himins og
jarðar.
Greinilegt er á viðskiptahátt-
um, að aukinna áhrifa neytenda
er farið að gæta. Jafnan er reynt
að tryggja, að nægilegt fram-
boð sé á helztu neyzluvörum
eins og t.d. kjöt- og fiskafurðum
og hafa þá á boðstólunum þær
vörur, sem fólkið helzt vffi.
VAXANDI MARKAÐUR
Þjóðfélag í hraðri uppbygg-
ingu hefur miklar þarfir, sem
erfitt getur verið að fuillnægja
með innlendri framleiðslu. I vax-
anidi mæli hafa því Sovétriktn
snúið sér að utanríkisviðskiptum
og stundum greitt með gulili fyr-
ir erlendar vörur, sem brýn þörf
var fyrir.
Án nokkurs vafa eru Sovét-
ríkín stór og vaxandi markaður
fyrir fjárfestingar- og neyzlu-
vöruir erlendis frá.
Vestur-Þjóðverjar, Frakkar,
Italir og Bretar kosta nú kapps
um að selja Rússum iðnaðarvör-
ur, vélar, tækniþekkingu o.fl.
Eru þessar þjóðir m.a. að reisa
stórverksmiðjur í Sovétríkjun-
um í efnaiðnaði og bifreiðafram-
leiðslu.
Erfitt er, vegna skorts á upp-
lýsingum, að gera sér grein fyrir
stærð utanrítoisviðskipta Sovét-
ríkjanna samanborið við þjóðar-
framleiðslu og þjóðartekjur.
Árið 1969 var heildarútflu'tn-
ingur 10.490 mdiiljónir rúblna
(1 rúbla = $1.1), en innflutning-
urinn 9.294 milljóniir rúblna.
70% U'tanrítoisviðskiptanna eru
við sósialísku rítoin. Einkum við
Austur-Þýzkaland, Tékkósló-
vakíu og Póliand. Eru viðskiptin
á jafnvirðiskaupagrundveffi.
Megin hluti þeirra utanríkis-
viðskipta, sem eftir eru, eru við
Vestur-Evrópuríkin og fara stöð-
ugt vaxandi. Mest eru þessi við-
skipti við Stóra-Bretiand, Finn-
land, Vestur-Þýzkaland og Italíu.
Miikiil viðstoipti eru við Japan.
Hlutur þróunarlandanna er til-
tölulega lítffi í utanríkisviðskipt-
unum.
VIÐSKIPTI ÍSLANDS
OG SOVÉTRÍKJANNA
Viðsteipti Isiands og Sovétríkj-
anna, sem einhverju nema, hafa
staðið yfir á þriðja áratug. Upp-
haf þeirra var samndngur, sem
gerður var í mai 1946, um sölu
á hraðfrystam sjávarafurðum,
sem jafnan siðan hafa verið mik-
ilvægasti vöruflokkurinn. Pétur
Thorsteinsson, núverandi ráðu-
neytisstjóri, var formaður fyrstu
samniinganefndarinnar.
Hafa Sovétríkin árlega keypt
hraðfrystar sjávarafurðlr af ls-
lendingum fyrir hundruð millj-
óna króna og hafa viðskdptin
haft ómetanlega þýðingu fyrir
íslenzkan hraðfrystiiðnað og
sjávarútveg. Vegna þeirra hefur
nýtáng sumæa fisktegunda eins
og t.d. karfa og ufsa orðið betrd
en etla, auik þess sem framleiðslu
geta hraðfrystihúsanna hefur
verið betur nýtt
Stærstá aðffinn að fyrs'ta samn-
Ingnum var Sölumdiðstöð hrað-
frystihúsanna, sem ásamt Sjáv-
arafurðadeild SlS hefur ætíð
síðan framleitt og seilt afurðir
hraðfrystihúsa Sinna inn á þenn-
an markað.
Útflutniingur SH tlil Sovétríkj-
anna árið 1946 var 13.700 smá-
lesbiir, sem var 54% af hedldar-
framleiðslu ársins. Þá voru að-
eins seldar 2.900 smálestir til
Bandaríkjanna eða 11%. Árið
1969 skipíiist útflutniingurinn ti'l
þessara tveggja landa sem hér
segir:
Sniál. %
Sovétrikin 18.049 26.8
Bandaríkin 35.320 52.7
Útflutningur hraðfrystra sjáv-
arafurða tll Sovétrikjanna hefur
verið svo tifl. samfelidur í þau
25 ár, sem Iðin eru frá þvi að
fyrsti sammingurinn var gerður.
Hlé varð þó á viðskiptunum
tímabiMð 1948—53, en þá hefjast
þau á ný með því að samið er
um sölu á 21.000 smál. af frysit-
um fiiskflökum og 3000 smál. af
frystri Faxaflóasíld.
Á þessum tírma stóð íslenzkur
sjávarútvegur frammii fyrir mikl
um vanda vegna löndunartak-
markana á íslenzkum fistoi í
Bretlandi, sem var Mður í gagn-
ráðstöfiunum Breta vegna útvíkk
unar f’iskveið’i lögsög u Islendinga
úr 3 i 4 sjómilur. Viðskiptasanin-
ingurinn árið 1953 hafðd því
ómetanlega þýðingu.
Frá því að Sovétviðskiptin hóf
ust, hafa orðið miklar breyting-
ar á samsefnángi þeirra fistoteg-
unda, sem seldar eru inn á sov-
ézka markaðimn. 1 upphafi árið
1946 keyptu Sovétmenn svo ti'l
eiingöngu þorskflök. Árið 1959
eru 24.401 smál. eða 84.7% karfa-
flök og afgangurinn þorskflök.
Árið 1962 eru karfaflök 3.575
smál. eða aðeins 15.5% heildar-
magnsins. Á því ári hefst sala
á frystri sild á ný í notokru
magni. Árt síðar er fryst síld
12.004 smál. eða 43.7% heiJdar-
magnisins. Árið 1966 hefst saila
á heiifrysbum smáfiskd um
5000 smálestHr og hafa þau við-
stoiiptli haldizt árlega síðan. Síð-
ustu ártm hafa toarfa- og ufsa-
flök haft meginþýðimgu, auk
heiifrysta fisksins hvað magn
snertir. Þá hefur jafnan verið
samdð um sölu á nokkur þús-
und smálestum sildar, en vegna
aflabrests hefur reynzt erfiibt að
uppfylla þann hluta samnings-
ims.
I súlnariitii I. er sýndur heildar-
útfiutningur hraðfrystira sjávar-
afurða frá Islandd til Sovétríkj-
anna tímabiliið 1959—1970 og
miagn helztu tegunda.
Árið 1969 var verðmæti hrað-
frysbra sjávarafurða til Sovét-
rikjanna 615,7 miillj. kr. eða
I hinum nýju stórverzlunum Moskvu eru veitingasalir, þar sem
fólk getur fengið sér hressingu.
I verzlanasamstæðum eru sérstakar flskverzlanir. Hreinlæti
og þjónusta er á háu stigi.