Morgunblaðið - 30.01.1971, Qupperneq 3
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1971
3
<
22þúsundkarlmannaföt ^
og 5 þúsund kvenkiólar
— framleiddir innanlands 1969
TUTTUGU og tvö þúsund sett
af karlmannafötum voru fram
leidd hjá 26 saumastofum og
fataverksmiðjum imianlands
1969 og var það tvö þúsund
settum fleira en árið áður. I»á
voru 1969 framleiddar 43 þús-
und stakar karlmannabuxur, sex
þúsund stakir karlmannajakkar,
3 þúsund karimannafrakkar og
11 þúsund kvenkápur og frakk
ar. Er þetta allt nokkur aukn-
ing frá fatnaðarframleiðslu árs
ins á undan og mest er aukn-
ingin í stökum karlmannabux-
um, en af þeim voru framleidd
ar 25 þúsund stykki árið 1968.
Þessar upplýsingar koma fram
í nýútkomnu desemberhefti Hag
tíðinda.
Fimm þúsund kvenkjólar voru
framleiddir kmanlands 1969 og
var þar um aukningu upp á eitt
þúsund kjóla að ræða frá árinu
á undan. Tvö þúsund kvendragt
iir voru framieiddar 1969 eða
ijafnmiikið og 1968 og fimm
þúsund stök kvenpiis voru fram
leidd hvort ár.
Af sjóstökkum voru fram-
leidd 3 þúsund stykki 1969 og
16 þúsund barnaúlpur, kápur
og frakkar. Bnnfremur 26 þús.
stakar síðbuxur kvenna og
telpna og nam framleiðsluaukn
ingin þar 4 þúsund buxum frá
árinu áður. Af vinin u vettlin gum
voru framleidd 197 þúsund pör
1969 og hefur framleiðslain á
því sviði mi'mikað ár frá ári —
1968 voru framleidd 215 þúsund
pör, 1967 — 230 þúsund, 1966
— 246 þúsund og 1965 — 302
þúsund pör. Vinmufatafram-
leiðslan hefur eionnig farið minnk
andi þessi ár; úr 125 þúsund
stykkjum 1965 í 96 þúsund
stykki 1969. Hins vegar jókst
framleiðsla kuldaúlpna þessi ár;
úr sjö þúsund stykkjum 1965 í
13 þúsund stykki 1969.
Árið 1969 voru framleiddar
átta þúsund og sex hundruð
herraskyrtur og fjórtán þúsund
og fjögur hundruð drengja-
skyrtur. Um talsverða aufen-
ingu var að ræða frá árinu
1968. Loks voru svo framleidd
ar fjögur þúsund sportskyrtur
1969 og var það jafn mikið og
árið áður, en árið 1967 nam
sú framleiðsia 5 þúsund skyrt-
um og 1965 voru framleiddar
hérlendis 23 þúsund sportskyrt
ur.
Pina Carmirelli
Carmirelli leikur
fyrir Tónlistarfélagið í dag
ITALSKI fiðlusnillingurinn, Pina
Carmirelli, sem lék sem einleik-
arí með Synfóníuhljómsveit Is-
lands sL fimmtudag, heldur
fiðlutónieika í Austurbæjarbíói í
dag kl. 2.30 á vegiun Tónlistar-
félagsins. -Undirleikari er Arnl
Kristjánsson.
Á efniisskránni etru: Sóuata í
Eb-dúr. K-380 eftix Mozairt, Sóin-
ata í C-dúr (fyrir einledlfesifiðlu)
eftir Bach, og sónata nr. IX, op.
47 í A-Dúr eftiir Beetlhoveini.
Þetta eru fyrstu tónleifeaimdr
íyrir styrktarfélagið, sem Tón-
Qiistarféliaigið heldur á þessu ári
U pplýsingamiðstöð
landbúnaðarins -
2 innbrot
— í fyrrinótt
BBOTIZT var inn á tveimur stöð
imi í fyrrinótt, á rakarastofu að
Laugavegd 10 og í kjallara ibúð-
arhúss við Háteigsveg. Á síðari
staðnum kom styggð að þjófn-
um og flýði hann út i náttmyrkr
ið, en á rakarastofunni var stol-
ið ýmsum áliöldum hárskerans.
Kona í íbúðarhúsi við Háteigs
veg kom að þjófnum, þar sem
hann var hálfur kominn út um
kjallaragluggann. Hann hafði þá
komið ýmsum verðmætum varn-
ingi, m.a. rafmagnstækjum í
töskur, en varð frá að hverfa.
STÉTTARSAMBAND bænda,
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Samband íslenzkra samvinnufé-
laga, Mjólkursamsalan í Reykja-
vík, Sláturfélag Suðurlands,
Osta- og smjörsalan sf. og Græn-
metisverzlun landbúnaðarins á-
kváðu fyrir nokkru að efna til
sameiginlegrar starfsemi, sem
hefði það hlutverk að veita blöð-
um, útvarpi og öðrum fjölmiðl-
um hvers konar upplýsingar nm
landbúnaðarmál.
Sú starísemá, seim hér uim ræð-
ir, befur hiotið niafnið Upplýs-
iinigaþjónusta landbúnaðarims. Er
geirt ináð fyrir, að upplýsiniga-
þ j ó nustan verði áþekk þeirri
starfsemi, sem erlendiis ryður sér
mjög til rúms og gengur undir
nafnitnu Public Relation, skamm-
stafað P. R.
Verkefni upplýsingaþjónusi-
unnar verða aðallega, sem hér
segir:
1. Veita skal, eftir þvi sem
unmt er, blöðum og öðrumn fjöÐ-
miðlum, sem þess óska, upplýs-
ingar varðandi þá starfsemi að-
ildarfélaganna, sem varðar lamd-
búnaðarmál.
2. Upplýsingaþj ónustan skal
vera málssvari félaganna varð-
andi sérstök deiiumál eða i:m-
ræðuefni um lamdbúnaðarmél,
sem snerta starfsemi þeirra og
uppi eru hverju simmi.
3. Veita skal átanennar upp-
lýsimlgar um iandbúnaðimm, sem
atvintnugrein og gildi hans og
stöðu í þjóðfélagiruu, og koma
þeim upplýsingum á framfæri
mieð skxiifium í blöð og tímarit,
með blaðamanmafumdum og er-
indaifi'utmingi í skólum og út-
varpi efitir því sem aðstæður
leyfa.
4. Þá skal upplýsingaþjómust-
an sjé um móttöku erlendra
gesta, er hingað ieiita í þeim til-
ganlgi að fræðast um ísflienzkan
landbúnað.
Tid að koma þessari starfsemi
á lagginnar og veita heruni for-
stöðu fyrst um sinm hafa firam-
amsfltráð samitök réðið Irnga
Tryggvason, bónda og ketnmara
á Kárhóld í Reykjadal. Hefur
Ingi aðsetur sitt á 3. hæð Bænda
hallarinmar og er simamúmer
hams 20025.
„VA, NÚ VERÐUR
STUÐ Á ÞVÍ í
DAG MAÐUR
OKKAR EFTIRSÓTTA
TRARUTSALA
FST í DAG!!
/ ■■
I BABUM VEBZL. TYSGOTU 1 og LAUGAVEG 66
46-60% AFSLÁTTUB
- ÓTBÚLEGT!!
AÐEINS í NQKKBA DAGA
MIKIÐ ÚRVAL AF ALLS
K0NAR FATNAÐI
NÝLEGUM 0G NÝJUM
TAKIÐ EFTIR - Opið til kl. 6 í dag
STAKSTEINAR
Viðbrögð
blaða
Skólamálafrumvörp ríkis-
stjérnarinnar hafa vakið verð-
skuldaða athygli. Auk mikilla
umræðna á Alþingi hafa dag-
blöðin fjallað um málið í for-
ystugreinum. Þjóðviljinn sagði í
forystugrein í gær: „Umræður
á Alþingi um fyrstu frumvörp
nýrrar fræðslulöggjafar höfðu á
sér óvenjulegan blæ. Stjómar-
frumvörpum þessum, sem sér-
fræðinganefndir hafa unnið að
um árabil, var óvenjulega vel
tekið af þingmönnum allra
flokka, einkum sjálfri heildar-
löggjöfinni, frumvarpinu nm
skólakerfi. Virtust þingmenn á
eiitu máli að breytingamar á
skólakerfi landsmanna, sem þar
eru fyrirhugaðar stuðli að því
í senn að gera það í senn sam-
felldara og sveigjanlegra."
7. greinin
í forystugrein Tímans í gær
var einnig fjallað um frumvörp-
in og mest áherzla lögð á 7.
greinina, en í henni eru ákvæði
um jöfnun á menntunaraðstöðu
nemenda. Um þetta segir Tím-
inn: „Það verður því að út-
færa þetta höfuðatriði nánar í
sjálfum lögunum og kveða á
um fjárskuldbindingar, sem
framkvæmdinni eru samfara, ef
það er fullkomin alvara að
framkvæma þessa stefnu. En
verði það gert, hlýtur það að
verða talin tímamótaatburður i
íslenzkum skólamálum. Einföld
stefnuyfirlýsing er hér ekkl
nóg, því að það er óhugsandi að
framkvæma 9 ára skólaskyldu í
öllum byggðarlögum á íslandl,
nema nánar verði kveðið á um
framkvæmdina og kostnað-
inn . . .“
Mikilvægt
skref
Vísir ræðir frnmvörpin í for-
ystugrein í fyrradag og segir:
„Enginn vafi er á, að frumvörp
þau um grunnskóla og skóla-
kerfi, sem ríkisstjómin hefur
lagt fyrir Alþingi era mikil-
vægt skref í enduraýjun skóla-
mála á Islandi. Þau era dæmi
um þá miklu vinnu, sem stjórn-
völd leggja nú í að breyta skóla
kerfiuu til samræmis við kröf-
ur og tillögur, sem mjög hafa
verið áberandi á opinberum
vettvangi á undanförnum árum
. . . . Grunnskólafrumvarpið er
mikill doðrantur, 90 blaðsíður,
fullur af athyglisverðum nýjung
um í stóra og smáu. I kjölfar
frumvarpsins er svo væntanleg
námsskrá, þar sem rakið verður
námsefni hins fvrirhugaða
grunnskóla. Ástæða er til að
hvetja til þess, að þessi náms-
skrá komi fljótlega fram, en
dragist ekki lengi eins og tiðk-
aðist hér áður fyrr. Jafnframt
er unnið af krafti að endurskoð
un sjálfs námsefnis grunnskól-
anna. Endurskoðun eðlis- og
efnafræði er langt komin og
endurskoðun líf- og náttúru-
fræðinnar er komin vel á veg.
Jafnframt er hafin eða að hefj-
ast endurskoðun á stærðfræði,
sögu og samfélagsfræði, ís-
lenzku og námsefni fyrir for-
iskóla.“
DflCIECR
c