Morgunblaðið - 30.01.1971, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1971
Með athafnamönnum
Dagbjartur Einarsson, forstjóri
Fiskaness hf.
í vikunini tók til starfa í Grindavík
ný saltfislkverkunarstöð í eiigu útgerð-
arfyrirtækisinis Fisikainiess hf. Fyriirtæki
þetta gerir m.a. út hið annálaða afla-
skip, Geirfuglinn, og festi nú fyrir
skemmstu kaup á Kristjáni Valgeir frá
Vopnafirði, sem eftirleiðis mun bera
naifndð „Griindvíkiinigur.“ Fiiskanies er í
rauninni ættarfyrirtæki. Eigendur eru
svilamir Dagbjartur Einarsson, skip-
Stjóri og nú forsitjóri fyrirtækisíns, og
Björgvin Gunnarsson, skipstjóri á
Geirfuiglinum, sem nú hefur tekið við
Grindvikingi; mágur þeiinra Wiiliard
Ólason, sem var stýrimaður á Geir-
fuiglinum en hefur nú tekið við skip-
stjóm hans, og Kristján Finnbogason,
vélstjóri á Geirfuglinum. Tengslin
við Grímsey eru sterk, því að Willard
og eiginkonur Dagbjarts og Björgvins
eru það£tn. Þeir em hins vegar báðir
Grinidvíikinigar.
Þegiar bl aðamenr Morgunbiaðsiins
voru á ferð um Grindavík nú fyrir
skömmu hittum við Dagbjart að máli.
Hann var þá raunar önnum kafinn
í byggingarvinnu í nýja fiskverkunar
húsiniu, og ,^l)ílbt forsitjóralegur í vinnu-
gallanum,“ eins og hann orðaði það
sjálfur, en gaf sér þó tima til að
veita okkur áheym um stund. Að
sjálfsögðu lá beinast við að spyrja
hann um nýju saltfiskverkunina,
„Nýja húsið er um 1500 fermetrar,
en að auki eru 500 fermetrar á ann-
arri hæð, sem við höfum hugsað okk-
ur sem verbúð í framtíðinni," sagði
hann. „Við verðum eingöngu í salt-
fiskverkun til að byrja með, en hins
vegar höfum við aðstöðu til að stækka
'húsnæðið upp í frystihús. Munum við
hafa það bak við eyrað, ef þetta geng-
ur vel, sem það verður að gera. Fiska-
nes hf. hefur aldrei verið í fiskverk-
un áður, þannig að við erum algjörir
byrjendur á þessu sviði, og verðum
að treysta algjörlega á orð annarra
um það hversu arðvænlegt það er.
Okkur er sagt, að vel hafi gengið
með saltfiskinn í fyrra, og útlitið sé
gott í ár. Hinu er ekki að neita, að
flestir munu hafa meiri trú á frysti-
húsum um þessar mundir, en við von-
um auðvitað hið bezta.“
— Hvenær hófust framkvæmdir við
3töðina?
„1 júní í sumar eða strax eftir að
verkfallið leystist, og hugmyndin er
að húm verði kamin í fuJHan gang í
vikunni; fyrsti fiskurinn kom raunar
irm í húsið i dag (mánudag). Já, þetta
verður að ganga," segir Dagbjartur
aiftiur, „það er búið að iagigja það mdlk-
ið í þetta; ætli það séu ekki komnar
um 10—12 milljónir núna.“
— Hvemig er þetta fyrirtæki ykk-
ar, Fiskanes, tilkomið?
„Geirfuglinn er upphafið. Við keypt
um hann fyrir 5 árum frá Húsavík,
en hann hét áður Hét áður Héðinn
ÞH. Ég var með hann á fyrstu ver-
tiðinni, og fengum við þá um 750 tonn.
Við byrjuðum þá reyndiar á sild fyriir
auistan og vorum fram í febrúair,
en Björgvin tók svo við bátnum um
vorið. Síðan hefur vertíðaraflinn nán-
ast farið vaxandi ár frá ári, og i fyrra
voru oia met Slegin, eir báturimn var
með um 1700 tonn yfir vertáðina."
— Hvemig hefur gengið núna?
„Geirfuglinn er búimn að fara 6—7
róðra, og fékk ágætt i fyrstu róðmn-
um eða um 90 tonn i tveámiur fyrsttu.
Við fengum Grindvíking 10. janúar,
og hann var farinn í fyrsta róðurinn
i kringum 15ánda, er búinn að fara
2—3 róðra, en nú upp á síðkastið
hefur lítið sem ekkert verið að hafa.
Hann er brellinn þessi blámaður; á
þessum timia er baira uiflsa að fá
og hanm hlýtur að fara að gefa sig
aftur.“
— Er sami mannskapur á Grindvik
iinigi og var á Geliirfluglliinium?
„Já, mikið til hinn sami, eða yfir-
leitt allir hásetarnir. Fyrir utan
Björgvin eru yfirmennimir hins veg-
ar frá fyrri útgerð, þar eð þeir voru
samningsbundnir á bátnum til þriggja
mánaða.“
— Er ekki mikið líf í útgerðinni
hér í Grindavík?
„Jú, feikilegur uppgangur hefur ver
ið í útgerðinni hér síðustu árin, enda
hefur ekki brugðizt hér vertíð svo
lengi. Fimrn bátar hafa bætzt við flot
ann hérna, og hinn sjötti mun bæt-
ast við á vertíðimni sjálfri. Auk þess
er héma jafnan fjöldi aðkomubáta,
enda yfMieiiitit stuitt að sækja á miið-
in héðan. Einkum eru það netin, sem
menn stila upp á, en hins vegar hefur
linufiskiri verið lélegt hérna seinni ár
in. Grindvíkingur og Geirfugl eru
þannig báðir á netum núna, en hinn
fyrmefndi mun fara á loðnu, þegar
þar að kemur.“
— Eru menn orðnir svartsýnir
vegnia jamúarmániaðair núna?
„Nei, janúar í fyrra var heldur ekk
ert sérstakur, en hina vegar var febrú
Rabbað við
Dagbjart Einarsson,
forstjóra Fiskaness hf.
sem gerir út
Geirfuglinn
og hóf í vikunni
starfraekslu
nýrrar
saltfiskverkunarstöðvar
ar mjög góður, þamnig að engin
ástæða er til að örvænta strax.“
— Nú er mikið fiskmagn jafnan
ftaflt héðan frá Grindavík till viransliu
annars staðar. Er ekki nægur grund-
völlur fyrir fleiri frystihús hér?
„Jú, maður hefði haldið, að mun
meira væri hægt að vimna af fiskin-
um hér, þannig að fleiri frystihúsum
ætti ekki að vera ofaukið. En varð-
andi fiskflutningana, sem þú minntist
á, máttu gjaman láta það koma fram,
að við Grindvíkingar lítum björtum
augum á þær vegaframkvæmdir, sem
þegar eru hafnar, og teljum að óvíða
sé meiri grundvöllur fyrir vegabæt-
ur miðað við þau verðmæti, sem hér
fara um veginn."
— Rækjan? Er hún eitthvað stund-
uð héðan?
„Já, tveir bátar hafa verið gerðir út
héðan í haust, en hins vegar er ekki
unmlSð niemia úr afllia ammars þeirira hér.“
„Hvemig lýst þér á þessar rækju-
veiðair hér suður af?
„Hálfskuggalega — sannast sagna.
Meðan stöðugt er hamrað á þvi við
okkur að netamöskvamir verði stærri
eir fari'ð með þetta smáriðna troll
inn á svæðið við Eldey, sem löngum
hefur verið fiskaslóð mikil. Ég held,
að ölllum sé fyrir bezitiu, aö flaniið verði
að öllu með gát við þessar veiðar, sér
staklega eftir að þessar sögur fóru að
berast að vestan. ímyndaðu þér —
eitt tonn af seiðum! Það eru mörg
tonn af vertíðarafla, ef fiskurinn fengi
að vaxa.“
— Að síðustu. Þjóðsagan hermir, að
þið aflaklæmar hjá Fiskanesi bregðið
ykkur jafnan út í Grimsey yfir sumar-
tímann og stundið þaðan trilluútgerð.
Dagbjartur hlær við: „Þjóðsagan,
já. Jú, þáð eir m'ilkið til í þesisu. Við
höfum gert þetta undanfarin ár. Ég
var þama i fáeinar vikur í surnar, og
Björgvin einnig um tíma. Og þá er
róið á trillunmi með tengdapabba, Óla
Bjarnasyni, því ekki er hægt að vera
þarna án þess að hafa eitthvað fyrir
stafni, og prýðileg fiskimið í grennd-
imú. Já, Grímsey er heillandi stað-
ur, og gott að geta leirtað þangað úr
sikkrkalimium héma. Eimikuim eir það
friðurinn fyrir símanum, sem heillar
mann. Það getur talizt viðburður, ef
símhringing heyrist," segir Dagbjartur
og glottir við.
„Hann er
brellinn
þessi blámaður66
Fyrsti fiskstaflinn í nýju stöðinni. Saltverkunarstöð Fiskaness, sem til starfa tók í vikuimL Verið að fletja löngu.