Morgunblaðið - 12.03.1971, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1971
3
VORKAUPSTEFNA Félags
íslenzkra iðnrekenða, Islenzk
ur fatnaður, var opnuð í
Laugardalshöllinni í gærmorg
un og stendur fram yfir
helgi. Sýningin er ætluð inn
kaupa- og sölustjórum verzl-
ana og fyrirtækja hvaðanæva
af landinu og verður opin
fram yfir helgi.
Félagar úr Módelsamtök-
unum sýna mokkuð af tázku
fatnaði þeim, sem á kaup-
stefnunni er. Kenndi þar
margra grasa, stuttbuxnatízk
Frá tízkusýningu kaupstefnunnar í gær i gær í Laugardalshöll
Fataiðnaður á ánægju-
legri þroskabraut
- sagði Gunnar J. Friðriksson, form. Fél. ísl. iðn-
rekenda, er vorkaupstefnan
íslenzkur fatnaður var opnuð
mjög ánægjulegt að sjá,
hvemig þessar kaupstefnur
hafa þróazt írá því að vera
hikandi tilraun í það að vera
fagleg kaupstefna, skipulögð
og rekin af fólki, sem náð
hefur fullum tökum á við-
fangsefninu og stendur að
því leyti ekki að baki starfs
þræðrum sínum meðal hinna
Framh. á ls. 19
an var áberandi og af slíkum
buxum ýmsar gerðir og marg
ar hinar smekklegustu. Þá
voru sýndar ýmsar gerðir
herrafata, peysur af öllu tagi,
náttföt af ótal gerðum, sport-
fatnaður, kápur ýmist úr tery
lyn og poplinefnum, rúskinni
eða íslenzkum skinnum og
voru langflestar kápurnax af
midi-síddinni. Sýriishorn af
framleiðslunni birtist hér á
síðunni, svo að fólk geti gert
sér í hugarlund, hvað verður
á boðstólum í vor og sumar.
Að þessu sinni taka eftir-
talin fatagerðarfyrirtæki þátt
í vorkaupstefnunni. Belgja-
gerðin, Bergmann h.f., Ceres,
Dyngja h.f. Fataverksmiðjan
Hekla, Model Magasin h.f.,
Lady h.f., L. H. Múller, fata-
gerð, Peysan h.f., Prjónastofa
Önnu Þórðardóttur, Prjóna-
stofa önnu G. Bergmann,
Prjónastofan Iðunn h.f.,
Prjónastofan Snældan, Sauma
stofan Sunna og Litla Prjóna
stofan, Sjóklæðagerðin h.f.,
Verksmiðjan Max h.f., Uliar
verksmiðjan Framtiðin, Ullar
verksmiðjan Gefjun, Verk-
smiðjan Dúkur h.f., Verk-
smiðjan Föt h.f. og Vinnu-
fatagerð íslands.
Við opreun kaupstefnunnar
flutti formaður Félags ís-
lenzkra iðnrekenda, Gunnar
J. Friðriksson ávarp. Rifjaði
hann upp að þetta væri
sjötta kaupstefnan, sem Féi.
ísl. iðnrekenda gengist fyrir
og sú stærsta fram áð þessu;
sýndi nú 21 fyrirtæki, en 18
í fyrra og 16 árið þar áður.
Hann taldi og ástæðu til að
vona að fjöldi innkaupastjóra
myndi notfæra sér kaupstefn
una í rikara mæli en fyrr.
Síðan sagði Gunhar:
„Gildi þessarar tegundar
sölustarfsemi virðist því fara
vaxandi í augum bæði fram
leiðenda og kaupenda og er
Midipils úr rúskinni og ból-
eró úr sama efni við
Stuttbuxur settu mikinn sv'p
á tizkusýninguna
TIZKUVERZLUN
UNGA FÓLKSINS
LAUGAVEGI 66
og TÝSGÖTU 1.
TAKIÐ
VEL EFTIR!
NÝUPPTEKNAR VÖRUR
□ GALLABUXUR
OG SPORTBUXUR
FRA U.S.A.
□ FROTTÉ-SOKKAR
OG ALLS KONAR
SOKKAR i ÓTRÚ-
LEGA MÖRGUM
LrTUM
□ HERRAPEYSUR
MARGAR GERÐIR
OG LITIR
□ BINDASETT
□ STAKIR HOLLENZKIR
JAKKAR — MJÖG
FALLEGIR
□ RÖNDÓTT VESTI
UTAN YFIR PEYSUR
OG BLÚSSUR.
m
KARNARÆR
t mi m Jrn rnmJjr/Lm M I
TAKIÐ
VEL EFTIR!
I □ FERMINGARFÖT
I MEÐ OG ÁN VESTIS
SELD MEÐ 10% AFSL.
' □ FERMINGARKJÓLAR
1 OG STUTTBUXNA
I ..DRESS" SELD
| EINNIG MEÐ 10%
, AFSL.
1 □ DÖMUPEYSUR
1 l MIKLU ÚRVALI
I
□ BRODERAÐAR
SKYRTUR
I
I □ STUTTBUXUR
I I MÖRGUM GERÐUM
| OG LITUM
| □ MIDI-PILS
• □ STAKAR BUXUR
I MEÐ HINUM
t VINSÆLA LOKUFALLI.
SIAKSTEII\1AR
Kann ekki aö
nefna slíkt ríki
I fyrradag beindi Morgunblað
ið þeirri spurningu til Austra
l>.jóð\il.jans, af gefnu tilefni,
hvort hann gæti nefnt eitt sós-
ialískt ríki, þar sem alnienn mann
réttindi væru við lýði en ekki
ritskoðun, pólitískar ofsóknir á -
hendur listamönnum o.s. frv.
Austri svaraði í gær og það ber
að virða, að hann svarar hrein
i skilnislega og umbúðalaust, sem
er næsta sjaldgæft úr þeirri átt.
Hann segir: „Spurningxmni er
auðsvarað höfimdur þessara
pistla kann ekki að nefna slikt
ríki.“ Þetta er mjög mikilsverð
játning af hendi þess manns,
sem lítur á sjálfan sig sem einn
helzta oddvita í baráttunni fyr-
ir sósíaUsku þjóðskipulagi á ís-
landi. Hann hefur nú viður-
kennt, að í engu ríld veraldar,
sem kennir sig við sósiaUsma,
tiðkast þau almennu mannrétt-
indi, sem þykja einna mest virði,
málfrelsi, prentfrelsi — frelsi tíl
orðs og æðis.
Samt ekki
af baki dottinn
Enda þótt Austri hafi nú við-
urkennt, að almenn mannréttindi
séu ekki við líði í sósialiskum
ríkjum sjást þess engin merki
að hann hafi snúið baki við
barnatrú sinni. Hann segir;
„Hins vegar er ástandið í sósíal-
ísku rikjunum hvorki óumbreyt-
anlegt né endanlegt, eins og
reynsla síðustu áratuga hefur
sannað berlega. ... 1 þeim átök
um hefur krafa um Ustrænt
frelsi, málfrelsi, prentfrelsi og
félagafrelsi verið í fyrirrúmi;
hún er nú háð af vaxandi djörf-
ung innan Sovétríkjanna og hún
setti mjög sterkan svip á lmg-
myndir þær, sem Kommúnista-
fiokkur Tékkóslóvakíu reyndi
að framkvæma árið 1968, áður
en rússneskir skriðdrekar skökk
uðu leikinn. Þeir sem heyja
sUka baráttu fyrir vaxandi lýð-
ræði eru samherjar sósíalista i
öðrum löndum m.a. á íslandi."
Við þessa röksemdafærshi er
tvennt að atliuga. Það er vafa-
laust alveg rétt, að ástandið í
sósíalískum ríkjum er hvorki ó-
umbreytanlegt né endanlegt.
Hins vegar „hefur reynsla síð-
ustu áratuga sannað berlega" að
„Ustrænt frelsi, málfrelsi, prent-
frelsi og félagafrelsi" samrýmast
ekki sósíalisnia. Hvarvetna þar
sem sósíalisma hefur verið kom-
ið á, hafa þessi mannréttindi nær
umsvifalaust verið afnumin og
hafi verið gerð tilraun til að
koma þeim á, hefur hún jafnóðum
verið bæld niður eins og dæmin
sanna. Það er líka rétt, að innan
hinna sósiölsku rikja fer fram
barátta fyrir því, að almenn
mannréttindi verði í lieiðri höfð,
en hverjir lieyja þá baráttu?
Það eru ekki kommúnistaflokk-
ar þessara ríkja. Það eru ekki
forystumenn hins sósíaliska þjóð
skipulags. Það eru jafnvel ekki
ungir sósíaUskir hugsjónafröm-
uðir. Nei, sú barátta er háð af
hinum kúgaða lýð, Iiinum al-
menna borgara og þá ekki sízt
rithöfundiim. I þeirri baráttu hef
ur alþýða manna livað eftír ann-
að risið upp til blóðugra átaka
við kúgara sína, en unisvifalaust
verið murkuð niður með vopna-
valdi. Eru sósíalistar á fslandi
samherjar þessa fólks? Því mið-
ur er ekki svo. Á tindanfömum
áratugum hefur það orðið hlut-
skipti sósíalista á íslandi að
halda uppi vörnum fyrir það
ofbeldi, sem kommúnistastjórair
hafa framið gagnvart almenningi
í löndum sínum. Á þessu hefur
engin breyting orðið.