Morgunblaðið - 12.03.1971, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.03.1971, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1971 23 meiri en það, að full ástæða er til að ætla að skipstjóri, til dæmis á stórum úthafstogara, þurfi að kunna flest það, sem skipstjóri á flutningaskipi þarf að kunna. 1 þriðja lagi er rétt að benda á, að nú geta menn hætt að ioknu hverju stigi fyrir sig og fengið sin tiiteknu réttindi, not- að þau um skeið en byrjað svo aftur þar sem frá var horfið, ef þeir síðar óska meiri eða ann- ars konar réttinda. Þess eru mörg dæmi, að ungir menn hafa kosið fremur fiski- mennsku en farmennsku, en þeg ar þeir svo tóku að letjast, vildú þeir leita á verzlunarskip in. Nú geta þessir menn fengið sin fiskiskipstjóraréttindi úr 2. stiginu, og tekið svo 3ja stigið síðar á ævinni og fengið þar með rétt til skipstjórnar á fragt skipi. Það þarf auðvitað ekki að taka fram, að öll réttindi sem skólanámið veitir eru háð marg vislegum ákvæðum um siglinga- tíma, og það verður óhjákvæmi- lega að breyta lögunum um at- vdnnuréttiridi skipstjóra til sam ræmis við frumvarp þetta til nýrrar löggjafar fyrir Stýri- mannaskólann. UM ÞÖRFINA FYRIR SKIPSTJÓRNARMENN Það er alveg á takmörkunum að skólinn útskrifi nægjanleg- an fjölda fiskimanna. Það braut skráðust ekki nema 25 úr fiski- mannadeild í fyrra og það er varla nægjanlegur fjöldi. Hins vegar brautskráðu.st 35 úr far- mannadeildinni, sem er kannski óþarflega margt, miðað við hvað lítið verzlunarflotinn hef- ur aukizt. Það stendur þó til bóta og á það er einnig að líta að margir farmenn eru jafn- framt fiskimenn og stunda fiski mennskuna, því að eins og áður segir gengur þetta mjög á vixl hér hjá okkur. UM FRAMTÍÐINA Það er víða, bæði hér og ann ars staðar verið að þreifa^ sig áfram með heppilegasta kennslu formið til að mæta hinum sí- auknu kröfum um menntun skip stjóra, ekki sizt fiskiskipstjóra, þar sem tæknin hef-ur breytzt og er að breytast mjög ört og allar aðstæður við fiski- mennsku. Við munum reyna hér að fylgjast með því sem er að gerast, hvar sem er i heiminum. Það er ekki alltaf víst að það sem í fljótu bragði virðist eink ar álitlegt henti okkur, þegar nánar er athugað málið, en von andi berum við gæfu til að fylgj ast með tímanum í menntun skipstjórnarmanna okkar, því að enn verður það nú að teljast eitt mikilsverðasta atriðið í menntunarkérfi þjóðarinnar. Menntim skipstjóra: Jónas Sigurðsson 1 hérlandinu Eins og að líkum lætur hefur Jónas Sigurðsson, skólastjóri Stýrimannaskólans, fylgzt með þróun kennslumála sjómanna- stéttarinnar í nágrannalöndun- um og víðar. Hér fara á eftir nokkrir punktar, sem Jónas lét Sjómannasíðunni i té, vegna undangenginna skrifa á þessari síðu um menntun skipstjórnar manna, einkum fiskiskipStjóra. UM „SIMULATOR" EÐA EFTIRLÍKIN G ARKERFIÐ — Þessi aðferð, að líkja sem mest eftir náttúrlegum aðstæð- um á sjó úti við kennsluna í landi er áreiðanlega mjög árang ursrík aðferð, en mér vitanlega er hún þó hvergi það vel á veg komin að hún sé notuð, nema að einhverju litlu leyti. Ég hef fylgzt með þessum tilraunum og mér finnst þær mjög athyglis- verðar, en ég held eins og áður segir, að þær séu hvergi komn- ar í gagnið. Þetta er vafalaust mjög dýr kennsluaðferð, en mín skoðun er að hver aðferð, sem skilar góðum árangri á því sviði að gera skipstjórnarmenn okkar færari í starfi hljóti að marg- toorga sig. Þó að við hér höfum ekki ,,simulator“-brú, eins og þeir eru að berjast við að koma sér upp í Húll og víðar, þá á skól- inn nýtízku fiskileitartæki og nokkuð af siglingarkennslutækj um — og hér höfum við mjög reynda kennara — bæði i bók- legum — og verklegum efnum. — En það er einn mikili hæng ur á — við getum ekki farið i bili inn á nýjar brautir eða auk ið raunhæfu kennsluna — vegna húsnæðisvandræða — við höf- um ekki húsrými til meiri tækja kennslu, en þegar er fram- kvæmd hér við skólann. Skilningur á aukinni „prakt- iskri“ kemnslu hefur mjög auk- izt hjá ráðamönnum og um það vitnar nýleg fjárveiting — að upphæð 7 milljónir króna, til byggingar húsnæðis fyrir tæki — en þetta er bara ekki komið 1 gagnið, því miður, eins og það hefði þó þurft að vera. Það verður þó hafizt handa fljótlega í þessu efni og von- andi fæst meira fé, því að þessi fjárveiting nægir hvergi nærri til þeirra framkvæmda, sem fyr irhugaðar eru og bráðnauðsyn- legar.. NÝBREYTNI Mér finnst rétt að benda á þá nýbreytni, sem upp hefur verið tekin við skólann hér, að nem- endur fara út með skipum Haf- rannsóknastofnunarinnar. Þeir hafa þegar farið einu sinni hver deild, og vonir standa til, að fileiri ferðir verði farnar fyrir prófin í vor. Auk þess að á skip unum eru vitaskuld þaulreyndir skipstjórnarmenn, þá eru reynd ir kennarar með í för. Þarna eru sýndar veiðiaðferðir, og nemend ur sjá þarna mjög glögglega, hvernig ýms siglingatæki og fiskileitartæki vinna við raun- hæfar aðstæður og það er að sjálfsögðu mikils virði. Það er vonandi að áframhald verði á þessari starfsemi og hún verði víðtækari. SPÓLUSAFN Mér lízt ekki illa á þá hug- mynd, að skólinn eignist spólu- safn, sem tekið hefði verið upp á um borð við raunverulegar að stæður. Það gæti verið mjög líf rænt við kennsluna að geta grip ið til spólu með lifandi lýsingu á starfi skipstjóra við einhverj- ar tilteknar aðstæður. Þetta er vitaskuld angi af „simulator" kerfinu, sem áður er á minnzt. Sjómannasíðan í umsjá Ásgeirs Jakobssonar REYNSLAN OG skólanAmið Það vil ég sérstaklega taka fram, þó að ég sé fylgjandi mjög aukinni raunhæfri kennslu í skólanum, að ég tel að ekkert skólanám geti komið fyllilega í staðinn fyrir þá reynslu, sem skipstjórnarmaður öðlast við að vinna sig upp hörð.um höndum. Reynsiutiminn um borð er hverj um nemanda nauðsynlegur áður en skólanámið hefst. Ég vil alls ekki að það sé gengið framhjá hásetatímanum. Mér finnst sá undirbúningur svo nauðsynleg- ur úndir skipstjóranámið og hann er ekki sízt nauðsynlegur nemandanum til þess, að hann geti gert sér ljóst áður en hann leggur i skólanámið, hVort hann viU leggja þetta starf fyrir sig um ævina og hvort hann hefur þá hæfileika, aðra en námsgáf- urnar á bókina, sem skipstjórn armaður þarf að vera gæddur. UM NÝJA FRUMVARPIÐ Meginefni þessa frumvarps hefur verið rakið i Morgunblað inu og óþarfi að gera það hér aftur í smáatriðum. Megintii- gangur þess er að auka og bæta menntun skipstjórnarmanna. Helztu umbæturnar frá því sem var, eru þær, að nú getur skip- stjórnarmaður haldið áfram stig af stigi, þannig að hann þarf aldrei að stiga til baka og læra meira eða minna af námsefni upp aftur. Þegar hann er búinn með fyrsta stig tekur hann til við námsefni annars stigs, hvenær sem hann óskar að taka það stig. Þó að hitt sé æski legast og beinlínis til þess ætl- azt að námið verði sem samfelld ast. Þannig koll af kolli þar til hann hefur tekið öll fjögur stig in, ef hann kærir sig um það. Með þessu gengur námsefnið ekki neitt á misvíxi, eins og var, meðan hvert námsstig var einangrað fyrirbæri. Annað atriði er sérstök ástæða til að benda á, og það er það, að með frumvarpinu er gerð til- raun til að samræma farmanna og fiskimannanámið. Það er að minum dómi mjög nauðsynlegt. Þessi tvenns konar skipstjómar- störf eru svo skyld hérlendis og menn þurfa svo mjög að gegna þeim jöfnum höndum. Fiskiskip- in fara sistækkandi og stunda veiðar um öll heimsins höf vænt anlega og munurinn á þeim og fragtskipum er ekki ýkja xnik- ill, eða að minnsta kosti ekki World Fishing sýning í Dublin The World Fishing (bóka- og tímaritaútgáfa og ýmis önnur þjónusta við sjávarútveginn) — hefur á undanförnum árum (síðan 1963) efnt til stórra sjáv arútvegssýninga í London ann- að hvert ár. I fyrra var brugðið af þess- ari venju að hafa sýninguna i London, og haldin mikil sýning í Aberdeen i S'kotlandi og nú á að halda hana í Dutolin i Irlandi, dagana 24.—30. m'airz. Af þeirri skrá að ráða, sem Sjómannasíð- unni hefur borizt um þá aðila, fyrir smæstu bátana — og þarna verður vafalaust mikið úrval af alls kyns elektroniskum fiskileit ar- og siglingartækjum, ef dæma má af skránni yfir fyrirtækin, sem sýna. Skipasmíðafyrirtæki víða að auglýsa þarna og sýna model. Þarna verður ,,fiskivika“, í fiskdokkinni, þar verður sýnd alls kyns framleiðsla úr fiski og fisktegundirnar sjálfar. Þarna verður alþjóðleg ganghraða- keppni milli togara (ekki veit ég hvaða tilgangi það þjónar), sér- Götumynd frá Dublin. sem sýna þarna frá ýmsum lönd um svo og lista um einstök sýn- ingaratriði, þá verður þarna margt gimilegt til fróðleiks, ekki sízt fyrir frystihúsamenn og bátasjómenn. Það verður sýnt mikið af ýmiss konar tækj- um og úttoúnaði fyrir báta. Svo nokkuð sé nefnt af því, sem sýnt verður, má nefna ýmsar gerðir frystitækja, pl'astfiski- kassa af ýmsum stærðum og gerðum, slægingar-flökunar og roðflettingarvélar fyrir sild og þorsk, margs konar vörpugerð- ir bæði stórar og smáar fyrir botn- og uppsjávarfisk, og mætti kannski sérstaklega benda á humar- og rækjuvörp ur, en einnig er um ýmsar botn trollgerðir að ræða fyrir þorsk svo sem Aberdeenvörpuna, sem athugandi væri fyrir bátaflot- ann okkar, sem er að þreifa sig áfram um heppilegar vörpugerð ir vegna sívaxandi togveiða bátanna. Þarna virðist einnig eiga að sýna margs kons fiski- leitar- og siglingatæki fyrir smærri báta, til dæmis, ratar fyr ir smábáta, einnig ratarspeglar stakar ferðir verða um nágrenn ið og hina fögru borg og yfir- leitt virðist þessi sýning hin markverðasta fyrir islenzka fiskimenn, útgerðarmenn og frystihúsaeigendur. lEnn um plóginn Mikið hefur verið spurt um I enska og skozka skelfisk- (pióga, ekki sízt þennan, sem | lýst var hér á siðunni bæði ? ' fyrra og nú i ár. Bolvíski plógurinn hefiur (verið notaður um allt land og j þar sem Bolungarvíkurverk- stæðið hefur haft forgöngu 1 um smíðina og þreifað sig I áfram af eigin rammleik, l | væri ekki úr vegi að það yrði . styrkt úr Iðnlánasjóði eða ein ' hverjum öðrum sjóði til að I kynna sér þær beztu gerðir skelfiskplóga sem um væri , að ræða i nágrannalöndunum, eða þar sem aðstæður eru I svipaðar og hér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.