Morgunblaðið - 12.03.1971, Síða 28
3.5 AUGLVStNGASTOFA KRISH'NA?
28
MOEGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1971
haffi
LAUGAVEG 178
— Já, það var ætlað til þess
að villa fyrir, sagði Priestley.
— Einmitt. Og af því má ráða,
að framburður ungfrú Black-
brook sé sannleikanum sam-
kvæmur. Hún fékk bréf frá
frænda sínum, sem endaði á orð-
unum „Good sport“ — og var
undirritað Ben. Þetta bréf reif
hún seinna og fleygði því. Ein
hver náði í það og gerði asr
ljóst, að hægt væri að nota það.
— Nú getur ungfrú Black-
brook ekki sagt okkur hvar og
hvenær hún eyðilagði bréfið.
En það er engin ástæða til að
efast um, að hún hafi verið
stödd hjá bróður sínum þegar
hún fékk það. Það er hugsan-
legt, að hún hafi rifið það þar
og að annað hvort bróðir henn-
ar eða kona hans hafi náð i
það. En svo er það líka alveg
eins hugsanlegt, að hún hafi
ekki rifið það fyrr en hún var
komin aftur til Lydenbridge.
— Ef hún þá hefur fleygt bréf
inu í körfuna, annað hvort
heima hjá sér eða í bókasafn-
inu, hvaða möguleikar eru þá á
þvi, að einhver annar fyndi það?
Ég hringdi til Appleyard fyrir
tveim dögum og spurðist fyrir
um þetta, og i morgun fékk ég
svarið frá honum. Hann sagði
mér, að körfurnar í bókabúðinni
og bókasafninu væru tæmdar á
hverjum morgni, og ráðskona
Woodsprings geri það, og noti
síðan blöðin til uppkveikju. Ung
frú Blackbrook tæmir sjálf körf
una heima hjá sér og brennir
blöðunum á vetuma þegar hún
kveikir upp, en á sumrin tæmir
hún körfuna í ruslafötuna, en
hún er tæmd vikulega af hreins
unarmönnunum frá bænum. Til
þess er notaður opinn vagn og
það hafa oft borizt kvartanir yf-
ir þvi, að ruslið fjúki út um all
ar götur í bænum.
— Þannig er sá möguleiki til
staðar, að hver sem er i öllum
bænum eða nágrenni hafi getáð
náð í þetta blað. En þar getur
annað komið okkur að gagni:
Mikill meirihluti þorpsbúa, jafn
vel þeir sem eru þar gamlir i
i hettunni, mundu alls ekki geta
sér til um það, hver Ben væri,
né heldur þekkja rithöndina.
Það mundu ekki aðrir geta en
þeir, sem þekkja Glapthomefjöi
skylduna vel.
Hanslet hristi höfuðið við
þessu. — Nú held ég þú gangir
of hratt að verki, Jimmy, sagði
hann. — Setjum nú svo, að ég
væri afbrýðisamur gagnvart þér
vegna skjóts frama þíns í lög-
reglunni og ákvæði að skjóta
þig við fyrsta gefið tækifæri.
Meðan ég væri að búa mig til
þess, fyndi ég bréfmiða, sem á
stæði: „Ég skaut þennan mann.
Jack.“ Ég mundi auðvitað hirða
þenn^in miða og binda hann um
hálsinn á þér eftir að hafa kál
að þér — heldurðu það ekki?
Mér væri alveg sama, hver
þessi Jack væri. Samverkamenn
mínir fengju að komast að því.
Hvað segið þér prófessor?
Það sé fjarri mér að fara
að dæma mál ykkar, sagði Pri-
estley hátíðlega. — Við skulum
heyra, hvort fulltrúinn hefur
eitthvað annað í pokanum, sem
gæti þrengt leitarsvæðið.
-— Það er eitt atriði enn, sagði
Jimmy. Þetta að stinga skotun-
um í bílinn hjá Mow-
bay. Nú býst ég ekki við, að
glæpamaðurinn hafi þorað að
trúa neinum öðrum fyrir því.
Það er hér um bil víst, að hann
hefur komið bögglinum fyrir
sjálfur. Og það þýðir aftur, að
hann hefur verið í Lydenbrigde
þann 6. ágúst.
T-BONE STEIK
SIRLOIN STEIK
VEIZLUBRAUÐ
BRAUÐTERTUR
Takið með ykkur heim.
Sími 34780.
Einbýlishús
• bolir • leðurjakkar •
útsaumaðar skyrtur •
denlm skyrtur • denim
irakkar • finnsk föt •
ensk föt • íslenzk föt •
enskir smokingar m. vesti
Til sölu er einbýlishús (járnvarið timburhús) á góðum stað
við Skólavörðustíg. Húsið er kjallarí, hæð og rishæð. i kjaliara
eru góðar geymslur, þvottahús o. fl. Á hæðinni eru 2 rúm-
góðar stofur, eldhús, snyrting og stór ytri forstofa. í rishæð-
inni eru 2 svefnherb. og bað Húsið hefir verið endurnýjað
að mestu leyti að innan. Þar eru nú nýtizku innréttingar úr
harðviði og plasti. Ný teppi Góður garður. Getur hentað sem
ibúðarhús eða atvinnuhúsnæði.
ARNI STEFANSSON, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala
Suðurgötu 4. Simi: 14314.
Alyjor nýjung
Sjúkra-og
slysatrjjfjiinjí
Hringið og ieitið tiiboða.
11 v VALMENNAR TRYGGINGARf .
rðlTHÚ»TH>ETI • SlMI ITTOð ,*/
»1
— Þegar ég talaði við Arthur
Blackbrook, sagði hann mér, að
hann hefði verið i Margate frá
'því 31. júli til 14. ágúst. Ég hef
talað við húsbændur hans og
þeir sögðu mér, að hann hefði
verið í frii þessa daga. Black-
brook sagði mér nafnið á gisti-
húsinu, sem hann hafði verið í
og ég talaði við húsmóðurina
þar. Hún staðfesti, að hann
hefði verið þar þessa umræddu
daga. En hún sagði líka, að
hann hefði stundum verið burtu
allan daginn frá morgni til
kvölds. Og auðvitað kom henni
ekkert við, hvemig gestir henn-
ar skemmtu sér á daginn. Það
er þess vegna hugsanlegt, að
Arthur og kona hans hafi kom-
ið til Lydenbridge þann
6. ágúst. Og þar sem bréf-
ið kann að hafa verið rif-
ið sundur heima hjá honum,
verð ég að hafa Arthur með á
skrá yfir þá, sem höfðu tæki-
færi.
— Þessi. tækifæraskrá þín,
eins og þú kallar hana, er nú
orðin býsna löng, sagði Hanslet.
— Hver er ibúatalan i Lyden-
bridge?
— Ég býst við, að hún sé um
fjögur þúsund, sagði Jimmy. —
Og eins og ég hef bent á, getur
hver sem er hafa náð í þennan
bréfmiða. En svo fjandalega vill
til, að Caleb virðist hafa verið
uppá kant við flesta þeirra.
—- En honum var nú sérstak-
lega illa við þennan bónda, sem
þú varst að segja okkur frá,
sagði Hanslet með áherzlu.
— Chudley? Já. Appley-
ard hefur talað við þessa
dóttur hans, Veru. Hún fór nú
heim á laugardaginn var, en
Appleyard talaði við hana með-
an hún var enn hjá frænku
sinni í Lydenbridge. Og hún sór
og sárt við lagði, að það
hefði aldrei verið neitt milli
þeirra Calebs nema meinlaust
kossaflens bak við limgerðin.
— Hvaða bréf hefur þú fyrir
þvi, að hún segi satt? sagði
Hanslet tortrygginn.
— Sjálfsagt 'engin, svaraði
Jimmy. — Appleyard segir mér,
að hún virðist ekki taka sér
dauða Oalebs neitt nærri. Sann-
ast að segja virðist hún miklu
frekar vera fegin, að vera laus
við hann.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Hver er sjálfum sér næstur í seinni tíð, og þér er hollara aö
treysta ekki um of á aðra.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Ef ekki vill betur, er þér óhætt að hefja verk, sem þú ætlaðir
að geyma fram á vorið.
Tvíbiu-arnir, 21. »naí — 20. júní.
Liklcgast er, að fólk hyggi ekki á hefndir fyrst um sinn, svo
að þú hefur cnnþá frjálsar hendur ef þú vilt rétta hlut þinn.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Sumpart finnst þér þú hafa hlaupið á þig, og það er rétt, en
það eru alltaf tvær hiiðar á öllu, og þvi má ekki gleyma.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Víðsýni þína er ýmsum kunnugt um, og hafa notið góðs af.
Það væri ekki úr vegi að láta skína dálítið meira í hana, en þú
hefur gcrt.
Meyjan, 23. á^úst — 22. september.
Ef ekki er annað framundan en ládeyða, cr rétt að reyna
að sökkva sér niður í verkefni, sem þú hefur áhuga á og nauðsyn
krefur að innt sé af hendi.
Vogtn, 23. september — 22. október.
Þú ert kominn í sjálfheldu, en getur sjálfum þér um kennt. Nú
reynir á ráðsnilld þína.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Ilverjir eru það, sem þér standa næst á örlagastundu? Ef fólk
hefur stutt þig fyrr, er eins gott að leita hófanna á sömu slóðum
á ný.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú stefnir augljóslega að marki, scm þér cinum cr hagkvæmt
og er ekkert við því að segja. Það getur samt oft verið kostnaðar-
samt.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þér er margt auðvelt, þó ekki allt. Þú verður að vanda þig betur
í smáatriðum og muna, að þú ert ekki einn í hciminum. Því
er ónauðsynlegt að láta ljós þitt skína svo bjart.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Sumir eru alltaf að amast við þér og hógværð þeirri, sem þú
sýnir. Er ekki rétt að hafa svolítið hærra?
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. mara,
Svo bregðast krosstré, sem önnur t.ré. Það er þó ekki ástæða
til þess að láta hugfallast, heldur ætti það þvert á móti að herða
þig upp og hvetja Ul dáða.