Morgunblaðið - 24.03.1971, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1971
— Skipa-
smiðjurnar
Frarnhald af bls. 13
reyndar megi velta honum fyr
ir fér strax nú.
— En hvað með önnur skip
en fiskiskip?
-— Það liggur í augum uppi,
að þegar hægt er að smíða 4—
500 tonna fiskiskip eru en.gin
vandkvæði á að smíða jafnstór
flutningaskip til dæmis. Milli
þessa eru ekki það skörp tækni
leg skil, þó að ýmislegt sé sér-
stakt fyrir báðar smíðamar.
En þegar tæki og tækni gera
iðnaðinum kleift að framleiða
meira en nemur innlendri eftir-
spurn, verður samkeppnisað-
staðan við erlendar stöðvar orð
in það góð, að hún stendur
ékki í vegi fyrir útflutnin.gi.
Hins vegar segir sig s.jálft, að
eftirspurn að utan verður að
koma til, þvi innlendi markað
urinn er það lítili, að ekki borg
ar sig að byggja á smíði til
dæmis eins strandferðaskips á
tiu ára fresti.
Ég held að smíði smærri
flutningaskipa; strandferða
skipa til dæmis, fyrir eriend-
an markað sé fullkomlega raun
hæfur mæguleiki ekki síður en
útflutningur á fiskiskipum.
Samkeppnisaðstaðan kemur
alla vega ekki til með að
standa ein í vegi fyrir því,
hvað sem öðrum þáttum — eins
og til dsemis eftirspurn — lið-
ur.
Að lokum kvaðst Lennart
Axelsson viija þakka þær stór
kostlegu móttökur, sem hann
hefði hvarvetna hlotið hér á
landi. Þær hefðu auðveldað
honum mjög starf hans og gert
það ánægjulegra á allan hátt.
„Reynsla mín er sú, að íslend
ingar vilji einlæglega byggja
upp sinn skipasmiðaiðnað á
sem beztan og hagkvæmastan
hátt og að þar vilji menn taka
höndum saman en ekki sitja
einþykkir hver í sánu horni.
eins og stundum er sagt, að sé
þjóðareinkenni ykkar.“
Um síðustu áramót voru i
smíðum — eða samið var um
smíði á — hjá n.íu skipasmiðj-
um innanlands 27 stálskip, sam
tals um 3345 brúttólestir. —
Þar af eru tvö skip smíðuð fyr-
ir erlendan aðiia; 65 tonna skip,
sem Bátalón h.f. í Hafnarfirði
smíðar fyrir indverskan aðila.
— Erlendis voru í smíðum um
áramótin hjá fimm skipasmiðj-
um 10 skip fyrir islenzka aðila;
samtais um 13.654 brúttólestir.
Þá voru í smiðum — eða sam
ið um smíði á — hjá 18 smiðj-
um 42 trébátar og skip; sam-
tais um 685 brúttólestir.
vSjá meðfylgjandi kort).
Skip i smiðum og umsamin innanlands t. janúar 1971
Skipasmíðastöð og staður Smíðanr. Tegund.
Slippstöðin h/f., Akureyri. 33 Strandferöaskip.
Stálsmlðjan h.f., Reykjavík. 4 Stálfiskiskip.
Stélsmlðjan h.f., Reykjavík. 5 11 *
íorgelr & Ellert h/f., Akranesi. 23 11
Þorgeir & Ellert h/f., Akranesi. 25 !»•
íorgelr & Ellert h/f., Akranesi. 27 II
Þorgeir & Ellert h/f., Akranesl. 28 II
M.Bernharðsson,skipasm.st.h/f.,Isafirði 44 1»
M.Bernharðsson,sklpasm.st.h/f..Isafirði 45 11
M.Bernharðsson,skipasm.st.h/f.jlsafirði 46 II
Slippstöðin h/f., Akureyri. 34 tt
Slippstöðin h/f., Akureyri. 35 11
SlippstSðin h/f., Akureyri. 36 ti
Vélsmiðjan Stál, Seyðisfirði. 1 n
Vélsmiðjan Stál, Seyðisfirði. 2 tt
Vélsmiðja SeyðisfJarðar,Seyðisfirði. 5 11
Vélsmiðja SeyðisfJarðar,Seyðisfirði. 6 11
Dráttarbraut Neskaupstaðar,Norðfirði. 11 11
Bátalón h/f., Hafnarfirði. 380 11
Bátalónh/f., Hafnarfirði. 381 11
Stálvík h/f., Garðahreppi. 12 H
Stálvík h/f., Garðahreppi. 14 II
Stálvík h/f., Garðahreppi. 15 n
Stálvík h/f., Garðahreppi. 16 11
Stál.vík h/f.j Garðahreppi. 17 11
Stálvík h/f., Garðahreppi. 18 n
Stálvík h/f., Garðahreppi. 19 n
Skip i smíðum og umsamin
Skipasmíðastöð og staður. Smíðanr. Tegund
Aalborg Værft A/S, Danmörk. 194 Vöruflutningaskip.
Busumer Werft, Þýskalandi. £39
Busumer Werft, Þýskalandi. 240 II
Stoeznia Gdynska, Póllandi. B 425 Stálfisklskip,
Stoeznla Odynska, Póllandi. B 425 II
Astilleros Luzurlage S.A.,Spánn lll n
Astilleros Luzuriage S.A.,Spánn. 112 »
Astilleros Luzurlage S.A.,Spánn. 311 n
Astilleros Luzuriage S.A.,Spánn. 312
Kaarbös Mek.Verksted, Noregi. 73 n
Eigandl afgr. tími. Aðalmái Lpp x B x D m. Brl. * 2SL.
Ríkissjóður Islands. 1971 6l,o.x 11,5 x 3.65/6,10 708
öákveðinn. 1971 23,3 x 6,4 x 3,3 105
öákveðinn. 1971 £3.3 x 6,4 x 3,3 105
Emil Andersen,VestmannaeyJum. 1971 24,0 x 6,6 x 3,3 105
Einar Guöm.h/f., Vestmannaeyjum. 1971 24,o x 6,6 x 3,3 105
Þárður Guðjónsson, Akranesi. óákv. 24,0 x 6,6 x 5,5 105
Hafsteinn Sæmundss.,Grlndavík. óákv. 24,o x 6,6 x 3,Í5 105
Benedikt V.Guðmundss.,Flateyri. 1971 23,10 x 6,7 x 3.35 105
ölafur S.Lárusson h/f.,Keflavík. 1971 24,7 x 6,7 x 3,35 125
Gísll Þórólfsson, Reyðarfirði. 1971 14,8 x 5,0 x 2,5 3Ö
Sœfinnur h.f., Reykjavík. 1971 27,95 x 6,7 x 3,35 150
Oeir Sigurjónsson, Hafnarflrði. 1971 23,10 x 6,7 x 3.35 105
Meitillinn h/f.> Þorlákshöfn. óákv. 23,10 x 6,7 x 3.35 105
Magnús A.Stefánss.ofl.,Stöðvarf. 1971 ll.o x 3,36 x 1,8 15
Davíð Vigfússon ofÍ.,Vopnafirði. 1971 ll,o x 3,36 x 1,8 15
öákveðinn. óákv. 20,8 x 5,9x'3,l 85
Sigríður Kristinsd..Eskifirði. 1971 17,o x 4,8 x '2,45 48
Eiríkur BJarnason ofl.Eskifirði. 1971 18,4 x 5,2 x 2,65 64
IND0 Icel.Fischeries Ltd.Indland. 1971 16.7 x 5,6 x 2,7 65
IND0 Icel.Fischeries Ltd.Indland. 1971 16,7 x 5,6 x 2,7 65
öskar Matthíasson,Vestmannaeyjum. 1971 22,7 x 6,7 x 3,35 105
Amarvík h/f., Grindavík. 1971 22,7 x 6,7 x 3,35 105
Kópanes h/f., Reykjavík. 1971 22,7 x 6,7 x 3,35 105
ölafur ölafss.Suðureyri,Súgandaf. 1971 22,7 x 6,7 x 3,35 105
Þormóður rammi h/f., Siglufirði. 1972 40 x 9 x 4,35 400
Meitillinn h.f., Þorlákshöfn. óákv. 22,7 x 6,7 x 3,35 105
Ibsen Angantýsson, Reykjavík. óákv. 22,7 x 6,7 x 3,35 105
erisndis 1. janúar 1971
Eigandi. afgr. tími. Aðalmal Lpp x B x D m 3rl. ' ca.
Eimskipafélag Islands. 1971 85,5 X 14,3 X 5,6 3004
•Samband Isl.Samvinnufélaga Rvk. 1971 68,55 x 12,o x 4,25/7,15 1500
Samband Isl.Samvinnufélaga Rvk. 1971 73.10 x 13,0 x 4,12/7,10 2200
ögurvík h/f., Reykjavík. 1972 52,4 x 11,3 x 5,o/7,3 1050
ögurvík h/f., Reykjavík. 1972 52,4 x 11,3 x 5,o/7,3 1050
Rikissjóður Islands. 1972 59,o x 11,6 x 5.0/7,5 1100 •
Ríkissjóður Islands. 197£ 59,o x 11,6 x 5,o/7,5 1100
Ríkissjóður Islands. 197£ 59,0 x 11,6 x 5,0/7,5 1100
Ríkissjóður Islands. 1973 59,0 x 11,6 x 5,0/7,5 1100
títgerðarfél.Skagf..Sauðárkróki. óákv. 44,2 x 10,4 x 4,5/6,9 450
Erlendis 10 sklp, samtals 13.654 brl.oa.
— Vettvangur
Framh. af bls. 15
verkefna. Kann það að koma sér
vel síðar meir. Slík opin ákvæði
eru reyndar til um margar
skyldar stofnanir og má með
góðum vilja ætla þeim sömu
hugsanlegu verkefni.
Iðnaðarmálastofnun Islands
hefur sennilega fjailað um flest
þau mál, sem tilgreind eru í
töiuliðunum 1 til 7. Þó eru þau
ekki jafn vel skilgreind í lögum
um þá stofnun, enda gert ráð
fyrir að stofnuninni yrði sett
reglugerð, sem kvæði nánar á
um leiðir að settu marki. Reglu
gerðin taldist þó ekki nauðsyn-
legri en það, að hún var aldrei
sett.
Þremur af rannsóknastofnun-
um atvinnuveganna mun einnig
teljast skylt að sinna verkefnum
sex fyrstu töluliðanna að
óelevmdu Rannsóknaráði ríkis-
ins, sem á samkvæmt lögum tví-
mælaiaust að sinna mörgum
sömu verkefnum. Annarri spum
ingunni hér að framan verður
því að svara á þann veg, að
þegar hafi verið hugsað fyrir
þessum verkefnum í landslögttm
og ekki á einum stað heldur á
mörgum.
TILNKFNINGA-„SNTJ»I»“
Þriðja grein frumvarpsins tel-
ur upp 23 aðila, sem eiga að
mynda Iðnþróunarráð og jafn-
framt stjóm Iðnþróunarstofn-
unar íslands.
Upptalningin er fróðleg.
Hvers vegna er Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins ekki tal-
in verðug þess að mega tilnefna
fulltrúa? Hvers vegna eru eng-
in samtök fiskvinnslufyrirtækja
í upptalningunni ? Hvers vegna
er tekið fram, að framkvæmda-
nefnd Rannsóknarráðs rikisins
skuli tilnefna fulltrúann en
ekki Rannsóknaráð ríkisins?
Framkvæmdanefndin er alls
ekki sjálfstæð stofnun hliðstætt
öðrum í upptalningunni.
Tilnefningaglundroðinn er
slikur, að helzt kemur upp í
hugann þulan um Einbjöm, Tvi-
bjöm og Þríbjöm o.s.frv., nema
hér endar keðjan þegar í stað,
með því að Einbjörm og Tví-
bjöm toga hvor í rófuna á öðr-
um. Rannsóknaráð rikisins til-
nefnir fulltrúa i Iðnþróunarráð,
sem tekur við hlutverki Iðnað-
armálastofnunar og mun því til-
nefna fulltrúa í Rannsóknaráð
ríkisins. Rannsóknastofnun iðn-
aðarins er ætlað að tilnefna full
trúa í Iðnþróunarráð, enda mun
Iðnþróunarráð tilnefna fulltrúa
í ráðgjafarnefnd Rannsókna-
stofnunar iðnaðarins. Eins er
háttað um Rannsóknastofnun
byggingaiðnaðarins. Víxltilnefn-
ingar eru þannig margfaldar.
Iðnaðarráðuneytið er beint og
óbeint einnig margfalt í roðinu.
Iðnaðarráðherra er formaður
Iðnþróunarráðs, auk þess skip-
ar iðnaðarráðuneyti einn full-
trúa. Iðnaðarráðherra skipar
stjórnir beggja fyrrtalinna
rannsóknastofnana, og reyndar
einn stjómarmann á hvorri
stofnun án tilnefningar. Þá
mun láta nærri, að ráðherrann
ráði nokkru um skipun stjóma
Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs,
Landsvirkjunar, Orkustofnunar,
og Útflutningsmiðstöðvar iðnað-
aríns, en þessir aðilar allir eiga
að tilnefna fulltrúa í Iðnþróun-
arráð.
Tilnefningarnar eru gagn-
kvæmar, koll af kolli, þvers og
kruss. Rétt er að líta á hina já-
kvæðu hlið málsins, aldrei verð-
ur of vel búið um hnútana og
ekki sakar að bæta við nokkr-
um lagahnútum enn þá.
Þó kann að skipta nokkru
máli, hvort aðilarnir, sem boðið
er að tilnefna fulltrúa í ráðið,
telji sig hafa einhvern ávinning
af þvi. Eftir hverju væru þeir
þá að sækjast? Hvemig er ætl-
azt til að ráðið starfi?
Þvi vírðist lýst i fimmtu grein
frumvarpsins. Ráðið skal koma
saman a.m.k. tvisvar á ári.
Sa/ns konar ákvæði er í lög-
um um Rannsóknaráð ríkisins.
Þar hefur einnig fengizt reynsla
á starfsemi ráðs með margþætt-
um tilnefningum. Stórráðið sér
hvorki reikninga né starfsáætl-
anir ráðsins fyrr en löngu eftir
afgreiðslu slíkra máia og í sum-
um tilfellum alls ekki. Tvisvar
til þrisvar á ári hlýðir stórráð-
ið á skýrslur framkvæmda-
nefndar og erindi, sem fram-
kvæmdanefndin veiur, en þar
verða engar umræður, ef marka
má yfirlýsingu, sem fram-
kvæmdastjóri ráðsins gaf á ráð-
stefnu um rannsóknir og tækni-
þróun fyrir rúmu ári síðan. Þátt
ur ráðsins í he i(ld arsfef niUTii öi-k-
un hefur reynzt nákvæmlega
enginn.
Varla þarf að setja um það
lög, þótt ánægjulegt og jafnvel
fróðlegt kunni að vera að koma
saman til kaffidrýkkju og vöflu
áts tvisvar á ári. Ákvæði í laga-
frumvarpinu (sem einnig er í lög
um um Rannsóknaráð ríkisins)
um að ráðið skuli ólaunað, tek-
ur af allan vafa um það, að ekki
er ætlazt til annarra verulegra
tilþrifa af ráðsmönnum almennt.
Það er augljóst, að svo sem
tveir kaffifundir á ári valda
engum stórbreytingum á högum
iðnaðarins í landinu. Þótt ráðs-
menn fái á fundum ráðsins tæki
færi til að hlýða á skýrslur
framkvæmdanefndar, breytir
það einnig litlu, fréttaauki hljóð
varpsins hefur hingað til gjarn-
an flutt viðtöl við framkvæmda-
stjóra, sem eitthvað liggur á
hjarta Hver er þá tilgangurinn
með öllum tilnefning’unum? E.ru
fjöidatilnefningar lausnarorð
eða hvítur galdur? Áður er
drepið á þá reynslu, sem fengizt
hefur af fjöldatilnefningum til
Rannsóknaráðs ríkisins. Sama
reynsla er fengin af starfi ráð-
gjafarnefnda við rannsókna-
stofnanir atvinnuveganna. Er til
gangurinn sá, að stinga „snuði“
upp í alla tilnefningaaðiiana og
gera þá með samheitinu Iðnþró-
unarráð samábyrga ráðherra og
ráðgjafarnefndinni eða fram-
kvæmdanefndinni, sem ráðherra
verður samkvæmt frumvarpinu
einráður um að skipa úr hópi
hinna 23 fulltrúa?
Ráðherra getur án lagasetn-
ingar valið sér hverja þá ráð-
gjafa, sem honum sýnist, þeg-
ar honum býður svo við að
horfa og gefið ráðgjafarnefnd
um sínum hin glæstustu nöfn,
sem honum koma í hug. Þá er
ljóst og ágreiningsiaust, hver
ábyrgð ber. Miklu sæmra er öll-
um hinum aðilunum að láta að
sér kveða í verki og eiga skoð-
anaskipti fyrir opnum tjöldum í
dagblöðum og öðrum fjölmiðlum
um framfaramál iðnaðarins. Á
þann hátt ættu málefni iðnaðar-
ins að þróast eðlilega. Ráð,
nefndir og fjölgun óvirkra
stjórnenda stofnana breyta hins
vegar engu. Vanræki ein stofn-
un hlutverk sitt er flest önnur
úrræði betri, en stofna nýja við
hlið hinnar eldri.
Eins og þegar hefur komið
fram, virðist frumvarpið sniðið
eftir lögum um Rannsóknaráð
ríkisins. Tvennt er þó á annan
veg en í áðurnefndum lögum. Al-
þingi tilnefnir þingmenn i Rann
sóknaráð ríkisins. Þótti á sínum
tíma mikils um vert, að skapa
þannig tengsl alþingismanna og
rannsóknamála öðru máli gegn
ir nú, engin ástæða virðist til að
tryggja tengsl alþingismanna og
iðnaðar. Endurspeglar þetta frá
vik einhverja reynslu af fyrr-
nefndum lögum? I öðru lagi er
ráðherra nú ætlað að tilnefna
framkvæmdanefndina að eigin
geðþótta. Skyldi sú breyting
endurspegla einhverja dapur-
lega reynslu af fyrmefndum lög
um? Er hinum tilnefndu fulltrú
um ekki treystandi til að velja
framkvæmdanéfndina sjálfir úr
eigin hópi?
F.IftÐTJR í HATTINN?
I megindráttum hafa höfund-
ar frumvarpsins talið lögin um
Rannsóknaráð rikisins til eftir-
breytni, þrátt fyrir það að þau
lög hafa sætt mikilli gagnrýni
og eru reyndar í endurskoðun.
Nú síðast hefur framkvæmda-
stjóri ráðsins, Steingrímur Her-
mannsson, lagt athyglisvert lóð
á vogarskálarnar og reyndar
sömu megin og aðrir gagnrýn-
endur. Framkvæmdastjórinn,
sem af tilviljun situr alþingi nú
rétt fyrir kosningar, flytur
ásamt Einari Ágústssyni þings-
álýktunartillögu um jarðfræði
legar rannsóknir vegna neyzlu-
vatnsleitar. Samkvæmt greinar-
gerð, sem þingsályktunartillög-
unni fylgir, virðist tilefni til-
löguflutningsins vera, að Jón
Jónsson jarðfræðingur benti á
það i ræðu á nýafstaðinni ráð-
stefnu Sambands islenzkra sveit
arstjórna um náttúruvernd, að
nauðsyn bæri til „meiri háttar
jarðfræðirannsókna" til að
tryggja gott neyzluvatn á Vest-
f jörðum — m.a. landshluta.
I greinargerðinni kemur
hvergi fram, að Rannsóknaráð
ríkisins (né framkvæmdastjóri
þess) hafi gert tillögur um slík-
ar rannsóknir áður á öðrum vett
vangi. Þó er tekið skýrt fram
í lögum um ráðið, að það skuli
gera tillögur til úrbóta telji það
markverð rannsóknaverkefni
vanrækt. Mikil slembilukka var
það fyrir ráðið, að framkvæmda
stjórinn skuli eiga innhlaup á
Alþingi til að koma tillögum til
skila En illt er, að hann skuii
hafa þurft að bíða í spreng í
þrjú ár eftir sliku tækifæri,
nema honum hafi verið ókunn-
ugt um grein Jóns Jónssonar
„Vandamál við öflun neyzlu-
vatns,“ sem birtist í „Náttúru-
fræðingnum" öðru hefti 1968.
Auðvitað skiptir mestu máli. að
þingsályktunartillagan getur
orðið fjöður í hatti væntanlegs
alþingismanns, — fjöður, sem
kann að draga amsúg um aiia
Vestfirði í komandi kosningum.
Gerir þá minnst til, þótt tiliag-
an hefði átt að fara aðra boð-
leið.
Það er ekki nóg, að til sé
stofnun, sem útbúin er með já-
kvæðri verkeínaskrá. Það verða
engin verkefni leyst nema með
hæfum starfskröftum, sem gef-
inn er tími og tækifæri til að
sinna þeim. Ráð og nefndir
skipta minnstu máli og áhugi,
sem einungis kemur fram í kosn
ingabaráttu á ekkert skylt við
skynsamlega áætlanagerð.
LÓKAOK»
Eins og fram kom hér á und-
an, virðist vera um töluverða
skörun að ræða á verkefnum
Iðnaðarmálastofnunar Islands
og Rannsóknastofnunar iðnaðar
ins. Sé ástæða til einhverra
breytinga á stöðu og hlutverki
Iðnaðarmálastofnunar virðist
bezt nýting starfskrafta og
mestir möguleikar á samhæfðu
árangursríku átaki með því að
fella saman þessar stofnanir.
Það er ástæðulaust að vera með
tildur og ný, falleg nöfn, slíkt
breytir engu. Sá jákvæði hugur,
sem að baki stendur, skilar sínu
framlagi, þótt formið sé einfald-
ara og nöfnin tilkomuminni.