Morgunblaðið - 24.03.1971, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1971
Verzlunarpláss
Óska eftir verzlunarpiássi við Laugaveginn eða í Miðbaenum.
Gott pláss — góð leiga.
Tilboð óskast send fyrir 28. þ.m. til Mbl. merkt: „7210"±
Húsnœði óskast
Vegna móttöku erlendra gesta óskar Félag viðskiptafraeði-
nema að taka á leigu ibúð eða einbýlishús 4ra—8 herb. á
timabilinu 1. júlí — 1. sept. Æskilegt, að einhver húsgögn fylgi.
Upplýsingar í síma 19162, eftir hádegi.
FVFV — AIESEC.
Flugfreyjur
Aðalfundur Flugfreyjufélags fslands verður haldinn í Tjarnar-
búð þriðjudaginn 30. marz kl. 3 e.h.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjölmennið. STJÓRNIN.
Auglýsing
fra sauðfjársjúkdómanefnd um
heyflutninga
Að gefnu tilefni vill sauðfjársjúkdómanefnd vara við kaupum
og flutningum á heyi af bæjum eða svæðum, þar sem garna-
veiki hefur verið staðfest.
Bannað er að flytja hey úr sveitum eða af bæjum þar sem
garnaveiki hefur orðið vart til staða, þar sem garnaveiki hefur
ekki gert vart við sig, nema sérstakt leyfi sauðfjársjúkdóma-
nefndar komi til í hvert sinn.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri sauðfjársjúkdómanefndar,
Bændahöll.
SAUÐFJARSJÚKDÓMANEFND.
Y FÉLAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
BIN GÓ-SKEMMTUN
sem fólk bíður eftír!
Hverfasamtök Nes- og Melahverfis halda eitt af sínum vin-
sælu skemmtikvöldum að HÓTEL BORG þriðjudaginn 30. marz
og hefst klukkan 8,30.
MJÖG GÓÐIR VINNINGAR ásamt skemmtiatriðum.
Nánar auglýst síðar. — Upplýsingar í síma 26686 milli klukkan
5—7 eftir hádegi.
Öllum heimill aðgangur.
NÁMSKEIÐ UM ATVINNU-
LÍFIÐ OG STJÓRNMÁLIN
Miðvikudaginn 24. marz kl. 19,30 í Skipholti 70, efri hæð,
heldur námskeiðið áfram og verður þá rætt um:
LANDBÚNAÐ
Fyrir svðrum sitja:
Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarráðherra
og Gunnar Bjarnason,
ráðunautaur.
Þátttakendur eru beðnir að mæta stundvíslega kl. 19,30.
Samband ungra Sjálfstæðismanna.
Akureyri — Akureyri
FEL AGSM AL AN AMSKEIÐ
Vörður F.U.S á Akureyri gengst fyrir félagsmálanámskeiði
dagana 26.—28. marz n.k. og hefst það á föstudagskvöld
kl. 20.00 I húsakynnum Sjálfstæðisflokksins, Kaupvangs-
stræti 4 efri hæð.
Dagskrá: Föstudag kl. 20.00
UM RÆÐUMENNSKU.
Laugardag kl. 13,30
UM FUNDARSKÖP OG
FUNDARFORM.
Sunnudag kl. 13,30
UMRÆÐUFUNDUR UM
SJALFSTÆÐISSTEFNUNA.
Leiðbeinandi verður Friðrik Sophusson, stud. jur.
öllu Sjálfstæðisfólki er heimil þátttaka.
S.U.S. Vörður F.U.S.
— Minning
Framh. af bls. 18
fermingaraldri, og þaðan í frá,
var hann fyrirvinna móður sinn
ar allt til þess að hann stofn-
aði sitt eigið heimili.
Hann hóf þegar sjóménnsku á
unga aldri, fyrstu 10—15 árin á
togurum, en upp frá því að
heita mátti óslitið á skipum Eim-
skipafélags Islands til æviloka,
að fáum árum undanskildum,
alla tíð sem vélgæzlumaður.
Mér sem þessar línur rita var
kunnugt, að Ottó var vel virtur
og vinsæll af vinnufélögum sín
um, vegna handlægni, dugnaðar
og samvizkusemi í starfi, svo og
annarra mannkosta.
Ottó var sjómaður í þess orðs
fyllstu merkingu, þvi þegar
hann var enn á miðjum aldri
eignaðist hann sinn eigin far-
kost sem var IStill vélbát-
ur (trilla) og það var hans
mesta yndi að mála og prýða
hann á allan hátt. Og það munu
hafa verið hans mestu ánægju-
stundir að fara á sinum eigin
bát, hér út í flóann til fiskveiða.
LSk,t sem bændur fara í útreiðar
túra á gæðingum sínum.
Ottó Guðjónsson, var í alla
staði hinn ágætasti heimilisfaðir,
umhyggju- og hugsunarsamur
um alla velferð eiginkonu og
bama, og þá ekki sízt barna-
bamanna, sem segja mátti að
hann bæri á höndum sér. Einn-
ig var hann hugsunarsamur og
nærgætinn við aldraða móð-
ur, til hennar síðustu stundar.
Ottó var yngstur fjögurra systk
ina. Einn bróður átti hann,
Ágúst, sem látinn er fyrir
nokkrum árum. Tvær systur á
hann á lífi, sem þakka honum
alla þá bróðurlegu hlýju, er þær
urðu aðnjótandi af hans hendi.
Ottó Guðjónsson kvæntist 4.
janúar 1930 eftirlifandi konu
Einbýlishús í
Lougorneshverfi til sölu
Á hæðinni sem er öll nýstandsett eru 5 herb., eldhús og bað.
Kjallari með 3 herb. og eldhús. I risi er stór geymsla. Bílskúr
er 50 fm„ hann mætti nota fyrir léttan iðnað eða verzlun.
Garðurinn er ræktaður með fallegum trjám.
Upplýsingar eru aðeins gefnar á skrifstofunni, þar eru einnig
teikningar.
FASTEIGNASALAN, Eiríksgötu 19,
Jón Þórhallsson, Hörður Einarsson,
Óttar Yngvason.
Auglýsing
vegna útgátu á markaskrám
Vegna útgáfu á markaskrám víða um land á þessu ári, vill
Sauðfjársjúkdómanefnd minna á eftirfarandi:
Mikilvægt er að markaverðir í nágrannahéruðum beri saman
markalista sína, svo að hægara sé að draga sem mest úr
varhugaverðum sammerkingum.
Skylt er að prenta í markabækur litakort, sem sýni löggilta
merkiliti um allt land. Litakort þessi eru fyrirliggjandi á Til-
raunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum og verða afhent
endurgjaldslaust, þegar þess verður óskað og eintakafjöldi
tilgreindur.
Skylt er einnig að prenta í markaskrár lista með tölunúmerum
bæja í hverjum hreppi. Þessi númer bæjanna (eða heimila
fjáreigenda í þéttbýli) skal samræma innan hvers hrepps eða
sveitarfélags, að höfðu samráði við markavörð.
Þeim fjáreigendum, sem hyggjast nota lituð eyrnamerki í bú-
pening sinn, ber að merkja þannig, að númer bæjarins, sýslu-
bókstafur og hreppsnúmer komi fram á hverju merki, og skal
helzt merkja í þeirri röð sem upp var talið. Fyrst komi númer
bæjarins, síðan einn sýslubókstafur en síðast hreppsnúmer.
Fyrir númerum bæja, sýslubókstaf og hreppanúmerum skal
gera glögga grein í markaskrá.
SAUÐFJÁRSJÚKDÓMANEFND.
Hvers vegna ekki oð spara 33,3°/o á
hjólbarðoviðgerðum o.ll.
FÍB vill vekja athygli bifreiðaeigenda á eftirfarandi:
Gúmbarðinn, Brautarholti 10, 8% afsláttur af hjólbörðum og
öðrum vörum og þjónustu.
Hjólbarðaviðgerðin Múla v/Suðurlandsbraut, 8% afsláttur af
hjólbörðum, og öðrum vörum og þjónustu.
Hjólbarðaviðgerð Vesturbæjar v/Nesveg, 8% afsláttur af
hjólbörðum, og öðrum vörum og þjónustu.
Dekk h/f Borgartúni 24, 10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
5% afsláttur af sólningu.
Ennfremur:
Þjónustuskrá F.Í.B. fyrir árið 1971, er komin út. Félagsmenn
er þegar hafa greitt árgjald sitt fyrir árið 1971 eru góðfúslega
beðnir að nálgast þjónustuskrána á næstu benzínstöð, hjá
umboðsmönnum F.I.B., eða á skrifstofu félagsins að Eiríks-
götu 5. Þá vill F.Í.B. minna á að stuðningslisti vegna
„ÚTVARPSMÁLSINS" liggur frammi á flestum benzínstöðv-
um höfuðborgarinnar.
hjólbörðum,
sinni Svanhvíti Guðmundsdótt-
ur, ættaðri al Snáefellsnesi,
hinni ágœtustu sæmdarkonu,
sem alla tíð stóð sem hetja við
hlið manns síns í bliðu og stríðu,
og annaðist heimili og uppeldi
barna sinna með prýði. Og
mætti Ottó mæla myndi hann
segja, að vart hefði hann getað
fundið betri lífsförunaut.
Ottó og Svanhviti varð 7
barna auðið, tvö þeirra dóu í
frumbernsku, en hin öll eru bú-
sett hér í borg. Öll eru þau hið
myndarlegasta fólk, vel upp al-
in og prúð, og í alla staði hinir
ágætustu þjóðfélagsþegnar. Þau
eru: Guðjón Árni, kvæntur
Dóru Friðleifsdóttur Friðriks-
sonar. Sigriður, gift Ingólfl
Böðvarssyni. Erla, gift Jóni
Þormarssyni. Sjöfn, gift Markúsi
Sigurðssyni. Svandís, gift Pétri
Guðmundssyni.
Ottó átti 21 barnabarn er
hann lézt.
Mér er Ijúft að minnast þessa
ágæta mágs míns, enda féll
aldrei skuggi á vináttu okkar,
og ég fullyrði að ekki hafi faM-
ið styggðaryrði okkur í millum
alla tíð. Ég kveð hann því með
söknuði í huga, og þakka hon-
um samfylgdina, og bið þess að
friður og blessun guðs megi
vera með sálu hans.
Konu hans, börnum og bama-
börnum, og öðrum aðstandandi
ættingjum, sendum við hjónin,
okkar innilegustu samúðarkveðj
ur og biðjum þeim blessunar
guðs.
Kristjón Ólafsson.
1 dag verður borinn til hinztu
hvíldar Ottó E. Guðjónsson sjó-
maður er lézt að heimili sínu
Mosgerði 18, 16. þessa mánaðar.
Með Ottó er kvaddur enn einn
af þeim mönnum tuttugustu ald
arinnar, sem vissu hvað raun-
veruleg lífsbarátta var, en þeim
fækkar óðum, og með þeim marg
ur fróðleikur, sem ungmennum
nútimans væri akkur í að heyra.
Þessir menn gengu ekki í skóla
til þess að fá prófskírteini til
að sýna ef þeir vildu fá vinnu,
nei, það, sem gilti á þeirri tíð,
var að sýna hendurnar og sanna
þrekið, að geta tekið á, vera
sterkur, það var þeirra prófskir
teini, sem dugði að sýna. En
það varð að sýna fleira ef menn
vildu standa á eigin fótum með
að bjarga sér, og það var harka.
Þessir menn klæddust brynju
hörkunnar því ekki dugði að
sýna viðkvæmni það sæmdi þeim
ekki.
Slíkur var háttur kvenna.
Eitt er víst að áfram komust
þessir menn, oft með stóran
bamahóp og án alira styrkja.
Þeir treystu á mátt sinn og meg-
in.
Enginn má sikilja orð min svo
að tengdafaðir minn blessaður
hafi verið eitt hörkutól, þótt ég
telji hann óneitanlega til þess-
ara manna og honum til gildis,
því þeir, sem þekktu manninn,
vita, að þar gekk dfesngur góð-
ur sem Ottó fór. Þótt skapmikill
væri eins og titt er um dugmikla
menn, vissu þeir sem nær voru
að undir sló viðkvæmt hjarta,
sem öllum vildi vel, og er bezti
vitnisburður, sem hægt er að fá
um það, hve barngóður hann
var. Betri afa var ekki hægt að
eiga því þeirra óskir urðu hans
um leið og hann vissi þær og
rættust svo framarlega að það
væri á hans valdi að uppfylla
þær. Heimili sínu unni hann og
er gott tii þess að vita að hon-
um skyldi auðnast að leggja það
an í sína hinztu för, því af öll-
um sínum eigum taldi hann
konu sína, Svanhvíti Guðmunds
dóttur, sina dýrmætustu eign og
er ekki ofsagt sem allir vita er
til þekktu. Reyndist hún honum
með þeim ágætum að ekki varð
á betra kosið og votta ég henni
börnum þeirra svo og öðrum ætt
ingjum samúð mina, og nú að
lokum, Ottó minn, bið ég þér
blessunar og þakka liðið.
Hvíl í friði.
D.F.