Morgunblaðið - 24.03.1971, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24 MARZ 1971
fe'X-'-N -
BLÓÐ-
TURNINN
l
. . 44 . .
skildi þá. Hann sagði meii’a að
segja, að Caleb væri ekki rækt
arlegri við föður sinn en svo, að
hann kúgaði hann. Og Arthur
var stórmóðgaður við Caleb, af
því að hann fylgdi ekki móður
hans til grafar. En sú ástæða get
ur nú varla verið nægileg til
þess að fara að myrða manninn
tíu árum seinna.
— Sagði Benjamín yður, hve-
nær hann hitti bróður sinn síð-
ast?
— Já, það var þegar hann
kom hingað í febrúar síðastliðn
um. Þeir rifust þá út af pening-
um. Benjamín sagði mér, að
hann hefði alltaf látið færa líf
eyrinn sinn inn á reikning föð-
ur síns, en Caleb kvartaði yfir
því, að það væri ekki nóg.
Appleyard kinkaði kolli. —
Þetta með lífeyrinn er dagsatt,
sagði hann. — Ég talaði aftur
við Templecombe í gær, áður en
ég fór i Drekann. — Ég skal
segja yður það bráðum. Sjáið
nú til. Ég er farinn að líta á
þetta frá dálítið annarri hlið.
Þér viðurkennið, að maðurinn,
sem fiktaði við skotið hlýtur að
hafa haft einhverja þekkingu á
sprengiefnum og verið handlag-
inn?
— Já, þar er ég á sama máli,
sagði Jimmy.
— Munduð þér telja, að vél-
stjóri hefði þessa kunnáttu
til að bera?
— Jimmy brosti. — Já, að
sjálfsögðu meiri kunnáttu en al
gjörlega ómenntaður maður.
— Gott og vel. Ef við nú telj
um Benjamin vera þann seka, þá
höfum við látið blindast af
þeirri augljósu staðreynd, að
dauði bróður hans gerir hann
að erfingja að eigninni. Hins veg
ar er okkur kunnugt, að hann
hefur alls engan hag af þessu.
Þess vegna teljum við, að hann
hafi enga hugsanlega ástæðu til
að myrða Caleb. En setjum nú
svo, að hagsmunirnir komi
þarna alls ekki við sögu, heldur
hafi hann myrt bróður sinn ein
faldlega vegna þess, að hann gat
alls skki þolað hann lengur.
- Mér skálst nú, að þeir bræð
urnir hafi ekki hitzt svo oft,
sagði Jimimy.
—- Kannski ekki, en þeir ri£-
ust eins og hundar, hvenær sem
þeir hittust. Spurðuð þér Benja
mín nokkuð um, hvað hann ætl
aði að gera við Klaustrið?
— Já, hann sagðist ætla að
reyna að fá föður sinn til að
selja það og setjast að annars
staðar.
— Jæja, hvort sem það tekst
eða ekki, þá hefði það að
minnsta kosti aldrei tekizt, að
Caleb lifandi. Hann játaði fyrir
yður að Caleb hefði kúgað föð
ur. sinn. Gamia manninn hefur
sennilega grunað, að Caleb hirti
meira en bróðurpartinn af tekj
um þeirra, eí tekjur skyldi
kalia. Er það ekki hugsanlegt,
að Benjamín hafi ályktað sem
svo, að ástandið mundi batna ef
bróðirinn væri frá?
Það er auðvitað hugsan-
legt, svaraði Jimmy dræmt —
Þér fáið nú tækifæri til að tala
við nann bráðlega. Hann kemur
hingað á sunnudag eða mánudag
og hann lofaði mér að tala við
yður undir eins og hann kasmi.
En ar.nars skal ég, ef þér kærið
yður um, gefa yður itarlega
skýrslu um samtal okkar.
Appleyard hlustaði svo með at
hygli á sögu Jimmys.
— Þetta líkist nú ekki mikið
orðræðum morðingja, skal ég
játa sagði hann. En annars hafði
hann nú nægilegan tíma til að
hugsa um væntanlegar spurning
ar. En nú þykist ég vita, að þér
■Royal
Flugvirki óskasf
Flugfélagið Vængir h/f., óskar eftir að fastráða flugvirkja.
Laun eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 26060.
TIL SÖLU
5—6 herb íbúð í Fossvogi. Rúmlega tilbúin undir tréverk.
FASTEIGNASALAN
Skólavörðustíg 30,
sími 20625 og 32842.
Fjögnrra herbergjn íbúð
við Efstasund, svo til alveg ný, er til sölu.
ibúðin er á annarri hæð, u.þ.b. 90 ferm. að stærð.
Upplýsingar gefa
PALL s. pálsson, hrl.,
Bergstaðastræti 14, sími 24200 — og
HÖRÐUR ÓLAFSSON. HRL.,
Austurstræti 14, símar 10332 og 35673.
Mntreiðslumenn
Framhaldsaðalfundur verður haldinn að
Óðinsgötu 7 miðvikudaginn 31. marz kl. 15.
Stjórnin.
ATVINNA
Óskum eftir að ráða sem fyrst röskan mann til lagerstarfa.
Þarf að hafa bíipróf.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 5275 fyrir nk. föstu-
dagskvöld.
OSTA- OG SMJÖRSALAN SF.
Snorrabraut 54.
viljið gjarna heyra um viðtal
mitt við Templecombe i morgun.
Ég fór til hans, án þéss að vera
neitt að hugsa um tilganginn
með morðinu. Ég vildi bara vita
hvaða áhrif fráfall Calebs gæti
haft á ástandið þarna í Klaustr
inu.
— Templecofnbe sagði mér, að
á mánudaginn var hefði hann
farið að finna Símon gamla til
þess að útskýra fyrir honum
ástandið. Hann virðist hafa sagt
honum, að jafnvel þótt Benja-
mín héldi áfram með styrkinn
sinn, þá gæti þetta samt ekki
svo til gengið. Allar tekjur
Klaustursins færu í vexti og af
borganir, svo að ekikert yrði eft
ir handa fólkinu að ldfa af.
Templecombe bað um umboð til
þess að ráðgast við veðhafana
um það, hvort eignin skyldi seld
í heilu lagi eða bútuð niður. Því
að selja yrði hana áður en hún
væri ennþá verr farin en nú er.
Templecoimbe vissi um lítið hús í
útjaðri borgarinnar, þar sem
Símon gæti lifað góðu lífi og
haft Horning til að hugsa um
sig.
Sem sagt þetta var á mánu-
dagsmorgun. Símon gamli hlust-
aði á hann með athygli og virt
ist skilja ástandið. Hann þakk-
aði lögfræðingnum fyrir ómak-
ið. Sagðist þurfa einn eða tvo
daga til að ihuga málið.
Templecombe stakk upp á að
biða þangað til þeir hefðu tal-
að við Benjamín, en skipið var
væntanlegt á miðvikudag.
En Símon var sýnilega með
einhverjar eigin hugmyndir.
Undir eins og Templecombe var
farinn sendi hann Horning til
Lydenbridge með skilaboð til
Woodsprings að koma og tala
við sig tafarlaust. Woodspring
brá við skjótt og þeir Simon áttu
langt samtal. Að því loknu virt
ust þeir komnir að samkomulagi
sem báðir gátu við unað.
-— Hvers konar samkomulag
var það? spurði Jimmy.
— Að Woodspring skyldi
kaupa móann, með vissum skil-
yrðam. Ég hef nú ekki séð skjal
ið, en Templecombe, sem samdi
það, sagði mér efni þess í morg-
un. Woodspring átti að greiða
fimm hundruð pund fyrir kaup-
réttinn að svæði, sem kallað er
móinn og er um það bil fimm
ekrur. En kaupin ganga ekki í
gildi meðan Símon eða neitt.
barna hans býr á nokkrum hluta
Farningcoteeignarinnar. Og
Woodspring á að greiða tvö
hundruð og fimmtiu pund, þeg-
ar skilyrðin leyfa, að kaupin
séu fullgerð.
— Þetta finnst mér einkenni-
legur samningur, sagði Jimmy.
— Já, en það er Líka einkenni
legt fólk sem að honum stendur.
Við verðum að líta á hann frá
sjónarmiði beggja aðila, hvors
um sig. Ég býst við, að Símon
líti á hann sem hér segir: Hann
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Líttu um öxl og reyndu að vitkast eitthvað af reynslunni.
Nautiö, 20. april — 20. mai.
Þú getur áhyggjulaus lyft þér eitthvað upp eftir daglegt amstur.
Tvibtirarnir, 21. inaí — 20. júní.
í dag ættirðu sízt af öllu að liggja í leti Margt er það, sem
kallar að, og þú getur áorkað ótrúlega miklu.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Þú ert allt of eftirlátssamur við sjálfan þig, og það er ósiður.
Iteynirðu ekki að bæta ráð þitt eitthvað, getur svo farið, að þú nagir
þig síðar í handarbökin fyrir það.
Lijónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Nú má engu ofgera. Betra er að halda sig við gömul bréf og
minningar en fara út.
Meyjan, 23. ágrist — 22. september.
Ef þú lítur vel í kringum þig, sérðu hve þörfin er brýn á því að
gera einhverjar endurbætur.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þú verður að reyna að afla þér betri upplýsinga um, hvað er
að gerast i umhverfi þínu.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Ef þú ert hygginn, læturðu berast með straumnum um hríð.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú græðir ekkert á því að halda kyrru fyrir of lengi. Þú skalt
byrja á einhverju verkefni, ekki of erfiðu samt.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Ekki er til neins að vera með eilífar getgátur. Þú kemst ekkert
nema með hjálp sérfróðra manna.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þegar þig langar mest til að eiga rólega stund heima, steðja
vandamá) að þér hvaðanæva að.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Þú skalt annaðhvort fara í ferðalag, eða iáta hugann reíka.
Þetta opnar fyrir þér nýjar leiðir.