Morgunblaðið - 10.06.1971, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNl 1S71
------Eyrarbakki — Þorlákshöfn
Tvö áregömul fi.«kverkunar- oggeymsluhús á Kyrarbakka.
— Eyrarbakki
Framhald á bls. 11.
'inn. Það tók 5 ár að steypa
hafnargarðinin í áföngum, en
hann er 270 m langúr úr stein-
steypru i gegn.
1969 lágu framkvæmdir niðri
en 1970 var byrjað á bátakví
tál þess að fjölga lönöunar- og
viðHeguplássum, þvi þar til i
vetur þurftu bátarnir alltaf að
liggja á viðJegubólum.
Síðan var ráðizt í að sprengja
60 m inn í landið til þess að
stækka bátakvína. Um þessar
miundir er verið að ljúka við
þessa framkvæmd, en alls
þurfti að sprengja og fjarlægja
um 12000 m3 af jarðvegi. Til
byggingar kviarinnar sjálfrar
voru upphaflega áætlaðar 4.8
millj. kr. en kostnaðurinn losar
9 millj. kr. þegar til kemur.
„Enda uppmoksturstæknin
slik,“ sagði Þór „að verkið sem
átti að klárast á síðustu 5 mán-
uðum 1970, tekur helmingi
lengri tima. Viðlegupláss og
bryggjusmíði þarf nú að koma
til, en um 55 metra Lengin.gu á
viðleguplássi er nú að ræða.
Hér eru nú 6 bátar en eftir
þessa stækkun verður viðlegu-
pláss fyrir 10—11 báta og þá
verða bólin til að hlaupa upp
á.“
Þeir Þór og Óskar sögðu að
hafnar til þess að landa, en
blessuð Þorlákshöfnin hefur þó
lítið gagn gert Suðurlandsund
irlendinu annað en að
opna Suðurlandsmiðin fyrir
Faxaflóabátum. Ef gera ætti
eitthvað raunhæft átak í hafn
armálum Suðurlandsundirlend
is, er hvergi hægf að gera það
nema á Eyrarbakka, enda hef-
ur Trausti Einarsson prófessor
bent á það i greinargerð til
vitamálastjórnar um rannsókn
ir á hafnarmöguleikum austan
Þjórsár, að bezt-u möguleikarn
ir séu þó á svæðinu ölfusá
til Stokkseyrar.
Það liiggur hins vegar fyr
ir að megnið af aflanum, sem
landað er í ÞorláJkshöfn er ek
ið tii Faxaflóahafna til atvinnu
aukningar þar.“
Þeir félagar sögðust vilja
á stóraukna mögu'leika, ef vel
tækist til, fjármögnunaraukn-
ingu heirna fyrir og möguleika
á aukningu iðnaðar.
Þór sagði að ef „innrás" Faxa
flóabáta í gegn um Þorláks-
höfn á Suðurlandsmiðin, héldi
áfram að aukast væri útséð um
erfiðleika fyrir Eyrbekkinga á
að gera út þá báta sem þeir
gela gert út og því yrði að
leggja á það áherzlu að renna
fleir-i s-toðu-m en sjávarútvegi
undir atvinnulif Eyrbekkin-ga,
sem þó hlyti alltaf að verða
stærsti þátturinn.
Byrjað var á 4 nýjum hús-
um á Eyrarbakka í fyrrasum-
ar og nú liggja fyrir lóðaum-
sóknir 10 nýrra húsa til við-
bótar og verður byrjað á þeim
á þessu ári. „10 hús hér,“ sagði
Þór, „er ámóta og hafin yrði
bygging á 2000 húsum á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Þeir félagar sögðust tel'j-a að
framtíðarhafnargerð á Eyrar-
bakka stæði nú á tímamótum,
því að annað hvort yrði að
miða áfram við þau hafnar-
mann-virki, sem nú hafa verið
gerð og ljúka þyrfti við með
meiriháttar lagfæringu á innri
hafnarmannvirkjum eða draga
fram í dagsljósið og sannfæra
menn þjóðarinnar að á Eyrar-
bakka sé hægt að gera höfn,
sem þjóni hafnarþörfum S-unn
lendinga. Sögðu þeir að þessir
tveir möguleikar yl-lu því að
skipula-gsmál þorps-ins stæðu á
sömu tima-mótum, þannig að
væmtanleg húsafjölgun, sem
li-ggur fyrir fellur erfiðlega
inn í framtíöarskipulag þorps-
ins.
Bentu þeir á þá hugmynd
Eyrbekkinga um gerð varan-
legrar og öruggrar innsigling-
ar í Eyrarbakk-ahöfn, að dæla
sandi undan Þjórsárhrauninu
og sökkva þvá síðan með
sprengingum á nægil'e-gt dýpi
til þess að innsiglingin yrði
hafskipafær.
Annars sögðu þeir Óskar og
Þór að þegar minnzt væri á
skipulag þessa svæðis vær-u
staðhættir þannig að gera
þyrfti sameiginlegt skipu-
lag fyrir Eyrarbakka,
Stokkseyri og Selfoss. Á
þessu svæði þyrfti að fara
fram alhliða skipulagmimg fyrir
framtiðina og bentu þeir á
slíkt skipula-g, sem verkefni í
nýauglýstri samkeppni um
s-kipulag sjávarþorpa á Islandi.
— á.j.
Einbýlishús í hleðslu á Eyrarbakka.
fjárhags-lega séð væri hafnar-
framkvæmd á borð við þessa
framkvæmd ofviða 500 manna
sveitarfélagi, sérstaklega
vegna þess að megnið af skipt
ingu gneiðslna milli sveitarfé-
lags og rikisins er háttað eftír
gamla fyrirkomulaginu, þar
sem ríkið greiðir 40 af kostn
aði á móti 75% eins og nú er í
sambandi við framikvæmdir á
dýpkun og gerð ytri hafnar-
mannvirkja. Þarna munar 7
millj. kr., sem sveitarfél. verður
að leggja ti-1 sj-álft. Lögðu þeir
félagar áherzlu á að nýju hafn
arlögin, sem núverandi ríkis-
stjóm hefur beitt sér fyrir,
hafi reynzt mjög vel fyrir þau
sveitarfélög, sem standa í gerð
hafnarmannvirkja og töldu
þeir stjórn þeirra mála í góð-
urn höndum.
„Ennþá erum við þó,“ hélt
Þór áfram, „háðir þeim ann-
mörkum hér, að bátar, sem eru
yfir 100 s-málestir að stærð geta
ekki stundað héðan útgerð og
jafnvel stærri bátar en 60
tonn eiga erfi-tt með það. Þeir
verða oft að leita til Þorláks-
vekja a-thygld á þvi að þó að
almenningur í landinu liti á
Árnessýslu sem samfélag
bænda fyrst og fremst, þá
væru gerðir þaðan út 30 bát-
ar og útgerð væri vaxandi,
enda hefði aðstaða ti-1 úr-
vinnslu aflans einnig vaxið
hröðurn skrefum.
Annað mikilvægt mál Eyr-
bekkinga er hitavei-tumálið, en
hrepparnir í sunnanverðri Ár
nessýslu hafa sameinazt um
hitaveituleit og fóru fram all
víðtækar mælingar á svæðinu í
fyrras-umar og verður þeim
haldið áfram I sumar. Þar á
meðal verða prufuboranir á
Eyrarbakka, en ráðgert er að
sú borun verði framkvæmd
seinni hluta sumars.
Óskar sagði að þeir gerðu
sér miklar vonir uim að geta
nýtt þá hólu, þó að um tilraun
yrði að ræða, til þess að
byggja hitaveitu fyrir Eyrar-
bakka og hugsan-lega fyrir
Stokkseyri einnig.
Með tilkomu hitaveitu
sögðu þeir að séð væri fraum
Mörg hús eru í smíðum.
— Þorlákshöfn
Framh. af bls. 10
að samþykkja hann á sýslu-
nefndarfundum.
„Við teljum," sagði Páll, „að
mikið verði að gera til þess að
hefta sandfokið á .veginum frá
þorpinu og að vegamótunum á
þjóðveginum. Á þessu svæði
hefur verið sandgræðslugirð-
ing í 20 ár, en vegna þess hve
lítið hef-ur verið gert fyr-
ir hana, hefur lítíll árangur
náðst. 1 fyrra var ekkert bor-
ið á sandinn með áburðarvél-
inni eins og áður og nú hefur
ástand vegarins stórversnað
þannig að það hefur hreinlega
orðið ófært suma daga um veg
inn vegna sandbyis."
Því til sönnunar var ekki
annað að gera en líita á
rúður nýrra bifreiða, sem voru
talsvert sandblásnar og auðvi-t-
að skemmist lakkið á bílunum
einnig í slíkum sandblæstri.
„Þá teljum við,“ hélt Páll
áfram, „að það þurfi að byggja
brú yfir Ölfusá við Óseyrar-
nes. Slik brú, sem líklega yrði
300—400 m löng, myndi tengja
okkur við það svæði, sem við
raunverulega tilheyrum, Suður
landsundirlendi-nu, en til dæm-
is í sambandi við uppskipun á
vörum til þessa svæðis er Þor-
lákshöfn mikilvæg og eins má
nefna að nú er farið að vinna
fisk á Selfossi og sá fiskur er
fluttur héðan.“
Eins og fyrr segir er mikið
byggt í Þorlákshöfn og þar er
að rísa fallegt þorp, sem hef-
ur byggzt upp á tæpum tveim-
ur áratuigum. Þar eru starf-
rækt tvö fiskverkunarhús,
frystihúsið Meitil-linn, trésmiðj-
ur tvær, bifreiðaverkstæðið og
járnsmiðjan Boði og önnur
járnsmiðja til. Þorlákshöfn er
vaxandi þorp með dugmiklu
fólki. — á.j.
Hliiti hafnairinnar í Þorlákshöfn. Á miðri niyndinni er svæðið, sem hugniyndir eru um að grafa
og sprengja til þess að stækka höfnjina inn í Iandið.