Morgunblaðið - 20.06.1971, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.06.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚNl 1971 7 Hrós og þökk EINS og líkaminn þarf fæðu daglega og meira að segja sérstaka samsetningu fæðu- efnanna til vaxtar og við- halds, þannig þarf manns- sálin einmig á andlegri fæðu að halda til þess að fínna frið og sælukennd, hamingju. Margt fólk, sérstaklega kan- ur, sem vantar til lengdair vítamín eða lifefni andlegrar fæðu leita til lækna og sál- fræðinga og biðja um viðtal og pillur, af þvf að þær finna sig yfirkomna af leiða, einmanakennd og angist. „Hjartað heimtar meira en húsnæði og brauð.“ f>að er alveg rangt að ímynda sér að velferðarríkið með öll- um sínum lífsþægindum geti fullnægt hamingjuþörf og sæluþrá mannshjartans. Þar eru ísskápar, ryksugur og uppþvottavélar aðeins smá- þáttur í sælukemnd, og heimtufrekja margra kvenna og jafnvel barna líka, þar sem sífellt er krafizt meira af fíhni fötum og fallegum hlutum, peningum og leik- fömgum, er oft ekki annað en ummyndaður sársauki og vamsæld yfir skorti á and legri fæðu, andlegum vita- mínum, sem kristinn dómur hefrjr kallað dyggðir og kær leika. Gjöf og þægindi sem veitt eiru af tómlátri hönd og köldu hjarta, án andlegrar hlýju eru litilsvirði til að skapa mannlega hamingju. Lítil gjöf með brosi og af alúð er betri en milljónir, sem hent er eins og beini í hund. Gjöf frá köldu hjarta er ekki sálarfæða, heldur kaupgreiðsla. Ðg nú er nýjasta nýtt hjá vansælum konum, sem kalla sig rauðsokkur (um uppruna þeirar nafngiftar er mér lítt kunnugt), að leita inin á svið stjórnmálanna til að finna þar það, sem viðtöl sálfræð- inga og pillur lækna hafa ekki megnað að veita. En varla verða þær fundvísari á þeim akri. Stjórnmálavaíst ur veitir varla mikla ham- ingju þeim, sem þrá innst inni ástúð og þökk, hrós og viðurkenningu. En í þessum orðum felur sönn speki efnið í þeim andlegum lyfjum, sem þessar vansælu eálir vantar, þeim lífefinum, sem samfélagið má ekki án vera hversu auðugt sem það er af aurum og lífsþægindum. Ekkert vitnar skýracri lit- um um þennan skort á hrósi, þökk og ástúð en ýmislegt af því, sem hjón sem eru að skilja segja líkt og ósjálfrátt. „Aldri fær maður hrósyrði fyrir neitt. Maður stritar og baslar í öllu því versta dag eftir dag við uppþvott og bleyjur, hreingemingar, gólf þvott og matargerð og „vinnur úti“ annan hvern dag — en aldrei eir nóg, allt er talið sjálfsagt og sízt af öllu þakkarvert. Svo á að taka við karlinum meira og minna drukknum tvo og þrjá daga í viku, ef hann þá læt- ur sjá sig. Og allt sem mað- ur fær eru aðfinmslur, ónot og skammir. Nei, þetta legg ég ekki á mig lengur. Ég vil hafa frið. Lái mér hver sem vill.“ Eitthvað á þessa leið orð- aði ein frúin þetta vanda- mál héma um daginn. Og þær eru orðnair margar, meira að segja margar á mán uði, jafnvel á viku, sem gefa þenman vitnisburð. Og eitthvað á þessa leið orðar svo eiginmaður sitt sjónarmið: „Ég reyni að sjá um mitt. Fæ henni oftast alla penimga, sem ég vinn mér imn, nema þá að ég geti stungið undan einhverjum aurum fyrir ,,auka-djobb“. Ég annast um þau öll og sé fyrir heimil- imu. Þá finnst mér réttlátt að hún sjái um að allt sé í lagi heima og sé ekki sí- kvartandi og kveinandi, heimtandi og önug. Ekki þakkar hún, finmst allt sjálf- sagt, og að hún skilji mín kjör, mi'tt erfiði, nei takk, ekki aldeilis. Við erum þó að minnsta kosti fullorðið fólk og ættum að hafa augu og eyru opin fyrir tilver- unni.“ Þetta hljómar næstum eins og rök fyrir Tétti og dómstólum. En þessir vitnis- burðir opna heilan afgrunm og undirdjúp af kulda og skilniingsleysi, þar sem tvær manneskjur, sem eru saman daglega og eiga allt saman, gamga hvort sina götu, eins og heil heimsálfa væri á milli. Það er ekki nóg að gefa og þiggja, ef það er gjört á vélræman hátt. Það er ekki nóg að þakklætið sé í hjart- anu, ef það birtist aldrei í brosi, atlotum og orðum. Ástim kulnar í kulda van- þakklætis og misskilnings. Er nokkur í nokkru starfi á mokkru sviði hamingjusam ur án hróss, uppörvunar og viðurkenmimgair? „Ekki er seimma vænna,“ sagði eimn af helztu spekimgum Is- lands með sínu' töfrandi brosi, þegar honum var veitt einhver almenin viðurkenming áttræðum eða hvað þau nú voru mörg árin, sem hann hafði þá lifað. Jafnvel hinm sjálfstæðasiti og dugmesti persóinuleikl getur ekki orðið hamingju- samur án hróss og þakklæt- is. Allir þrá að hljóta lof fyrir vel unnin störf, jafmvel þótt þeir viðurkenni það hvorki fyrir sjálfum sér né öðrum. Það er andlegt lífs- lögmál. Vex hver við vel kveðin orð. Þar gildir einu hvort starfssviðið er í fjósi eða á ráðherratróni, í eldhúsi eða predikunarstóli. Og hrós er tvöfalt, já, margfalt meira virði frá þeim, sem við elskum en mokkrum öðrum. Sjálfur kær leikurinn visnar og verður að kræklun, fái hanm engam yl af hrósi og þökk eða enga aðstöðu til að ilma móti nein um. Ástin verður að geta tjáð sig á einhvern hátt og njóta tjánimgar frá þeim, sem hún umvefur. Án þess getur hún jafnvel breytzt í fyrirlitn- ingu, ógeð og hatur — orðið afturganga af sjálfri sér. Algengt tilfmningalegt fyrir brigði við hjómaskilnaði. Eng imn er verri né hættulegri en ástvinur, sem fylltur er slikri andlegri ranghverfu ástar. An hróss og þakklætis verður allt svo gleðivana og kallt. „Hvað er svo helsnautt í heimsins rann sem hjarta er aldrei neitt bergmál fann?“ „Ég“ Og „Þú“ eru sam- stæður, sem verða að berg- mála hvor aðra, áin þess verður veröldin eyðimörk vamsælu og vandræða. Sambandið, temgslin þarna á milli heita þökk og hrós, ástúð og viðurkenmimg fyrir það, sem vel er gert. Þetta gildir jafnit milli Guðs og manns og milli með bræðra á vegi hversdagslífs- ins. Skólauppsögn í Skógum HÉRAÐSSKÓLANUM í Skógum undir Eyjafjöllum var sagt upp laugardagimn 29. maí. í yfirliti skólastjórama, Jóns R. Hjálmars- aonar, koon fram að nemendur höfðu lengst af verið 127 þetta akólaár, fastir kenmarar 7 og 2 atundakennarar. Gagnfræðaprófi luku 35 nemendur og hæstur á því prófi varð Guðjón Baldvims- son, Eyvindarhólum, Rang., með 8,4 í aðaleimlkunm. I öðru sæti tneð 8,1 var Gumnar Valdemars- son, Eyvik, V.-Skaft., og í þriðja með 7,9 var Vigfús Helgaison, Hraumkoti, V.-Skaft. Lanidspróf þreyttu 32 nememd- tir og máðu liðlega tveir þriðju framhaldseinkunm. Hæstur á lamdsprófi var Þorvaldur Þór Garðarsson, Ormstöðuim, Gríms- nesi, með 7,9 í aðaleinkunn. Aðra hæstu einkunn, 7,3 fékfk Sigríður J. Sigurðardóttir, Kirkjubæ, Rang. og í þriðja sæti voru jöfn með 7,2 þau Elín B. Hartmarsdóttir, Frammesi, N,- Þing. og Sighvatur B. Hafsteims- som, Smáratúni, Rang. Almennu miðflkólaprófi í 3. bekk lulku 33 nemendur. Hæstu eimkunm, 8,6, hlaut Ómar Halldórsson, Brekkum, Mýrdal. Næstur með 8,2 var Viðar Magn- ússon, Miðfelli, Árn., og í þriðja sæti með 8,1 var Bjami Þór Jak- obsson, Skaiftafeíli í Öræfum. Unglingapróf þreyttu 26 nem- endur og hæstu einkunn 9,1 hlaut Halldóra Jómsdóttir, Skógum. Næstur með 8,7 var Gísli Þ. Júlíusson, Norðurhjáleigu, Álfta- veri, og í þriðja sæti voru jöfn með 8,5 þau Gunnar Á. Gunn- arsson, Vatnsskarðsshólum, V.- Skaft. og Iða Brá Þórhallsdóttir, Skógum. Minningargjöf frá eldri borgurum NÝLEGA söfnuðu eldri borgar- ar í skoðunarferð á söfn í Rvík um 2 þús, krónum, til miiming- ar um frú Hildi Sívertsem, sem, eftir ósk frú Geirþrúðar Beoi höft, dóttur Hildar, var látið renna til Krabbameinsfélags ís- lands. Vill Krabbameinsfélagið þakka þessa góðu gjöf alveg sérstaklega. (Frétt frá Krabbameinsféiaginu) f V. SLIMMA Nútíma-stúlkan, frjóls og sjálfstæð velur þægileg föt sem klæða hana — hún velur SLIMMA. J Ungbarnafatnaður Ný sending. Dönsk gæðavara. BELLA, Barónsstíg, BELLA, Laugavegi 99. Fylgizt með tízkunni — Prjónið úr HJARTAGARNI VIÐ HÖFUM NÝJUSTU LITINA OG MIKIÐ ÚRVAL AF PRJÓNAMYNSTRUM. Verzl. HOF Þingholtsstræti 2. Sími 16764.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.