Morgunblaðið - 12.08.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1971
• '
Gestur Ólafsson, arkitekt:
FÖGUR BORG
ÞEIM, sem í'lýgur yfir
Reykjavík nú i fegrunarvik-
umni efti;- ferðalag um stór-
borgir heims, dylst ekki að
umhverfi höfuðborgar íslands
er fagurt, hreint og friðsælt.
Hin stórfenglegasta fjallasýn
myndar baktjald fyrir mann-
virki höfuðborgarinnar, allt
frá Reykjanestá að Snæfells-
jökli, en i vesturátt glampar
á silfurskyggðan Faxaflóann.
Sæbarin strandlengja höfuð-
borgarsvæðisins, eyjar, sund,
ár, vötn og hæðir auka á fjöl
breytni landslagsi.ns og mynda
í sameiningu eitt hið fegursta
umhverfi, sem unnt væri að
óska til handa nokkurri höfuð
borg.
En þetta fagra umhverfi,
sem forsjónin lét okkur í
hendur, endur fyrir löngu fyr-
ir alls ekki neitt, gerir miklar
kröfur til allra þeirra sem
standa að gerð mannvirkja og
viðhaldi þeirra. Þetta um-
hverfi gerir óneitandega kröfu
til þess bezta sem arkitektar
og þeir sem standa að gerð
mannvirkja geta skapað. Þair
sem þe.ssa hefur verið gætt
getum við vel við unað — þar
sem þessa hefur ekki verið
gætt ætti nærvera viðkom-
andi mannvirkja að vera okk-
ur hvatning til að gera betur
á komandi árum.
Það vill stundum gleymast
að við erum að skapa borg fyr
ir okkur sjálf og afkomendur
okkar, sem ef til vill á eftir
að standa að mikiu leyti í
meira en 300 ár sem minnia-
varði um menningu Reykvik-
inga nútímains. Þessi borg á
eftir að verða okkur til augna
yndis eða óánægju, allt eftir
því hvernig að framkvæmd-
um er staðið. Með þvi að
vanda framkvæmdir, og kosta
kapps um gott viðhald þeirra
leggjum við skerf, ekki ein-
ungis til lífshamingju okkar
sjálfra, heldur einnig til gleði
allra þeirra sem horfa á þessi
manmviirki og umgaingast þau.
Uppbygging og vöxtur
Reykj avíkur hef ur verið
mjög ör á undanförnum ár-
um, og í hita þeirra fram-
kvæmda hefur ýmislegt átt
sér stað, eða verið ógert, sem
eftir á að hyggja hefði betur
verið á annan veg. Víða á iðn-
aðarsvæðum er t. d. útlit
bygginga og umgengni langt
frá því að vera heppilegur
forgrunnur fyrir Esjuna, og
njólagi'óður og drasl á óhirt-
um opnum svæðum dregur
óneitanlega talsvert úr fegurð
aðliggjandi skrúðgarða.
En fátt er auðveldara en að
gagnrýna eftir á. Hitt er mik-
ilvægara að læra af reynsl-
unni og halda uppbyggingn
og fegrun Reykjavíkur áfram
í þeim anda, sem umhverfi
borgarinnar sæmir.
Reykjavík hefur enn að
miklu leyti sneitt hjá þeim
vandamálum, sem nú hrjá
margar stórborgir erlendis
þótt þróun næstu ára ltunni
að verða afdrifarík á ýmsum
sviðum. Okkur hefur t.d. enn
að talsverðu leyti tekizt að
varðveita menningu liðinna
ára í miðbæ borgarinnar, bæði
í byggingum, trjágróðri og
umhverfi, s>em vart á sinn líka
i nokkurri höfuðborg Evrópu.
Okkur hefur eininig tekizt
víða á höfuðboi'gansvæðinu
að mynda heildarumhverfi í
samræmi við fegurð fjalla-
hringsins, þótt arnnars staðar
skorti nokkuð á. Það hlýtur
einnig að verða markmið kom
andi ária að halda áfram
stækkun, fegrun og endur-
byggingu borgarinnar í þess-
um anda.
Útlit og gerð, umhirða og
viðhald sérhvers landsvæðis
og manmvirkis í Reykjavík er
sket'fur borgarbúa, til heild-
arumhverfis á íslandi, sem
óumdeilanlega hlýtur að varða
alla laindsmenn. Án stöðugr-
ar umhirðu og skilnings allra
íbúa Reykjavíkur ber árleg
fegrunarvika lítinn ávöxt.
Raunhæfs árangurs er því að-
eins að vænta að við tökum
höndum saman um fegrun
Reykjavikur á öllum tímum
árs
\lndlr0l/\
/A<?A Nlu$amur starfsmaður
hótelsins óskar eftir 3ja til 4ra herbergja íbúð í 1—2 ár.
Upplýsingar í síma 20600 frá klukkan 15—18 og í símum 34726 eða
36031 á kvöldin.
SUSS!
ÞETTA Á EKKI
AÐ FARA HÁTT
En okkur þykir rétt að láta við-
skiptavinina vita, að nokkrar vör-
ur verða seldar með sérstökum
kjörum næstu tvær vikur, bæði
heilsárs- og sumarvörur (sem
verða í tízku næsta sumar !íka).
Heilsárssundbolir, blússur, peys-
ur, sumarkápur og sumarkjóla-
sett (m. a. hagkvæmt fyrir þær,
sem ætla til sólarlandanna).
Nýjar blússur og ótrúlega ódýrir
kjólar nýkomnir.
Tízkuverzlun ungu
konunnar, Kirkjuhvoli.
Sími: 12114
# Stiglaus, elektrónisk hraðastilling # Sama afl
á öllum hröðum # Sjólfvirkur tímarofi # Tvöfalt
hringdrif # Oflugur 400 W. mótor # Yfirólags-
öryggi # Hulin rafmagnssnúra: dregst inn í vél-
ina # Stdlskól # Beinar tengingar allra tækja.
'&aá<k&c>—
HAND-hrærivél
Faest með standi og
skól. öflug vél með
fjölda tækja.
STÓR-hrærivél
650 W. Fyrir mötu-
neyti, skip og stór
heimili.
BaUerup
VANDAÐAR OG FJÖLHÆFAR HRÆRIVÉLAR
Hræra • Þeyta • Hnoða • Hakka • Móta • Sneiða
Rífa • Skilja • Vinda • Pressa • Blanda • Mala
Skræla • Bora • Bóna • Bursta • Skerpa
• Sfm 2 44 20 • SI WI IIUATA IO +