Morgunblaðið - 12.08.1971, Side 11
MOR-GÖNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1971
11
Straummælingar
við Reykjavik
og Hafnarfjörð
Vegna skolps- og mengunar-
hættu. Fluormælingar innan
skamms
HAFRANNSÖKNASKIPIÐ
Bjarni Sæmnndsson var á föstu-
dag við straummælalagn-
fng-u við Reykjavik og Hafn-
arfjörð, en það er m.a. liður í
Btraummælinguni, sem hafnar
voru í fyrra.
Svend Aage Malmberg haf-
fræðingur skýrði Mbl. frá þessu
verki og bað jafnframt fyrir til-
mæli til sjófarenda um að fara
varlega i námunda við straum-
mælaba u j umar.
— Straummælum hefur verið
lagt á ýmsum stöðum í sjónum
umhverfis Reykjavík og Hafn-
arfjörð, sagði hann. Liggja þeir
við rauða belgi, merktir: „Haf-
rannsókn og straummæling".
Staðirnir eru: 1) Við olíubauju
út af örfirisey. 2) Út af Gróttu,
milli bauju og Kerlingarskers.
3) Út af Hvaleyrarholti, sunnan
Helgaskers. 4) 1 Straumsvík,
skammt norðaustur af höfninrii.
Eru það vinsamleg tilmæli til
þeirra, sem leið eiga um þessar
sióðir, að þeir láiti þessar bauj-
ur vera. Jafnframt að þeir til-
ikynni Ha fra nn sóknas tofn u n i nn i
á Skú'lagötu 4, ef þeim virðist
eittihvað úr lagi fært.
— Því miður hafa verið brögð
að þvi að óþekktir aðilar hafi
eyðiiagt mælingar sem þessar,
með gáleysi og jafnvel viljandi,
sagði Svend Aage ennfremur.
— Sl. sumar voru gerðar mæl-
ingar í sjónum umhverfis
Reykjavík á vegum gatnamála-
stjóra, til könnunar á því hvern-
ig bezt væri að koma i veg fyr-
ir mengun frárennslis. Voru þá
gerðar straummælingar af starfs
mönnum Hafrannsóknastofnun-
ar, bætti haffræðingurinn við til
skýringar. Þær mælingar, sem
nú er verið að gera á vegum
Sjófræðideildar Hafrannsókna-
stofnunar eru í beinu framhaldi
af þeim í fyrrasumar. Eru
straumar milli Straumsvikur og
höfuðborgarsvæðisins teknir
sérstaklega til athugunar, bæði
með skolpið í huga en ekki síð-
ur vegna hugsanlegrar mengun-
ar af völdum stóriðju í Straums-
vík.
— Þá mun Hafrannsókna-
stofnunin á næstunni láta fara
fram mælingar á fluorinnihaldi
sjávrar á sömu slóðum og mun
Jón Ólafsson, haffræðingur,
vinna það verk.
— Ég tel rannsókn á efna-
magni sjávar hér við land brýnt
verkefni, sagði Svend Aage að
lokum. Svo vil ég aftur minna
á að farið sé með gát í nánd
við straumamælabaujurnar, sem
fyrr eru nefndar.
Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og frú Gandhi, forsætisráðherra Indlands, að iokn-
um viðræðunum er leiddu til vin áttusamnings ríkjanna.
Rússar gagnrýna
heræfingar Svía
Stokkhólmi, 9. ágúst NTB
SVEN Andersson, varnarmála-
ráðherra Svíþjóðar, visaði á bug
í dag gagnrýni á leynilegar æf-
ingar, sem Svíar héldu í vetur
í sálfræðilegum hernaði og
leyfðu blaðamönnum að fylgjast
með. Frá þessum æfing-
um hefur ekki verið sagt opin-
berlega fyrr en nú nýlega í
sænska myndablaðinu „Fib-
Aktuelt", og sagði Andersson að
grein „Rauðu stjörnunnar" væri
byggð á röngum upplýsingum.
Andersson sagði, að greinin í
„Fib-Aktuelt“ væri röng i nokkr-
um atriðum. Hann sagði, að
herráðið rannsakaði nú greinina
til þess að fá úr þvi skorið
hvaða rangar upplýsingar þar
væri að finna, en ekki hefði enn
verið ákveðið hvort niðurstöður
rannsóknarinnar yrðu birtar.
Nýtt náttúrugripa-
safn á Neskaupstað
í „Rauðu stjörnunni" var
gagnrýnt að sænska yfirher-
stjórnin hefði látið sér til hug-
ar koma að Rússar gerðu árás
á strönd Svíþjóðar með herskip-
um, settu herdeildir á land, her-
tækju Gotland og gerðu loft-
árásir á Gautaborg, Visby ' og
fleiri staði. Blaðið segir, að yfir-
herstjórnin hafi gert ráð fyrir
stuðningi bandarískra herskipa
og flugvéla í baráttu gegn Sovét
rikjunum.
„Rauða stjarnan" sagði að æf-
ingarnar væru beinlínis ögrandi
óg óþverraleg árás á Sovétrík-
in. Blaðið sagði, að slíkar æf-
ingar væru til þess eins fallnar
að spilla góðum samskiptum
Svía og Rússa.
V egaf r amk væmdir
í Víkurkauptúni
Litla-Hvamimi, 10. ágúst.
HEYSKAPUR hefur gengið vel
í sumar og eru einstöku bæ-ndur
alveg búnir með slátt. Hefur víð-
ast farið saman mikil grasspretta
og góð nýting beyja. Má segja að
veturinn, vorið og sumarið, sem
af er, sé óslitið góðæri.
Vegaframkvæmdir hafa verið
nokikrar hér í sumar. Byggð hef-
Ur verið ný btrú á Deildará.
Einnig hefur verið breytt vegar
stæði í Skarphól, er var erfiður
stórum bílum. Þá er unnið við
steypu á Aðalgötu í Víkurkaup-
túni og er það verk um það bil
hálfnað. Undirbúningur að því
hófst í fyrrasumar og voru þá
lagðar nýjar skolpleiðslur og
gangstéttar í þorpinu að nokkr-
um hluta. — Sigþór.
Neskaupstað, 10. ágúst.
I.AUGARDAGINN 7. ágúst var
fréttamönnum, bæjarstjórn og
nokkrum öðrum gestum boðið að
skoða nýja náttúrugripasafnið í
Neskaupstað, sem er til húsa á
neðri hæð í húsi Hjörleifs Gutt-
ormssonar, en hann var einn aðal
Útsvör
í Grundafirði
Grundafrfirði, 10. ágúst.
NÝLEGA var Iögð fram fjár-
hagsáætlun sveitarstjóðs Grund-
arfjarðar, og nema niðurstöðu-
tölur hennar 8 milijónum og 470
þúsund krónum. Hæstu gjaldalið
Ir eru almennar tryggingar og
lýðhjálp, 2,3 millj. kr., og verk-
legar framkvæmdir, 2 millj. kr.
Heiztu tekjuliðir eru útsvör, 5
milljónir króna, og aðstöðugjöld,
1,6 millj. kr.
Hæstu aðstöðugjöld einsta&l-
inga bera Soffanías Cecilsson, út-
gerðarmaður, 256 þús. kr., og
Ragnar Kristjánsson, umboðs-
maður, 50 þús. kr. Hæsrtu að-
srtöðugjöld íélaga bera Hrað-
írystihús Grundarfjarðar hf., 413
þús. kr., Verzlunarfélagið Grund
hf., 179 þús. kr., og Kaupfélag
Grundfirðinga, 155 þús. kr. —
Hæstu útsvör bera Soffanías
Cecilsson, 171 þús. kr., N.B. Far-
sæll, 198 þús. kr., og Niðursuð-
ain hf., 111 þús. kr. — Emil.
frumkvöðuU að stofnun safnsins.
Bauð Hjörleifur, sem er formað
ur safnsnefndar, gesti velkomna
og lýsti safninu nokkuð, en bauð
síðan gestum að Uta á gripina.
Safngripum er haganlega fyr-
ir komið í glerskápum. Þarna
gefur að líta 57 tegundir fugla,
steina af ýmsu tagi, marga
mjög sérkennilega og fagra.
Þarna eru lika mörg botndýr, svo
og plöntur frá Austurlandi og
steingervingar. 1 6 ár hefur nefnd
unnið að söfnrm þessara gripa en
safnið hefur haft styrk frá bæj-
arstjórn Neskaupstaðar og einn-
ig fengið fjárveitingu frá ríki
síðan 1967. 1 safni þessu verð-
ur aðstaða til rannsókna og þar
er einnig fullkomin smásjá.
Safnið verður opið almenningi
kl. 16—18 þennan mánuð, en sið-
ar einu sinni í viku.
Á sunnudaginn, er forsetahjón
in voru hér í opinberri heimsókn
skoðuðu þau safnið og létu I Ijós
hrifningu yfir þvL
— Fréttaritari.
Leiðrétting
AÐ gefnu tilefni skal þess getið,
að bók Jane Austen, „Pride and
Prejudice“, sem nú er verið að
sýna hér sem sjónvarpsmynd
undir nafninu „Þótti og þröng-
sýni“, hefur komið út í íslenzkri
þýðingu og nefndist þá „Ást og
hleypidómar".
Kvennabúr á f lækingi
Paris, 9. ágúst NTB.
HANS háitign, Abdul Aziz El-
feni, prins af Saudi Arabiu
varð fyrir þeirra lífsreynslu i
gær að týna um stund ferða-
kvennabúri sínu á flugvelli-n-
um í París. Búrið og kvinnurn
ar komu þó í leitirnar seint
og síðar meir.
Upphaf málsins var að prins
inn og konur hans voru á leið
frá Genf til Parísar í sérstakri
flugvél. Vagn átti að koma til
móts við prinsinn á velliinum
og hirða hans hafurtask og
aka þvi að gljáfægðum Kádil
ják sem beið við aðaldyr flug-
stöðvarinnar. Vagninn reynd-
ist hins vegar ekki nægilega
rúmur fyrir prinskonurnar —
en þær voru 22 að tölu — og
eftir japl og jaml og fuður
var ákveðið að karlmennimir
yrðu fluttir fyrst í Kádilják-
inn og konurnar síðan fíurttar
í næstu lotu.
En sem vagninn með prins-
inn og fylgdarsveina hans inn
anborðs hafði ekið á braut
renndi annar upp að, hvar
blæjubúnar konumar biðu og
tók sá bfll þær upp i vagninn.
Ekki tókst þó betur tii en
svo með flutninginn — m.a.
vegna málakunnáttuleysis —
að konunum var varpað út úr
bílnum kippkorn frá fflugvell-
inum og stóðu þœr þar veg-
lausar og bitu í blæjur sínar,
en vegfarandur höfðu góða
skemmtun af.
Víkur þá sögunni til prins-
ins, sem fékk á skotspónum
fregnir af hrakförum kvenna
sinna og lét hann stöðva Kádi
ljákinn og hljóp í spretti til
flugvallarins ásamt aðstoðar
mönnum sínum. Voru þá kan
umar á bak og burt sem fyrr
segir og lá við borð að lögregl
an yrði fengin til að leita
kvennabúrsins. Bárust honum
þá fréttir af því að 22 blæju
búnar konur virtust á ver-
gangi skammt frá og brá hann
við hinn glaðasti, ók á vett-
vang og smalaði konunum í
bílirm.
Þrengimgar Abduls prins
voru þó efcki á enda, þvi að
ekki reyndist rými fyrir allt
hans föruneyti á þvi gistihúsi
sem hann hafði pantað á og
það var ekki fyrr en á Hilton
hótelið kom að prinsinn og
kvinnur hans gátu l»ks þveg-
ið af sér ferðarýkið og hvflzt
eftir annasaman dag.
Bruni
í London
London, 10. ágúst. AP-NTB
EINHVER mesti bruni í Lond
on síðan í heimsstyrjöldinni
síðari varð í gær og það var
ekki íyrr en undir hádegi í
dag, þriðjudag, að slökkvi-
liðsmenn höfðu ráðið niður-
lögum eldsins. Þá hafði
slökkvistarf staðið í séxtán
stundir og átta slökkviliðs-
menn höfðu meiðzt eða
brennzt nokkuð.
Eldurinn kom upp i geysilega
stóru sjö hæða vöruhúsi i grennd
við London Bridge, síðdegis í
gær. Þar voru geymd ýmis
mjög eldfim efni og breiddist
eldurinn út um húsið með ógn-
ar hraða. Á þriðja hundrað
slökkviliðsmenn á 80 bifreiðum
komu von bráðar á vettvang og
beindist aðalstarfið að því fram-
an af að verja nærliggjandi hús.
Svo þykkur mökkur lá yfir mið-
borg Lundúna, meðan eldurinn
var mestur, að helzt var líkt við
það, þegar loftárásir Þjóðverja
á borgina í heimsstyrjöldinni
voru í algleymi.
Geysilegur hiti varð í næsta
nágrenni eldsins og mikil ring-
ulreið komst á umferð alla úr
miðborginni, en um þetta leyti
voru menn að halda heimleiðis
úr vinnu.
Málið er í rannsókn, en talið
er að eldsupptök hafi verið þau
að verkamaður sem var að starfi
í byggingunni, fór ógætilega
með mjög eldfimt gas.
Gáfu 50
þús. kr.
- til sundlaugar
Grundarfirði, 10. ágúst.
SUNNUDAGINN 8. þessa mán-
aðar afhenti Guðjón Eiísson,
Grundarfirði, formanmi kvenfé-
lagsins í Grundarfirði, Áslaugu
Sigurbjörnsdóttur, 50 þúsund kr.
Þetta er gjöf frá systkinunum
frá Vatnabúðum í Eyrarsveit til
mimningar um látinn bróður
þeirra, Snorra Elísson. — Gjöf
þessi skal renna í sundlaugar-
sjóð kvenfélagsins, sem stofnað-
ur var íyrir nokkrum árum. —
Til er líka í Grumdarfirði annar
sjóður, sem til er orðinn í sama
tilgangi og er hanm í vörzlu sjó-
mammadagsráðs. Mikill og vax-
andi áhugi er fyrir því hjá Grund
firðingum, ungum sem öldnum,
að hér verði byggð sundlaug á
næstu misserum. — Emil.