Morgunblaðið - 22.09.1971, Síða 2
2
MOfiGUNBLAÐIÐ, M3ÐVXKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1971
Ríkisstjórnin
samþykkir virkj-
unarframkvæmdir
MÖRGUNBLAÐINU barst í gær
eftiríarandi iréttatilkyiming frá
rikisst jórninni:
. „Á fundi ríkisstjórnarinnar i
morgun bar Magnús Kj'artans-
son, raflorkumáiaráðherra, fram
svohljóðandi tillógu, sem var
samþykk' einróma:
„Ríkisstjórnin samþykikir að
næsta stórframkvæmd í raforku
málum skuli vera virkjun í
Tungnaá við Sigöldu, í samræmi
við niðurstöður stjómar Lands-
virkj-unar. Skal haga gerð út-
boðsgagna þannig, að hægt verði
að bjóða meginhluta verksins út
snemma á árinu 1972 og miða
framkivæmidir við að orkufram-
Nýr forstöðu-
maður Náms-
flokka
FRÆÐSLURÁÐ hefur lagt til^
og féngið samþykkt í borgar-
ráði að Jónas Eysteinsson)
verði ráðinn forstöðumaður'
Námsflokka Reykjavíkur.
Jónas á að baki langa ]
reynslu sem kennari, var kenni
ari við gagnfræðadeildir Mið*
bæjarskólann í nær tvo ára-
tugi og kenndi dönsku og i
stærðfræði við Verzlunarskóla)
íslands. Hann hefur einnigl
unnið mikið að félagsmálum, \
ér m.a. framkvæmdastj óri (
Norræna félagsina.
Utanríkis-
ráðherra
hjá U Thant
EINAR Ágústsson, utanríkisráð-
herra Islands, gekk í gær á fund
U Thants, framkvænidastjóra
Sameinuðu þjóðanna í skrif-
stofu hans í aðalstöðvum sam-
takanna í New York.
Mbl. náði tali af utanríkisráð
herra í gærkvöldi og spurðist fyr
ir um hvað þeim hefði fa*rið í
milli. Svaraði hann því til, að
þetta hefði verið venjuleg kurt
eisisheimsókn — þeir hefðu ræðzt
við í um það bil hálfa klst. og
drepið á hin ýmsu mál, sem til
umiræðu yrðu á Atlsherjar-
þingi, meðal annars Kínamálið
og burtför U Thants úr embætti
framkvæmdastjóra. Einnig hefði
veríð rætt um ráðstefnur, sem
fyrirhugaðar væru á vegum SÞ
um umhverfismál, þar á meðal
hafréttarráðstefnuna og sagði út
anríkisráðherra ljóst, að U Thant
vænti mikils af þessum ráðstefn
um.
leiðsla geti hafizt á árinu 1975.
Skal gert ráð Ayrir því, að verk
inu megi skipta í þrjá áflanga, en
framkvæmdahraðinn að öðru
leyti miðaður við raforkumark-
aðinn innanlands, stóraukna hús
hitun með rafiorku og uppbygg-
ingu fj'ölbreytts iðnaðar í eigu
landsmanna sj'álfra. Ennfremur
samþykkir ríkisstjömin, að haf-
inn skuli undirbúningur að lagn-
ingu orkuveitulínu frá Búrfiells-
svæðinu til Norðurlands og gerð
áætlun um samtengingu orku-
veitusvæða um land allt. Jafn-
firamt skal lögum um Landsvirkj
un breytt þannig, að fyrirtækið
verði sameign þjóðarinnar allr-
ar.“
Reykjavik 21. sept. 1971.“
Hekluvikurinn er fluttur úr Þjórsárdal og
þess að verða skipað út, eins
blandað í bingi við
og sést fremst á
Sundahöfn, þar sem hann bíður
myndinni —
Samið við erlendar verksmiðjur
um sölu á Hekluvikri
5-6 skipsfarmar fara í haust
Sérstök vikurblanda í skorsteina
FYRIRTÆKIÐ Hekluvikur
h.f., sem byrjaði að flytja út
vikur fyrir tveimur árum og
hefur síðan sent út 5—6 skips
farma, hefur á þessum tíma
lagt mikla vinnu í markaðs-
öflun og einnig látið fara
fram umfangsmiklar rann-
sóknir í sambandi við hrá-
efnið, og er árangur nú að
koma í ljós. Hefur fyrirtækið
nú náð sölusamningum við
verksmiðjur erlendis, einkum
í þremur löndum, Noregi,
Danmörku og Skotlandi.
Hingað til hefur mest af
íslenzka vikrinum farið í
hleðslusteina til húsagerðar,
en nú verður einnig flutt út
sérstök blanda í steina til
skorsteinagerðar í Danmörku
og Noregi. Hefur verið sam-
ið um 5—6 skipsfarma, 800—
2000 tonn, sem á að afskipa í
haust. En umræður um á-
framhaldandi sölu til viðkom
andi verksmiðja fram til
næsta hausts eru í gangi.
Ágúst Hafberg, stjórnarfor-
maður Hekluvikurs h.f. veitti
Mbl. þessar upplýsingar. Aðspurð
ur um magn útflutningsins í fram
tíðinni, hvað hann vonir standa
til að þessa.r verksmiðjur mundu
köma til með að nota eingöngu
vikur frá Hekluvikri. En notkun
arþörf þeirra verksmiðja einna,
sem framleiða steina til skor-
steinagerðar er 15—20 þúsund
tonn á ári. Hugsanlegur markað
ur fy.rir hinn vikurinn væri ó-
þekktari, þvi sums staðar væri
þar um að ræða harða sam-
keppni við innlend fyrirtæki. —
Hefðu Hekluvikursmenn orðið
varir við að þeir aðilar gerðu við
skiptavinum rýmilegri boð, eftir
að þeir urðu varir við íslenzka
vikurinn.
FENGIN VIÐURKENNING
OG LEYFI
Ágúst sagði að mjög háar kröf
ur væru gerðar um hráefni til
skorsteinagerðar i Danmörku og
Noregi, bæði um styrkleika, ein
angrunargildi og þéttleika efnis
ins, svo ekki myndist sprungur
í steinana, sem eldhætta geti staf
að af. Hefðu rannsóknir og próf
anir, sem gera þurfti til að fá
byggingaleyfi í þessum löndum
fyrir íslenzka vikrinum kostað
um 300 þúsund krónur. En þýð-
ingarlaust væri að ætla að selja
byggingaefni, án þess að hafa áð
ur látið fara fram rannsókn hjá
opinberum rannsóknastofnunum
og fá leyfi fyrirfram. Þýðir þá
ekki að fá leyfi fyrir Hekluvikri
almennt, heldur verðiur það að
vera til ákveðinnar blöndu til
ákveðinna nota. í skorsteinagerð
ina er notuð blanda af tveimur
tegundum af Hekluvikri af þeim
fjórum tegundum, sem fyrirtæk
ið hefur kannað Þjórsárdalsmegin
á Heklusvæðinu. Hefur verið afl
að viðurkenningar á henni í Dan
mörku og Skotlandi, og reiknað
með að danska prófunin gildi
einnig í Noregi.
Féflettu gest sinn
HJÚ ein, sem fengu heimsókn af
kunningja sinum nú um síðustu
heigi léku hann heldur grátt. —
Hann kom færandi hendi með
veigar og 25 þúsund krónur í
peningum. Síðan fékk gesturinn
að halla sér um stund, en á með
an liann svaf — stálu hjúin pen
ingum hans og höfðu eytt, er lög
reglan kom í spilið, öllu nema
7.400 krónum.
Gerðist þetta í Höfðaborg. Þar
búa saman karl og kona, drykk-
felld mjög. Gamall kunningi
þeinra, sem unnið hefur um tíma
úti á landi kom í heimsókn um
helgina. Hann hafði meðferðis
3 brennivínsflöskur og veitti gest
gjöfum sínum. Er líða tók á kvöld
bauð hann gestgjöfum sínum I
bílferð um bæinn, en fékk að því
loknu að halla sér heima hjá
þeim. Hann vaknaði svo um mið
nætti, en þá var seðlaveski hans
horfið — með 25 þúsund krónum
í. Fann gesturinn konuna ölvaða
í ibúðinni, en karl hennar var þá
allur á bak og burt. Kallaði þá
gesturinn í lög.i’egluna.
Lögreglan gerði húsrannsókn.
Fundust þá undir teppi 6,200 kr.,
en kerling sagði, að karl hefði
stolið peningunum. Hún var hand
tekin og flutt í fangageymslu lög
reglunnar. Fannst þá í skó henn-
ar 1000 króna seðill, en siðar um
nóttina var karl hennar handtek
inn. Á honu mfundust 200 kfón-
ur i peningum og upp á vasann
hafði hann ákavitisflösku. Gest-
urinn tapaði þvi á heimsókninni
14.600 krónum.
Svo sem áður er getið, segir
konan, að maðurinn hafi tekið
eða stolið peningunum frá gestin
um, en karl hennar segist ekk-
ert muna og ekkert vita, hvað af
peningunum hafi orðið.
Með könnunum og tilraunum
hefur tekizt að fá blöndu af vikr
inum, sem þessum verksmiðjum
í löndunum þremur likar betur
en efni sem þær hafa áður keypt
firá Þýzkalandi og Ítalíu, sagði
Ágúst. Því höfum við nú nokkrar
verksmiðjur, sem bíða eftir af-
skipun á vikri héðan. En við er
um ákveðnir í að gæta þess að
fylgjast vel með, til að fyrir-
byggja mistök, því gallaður vik-
ur frá íslandi, gæti alveg eyði-
lagt markaðinn á þessum stöð-
um. Til þessara landa hafa
áður farið farmar af óunnuim
vikri, sem ekki reyndist nægi-
lega vel og hefur skemmt fyrir.
Vikur er gott efni, en auðvelt er
að gera mistök með hann. Nú
er komin reynsla á vikurinn frá
okku-r, sagði Ágúst, ekki aðeins
af sýnishornasendingum, heldur
líka raunhæf reynsla af heilum
vikurförmum, sem farið er að
nota.
Nægilegt magn er hér til af
vikri til útflutnings, sagði Ágúst.
Hekluvikur h.f. lét rannsaka vik
ur á Heklusvæðinu og þegar sér
fræðingar höfðu áætlað að þar
væru 28 milljón teningsmetrar af
vikri af þessum fjórum tegund-
um, sem fyrirtækið notar, þá var
hætt við hráefnisleit. En Ágúst
tók fram, að hvorki til rannsókn
anna né sýnishornagerðar hefðu
ve>rið fengnir neinir styrkir eða
opinher aðstoð. Væri rannsókna
kostnaðurinn einn kominn upp í
nokkur hundruð þúsund króna.
Auðvitað væru eigendur Heklu-
vikurs h.f. ekki að þessu, ef þeir
teldu ekki að útflutningur gæti
borið sig, sagði Ágúst.
ISLENZK SKIP
Vikurinn er fluttur úr Þjórsár
dal með vörubifreiðum, sem tekn
ar eru á leigu og að Sundahöfn,
þar sem útskipun fer fram.
Samningar við allar erlendu verk
smiðjurnar e>ru byggðir á því að
notuð verði skip frá íslenzkum að
ilum, en mikið laust rými er í
íslenzku skipunum á útleið. —
Sagði Ágúst að Sundahöfn væri
heppileg til útskipunar, en þar er
vikrinum ekið í bingi. Er verið
að festa kaup á því sem á vant
ar af mulnings- og blöndumar-
tækjum og útskipunartækjum,
og er von á þvi á næstunni.
Ágúst sagði, að á vissum stöð
um á ma>rkaðinum hefði Heklu-
vikur mætt harkalegri sam-
keppni frá ítölum í verði, en ftal
ir ættu gífurlega stórar námur
rétt við hafnarbakkana og þar í
landi væri að auki alltaf þurrt.
Því væri enn mikilvægáí’a að
reyna að vinna markaðinn á gæð
um íslenzka vikursins.
Aðspurður hvort hugsanlegt
væri að flytja vikurinn út unn
inn á sama hátt og í viðkomandi
verksmiðjum erlendis, sagði Ág-
úst, að íslenzki vikurinn væri nú
Framh. á bls. 11