Morgunblaðið - 01.10.1971, Side 10

Morgunblaðið - 01.10.1971, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1971 Hvor sigrar, Fischer eða Petrosjan? Snjallasti sóknarskákmaður- inn og bezti varnarskákmað- urinn leiða saman hesta sína NÆSTU vikur mun athygli skákunnenda óspart beinast að skákeinvigi því, sem í gœr átti að hef jast i Buenos Aires í Argentínu milli skákjöfr- anna Bobby Fischers frá Bandaríkjunum og Tigran Petrosjans frá Sovétríkjunum. Mikið er í húfi fyrir keppend urna, því að sá, sem sigrar í einvíginu, fær heimild til þess að skora á núverandi heimsmeistara, Rússann Bor- is Spassky i einvígi um heims meistaratitilinn. Hér verður engu spáð um úrslitin. Þeir Fischer og Petrosjan eru tvímælalaust allra beztu skákmenn heimsins nú. Petr- osjan hefur áður verið heims- meistari. Vann hann heims- meistaratitilinn af Sovétmann inum Mikhael Botvinnik í hörðu einvígi 1963, en tapaði fyrir Spassky í öðru einvigi síðar um heimsmeistaratitil- inn. Petrosjan hefur þvi mikla reynslu sem einvígisskákmað- ur. Skákferill Fischers að und- anförnu hefur hins vegar ver- ið með ólíkindum. 1 fyrri ein- vigjum í undankeppninni um áskorunarheimildina á heims- meistarann hefur hann sigr- að Taimanov frá Sovétrikjun- um og Larsen frá Danmörku taplaust, það er segja, hann vann allar skákirnar í þessum einvígjum en tapaði engri. Báðum einvígjunum lyktaði með 6:0 fyrir Fischer. Siðustu 19 skákirnar, sem hann hef- ur teflt, hefur hann unnið all ar. Það er því ljóst, að Fisch- er er sterkari nú en nokkru sinni fyrr og það er ekki að undra, þó að margir spái hon- um sigri í viðureigninni við Petrosjan nú. Alls hafa þeir Petrosjan og Fischer teflt saman 18 skák- ir áður. Þar af hafa 12 skák- ir orðið jafntefli, en þeir hvor um sig unnið þrjár skákir. En margir benda á, hver úr- slit hafa orðið úr siðustu skák um þeirra og spá um úrslit ein vígisins nú eftir þeim. Á síð- asta ári leiddu þeir fjórum sinnum saman hesta sína. Þeir gerðu tvisvar sinnum jafntefli. Hinar skákirnar tvær vann Fischer. 1 einvíginu nú í Buenos Air es verða tefldar 12 skákir og þarf því sigurvegarinn að hljóta minnst 6% vinning. Gera má ráð fyrir því, að ein- vigið standi að minnsta kosti þrjár vikur, ef ekki út allan októbermánuð. Það getur ráð ið miklu þar um, hversu mik- ið verður um biðskákir. Skal nú viikið stuttlega að þeim Fischer og Petrosjan hvorum um sig: STÓRMEISTARATITIL 15 ÁRA Robert Fischer er banda- rískur Gyðingur, fæddur snemma árs 1943 og því 28 ára gamall. Hann hlaut stór- Bobby Fisclier. meistaratitil aðeins 15 ára gamall, og hefur enginn skák- meistari hlotið þann titil svo ungur, hvorki fyrr né siðar. Fischer hefur náð slíku ör- yggi i skák, að oft er engu líkara en að hann kunni ekki að tapa, Hann þykir einkum frábær sóknarskákmaður og lætur fá tækifæri ganga sér úr greipum. Rússneski stór- meistarinn Viktor Korchnoi, hefur líkt Fischer við vél, sem sé stillt á vinning. Vegna hins hvassa sóknarstíls síns þykja skákir Fischers oft með afbrigðum litríkar og skemmti legar og þær eru uppáhalds- efni skáktímarita og skák- dálka blaða um allan heim. En persónan Robert Fischer hefur ekki náð sömu vinsæid- um og skákmaðurinn. Hann þykir sérvitur og hefur oft valdið úlfaþyt á skákmótum með framkomu sinni. En raun ar á hann oft í vök að verj- ast að þessu leyti vegna frægð ar sinnar. Á skákmóti á Mall- orca í fyrravetur þrengdi blaðalj ósmyndari sér alveg upp að Fischer, þar sem hann sat og tefldi og olli honum greinilega mikilli truflun. Svo fór, að Fischer missti þolin- mæðina, vatt sér að ljósmynd aranum, tók í öxl hans og ýtti honum ákveðið en kurt- eislega að útidyrahurðinni og hætti ekki fyrr en maður- inn hafði verið rekinn á dyr. Fáir aðrir en Fischer hefðu farið svona að, en víst má segja sem svo, að hann hafi haft ástæðu til þess ama. Fischer er tvímælalaust mesta skákmannsefni, sem komið hefur fram á Vestur- löndum áratugum saman. Mörgum finnst, sem Sovét- menn hafa búið nógu lengi að heimsmeistaratigninni í skák og myndu fagna þvi þess vegna, ef Fischer yrði heims- meistari. Slikt verður naum- ast talið jákvæð eða frambæri leg afstaða. Hitt er ef til vill miklu meira um vert, að yrði Fischer heimsmeistari, væri setztur í hásætisstól skáklist- arinnar sá skákmeistari nútím ans sem ræður yfir hvað fal- legustum og skemimtilegust- um skákstil allra núlifandi skákmeistara. HEIMSMEISTARI 1963 OG 1966 Tigran Petrosjan er Arm- eníumaður, fæddur árið 1929. Hann varð heimsmeistari í skák, er hann sigraði Rúss- ann Mikael Botvinnik í ein- vígi 1963. Petrosjan varði síð an heimsmeistaratitil sinn fyr ir Boris Spassky árið 1966 en tapaði titlinum síðan til Spasskys i öðru einvígi 1969. f þessum tveimur einvígj- um var munurinn á þessum Tigran Petrosjan. tveimur skákmönnum mjög lítill. Um skákstíl Petrosjans er það helzt að segja, að hann þykir afburða varnarskákmað ur og þykir snillingur i að hagnýta sér til sigurs of djarf ar tilraunir andstæðings síns. Það verður þvi mjög gam- an að fylgjast með einvíginu í Buenos Aires, því að þar mætast sóknar- og varnar- skákmaðurinn. Petrosjan er mikill jafntefliskóngur. Oft sigrar hann skákmót án þess að vera nálægt því að hljóta flesta hreina vinninga. Ástæð an er þá gjaman sú, að hann hefur tapað fæstum skákum og oft engri. Slíkur skákstíll er Fischer hins vegar vart að skapi, því að hann teflir gjam- an frá upphafi upp á stífan vinning. En það er hætt við því, að sú aðferð verði ekki einhlít gegn jafn frábærum varnarskákmanni og Petrosj- an er. Atvinna í boði Unglingspiltur óskast til bústarfa. Þarf að vera vanur mjaltavélum og dráttarvélum. Upplýsingar í síma 13899. DinSFELflK w ww DIICTIPLIITLS Fireball — DEEP PURPLE Master of Reality — BLACK SABBATH Pearl — JANIS JOPLIN Sticky Fingers — ROLLING STONES Every Pitcure tells a story — ROD STEWARD Every good Boy deservers a Favour — M00D BLUES Symphony for the Seventies — WALDO DE LOS RIOS Songs for Benginners — GRAHAM NASH STEPHEN STILLS II JESUS CHRIST SUPERSTAR. FÁLKINN Hljómplötudeild Laugavegi 24, Suðurlandsbraut 8 Hafnarframkvæmdir í Grímsey Greinargerð frá Hafnamálastofnun MBL. barst í gær eftirfarandi greinargerð frá Hafnamála- stofnun ríkisíns vegna frétta, sem birzt hafa í dagblöðum. Sumarið 1969 var unnið að hafnargerð í Grímsey. Hafna- málastofnun rikisins sá um fram kvæmdir og hönnun. Verkin voru þríþætt: 1) 95 metra langur brimvarnar- garður úr grjóti nálægt 100 metrum vestan viðlegugarðs- ins í stefnu suðaustur. 2) Grjótfylling utan viðlegu- garðsins til varnar hafróti og til styrkingar. Viðlegugarður- inn er fremst gerður úr grjót- fylltum steinkerjum og var byggður í áföngum fyrir 1969. 3) Grjótfylling framan frysti- hússins. Grjótnámið er rétt ofan land- enda brimvarnargarðsins, sem fyrirhugaður var. Grjótnámið reyndist mun ver en búizt var við. I brimvarnargarðinum var áætlað að þyrfti grjót i yztu lög- in af stærðum 10 til 12 tonn fremst, en 8 til 10 tonn nær iandi, í grjótnáminu fékkst hins vegar ekki stærra grjót en 4 til 5 tonn og það í litlu magni. Þegar séð var að ekki fengist fullnægjandi grjótstærðir var hætt við byggingu brimvarnar- garðsins og unnið að öðrum verkþáttum: það er gerð grjót- fyllingar utan hafnargarðsins og framan frystihússins. Brimvarn- argarðurinn var þá 45 metra langur og var reynt að verja garðinn eftir föngum með því stærsta grjóti, sem til var áður en hætt var. 1 haustbrimum skolaði brim- varnargarðinum að mestu í burtu eða þvi, sem lokið var af honum, enda ekki við öðru að búast, þar eð grjótið í yztu lög- um garðsins var alltof smátt. Grjótfyllingin utan viðlegu- garðsins stendur hins vegar og kemur að fullum notum og sama er um grjótfyllinguna framan frystihússins. Samkvæmt hafnalögum greið- ir ríkið 75% kostnaðar við brim- varnargarðinn og af grjótvöm- um utan viðlegugarðsins en 40% af kostnaði Við grjótfyll- inguna framan frystihússins. Framlag ríkisins kom með fjárveitingum en jafnframt var veitt fyrirgreiðsla um lánsútveg- anir vegna hluta sveitarfélags- ins. Við uppgjör verksins var það brotið niður í áðurnefnda þrjá verkþætti og kostnaður á hvern verkþátt áætlaður í beinu hlutfalli við rúmmetramagn hvers fyrir sig. Kostnaður var: kr. 1. Brimvarnargarður 2.304.211.76 2. Grjótfylling utan hafnargarðsins 2.595.375.00 3. Grjótfylling framan frystihúss 173.004.00 Samtals kr. 5.072.590.76 Deila má um, hvort eðlilegt sé að skipta kostnaði beint eftir rúmmetramagni hvers verkþátt- ar, þannig væri ef til vill réttara að reikna kostnað við hvern rúmmetra í brimvarnargarðin- um meiri en í hinum verkþátt- unum, þar eð stærsta grjótið var Framhald á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.