Morgunblaðið - 01.10.1971, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1971
25
fclk
í
fréttum
M' 4Hi ra
SL, 1
„SLAPPAÐU AF“
Willy Brandt, kansiari Vest
ur-Þýzkalands, er á þessari
mynd farinn að ná sér eftir
áfaliið, sem hann varð fyrir,
þegar hægrisinnaður öfgamað-
ur sló hann i Miinchen á dög-
unum. Var kanslarinn í heim-
sókn hjá skipulagsnefnd Ólym-
piuleikanna 1972, þegar hann
fékk höggið. Árásarmaðurinn
náðist, en kanslarinn hefur
augljóslega talið góðan Bay-
ern-bjór bezta lækningalyfið.
KEFUAVÍK OG BIBI.ÍAN
Yfirmenn á Lundúnaflugvelli
skýrðu frá því, að þeir hefðu
beðið um Ribliuna til sin einn
daginn, þegar flugvél frá
brezka flughernum á leið frá
Gander á Nýfundnalandi var
sagt að breyta um stefnu ög
fara til Keflavikurflugvallar til
þess að ná í einhver tæki þar.
Vél þessi var af gerðinni VC-10.
Flugmaðurinn svaraði þessari
skipun um stefnubreytingu
með setningunni: „Fimmta
Mósebók, kafli 27, 18. vers.“
Flettu yfirmennirnir á flugvell-
inum í London þá upp i Bibli-
unni og versið, sem flugmað-
urinn benti á, hljóðaði svo:
„Bölvaður er sá, sem leiðir
blindan mann af réttri leið! Og
allur lýðurinn skal segja:
Arnen."
urs var ákveðið að skira fjög-
urra mánaða gamlan ljónsunga
Olof. Palme þótti Olof allþung-
ur og átti i nokkrum erfiðleik-
um með að halda á glefsandi
ljónsunganum.
HEIMSMET í EGGJAKASTI
Tveir lögregluþjónar í New
South Wales í Ástralíu segjast
hafa sett heimsmet í að kasta
og grípa (óbrotið) hrátt egg.
Lengsta kast þeirra var 62,14
metrar, en gamla metið var
48,8 metrar. Þessir verðir lág-
anna heita Paul Lassau og
John Clarke og má óhikað
halda því fram, að vandfundn-
ir séu annars staðar á jörðinni
svo mjúkhentir laganna verðir.
PALME OG OLOF
Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar, hefur verið á ferða-
lagi í Afríku og m. a. heim-
sótti hann Zambíu. Þar fór
hann að skoða Livingstone-
dýragarðinn og honum til heið-
LÆRA AÐ VERA ÞINGMENN
Að loknum þingkosningun-
um í Danmörku á dögunum
var það ljóst, að margir nýir
menn og konur tækju sæti á
þingi. Og þá var í framhaldi
af þvi komið upp á ný vanda-
mál, sem yfirleitt allir nýir
þingmenn hafa átt við að
glíma: Þeir hafa ekki getað
notið sin sem skyldi í þjóð-
þinginu, vegna þess að þeir
þekktu ekki nægilega vel starfs
hætti þingsins og eldri þing-
manna, bæði ljósa og leynda.
Nú hefur Sósíalíski þjóðarflokk
urinn tekið upp þá nýbreytni
að setja alla nýju þingmenn-
ina sína á skólabekk, til að
leysa áðurnefnt vandamál. Og
aðaikennari þeirra er Poul
Dam, hugmyndafræðingur
flokksins. Hann hefur þegar
farið með hópinn í skoðunar-
ferð um þinghúsið og síðan
ætlar hann að taka fyrir starfs-
hætti þingsins, en leggur
áherzlu á, að það eigi ekki að
reyna að hafa nein áhrif á
skoðanir nýju þingmannanna.
72 ÁRA NÝSTÚDENT
Frú Signy Oddland Wang frá
Rergen er 72 ára gömul og ný-
lega lauk hún stúdentsprófi í
gegnum bréfaskóla — úr mála
deild með höfuðáherzlu á
ensku. Það er rektor skólans,
sem hér færir henni blóm í til
efni dagsins. Frú Signy er þeg
ar komin til náms í Oslóarhá-
skóla, og þar kemur henni vafa
laust að gagni gjöf sú, sem
hún fékk frá bréfaskólanum í
tilefni útskrifunarinnar — bréfa
námskeið fyrir undirbúnings-
próf í heimspeki.
VIÐEIGANDI REFSING
Dómari í Los Angeies
dæmdi nýlega vasaþjóf til að
ganga með belgvettlinga á hönd
unurn í hvert sinn, sem hann
væri á almannafæri næstu tvö
árin!
*
PILTIKINN FÉKK
MÆIÐRASTYRK
Stephen Mitchell er sextán
ára gamall piltur, og hann
hafði aðeins verið í vinnu í
nokkra daga, þegar hann veikt-
ist og tilkynnti tryggingastofn-
uninni það. Tveim dögum
•seinna fékk hann ávísun að upp
2Vi sterlingspund í pósti og
henni fylgdi langur listi yfit’
alla þá styrki, sem barnshaf-
andi konur gætu fengið. Þótti
Stephen þetta lítt fvndið og
hefur tryggingastofnunin lofað
að kanna málið.
IIÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir John Saunders og Alden McWilliams
RELAX.MR.TROY/ YOU'RE
NOT ^EING HIJACKEO/...
I HAVETO RUN A OUICK
PERSONALERRAHO*
Hvað meintirðu ungfrii Tully með að
Rand.v vrði undrandi Iiegar Iuin hitti
Dan? Þú sérð það Jiegar við komtim á
búgarðinn hans herra Troy. Og gerðu
svo vel að kalla mig ekki UNGFRC
Tully. (2. mynd). Frænka þín springur
i loft upp ef hún heyrir þig kalla mig
eitthvað annað en „stel|ia“ eða „hey, þú
þarna.“ (3. mynd). Heyrðu, þetta er ekki
leiðin út á búgarðinn. Vertu rólegur,
herra Troy, það er ekki verið að ræna
þ«'*r, ég þarf að sinna persónulegu er-
indi, það tekur ekki langan tíma.