Morgunblaðið - 18.12.1971, Side 4

Morgunblaðið - 18.12.1971, Side 4
'4 MOItGUNBLAÐIÐ, LAUGAROAGUR 18. DESEMBER 1971 Til leigu í Miðbænum Einbýlishúsið Þingholtsstræti 22 fæst til leigu frá I. marz 1972. Húsið verður leigt í því ástandi sem það er í nú, og verður til sýnis nk. þriðju- dag kl. 17,00 til 19,00. Leigutilboð sendist fyrir hádegi á fimmtudag nk., merkt: „2 bílastæði“, box 1117, Reykjavík. Starfsfólk óskast Skattstofan í Reykjavík óskar að ráða starfs- fólk í eftirtalin störf: 2 menn til bókhaldseftirlis- og rannsókna- starfa. 2 menn til endurskoðunar skattframtala. 1 mann til starfa við afgreiðslu og skjala- vörzlu. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfs- manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmælum þurfa að hafa borizt til skatt- stofunnar fyrir 31. desember 1971. Skattstjórinn í Reykjavík. ZUL eirra, e> euja eptir ak ákve&a jófacjjö^i ocj baupa vilja na vörur JÓLAPLATTAR, norskir, 650,00 krónur. SKÁLAR, ítalskar. TINVÖRUR, norskar. SILFUR, finnskt. SILFURPLETT, enskt og.þýzkt. KERTASTJAKAR, enskir, þýzkir, norskir. BARNASILFUR, enskt, norskt, danskt. SKARTGRIPIR, úrval úr silfri og gulli. ÚR, svissnesk. HRINGAR, gull og silfur. Demantshringar, íslenzkir. TRÚLOFUN ARHRIN G AR, smíðaðir strax. Jiin Sigmuníls Sknrlpripaverzlun m 3 er ce acýiir cjnpur er td íjncliá U Björn Jónsson, forseti ASI (t.v. ) og Eðvarð Sigurðsson, forniað- ur Dagrsbrúnar ræða stöðuna. - Beðið eftir samningum Framliald af bls. 2. ið tii neirmar ólgu. Þar er um að ræða marga hluti, sem ekki kosta atvinnurekendur svo miJk il útgjöld, en þetta eru allt hlut- ir, se<m þarf að athuga í ró og næði. Því hefði verið óráðlegt að reyna að leysa þá einnig í spennu síðustu daga. — Telur þú þá þessa skipt- ingu samninganna vera til eftir- breytni upp á framtíðina? — Ef vel tekst til núna, tel ég það sjálfsagt að svo verðl LANGT UMFBAM GETU ATVINNTVEG.VNNA Jón H. Bergs, form. Vinnu- veitendasambands Islands, skrif aði fyrstur atvinnurekenda und ir samkomulagið. „Vinnuveitendasamband Is- iands hefur margsinnis; bæði áður en samningaviðræður hóf- ust og svo oft í þeim, varað við stökkbreytingum í almennum kjaramálum,“ sagði Jón. „Við höfum unnið að þessu samkomu lagi á ábyrgan hátt eins og við lausnir fyrri kjaradeilna. Því er þó ekki að leyna, að út koman nú er langt umfram getu atvinnuveganna og leggur þeim allt of þungar álögur á herðar. En auðvitað eru allir ánægðir yfír því, að lausn náðist án þess að til allsherjarverkfalls þyrfti að koma.“ — En nú eru sérkröfurnar eft- ir. — Já. Nú verður farið í að ganga frá samningum við hvert einstakt verkalýðsfélag. Það verður geysilega mikil vinna, en samkvæmt þessum ramma- samningi skal henni vera lokið um miðjan janúar. — Reiknarðu með einhverjum átökusm? — Nei. Ég reikna ekki með þeim. Það er nú þegar búið að ræða margar þessara sérkrafna og afgreiðsla sumra er svo langt komin, að ég tel frekar ólíklegt að frágangur þeirra eigi eftir að kosta samningsaðila einhver átök, þó vinnan verði að vera mikil. ÞAÐ BEZTA SEM FENGIZT GAT Meðal þeirra, sem Mbl. ræddi við að lokinni undirskrift ramma samkomulagsins, var Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrún ar. — Ertu ánægður með þennan rammasamning, Eðvarð? — Maður er aldrei alls kost- ar ánægður með neinn samning. En ég tel þetta samkomu- lag mjög merkilegt á margan máta. 1 því eru nýmæli, eins og til dæmis stytting vinnutímans, þó hún hafi í leiðinni farið aðr- ar götur að markinu. Stærsta ný mælið tel ég vera, að hér hefur í fyrsta skipti verið tekizt á um að rétta hlut láglaunafólks sér- staklega og þar hefur átak verkalýðshreyfingarinnar ver- ið mjög samstiilt. Það tel ég per- sónulega stærri áfanga, en við höfum áður náð á þessu sviði. — Er þetta svo það bezta, sem þið gátuð fengið? — Já. Annars hefði ég nú ekki skrifað undir. ÞVINGUN FRÁ BlKISSTJÓBNINNT Formaður Landssambands ís- lenzkra útvegsmatnna, Kristján Ragnarsson, hafði þetta að segja, þegar Mbi. náði tali af honum eftir undirritun sam- komulagsins: „Þessar samningaviðræður voru á margan hátt sérstakar og á ég þar við, að vinnuveitend- ur voru frá upphafi undir þving un frá ríkisstjóminni. Eins »g öllum er kunnugt lýsti hún yf- ir í málefnasamningi, að vinnu- vikan yrði stytt í 40 stundir, án nokkurrar undangenginnar athug unar á því, hver væri raunveru Framhald á bls. G.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.