Morgunblaðið - 22.01.1972, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.01.1972, Blaðsíða 3
MORGUiNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1972 3 Offsetprentuð blöð um helgina SMSTEINAR Vísir og Tíminn fyrstir, en Alþýdublaðid byrjar 1. febrúar og verður árdegis- blað að nýju TVÖ íslenzk dag-blöð muiiu nú nm helgina verða prentuð með offsettækni. Eru það Vís ir og Tíminn. Vísir mun koma út offsetprentaður á mánu- dag, en Tíminn á þriðjudag. I>á er stefnt að því að ísleud ingaþættir Tímans komi út á morgun offsetprentaðir. All- þýðublaðið mun fyrst koma út offsetprentað hinn 1. febr úar eða um það bil og mun biaðið þá breytast i árdegis- blað, en um árabil hefur það komið út síðdegis. Þjóðviljinn, fjórða blaðið, sem er aðiii að offsetprentsmiðjunni Bliaða- prent mun koma út í nýjum búningi í vor eða haust, en ákvörðun þar um hefur enn ekki verið tekin. Stofnkostn- aður Blaðprents er nú 36 millj. kr., þar af hráefnis- og tækjakostnaður um 25 millj. kr. Morgunblaðið ræddi i gær við ritstjóra og fratmkvæmda stjóra blaðaona, sem nú eru að ganga í g'egnum þessa breytingu. Fara viðtöl við þá hér á eftir: Sveinn R. Eyjólfsson, fram kvæmdastjóri Vísis sagði að Visir á mánudaginn yrði að eins mikiu leyti og unnt væri settur i tölvum. Fyrst í stað prentun auglýsinga. Unnt er að vinna þær meira og set ja upp á fleiri vegu. „Við reikn um með því að það verði dýr ara að prenta í offset til að byrja með,“ saigði Sveinn, „þiátt fyrir þá hagræðingu sem af prentsmiðjunni er. En þessi tækni gefur meiri mogu leika til aukinna auglýsinga og við verðum að vinina upp aukinn kostnað með auknum anglýsingum og meiri út- breiðslu. Ljósmyndir verða mun betri í þessari tækni.“ Sveinn kvað ieturstunguna ekki breytast til muna, en hvert blað innan Blaðaprents myndi hafa sina eigin stungu. Jónas Kristjánsson, ritstjóri á Visi kvað myndimar verða áberandi mikiu betri og fyrir Vísi yrði breytingin mua meiii en t.d. Morgunblaðið, þar sem Vísir hefði til þessa haft mun verri vélakost og bliaðið þar af leiðandi mun verr prentað. Enn kvað hann mörg atriði í deiglunni. Und- irbúningur ritstjórnar hefur staðið alit árið 1971 og hefur myndasafn blaðsins verið fært í það horf, sem hæfir hinni nýju tækni. Klisjur eru nú úr sögunni og hamdrit verða með sérstöku formi. Tölvumar, sem setja textann eftir strimliim, sem áður hafa verið gataðir. starfsþjálfun yrði náð í þess ari nýju tækni. Indriði G. Þorsteinsson, lit stjóri Tímans kvað fyrirhug að að koma Timanum út ofí setprentuðum á þriðj udag. Efni blaðsins yrði i’aðað tölu vert öðru vísi niður en verið hefði, þar eð afgreiða yrði það í fjögurra síðna eining- um. Yrði að endunskipuleggja þlaðið með tilliti til setnirugar og umbrots. Yrðu þetta í raum ailt önnur vinnubrögð en tíðkazt hafa. Verða nú tveir blaðamienn fastiir í umbroti, sem ekki hafa verið áður. Áð Hin nýja offsetprentvél Blaðaprents h.f. — Ljósm. Kr.: Ben. yrðu útsíður settaæ filmu- setningu og ef til vill fleiri síð ur. Eftir því sem afköst prent smiðjunnar ykjust yrði síðan bætt við fleiri siðum og stefnt er að þvi að Vísi.r verði allur fiimusettur viku siðar. Blaðið verður nú brotið um að morgninum í stað þesis að allt innblaðið hefur verið brotið um síðdegis. í Blaðaprenti venður Visir einn í vimaislu ár degis. Aðalútlitsbreytingu kvað Sveinn vera betiri pnentun og gæfi hún möguleika á fjög urra lita myndum. Ætlunin mun að bliaðið stækki upp í allt að 20 siður um leið og afköst prentsmiðjunmar auk- ast. Blöðin verða unnin þamn ig að árdegisblöðin eru unn- in sitt í hvorum sal og fer þar fram umbrot og setning. — Sveinn sagði að færri prent- ara þyrfti við þessa nýju prentun, en stærra blað krefð ist fleiri blaðamanina. Helztu koeti offsets kvað Sveinn vera möguleika á iit- Jónas kvað útlit biaðsins breytast eitthvað, siðum yrði fjöigað. Einhverjar fastar sið ur blaðsins færðar til og stefnt er að þvi að fonsíða blaðsins verði eins konar efn isyfirlit yfir fréttir og gnein ar, sem að meginmáli verða inni í blaðinu. Allar aðrar brieytingar munu ve'rða hægar og bitandi. Þá kvað Jónas mikla breytingu hafa orðið á aðstöðu ritstjónna.r, því að hún væri nú fyrsta sinni korn in í húsakynni, sem sérstak- lega væru gerð fyiir hana. 1 biaðinu verða litmyndir, þótt ekki verði það daigiega fyrst um sinn. Kristján Benediktsson, for- stjóri Timans kvað fslendinga- þætti ef til vi'M koma út nú um helgina í offset. Ekki kvað hann fyrirhugað að stækka blaðið íyrst tim sinin og yrði aug 1 ýsingamagni ð nokkuð lát ið ráða stærð biaðsins. Krist- ján kvað vikur og mánuði myndu líða þar til fulM ur voru adlir blaðamennirnir að vasast í pneintsmiðjunmi, en nú koma þeir ekki þar inn, enda á allt öðrum stað í borg inni. Leturstunga Tímans mun breytast og fyrklhugað er að hafa blaðið í 16 siðum, þar til komizt hefu.r verið yfir byrj una.rörðugleikana, þá stækk- ar blaðið í 20 síður. Ekki er fyrir'hugað að nota litmyndir fyrst um siinn, lögð er á- herzla á að koma prentuninni í gang. „Við hér ætlum að slá algjört heimsmet,“ sagði Indriði, ,,að framkvæma þessa breytingu á fáeinum dögum, sem erlendis er gert á 3 til 4 vikum. Við blaðamennirmir förum út í þetta æfingalaust." Indriði kvað 8 síður fyrst um sinn verða rafeindasettar, en hinar 8 verða settar með gamla laginu. Þá kvað Indriði nauðsyn á vamdaðri vinnu- brögðum ritstjómair í sam- baindi við frágang á máli og uppsetningu. Véltrita þa.rf ail air greinar, sem aðsendar eru og áherzla verður lögð á að handrit séu rétt. „Já, þetta eru mikil tímamót, en við hér tökum þessu eins og tanntöku — kvíðum fyrir áðu.r en tönn- in er tekin, en á eftir er ailt búið.“ „Þið offsetpnentið full komlega aðeins helming blaðs ins. Likist það ekki því, siem aðeins sé driegið úr öðr um gómmum í senn?“ — spurðum við Indriða, sem svaraði: „Nei, svo tannlausir erum við ekki á Tímanum." Aiþýðublaðið mun hefja off setprentun 1. febrúar. Sig- hvatur Björgvinsson, ritstjóri sagði í viðtali við Mbl. i gær að biaðið hefði leigt húsnæði í Síðumúla 11, handari götunm ar, þair siem Blaðaprent er til húsa. Er búið að gera frum- drætti að innréttingu og verða framkvæmdir hafmar innan skamms. Fyrsta hálfan anman mánuðinn yrði rit- stjómin samt á gamia staðin um. Meginhluti auglýsinga- deiidar og dreifing mun flytj ast í nýja húsið ásamt rit- stjórnimni, en afgreiðsla og auigiýsingaskrifstofa mun verða áfiram á gamla staðm um. Blaðið verður árdegis- blað, það stækkar í broti, en að öðru leyti vildi hann litið segja um útlitsbreytingu blaðsins. Fyrstu vikurnar verða eintök blaðsins eins kon air i'eynslueintök og hugmynd iir að breyttu blaði og nýjung ar munu ekki kóma fram strax. Ásgeiir Jóhannesson er full trúi Alþýðublaðsins í stjórn Bllaðaprents h.f. Þar sem Al- þýðublaðið er í stofnsamningi Blaðaprents síðdegisblað, lögð um við fyrir Á&geir þá spuirn imigu, hvaið Alþýðublaðið gerði þegar Þjóðvi'ljinn kæmi inm í nýju tæknina, en hamn er árdegisbtað. Ásgeix sagði: „Fynst um sinn er samkomu- iag, að blaðið komi út á morgn ana. Reynslam á afkastagetu prentsmiðjunnar yerðu.r svo að Skera úr því, hvort rúm verður fyrir 3 árdegisblöð. — Enn hefur engin ákvörðun veirið tekim um það, hvort 3 blöð verða unnin saman." Ás geir sagði að Alþýðublaðið væri skuldbuedið til þess að verða siðdegisblað að nýju, samkvæmt stofmsamningnum ein hann kvað lausn þessa máls verða framkvæmdarat- riði í prentsmiðjumni. Prent- vélin gæti anraað 3 blöðum, en skórinn kreppti hins vegair þa.r sem setningin væai. Loks ræddi Mbl. við Eið Bergmann, framkvæmdast]. Þjóðviljan.s, sem kvað enga ákvörðum enn hafa verið tekna um það hvenær blaðið yrði offsetpnentað. Ákvörðun Framhald á bls. 22 Aðeins til eins árs Fyrir nokkru var Ölafiir .lóhannesson, forsætisráóherra, staddur á fnndi á Blönduósi með flokksmönnum sínum og varð þá fyrir miklu aðkasti af þeirra hálfu vegna undanlátssemi við kommúnista í stjórnarsamstarf- inu. I sambandi við þaer uirt- ræður, sem þá spunnust, upp- lýsti forsætisráðherra, að Kagn- ar Arnalds væri einungis skip- aður stjórnarformaður Fram- kvæmdastofnunar ríkisins tál eins árs og vakti jafnframt at- hygli á því, að Steingrímur Her- mannsson, ritari Framsóknar- flokksins væri varaformaður þessarar stofnimar. Gaf forsæt- isráðherra í skyn, að breyting yrði á formannsembætti Fram- kv’æmdastofnunarinnar að ári iiðnu. Má af þessu glöggt marka, að helmingaskiptareglan stend- ur enn með fullum blóma í hug- um framsóknarmanna og að þeir og kommúnistar hyggjast skipta réttlátlega á milli sín þeim biti- ingum, sem til falla. Hins vegar virðast allir gleyma garminum honum Kat.li, Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna, þriðja stjórnarflokknnm, sem að því er virðist hefur hætt afskiptum aí stjórnmálum. „Óréttlæti“ Enn halda stuðningsblöð stjórnarinnar áfram að draga í land í skrifum sínum um skatta- málin, en þegar skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar komu fram, var þeim lýst sem stórfelldri um- bót í skattamálum. í Þjóðviljan- um í gær segir svo: „Nú, þegar fyrir dyrum standa breytingar á skattalöggjöfinni, er rétt að benda á það óréttlæti, sem er rikjandi, þegar borin er saman persóniifrádráttur einstaklings til skatts og sá frádráttur, sem gefinn er með hverju harni. Per- sónufrádráttur einstaklings er áætlaður 140.000 kr. í nýju skattalögiinum, en aðeins 30.000 kr. vegna barns. Við köllum þetta óréttlæti. . . .“ Bragð er að þá barnið finnur. Gód hugmynd í forystugrein Þjóðviljans í gær má glögglega sjá, að mikl- ar og vaxandi áhyggjur ríkja nú í stjórnarherbúðunum vegna skattpíningarstefnu ríkisstjórn- arinnar og þar er kvartað und- an því, að almenningur sé gjör- samlega forviða og viti ekki hvrerjum trúa eigi í sambandi við útreikninga á skattbyrði. I framhaldi af þvi segir blaðið: „En til þess að ljóst megi verða hv'erju mannsbarni í landinu hver er munur þessara tveggja skatt- kerfa er til ein lausn og sú lausn mun jafnframt tryggja, að hver og einn skattgreiðandi getur átt- að sig á talnaflækjunni ailri. Sú lausn er í því fólgin, að við út- gáfu skattseðlanna í vor, verði ekki einungis getið um það, hver.jii álagðir skattar eru á þessu ári, heldur komi það einn- ig fram, hvernig skattarnlr hefðu orðið í tölum, ef kerfi frá- farandi ríkisstjórnar hefði verið áfram i gildi. Slikur samanburð- ur gæt-i tekið af allan vafa og yrði a.lmenningi auk þess ttl leiðbeiningar um það, hvernig vissir stjórnmálamenn með- höndla sannleikann." Undir þessa tillögu vili Morgunhlaðið eindregið taka, að J>ví þó anð- vitað áskiUlu, að samanburðar- griindvöllurinn verði réttur, en ekki eins og hjá fjármálaráð- herra. Það er vissulega rétt, að slíkur saninnburðiir á skattseðl- ununi í vor innndi v'erða skatt- greiðendnm til leiðbeiningar um það, „hvernig vissir stjórnmála- menn meðhöndla sannleikann". Og eiga, þau ummæli ekki sízt við um núverandi fjármálaráð- herra og aðra talsmenn ríkis- stjórnarinnar í skattamálum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.