Morgunblaðið - 04.02.1972, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1972
SKATTFRAMTÖL Sigfinnur Sgurðsson, hagfr., Barmahlíð 32, sími 21826, eftir kl. 18.
SKATTAFRAMTÖL og reikningsuppgjör. Fyrir- greiðsluskrifstofan Austur- stræti 14, 4. hæð, sími 16223. Þorleifur Guðmundsson, — heima 12469.
SKATTFRAMTÖL — BÓKHALD Þorvarður Elíasson Hagverk sf. Bankastræti 11, símar 26011, 38291.
SKATTFRAMTÖL Aðstoðum einstaklinga. Rekstraruppgjör. Opið daglega frá 18.00-20.30. HÚS og EIGNIR Bankastræti 6, sími 16637.
SKATTFRAMTÖL — BÓKHALD Herbert Marinósson Bergþórugötu 1 sími 26286 og 20032 á kvöld- in og um helgar.
TRILLA Til sölu er tveggja tonna triHa með 12 hestafla vél. Titboð sendist Mbl. fyrir 10. febrúar merkt Trntila 967.
fBÚÐ I 6 MANUÐI Hjón með eitt barn vantar íbúð á leigu frá 1. marz til 1. september. Uppl. í síma 20118.
TIL SÖLU nokkurt magn af kórónomynt: 1, 2, 5 og 10 aura frá 1922— 1942. Tilboð, merkt Mynt 3381, sendist afgr. blaðsins fyrir 8. febrúar.
GARÐAHREPPUR Kona óskast til að gæta heimilis 3—4 daga í viiku eftir hádegi eða eftir nánara samkomulagi. Uppl. í síma 42931.
BREIÐHOLT — BARNAGÆZLA Tek að mér að gæta bar-na á aldrinum 2—5 ára allan dag- inn. Upplýs ingar í síma 84910.
HERBERGI ÓSKAST Einhleypur maður óskar eftir berbergi. Upplýsingar i síma 26700 frá Id. 2—5.
FLYGILL Flygil-I til sölu, tegund W. C. Knabe. Verð 100 þús. Upp- lýsingar í síma 14926.
SJÓNVARP TIL LEIGU Uppiýsing'ar í síma 37947.
8—22 SÆTA hópferðabifreiðir til leigu Einnig 5 manna „Citroen G. S." leigður út en án bíl- stjóra. Ferðabílar hf„ sími 81260.
SKATTFRAMTÖL Pantið tímanlega í síma 16941 Friðrik Sigurbjörnsson, lög- fræðingur, Harrastöðum, Fáfnisnesi 4, Skerjafirði.
ÁRNAÐ HEILLA
Gulbrúðikaup eiga í dag hjönin
Guðbrandína Tómasdóttir og
Ottó Guðjónsson, fyrrverandi
klœðskeri, til heimilis að Otra-
teig 14. I dag taika þau á móti
gestum eftir kl. 8 í Templarahöll-
inni við Eiriksgötu.
Þann 6. nóvember sl. voru gef
in saman í hjónaband af séra
Birrri Jónssyni Keflavík ungfrú
Anna Kristín Runólfsdóttir og
Brynjólfur Ingvason. Heimili
þeirra er að Túngötu 15 Kefla-
vík.
Ljósmvndast. Suöumesja
Keflavlk.
Á gamlárstovöld opnberuðu trú
lofiun sína Guðfinna Þorsteins-
dóttir, Birkivöllum 18, Selfossi og
Sigurður Baldursson, Hófgerði
18, Kópavogi.
Laugardaginn 6. nóvember
voru gefin saman í Neskirkju af
séra Jóni Thorarensen ungfirú
Kolbrún Haraldsdóttir og Sig-
urður Bergmann Guðmunds-
son. Heimiii þeirra er að Kvist-
haga 6.
Ljósmyndastofa Jón K. Sæm.
Tjarnargötu lOb.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sina ungfrú Inga Rut Pétursdótt-
ir, Aðalgötu 11, Keflav'ik og Jón
Ragnarsson frá Hafnarfirði.
Köttur týndur
Þessi köttur — tveggja ára
geldingur tapaðist frá Skeiðar-
vogi 91. íbúar Vogahverfis sem
verða hans varir vinsamlegast
hrtngi í sima 32061.
DAGBÓK
Drottinn, heyr þú bæn mina og liróp mitt berist fyrir þig. (Sálm
102-2).
f dag er föstndagur 4. febrúar og er það 35. dagur ársins 1972.
Eftir lifir 331 dagur. Árdegisháfheði kl. 9.21. (ÍFr Islandsalmanak-
inu).
Almennar ipplýsingar um lækna
þjónustu í Reykjavík
eru gefnar í simsvara 18888.
Lækningastofur eru lokaðar A
laugardögum, nema á Klappar-
stíg 27 frá 9—12, símar 11360 og
11680.
Vestmannaeyjar.
Neyðarvaktir lœkna: Símsvari
2525.
JYÍunið frímerkjasöfnun
Geðverndarfélagsins.
Pósthólf 1308, Reykjavik.
Næturlæknir í Keflavík
2.2. Ambjörn Ólafssón
3.2. Guðjón Klemenzson.
4., 5. og 6.2. Jón K. Jóhannsson.
7.2. Kjartan Ólafsson.
tVsgrímssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
N&ttúrUBripasafniS HverfiSgÖtU llfj,
OpiO þriOJud., fimmtud., xaugard. og
sunnud. kl. 13.30—16.00.
RúflBjaíarþjónusla GeSverndarfélass-
Ins er opin þriðjudaga kl. 4.30-—6.30
siBdegis aO Veltusundi 3, slmi 12139.
Pjónusta er ökeypis og öllum heimil.
SA NÆST BEZTI
Á árunum milii heimsstyrjaildanna tveggja koan barónsfrú nokkiur,
Oppenheim frá Köln, tii Berliinar og fiór inn á Hótel Adlon. Er hún
skyldi rita í gestabókina, renndi hún augunum niður blaðsiðuna
og sá þar m.a. skrifuð orðin „R. de París“.
Þegar hún spurðist fyrir, hvislaði dyravörðurinn að henni, að
þetta væri barón de Ritsdhiild frá París.
— Einmitt það já, sagði barónsfrúin, greip gestabókina og skrifaði
í hana: — O. de Oologne.
ÁHEIT 0G GJAFIR
Áheit og gjafir til Styrktarfé-
lags vangefirma 4. ársfjórðungs
1971.
Okt. Valdís Kristjánsd 150,
Búnaðartæfci 9485.70, Sveimbjörg
1000, Inga og Guðrún 400, Anna
Ólafsd. 2000.
Nóv. Kristbjörn Tryggvason
400, ónefndiur 500, Hafiþór Skúla-
son, 9264,30, Model húsg. 2000,
S.Þ. 100, Lára Kriistjánsd. 1000,
Diter Rot 400, Þórður Reykdal
400, Guðjón Tómass. 700, Páll
Björnss. 900, Rudólf Ásgeirsson
500, Innkaupasamb. matvörukaup
manna 30.000, N.N. 60 kr.
Des. Jónas Magnússon 2260,
Fæðingarheimilið 1000, Magnús
Viðir 210, N.N. 1000, Röðull 4900,
N.N. 500, G. 1000, NJST. 500, N.N.
1000, Óskar Þórðarson 1000, Lilja
1000, Har. Gislason 1415, N.N.
150, Snorri Siigfúss. 1000, Eyjólf-
ur Davíðsson 500, ísi. aðalverk-
takar 50.000, Sameinaða verktak-
ar 200.000, Eysteinn Einarss. 500,
Elín Sigurjónsd. 650, Fanný 1000,
Fanný 18.000, Siveinbjörg 10.000,
Bj. Stefánss. v/Sv. Björnss. o.fl.
100.000, Merkjasala ísafirði 200,
N.N. 20.000.
FRETTIR
Kvenfélag Grensássóknar
Fundiur verður haldinn þriðju-
daginn 8. febrúar í Safnaðarheim
ilinu Miðbæ kl. 8.30. Myndir og
frásagnar frá Eþiópíu. Simonetta
Bruvik hjúkrunarkona segir frá.
Athugið breyttan fundardag.
Kvenfélag Laugarnessóknar
Aðaifiundurinn verður haldinn
mánudaginn 7. febrúar kl. 8.30 í
fundarsaJ kirkjiunnar.
Þorrablót
Búnaðaríélags Hvolhirepps verð
ur að Hvoli, Hvolsvelli, n.k. laug
ardag. Þar munu heimaimenn og
burtfluttir Hvolhreppingar blóta
þorra að venju.
Ánægja að starfa með ungu fólki
Jón Pálsson.
„Eitt af þvi fyrsta, sem upp
var tekið af tómstundaiðju
hjá Æskulýðsráði, voru nám-
skeið og klúbbastofnun um
ljósmyndaiðju,“ sagðl Jón Páls
son kennari, þegar við hitt-
um hann á förnum vegi og
spurðum um, hvernig tóm-
stiindaklúbbunum gengi starf-
ið. Jón byrjaði raunar með
tómstundaþætti í útvarpinu,
og ávann sér þá miklar vin-
sældir æskufólks, og óhætt er
að fullyrða, að allir tómstunda
klúbbar Æskulýðsráðs í dag,
séu frá þessum útvarpsjiáttum
Jóns, runnir á einn eða annan
hátt.
„Já, það miun hafa verið ár-
ið 1952, sem ég byrjaði með
þessa útvarpsþætti, og maður
fann það svo vel, að þeir fédlu
í góðan jarðveg 'hjtá ungling.un
um, og mörg féfcfc maður bréf
dn. Síðan hófst starfsemin hjá
Æskuiýðsráði 1964, og þá voru
aðeins 100 þátttakendur i þess
um Ijósmyndaklúbb, en s.l. ár
voru þeir 1600 talsins.
Þessi kennsla í ljósmynda-
iðn er komin víða, t.d. er slík
aðstaða komin í 8 skóla. Þessi
ljósmyndanámskeið beinast að
3 sviðum aðaiUega. Fyrst er
auðvitað kennt byrjendium, og
þá tekur við fraimihaldsflokk-
ur, og þegar unglingarnir eru
fcomnir svo langt, 'þá stofnum
við með þeim klúbba, og för-
um með þá í ferðalög, út í
náttúruna, og leiðbeinum þeim
við ijósmyndunina sjálfa,
kennum þeim að velja mynd-
efnið og ýmislegt fleira.
En aðstaða fyrir unglingana
er sérstafclega góð á Fríkirkju
vegi 11. Þar enum við t.d. með
5 stækkara."
„Verður þú etoki var við
það, Jón, að lunglingarnir séu
ánægðir með þessa aðstöðu?"
„Jú, það máttu bóka, og
líka það, að mér hefur fundizt
ánægjan aúkast með hverju
ári, sem ég hef unnið með ungl
ingunum að slíku starfi, ekki
máski eingöngu að ijósmynd-
un, heldur ekfci síð.ur í alls
konar tómstundaiðju annarri.
Það veitir gdeði í sálina, að
sjá fölkið ofckar unga eyða
tómstundum sínum í gagnlega
hluti,“ sagði Jón Pálsson að
lokum, þegar vegir okkar
skildu á förnum vegi.“ — Fr.S.
A
FORNUM
VEGI
Ungur álmganiaðiir um ljósinyndun þurrkar sínar myndir lijá
Æskulýðsráði.