Morgunblaðið - 04.02.1972, Síða 22
/ 22 MORGUNBLAÐLÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1972
Minning:
Aðalheiður Svein-
björnsdóttir, Akureyri
Vilhjálmur Jónsson
öryggiseftirlitsmaður
F. 4/6 1906 — D. 31/1 1972.
HINN 31. janúar s.l. lézt á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
Aðalheiður Sveinbjömsdóttir.
Hún var fædd á Akureyri 4. júní
1906.
Foreldrar hennar voru hjónin
Sveinbjöm Sveinsson og Guðlaug
Jónsdóttir, sem bæði voru ættuð
úr Svarfaðardal.
1929 giftist Aðalheiður Birni
Kristni Halldórssyni vélstjóra og
bjuggu þau öll samveruárin á
Akureyri, en hann dó 13. marz
1953. Þeim varð 3 barna auðið:
Guðlaug, sem búsett er í Reykja-
vík, Sveinbjörn, sem nú dvelst í
Ástralíu og Margrét Dóra, sem
hefur búið með móður sinni.
Heimili Aðalheiðar var síðustu
árin að Grenivöllum 12, Akur-
eyri.
Ég, sem þessar fáu Iínur rita
kynntist Aðalheiði fyrir 12 árum,
er ég varð tengdasonur hennar.
Þó varð það svo að ég kynntist
henmi ekki náið fyrr en fyrir 5
t
Ástkær móðir okkar,
Sigríður Pálsdóttir,
Aðalgötu 9, Keflavík,
lézt að VífLLsstöðum 31. jan.
síðastliðinn.
Börnin.
árum og tel ég að þau kynni
hafa orðið mér til aukins þroska
og meiri skilnings á gildi mann-
legs lífs. Hún var ein af þeim
íslenzku konum; sem vann verk
sitt í kyrrþey. Islenzka þjóðin á
þessum konum mikið að þakka,
þeirra er yfirleitt ekki minnzt
fyrr en dagurinn er allur.
Ég geri ráð fyrir að hún hefði
viljað láta sem minmst um sig
rita, þessvegna hef ég þessar lín-
ur ekki of margar.
Þetta tímabil frá aldamótum og
fram til þessa dags hafa orðið
mikil umbrot í íslenzku þjóðlífi.
Þeir sem hafa lifað þetta tímabil
muna báða dagana.
Aðalheiður mun ekki hafa farið
varhluta af því basli, sem fólk
átti í á fyrri hluta aldarinmar
frekar en svo margir á henmar
aldri.
Aðalheiður var þess umkomin
að vera börnum sínum stoð og
stytta og það leiðarljós, sem á
þurfti að halda er á reyndi. Þó
var það þannig, að hún vildi sem
minnst láta á því bera, það var
hennar aðalsmerki.
Bömin hafa xnargt að þakka
hinni hógværu og látlausu konu,
veganesti, sem margur gæti verið
þakklátur fyrir.
Bamabörmin minnast hinnar
góðu ömmu, og ekki sízt Aðal-
heiður nafna henmar, sem hefur
orðið fyrir hvað mestum áhrifum
frá sinni góðu ömmu. Væri það
víst ósk bama henniar að böm
þeirra öll líktust ömmu sinni, og
erfðu þá góðu kosti sem hún var
búin í svo ríkum mæli.
Sonur hennar Sveinbjöm, sem
nú dvelur í Ástralíu hefur ekki
tækifæri til að koma heim og
vera yfir moldum hennar, en mun
áreiðanlega hugsa til hennar með
ást og virðingu sem væri hann
hjá henni þótt lönd og álfur skilji
á milli, og mun ávallt minnast
móður sinnar sem eins skærasta
leiðarljóss lífs síns.
Það er stundum þannig í heimi
hér að við mennirnir erum svo
eftirtektarlausir að jafnvel það,
sem við þiggjum af okkar nán-
ustu daglega þykir sjálfsagt og
fyrst þegar þetta sjálfsagða er
ekki fyrir hendi vöknum við upp
við vondan draum.
Þetta gerir ef til vill þessi mikli
asi og flýtir, sem ruú er orðinn á
öllu. Þó gæti það einnig verið,
hvemig sá lætur þetta sjálfsagða
af hendi.
Davíð skáld frá Fagraskógi
segir:
Ég finn það gegnum svefninn
að einhver læðist inn
með eldhúslampann sinn,
og veit að það er konan,
sem kyndir ofninn minn,
sem út með ösku fer
og eld að spónum ber
og yljar upp hjá mér,
læðist út úr stofunni
og lokar á eftir sér.
Var það ekki einmitt þannig,
sem Aðalheiður vann sín verk?
Þannig sé ég hana fyrir mér og
veit ég að ailir hennar nánustu
munu þessu sammála og að lok-
um kæra tengdamóðir kveð ég
þig í nafni okkar allra.
Grétar Bergmann.
F. 15. jan. 1905. — D. 13. jan. 1972.
ÞANN 13. janúar s.l. lézt vinur
minn og mágur, Vilhjáknur Jóns-
son, að heimili sínu, Helgamagra-
stræti 38, Akureyri. Með fáum
orðum vil ég minnast þesisa góða
drengs, um leið og ég sendi fjöl-
skyldu hanis samiúðarkveðjur okk-
ar hjónanna.
Vilhjálmur fæddist að Yztabæ
í Hrísey 15. janúar 1905 og ólst
þar upp til 14 ára aldurs, en þá
fluttist fjölskylda hans til Siglu-
fjarðar. Vera Vilhjáims í Siglu-
firði varð ekki lönig, en þaðan
fluttist hann til Akureyrar og þar
mótaðist hans lífsstarf.
Á Akureyri kvæntist hann
frændkonu sinni, Magneu Daní-
elsdóttur, sem reyndist honum
ágætur lífsförunautur. Þau
hjónin eignuðust þrjú böm, sem
öll eru á lífi. Dóttir þeirxa, Val-
gerður, starfar sem skjalavörður
í Stjómarráðinu, og er gift Bimi
Jóhannesisyni, kennara við Kenn-
araháskóla íslands. Jón Kristinn,
rafvirki, á heima á Akureyri,
kvæntur Ernu Ásgeirsdóttur, og
Sverrir, flugumferðarstjóri, býr
einnig á Akureyri og er kvæntur
Hönn.u Sigurðardóttur.
Kynmi okkar Vilhjálms hófust í
Siglufirði, en urðu ekki mikil fyrr
en eftir að ég kvæntist Þóru, syst-
ur hans, og komst þá í nánari
tengsl við þessa stóru og fjölhæfu
fjölskyldu. Á Yztabæ ólst Vil-
hjálmur upp í stórbrotnu um-
hverfi á fjölmennu fyrirmyndar-
heimili. Það þurfti ekki mikið til-
efni til, að hugur Vilhjálms leit-
aði til æskustöðvanna. Þar var
allt fegurst og bezt. Umhverfið,
náttúran, fjölskyldan og minn-
ingamar.
Fyrir fáum árum komum við til
Hríseyjar, Vilhjálmur og kona
hans og við hjónin. Þá fann ég og
sá það, sem ég vissi þó áður, hve
þau systkinin elsfcuðu æskustöðv-
arnar og hugljúfar minninigar
stigu fram í hugum þeirra. — Það
var dýrðardagur.
Reyndar voru flestir dagar
góðir, sem við Vilhjálmur áttum
saman oft einir, en oft með fjöl-
skyldum okkar. Við ferðuðumst
oft saman, tveir einir, þegar ég
sinnti störfum mínum á ferðalög-
um um landið þvert og endiJangt.
En þótt ég teldist eiga aðalerindin
á þesisum ferðalögum, þá var
jafnan svo, að Vilhjáimur fór
ekki erindislaus frá neinum
þeirra fjölmörgu bæja og staða,
sem við komum á.
Fjöldi manna þekkti Vilhjálm
og hafði notið leiðsögu hans og
hjálpar, ýmist sem ökukennara,
leiðbeinanda eða þá hans hðgu
handa við aðgerðir á ýmsum
tækjum. Ég hafði mikla ánægju
af að horfa á þá miklu lotningu
og takmarkalausa traust, sem
hann átti að mæta, en stundum
reyndi þó á þolinmæði mdna, þeg-
ar ferð ofckar tafðist vegna þess,
að Vilhjáimur þurfti að miðla
þekkingu sinni og hjálp til fjölda
manna, ýmist úti á þjóðvegum
eða hvar sem var. Mér þótti líka
nóg um, þegar hann tók af vara-
hlutabirgðum okkar og hjálpaði
ýmsum bifreiðastjórum á þann
hátt, svo þeir komust leiðar sinn-
ar.
En þetta fannst Vilhjáimi svo
eðlilegt og sjálfsagt, að ég féllst
oftast á hanis skoðun og aldrei
kom þetta að sök, þvert á móti.
Aldrei fórum við framihjá neinum
Framhald á bls. 24.
t
Þökkum innilega öllum þeim
er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, son-
ar og bróður,
Jóhanns Kristins
Berthelsen.
Hallfriður Júlíusdóttir,
Sesselja Pétursdóttir,
Sófus Berthelsen.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináittu við andlát
og útför
Svanhildar Sigurðardóttur
Hátúni 9.
Þorvaldur Jónasson,
börn, tengdabörn og
barnabörn.
t
Alúðarþakkir tái allra vina og
vandamanna fyriir auðsýnda
samúð við andlát og útför
mannsins mins,
Alfons Oddssonar
frá Norðfirði.
Ingibjörg Pétursdóttir.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn
BJÖRN BR. BJÖRNSSON,
tannlækni,
fer fram í Frederiksberg-kirkju laugardaginn 5. febrúar kl. 1 s.d.
Fyrir hönd aðstandenda
Ellen Yde Bjömsson.
t
Faðir okkar
HALLDÓR M. HALLDÓRSSON,
fyrrv. afgreiðslumaður,
Tangagötu 4 Isafirði,
verður jarðsunginn frá Isafjarðarkirkju, laugardaginn 5. febrúar
n.k. kl. 2.00 e.h.
Böm hins látna.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
ÞORGERÐUR HALLDÖRSDÓTTIR,
frá Kjalvararstöðum,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardaginn 5. febrúar
kl. 10,30.
Hulda og Tómas Þorvaldsson,
Hafdís og Kjartan Kristófersson,
Þóra og Ársæll Björgvinsson,
Gerður og Magnús Pálsson,
Rósmaría Benediktsdóttir
og barnaböm.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna
andláts og útfarar
JÓNlN'J G. ÞÓRÐARDÓTTUR,
Laugavegi 17.
Ragnhildur Jónsdóttir,
Óskar S. Jónsson, Stefán Jónsson,
Ástríður Ellertsdóttir, Gunnar Jónsson,
og barnaböm.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
BJARGAR ÞORKELSDÓTTUR
Þorgerður Ragnarsdóttir, Kristján G. Jónasson,
Steíngrimur Ragnarsson, Marselína G. Jónsdóttir,
og bamabörn.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför eiginkonu, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu
KRISTlNAR JÓNSDÓTTUR,
húsmóður, Hjarðarhaga 24.
Tryggvi Tryggvason,
Kristján Tryggvason,
Elín Tryggvadóttir,
Kristín Tryggvadótt.ir,
og barnaböm.
Steindóra Steindórsdóttir,
Sólveig Eyjólfsdóttir,
Finnbogi Örn Jónsson,
Sigurjón Heiðarsson,
Þökkum innilega margvíslegan vinarhug og samúðarkveðjur
í tilefni af andláti og jarðarför
BJARNA EYJÓLFSSONAR,
ritstjóra.
Fyrir hönd systkina hans, systkina minna og fjölskyldna þeirra.
Ami Sigurjónsson,
Stjórn Sambands ísl. kristniboðsfélaga.
Stjóm K.F.U.M. Stjóm K.F.U.K.