Morgunblaðið - 23.02.1972, Side 11

Morgunblaðið - 23.02.1972, Side 11
MÓRGtJNÖfjV&IÐ,'' MIÐVIKtJDÁGÖR '23.' í'EDltÚÁR Í I Jón Engilberts listmálari BERGSÆTT Syðst í Jandi höíðingjaseturs- ins Kaldaðamess, vestur við ölf'usá, heitir Mangatangi. Þar hefur endur fyrir löngu verið grafinn slcurðspotti gegnum ár bakkann og uppgröfturinn vax inn þéttum, hörðum vallendis- gróðri. Þarna vex eyrgras ilm- ríkara en á öðrum stöðum, sem ég minnist úr æsku. E3f til vill hafa Eyrarbakkajúðamir, haldnir sinni körgu endurskoð- unarþrjósku, staðið hér fyrir kynbótum. En kona af Bergsætt gaf mér þennan afskekkta gras- garð, sem hún þekkti frá þvl hún var ung og kenndi mér að finna eyrgresi og allt um með- ferð á þessari giáfuðu villiurt með blóð í rótinni. Hún þurrk- aði vöndinn sjálf með miklum heillandi tilburðum og lagði undir dýnu í rúminu við hliðina á sérriflöskunni sinni. Eitt strá valdi hún úr vendinum og lagði milli brjóstanna. Á hátíðum þeg ar flaskan var opnuð og reyr- vöndurinn settur í vasa, streymdi austrænn ilmur að vit unum, sem breytti gömlu, köldu sto’funini í tónlistarhöll, með nægu hljómrými fyrir sjálfa Mariu Callas I öllu sínu veldi. BERGSÆTT Rétt fyrir vestan bæinn á Gamlahrauni, nokkra metra ut- an sjávarmáls, stóðu Gálgaklett ar i fullri reisn sinni í mínu ung dæmi. Nú hafa þeir sett dálít- ið ofan, eins og margir aðrir til- komumiklir staðir á Islandi, síð an barbarar brutust hér aftur í valdastóla. Fram milli gálganna streymdi lind úr öðrum heimi. Það flaut yfir uppsprettuopið um flóð og vatnið blandaðist söltum sjónum. En um fjöru hreinsaði lindin sig og vatnið fékk sérstakt dulmagnað bragð, Konur af Bergsætt drukku ekki annað vatn ef þær voru óhress- ar. BERGSÆTT Á horninu þar sem Rauðarár- stígur og Flókagata mætast við Klambratún, stendur stílhreint og yfirlætislaust hús, sem ber skrautlegt nafn, Englaborg. Máttarstólpi af Bergsætt, Jón Engilberts, listmálari, og kona hans Tove, reistu þetta sér- kennilega og dulúðuga hús. Tove er einn af mörgum dýrgripum sem frændur okkar við Éyrar- sund hafa fært okkur á þess- ari öld, svo að sár frá liðinni tíð mættu gróa. Þó hús þeirra hjóna láti ekki mikið yfir sér, séð frá almanna- færi, er hlutum þar inni svo fyr irkomið að engu lfkist nema göl ugu safni með endalausar vidd- ir til allra átta fyrir listaverk af ólíkum tegundum. Veggir all- ir klæddir málverkum og gólf munum, svo nátengdum því hiýja persónulega í mannssál- inni, að heilbrigt fólk, sem þar hefur notið gestrisni, saknar alla tíð. 1 Englaborg hafði Bergsætt að vísu undirtökin um .sköpun list- mettaðs andrúmslofts, en stað- setning hlutanna, hið fingerða samræmi, var verk Tove. Kvöldvökur voru tíðar í Englaborg, samankomnir fáir einiægir vinir og aðdáendur listamannsins. Þær stundir minntu á fátt fremur en vígt lindarvatn af slóðum Bergsætt arfólks og villigxóður er ættin hafði borið á brjóstinu og nært hjartablóði. Jón Engilberts var mikill og einlægur listunnandi. Hann sat á öllum tónleikum ásamt konu sinni og bðrnum, og hlýddi á klassíska tönlist af djúpri sann- færingu og lotningu. Uppi á vinnustofu hans var alltaf gnægð góðra bóka að Iesa, milli þess hann vann af eldmóðí. Jón sótti leikhús og máiverka- sýningar að staðaldri meðan kraflar leyfðu, og óteljandi eru þeir ungu listamenn, sem tíl hans sóttu ráð og uppðrvun. Sá sem þessar línur hripar, átti margar fagrar endurminn- ingar úr Englaborg. Þar angaði allt af list og sköpun. En það sem einkenndi þetta listanna heimili, var æðrulaus kyrrðin, sem ekki fékkst rofin nema stór snillingur á borð við Mariu Callas heimtaði að fá orðið. Jón Engilberts var stórbrot- inn listamaður, höfuðsnillingur, töframaður. Að auki Bergsættar höfðingi. Og hann átti í brjóst- inu alla ást mikils fólks. Þó Jón hefði stundum uppi stór orð, var hann ákaflega hlédrægur. Og hann þráði stöðugt einfalda, fábrotna iifnaðarhætti, svo að tíðum jaðraði við meinlætalíf. Jón Engilberts og Tove eign uðust tvær dætur, Amý og Bir- gittu, og eina dótturdóttur, Gull dropann. Þessum þráðu ástbörn um unni Jón af heilu hjarta og þau voru honum dag hvern hin tæra uppsprettulind og skjálf- andi eyrgresið af slóðum for- feðranna í Bergsætt. R.J. Jón Engilberts kom ásamt föð ur minum heim um Petsamo 1940. Þeir höfðu verið miklir mátar í Kaupmannahöfn um fimmtán ára skeið, og nú hýstu foreldrar mínir þetta framand- lega og fjörlega fólk, Engil- bertsfjölskylduna, meðan hún var að koma sér fyrir. Jón var þá hálffertugur, en ég sextán ára. Ég hafði hitt fólkið áður, þá bam að aldri í fylgd föður míns heima og erlendis, en þetta voru fyrstu raunverulegu kynnin. Einn daginn komst ég í afleit- an vanda og var n\jög miður mín. Gesturinn varð þess áskynja og tðk mig afsíði# og leysti vanda minn af skilningi og nærgætni, sem ég gleymdi ekki í bráð. Mannskilningur sextán ára unglings er ekki uppá marga fiska, enda undrað- lst ég að’ þetta aldeilis óvenju- lega drenglyndi skyldi leynast bak við hávaðasöm og skraut- leg forhlið gestsins. Það voru þessir eiginleikar I fari Jóns Engilberts sem vinir hans kynntust og mátu svo mi'k ils. Ovildarmenn hans sáu að- eins gunnreif forhliðin, þaðan sem skeytin fcomu, þessi sem voru svo listilega gerð að mönn- um varð starsýnt á þau og voru lengi á lofti og fóru þangað sem þau áttu að fara. Það varð heldur aldrei þurrð á salti i sárin. Málarinn jsparaði það ekki fremur en litatúburnar, þegar hann var að tjá tilfinningar sinar af ýmsu öðru tagi. Ég vissi hann heldur aldrei svo fátækan að hann synj aði vesælum manni á förnum vegi um glaðlegt viðmót, jafn- vel ekki eftir að hann kenndi banameins síns sem hann reyndi að leyna eftir mætti. Enginn var svo aumur, drukkinn eða ódrukkinn, að Jón ætti ekki jafnan handa homum nokSkur hressileg orð og tíkall, ef u»n var beðið. Hann sparaði ekkl heldur gamanið handa vinkon- um sínum og vinum — og hann sparaði svo sannarlega ekki vini sína, ef hann taldi sig þurfa að beita þeim fyrir vagn sinn langan veg eða skamman. Og við því var hreint ekkert að gera. Hófsemi í þessum efnum var Jóni víðsfjarri. Hann vissi vel hvers virði hann var og það sem hann hafði á boðstólum — og vildi fá eitthvað fyrir sinn snúð og engar refjar eins og góðum kaupmanni sæmir. Þeir, sem voru svo tómir í kollinum að skilja ekki þetta einfalda lög mál, fengu skilmerkilegan reisu passa út í kuldann ásamt s'keyti — og áttu ekki afturkvæmt nema gegn afarkostum og dýr- um gjðfum. Málarinn var sjálf- um sér samkvæmur út i æsar. Til þessara eðliseiginda hans má m-a- rekja verðleika þúsunda mynda sem dreifðar eru um all- ar jarðir fólki til yndis og áriægju- Þannig kemur allt heim og saman, ef i sauminn er skoð- að. Jón kunni vel að umgangast höfðingja, sem svo eru kallaðir. Suma mat hann fyrir annað og meira en peninga, menningar- skiljanlegum ástæðum einkum verið af útlendu bergi brotnir. Aðra af þessari stétt mat hann einskis, en hann skreytti sig með þeim af þvi að hann þekkti mennina og heiminn, þeir keyptu líka myndir af honum. Annað gekk honum ekki til, við mót hans gagnvart vesalingum tók af öll tvimæli um það. Hann hafði gaman af öllu tilstandi, leiksýningum, samkvæmum — og laglegum konum sem kunnu að snyrta sig og klæða, einkum. sæmilega greindum leikkonum, ef hann gat orkað á þær og þær á hann, en það var engin alvara á bak við það, þótt svo virtist á yfirborðinu, hann hafði gam- an af sviðsetningu, Hann sótti orku í návist þessa kvenfólks — hlóð sig — konan var honum táknmynd guðdómsins og mold- arinnar. Þegar gestirnir voru farnir fór hann hljóðlátur með orkuna upp í vinnustofuna, þar sem hann hvorki hló né gerði að gamni sínu. Þar var hann einn ineð guði sínum og gerði örvæntingarfullar tilraunir til að skapa i skini lampanna, fár- sjúkur maður síðasta árið - - feigur — og vissi það. Það er ekki allt sem sýnist. Jón var áberandi vel máli far inn, röddin hljómmikil og styrk lega viðsýni, þótt slíkir hafi af og málfarið kröftugt, meitlað, blóðmilkið, myndríkt með af- brigðum, svo sem við var að bú- ast í fari manns með ríka skaps muni og háþrúaða sjóngáfu, enda beitti hann samlíkingum af fágætum fimleik, þannig að hann kom stundum ótrúlegu efn- ismagni fyrir í einni sliíkri. Af sj'álfu leiddi að hann sagði allra manna bezt frá meðan hann hélt kröftum sínum óskertum. Hversdagslegasta smælki sem rak á fjörur hans varð að stór- munum þegar hann hafði vélt þar um. Fréttir úr bæjarlífinu sem ég sagði honum stundum voru orðnar óþekkjsmlegar í endursögn hans nokkrum dög- um síðar, allir höfuðdrættir skerptir og breikkaðir, allt hitt farið, nema örfáir fínir drættir sem bundu myndina saman. Hann skeytti þvi engu þótt ég heyrði til, hann var búinn að setja sitt vörumerki á rekavið- inn og hló allsandis purkunar- laus. Ég gætti þess l'íka að leið- rétta hann aldrei. Hann virti út í æsar rétt annarra til að fara sínum höndum um efnið. Hann skipti sér ekkert af efnistökum mínum á endurminningum hans, hvernig ég felldi niður, skeytti á ný, umorðaði, alveg á sama hátt og hann var einráður við myndirnar sem hann var að mála, meðan hann mælti fram minningarnar. Hann fékk aldrei að vita um örvæntinguna sem ég varð stundum gripinn þegar ég leit upp úr minni listgrein á hans — myndimar sem hann var að mála og sneri baki við mér. Hann fékk heldur ekki að vita hve ég hataði hann stund- um, þegar hann var að gera út- tekt á íslenzka þjóðfélaginu, hlaðinn orku manns sem er að skapa og hefur boðið út öllum kröftum sínum stund úr degi. Hann trúði því ekki að þetta veiðimannaþjóðfélag ætti fram- tíð fyrir sér sem menningarríki sem mark væri á takandi, að það léti nokkru sinni aftur heill ast af öðrum markmiðum en fjár munalegum og efnlslegum, að það myndi nokkum tíma unna listamönnum sínum skilyrða til að skapa list handa sér og heim inúm. Hann hafði ekki einu sinni trú á sósíaiismanum til þess, sem hann þó hélt tryggð við alla tíð, hvemig svo sem á því flotmagni hefur staðið. Hann taldi þjóðina og Alþingi hafa orðið því ómerkara sem lengra leið á öldina, að sama skapi menningarfjandsamlegra sem úr meiru var að spila. Hann tíndi til dæmi á dæmi ofan úr samtímanum — tnz úr varð fjall. Ég trúði honum ekki — ekki þá. Síðan eru liðin bíu ár, það er ekki langur tími, en fjall ið er enn á sínum stað — og hefur hækkað. Ég skil hann bet- ur núna. Hann átti alla ævi við fjárhagserfiðleika að stríða; þó fór hann sparlega með fé og vel með muni. Húsið var alltaf í hættu, þakið yfir vinnustofu hans. ótrygg fjárhagsafkoma átti drjúgan þátt i að eyðileggja heilsu hans, stytta líf hans. Þeg ar hann hafði nokkurt fé um- leikis og sá fram á nofckurra mánaða áhyggjuleysi, vann hann eins og berserkur, hann var kominn á fætur klukkan fimm á morgnana, og sú lota stóð stundum mánuðum saman við meinlæti sem sómt hefðu heilögum manni. Þegar féð þraut hvarf honum öll vinnu- gleði og alvarlegt þunglyndi settist að honum. Hann lauk svo ævinni að hafa ekki búið við venjulegt borgaralegt öryggi lengur en níu mánuði af nálega hálfrar aldar listamannsferli, þá mánuði sem hann naut starfs- launa. Hann bað um aðra niu mánuði til að geta lokið við síð- asta stórvirkið, kannski það mesta að umfangi, flokk hundr að og tuttugu smámynda byggðra á lífi sinu frá bemsku til elli. Honum var synjað. Hann lang- aði líka til að heyra Hús mál- arans flutt í útvarp áður en hann dæi. Ég kom því á fram- færi við einn af dags'krárstjór- um útvarpsins. Ég fékk þessu ekki framgengt, ekki þé. Nú er hann allur, saddur lífdaga með- al vor — og líður vel. Nú þeg- ar lygnir kringum hann mun koma á daginn, hvílíteur lista- maður hér var á ferð. Hann var það fram í fingurgóma — alveg þangað til yfir lauik. Að bana- beði hans kom gamall vinur sem tekíð hafði ljósmyndir af honum af merkum tilefnum á æviskeiði hans; hann var með myndavél- ina með sér. Varir listamanns- ins bærðust ekki, en úr róleg- um augunum sem hvíldu á myndavélinni mátti lesa sam- þykki. Svo lyfti hann af veik- um mætti hendinni í kveðju- skyni. Það var síðasta verk hans að taka konu sína í fangið og þakka henni fyrir allt — og gaf svo upp andann í líknsöm- um faðmi hennar. Hún unni hon um og honum einum alla tíð — eins og ástfangin stúlka ann manni. Það er til vitnis um sjálfa persónu Jóns Engilberts. Þegar hljóðfæraslátturinn þagnar og tjaldið fellur i Fóss- vogskapellu í dag, höifum við kvatt hinztu kveðju mikla mann eskju og mikinn listamann. Verkin sem hann Skilur eftir sig munu um aldur og ævi vitna um einstaka náðargáfu meðal ör- smárrar þjóðar. Nú fer annar tími I hönd. Enginn sem kynntist Jóni Eng- ilberts að marki mun nokkru sinni gleyma honum. Jóhannes Helgi. Mig setti hljóðan er mér barst sú frétt 12. febr. sl. að Jón Eng- ilberts væri fallinn í valinn. Ég hafði fyrst í þeirri viku verið staddur á Borgarsjúkra- húsinu í Rvfk, og er ég hafði lokið þar erindi mínu fékk ég leyfi til að fara inn til meist- arans, þó ekki væri heimsóknar tlími. Hurðin var opin á stofu 'hans og ég gekk inn. Hann var einn. Það lá vel á honum og mér virtist hann hressari en stundum áður, þegar ég hefi heimsótt hann og við töluðum um listina. Ég ta'aði um að hann myndl hressast með hækkandi sól og kannski gæti hann farið fljöt- lega heim til að mála. Hann brosti og játti því. „Bilið er skammt milli blíðu og éls en brugðist getur lukk- an frá morgni til kvölds.“ Nú er hann aliur. Stórt skarð höggvið í raðir Is- lenzkra listamanna. Jón Engilberts var og er einn af þeim stóru, þó svo að margir hafi verið á móti honum þá mátu hann líka margir. Hann háði baráttu alla tíð og stundum fannst honum vart líf- vænlegt á landi hér og gnísti tönnum, enda maðurinn skap- stór, en þó svo undarlega góð ur og ljúfur á stundum. Um góða listamenn gnauða oft harðir stormar og ekki blæs sá stormur minnst frá öðrum listamönnum. Þannig var það líka hjá Jóni Engilberts. Hann var atkvæðamikill, sagði það sem honum bjó i brjósti við fólk og það stafaði frá honum gustur og hressileg- ur andi. Alltaf var gaman að fá hann á sýningu. Hann skoðaði mynd- ir svo vandlega, að fólk sem þar var fyrir smitaðist af áhuga hans, svo mikil áhrif höfðu hans persónutöfrar. 1964 fékk ég mikla löngun til að mála meistarann og var það auðsótt. Sú upplifun að standa með tiönur og auðan strigann íjtít framan Jón Engilberts var tími sem ég aldrei gleymi. Það var sem þungt farg hvíldi á mér. Ég ætlaði aldrei að geta byrj- að. Ég setti í mig eins mikinn kraft og mér var unnt og byrj- aði að teikna með penslinum líkt og maður, sem býr sig til að stökkva yfir mikla fcorfæru. Það leið nokkur tími þar tU hann kom til miín til að sjá hvað ég hafði gert, reyndar var ég mjög feginn því. Það glumdl í klossunum og mér varð um og ó. Hann sagði, „reyndu bara áfram.“ Ég kynntist Jóni svo vel Þá, að ég gleymi honum aldreL Hans nafn og verk hans munu verða eilíf. Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.