Morgunblaðið - 05.03.1972, Page 11

Morgunblaðið - 05.03.1972, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 11 Vaxandi áhug i á Islandi vegna Atlantsh af shr y gg j ar ins Rannsóknaskip og vísindamenn sækja hingað — íslendingur veitir forstöðu alþjóðlegum vinnuhópi Hryg’srur liffgur eftir endilöngii Atlantshafi svo sem sést £ kortinn, og er sprunga & honum miðjum. Hryggurinn teygir sig svo áfram norður og liggur ge gnum fsland. Greinilegt er, að áhugi vís- indamanna er mjög vaxandi á rannsóknum á Mið-Atlants- hafshryggnum og einnig hlut verki íslands í því sambandi. Þetta kom m.a. fram í eftir- farandi samtali, sem frétta- maður Mbl. átti við dr. Guð- mund Pálmason, forstöðum. jarðhitadeildar Orkustofnun- ar. En honum var nýlega boð ið til fundar í Bandaríkjun- um, þar sem handarískir vís- indamenn og nokkrir erlend- ir gestir voru að gera sér Fundurinn, sem Guðmundur Pálmason var á í Bandaríkjun- um, stóð dagana 24. til 28. janú- ar í Princetonháskóla og var á vegum Vísindaakademiu Banda- ríkjanna. Tilgangur hans var að rajða rannsóknir á Mið-Atlants- hafshryggnum. Þarna voru sam- an komnir um 40 vísindamenn, sem fengizt hafa við rannsókn- ir á þessum hrygg. Flestir voru Bandaríkjamenn, en boðið var auk þess nokkrum erlendum sér fræðingum, þar á meðal einum Isléndingi, dr. Guðmundi Pálma- syni. Tilgangurinn var að móta rannsóknastefnu, aðallega Bandaríkjamanna sjálfra, á Mið- Atlantshafshryggnum, að því er Guðmundur sagði. Og var að méstu miðað við næstu 5—10 ár- in.1 - Það sem að baki Iiggur er það, áð menn vilja auka rann- sókriir á þessu fyrirbæri og reyria jafnframt að skipu- leggja þær betur en verið hef- ur, útskýrði Guðmundur. Var skrifuð skýrsla um fundinn og ætlunin að hún komi annars veg ar að gagni þeim, sem ætla að taka fyrir verkefni á þessu sviði, og hins vegar þeim, sem koma til með að veita fé í slík- ar rannsóknir. Á hún að vera báðum til leiðbeiningar. Á fund unum lagði hver vísindamaður fram sitt innlegg á einhverju ákveðnu sviði, og kom í minn hlut að skýra frá rannsóknum á Islandi, sem snerta hrygginn. — í framhaldi af erindunum voru svo umræður. Má eiginlega skipta viðfangsefninu í þrennt: 1 fyrstá lagi var reynt að gera sér grein fyrir þvi á hvaða þekkingarstigi við værum á þessu sViði. f öðru lagi að átta sig á því hvað ættl að leggja mesta áherzlu á í rannsóknum á þessum hrygg á næstu árum. Og grcin fyrir rannsóknum á þessum hrygg. Einnig hefur hann í annan stað verið beðinn um að taka að sér forstöðuna í alþjóðleg- um vinnuhópi vísindamanna, sem fjallar um rannsóknir á sprungukerfum á meginlönd- um og í úthöfum. En þessi vinnuhópur er ekki í neinum tengslum við fundinn í Banda ríkjunum. Að íslendingi er falin forusta í þessum hópi, sýnir m.a. hverja þýðingu ís- land er talið hafa í þessum rannsóknum. í þriðja lagi var ætlunin að fá fram hugmyndir um ákveð- in rannsóknarefni. Að lokum var svo nokkuð rætt um alþjóð- lega samvinnu um þetta efni. — Var þá ekki komizt að neinni niðurstöðu? • OKKAR ELDGOSABEL.TI Á HRYGGNUM — Það var ekki ætlunin að taka ákvarðanir á þessum fundi, svaraði Guðmundur. Mikið af þeim rannsóknum, sem hingað til hafa verið gerðar á Mið-Atl- antshafshryggnum hafa beinzt að mjög breiðu belti, 1000—2000 km á breidd. En þarna kom fram, að talið er tímabært að leggja meiri áherzlu á þrengra belti og nær miðjum hryggnum, þar sem sprungan liggur eftir honum endilöngum. Þessi mið- sprunga liggur einmitt í gegmum ísland. Hún er okkar eldgosa- belti. Menn leggja nú aukna áherzlu á að rannsaka hana. T.d. var mikið rætt um hvers konar mælistöðvar mætti setja upp á hafsbotni og hvort hægt væri að rannsaka hrygginn úr köfunarhylkjum, sem komast nið ur á 2000—3000 m dýpi. — Var nokkuð slikt ákveðið? — Það kom fram, að ákveðið hefur verið að taka fyrir stórt svæði sunnan við Azoreyjar og ætlunin að gera það á þann hátt, að fara niður í köfunarhylkjum. Ætla Frakkar og Bandaríkja- menn að standa að þessu í sam- einingu. Fyrir fslendinga er það athyglisvert að Frakkar ráðgera að senda 10 manna hóp hingað I sumar til að skoða sprunguna á landi, ef það mætti verða þeim til leiðbeiningar þegar þeir kafa niður við Azoreyjar. Þetta er á sinn hátt svipað því þegar geim- farar eru sendir hingað áður en þeir fara til tunglsins. • ÁHXJGI Á DJÚPBORUN OG MÆLINGUM Á HREYFINGUM — Þegar menn eru orðnir sam mála um að beina eigi rannsókn um af krafti að þessari Mið-Atl- antshafssprungu, þá kemur i ljós áhugi á íslandi I því sambandi, hélt Guðmundur áfram skýring um sinum. Stundum hafa menn verið efins um að fsland væri rétti staðurinn til slíkra rann- sókna, þar sem það er ofansjáv- ar og hér líklega meiri gos virkni en annars staðar á hryggnum. Á þessum fundi var hins vegar greinilegt að áhugi á fslandi í þessu sambandi er mjög vaxandi. — Nú fluttir þú þarna erindi um ísland í sambandi við hryggjarrannsóknir. Hvað er það sem menn leggja mesta áherzlu á hér? — Mitt hlutverk var að gefa yfirlit yfir þær rannsóknir, sem hér hafa verið gerðar og sem þýðingu hafa fyrir Atlantshafs- bryggjarrannsóknirnar. Og jafnframt að benda á hvaða verkefni íslenzkir visindamenn telja vera mest aðkallandi. Þetta var svo rætt á eftir, og var greinilegt að áhugi er á a.m.k. tveimur verkefnum. Annað eru djúpboranir til rannsókna á jarð skorpunni hér undir, sem marg- ir telja sömu gerðar og jarð- skorpuna undir úthöfunum. Út- hafsskorpan er talsvert þynnri, um 10 km, en meginlandsskorp- an, sem oftast er 30—40 km á þykkt. — Og hitt verkefnið, sem áhugi var á hér? — Það eru nákvæmar land- mælingar, í þeim tilgangi að fylgjast með jarðskorpuhreyf ingum. Breytingamar eru afar bægfara og gætu væntan- lega gefið ákveðna visbendingu um hvort réttar séu kenningar þeirra, sem hallast að þvi að jarðskorpan sé að gliðna í sund ur eftir þessum sprungubeltum og ný að myndast í staðinn. — Eru ekki einhverjar mæl- ingar á þessu í gangi hér á landi? — Jú, fjórir aðilar eru að reyna að vinna slikar mæling- ar hér, en þeir eru allir stað- settir erlendis. Það er Eysteinn Tryggvason, sem er við banda- riskan háskóla, Robert Decker frá Bandaríkjunum, Mason frá London og loks Þjóðverjar und- ir stjóm Karls Gerke, en mæl- ingar Þjóðverjanna hafa staðið lengst, ná allt aftur til 1939. Þessir aðilar hafa unnið að slik- um mælingum, sem eru tímafrek ar og mikið þolinmæðisverk. Mikil þörf er á að einhver aðili hér á landi hafi þetta á hendi. Nátengdar þessu eru svo smá- skjálftamælingar, sem stundaðar hafa verið i nokkur ár hér á landi, bæði af bandarískum og íslenzkum aðiium, nú siðast und- ir stjórn Sveinbjarnar Björns- sonar eðlisfræðings. Smáskjálft- arnir eru taldir fylgja hreyfing um í jarðskorpunni og eru því náskyldir þessu viðfangsefni. Var á fundinum í Princeton mik ill áhugi á hvoru tveggja þess- ara viðfangsefna. — Svo við snúum okkur að hinu verkefninu, sem þú nefnd- ir, þ.e. alþjóðlegu nefndinni, sem þú starfar í. Hvernig er hún til komin? « ALÞJÓÐLEG SAMVINNA — Á síðasta ári var komið á fót allviðtækri alþjóðlegri sam- vinnu í þvi skyni að efla rann- sóknir á hreyfingarfyrirbærum í yztu lögum jarðarinnar. Hef- ur þessu samstarfi verið gefið nafnið „Geodynamics Projeet" og á það að standa í 7 ár. Komið hefur verið upp einum tíu vinnuhópum til að sinna ákveðn um verkefnum. Einn þessara vinnuhópa fjallar um rannsókn ir á sprungubeltum á meginlönd um og á úthafssvæðum, og var ég beðinn um að taka að mér formennsku i þeim hópi. — Og hvað eruð þið að gera? — Við erum rétt að byrja að starfa. 1 þessum vinnuhópi min- um eru 14 menri frá 8 löndum. Tilgangurinn með starfi okkar er að reyna að fylgjast sem bezt með þeim rannsóknum, sem gerð ar eru á þessum sprungusvæðum og stuðla að samvinnu, þar sem hennar er þörf. Rannsóknir af þessu tagi verða ekki unnar svo vel sé nema með samvinnu margra aðila. Þá er og nauðsyn- legt að halda fundi öðru hverju, þar sem menn ræða niðurstöð- ur rannsóknanna. Nú er mjög of arlega á baugi að gera saman- burð á meginlandssprungukerí- unum og miðúthafshryggjunum svonefndu, til að ganga úr skugga um hvort um sams konar fyrirbæri er að ræða. — Þú sagðir að i hópnum væru menn frá 8 löndum. Hvaða lönd eru það? — Við erum hér tveir Islend- ingar, dr. Guðmundur E. Sig- valdason og ég. Aðrir eru frá Kanada, Bandarikjunum, Bret- landi, Sovétríkjunum, Þýzka- landi, Frakklandi og Kenya. Guðmundur Pálmason. Menn eru valdir bæði frá sem flestum þjóðum, sem stunda rannsóknir á þessum sprungu- svæðum og eins þannig, að sem flestar greinar jarðvísinda eigi fulltrúa í hópnum. Sumir eru jarðfræðingar, aðrir jarðeðlis- fræðingar og enn aðrir jarðefna fræðingar. Meginsprungubeltin eru aðallega í Austur Afriku, en af öðrum stöðum má nefna Rinardalinn og Baikallægðina I Síberiu. Úthafssprungusvæðin eru hins vegar fyrst og fremst Miðatlantshaíshryggurinn og svipaðir hryggir í Indlandshafi og austanverðu Kyrrahafi. • ÍSLENDINGAR, BRETAR DANIR í SAMVINNU — Og þú heldur að Island komi mikið inn í þessar rann- sóknir á sprungu og hryggja- kerfinu á næstu árum? — Það þykir mér líklegt. Er- lendir menn sækja hingað í vax- andi mæli. Það gefur t.d. til kynna að áhugi sé mikill á Islandi í þessu sambandi, að næsta sumar verða liklega 4—5 rannsóknaskip hér við land. Tvö bandarisk skip verða væntanlega við rannsókn ir vissan tima í sumar. Það eru Vema og Lynch, sem hafa verið hér áður. Vema verður væntan- lega mest fyrir norðan land, en Lynch við Suður- og Suðvestur- landið. Bæði munu þau taka botnsýni og gera jarðeðlisfræði- legar mælingar. Þá kemur vænt- anlega rússneska skipið Aca- demik Kurchatov, sem kom hér í fyrra. Þó mun það enn óákveð- ið. Það verður við svipaða sýn- ishornatöku og jarðeðlisfræði legar mælingar. Þá verður i gangi rannsókna verkefni, sem Bretar, íslending- ar og Danir hafa samvinnu um. Það beinist að rannsóknum á jarðskorpunni og efri hluta möttulsins á hryggnum milli Is- lands, Færeyja og Skotlands. Við leggjum til mælistöðvar á Is landi, Danir í Færeyjum og Bret ar í Skotlandi og á eyjunum þar fyrir norðan. Og Bretar leggja líka til 1—2 skip til að fram- kvæma sprengingarnar eftir ákveðnum línum. Síðan er í sam bandi við þetta verkefni ráðgert að gerðar verði jarðskjálftamæl- ingar djúpt undir Norðurlandi og Suðausturlandi. Þar vonumst við til að megi framkvæma með samvinnu Bandaríkjamanna, Is- lendinga og Sovétmanna. Fram- kvæmdastjóri hins islenzka hluta þessa verkefnis er Svein- björn Björnsson, eðlisfræðingur. — Eru sem sagt flestir vísinda menn á þessu sviði orðnir fylgj- andi kenningunni um sprungurn ar á jarðskorpunni og landrek- ið? — Ég held að fleiri og fleiri hall ist að því, að þær kenningar sem uppi eru um að jarðskorp- an sé að gliðna sundur eftir þess um hryggjum, séu réttar. En hiris vegar er margt, sem enn er ekki nægilega rannsakað í þvi sambandi og auknar rann- sóknir eiga vafalaust eftir að leiða ýmislegt nýtt í ljós. Hér á landi eru betri skilyrði en víð- ast hvar annars staðar til rann- sókna á þessu fyrirbæri, og við eigum því tvímælalaust að efla okkar eigin rannsóknir á þessu sviði. — E. Pá. Miðatlantshafssprungan liggur gegnum ísland og þar er okkar eldgosabelti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.