Morgunblaðið - 05.03.1972, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.03.1972, Qupperneq 14
14 MORGUtNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 Alþjóðlegar hollustuprófanir á geisluðum fiski að hef jast Viðtal við Guðlaug Hannesson, gerlafræðing, sem aðstoðaði Thailendinga við geislunartilraunir á fiski GUÐLAUGUR Hannesson, gerlafræðingur, kom fyrir jólin heim frá Thailandi, þar sem hann hafði unnið í eitt ár á vegum Alþjóðaorku- stofnunarinnar. Fór hann sem tækniráðunautur fyrir Thai- landsstjórn í því skyni að hjálpa Thailendingum til að skipuleggja rannsóknastofur og rannsóknir á geisluðum fiski. Jafnframt til að þjálfa háskólamenn í rannsókna- störfum í gerlafræði og kenna þeim ræktunaraðferðir við prófun á geisluðum og ógeisl- uðiun fiski. Og loks var í hans verkahring að skipu- lcSSÍa geymsluaðferðir á geisluðum fiski. En Guðlaug- ur starfaði sem kunnugt er hér við geislunartilraunir á humar, rækju og ýsu, sem fram fóru á Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins í samvinnu við Alþjóðakjarnorkustofn- unina og lauk árið 1969. — í Thailandi var aðaláherzl- an lögð á rannsöknir á gerlum og sýklum, sem hafa þýðingu frá heilbrigðissjónarmiði , þ.e. matvælaeitrunargerlum og mat- vælasýklum, sagðd Guðlaugur, er fréttamaður tók að spyrja hann um þetta verkefni hans í Thailandi. Mikið af fiski, sem þar er á markaðinum, er meng- aður sýklum vegna slæmrar meðferðar. Tilraunir miðuðu að því að tryggja að sá geisla- skammtur, sem notaður yrði, dræpi þá. Og einnig að lengja geymsluþol fisks sem hefði ver- ið geislaður og liggur í kæli- geymslu. — Hvernig tókst það, að lengja geymsluþolið? Nú er feikilega heitt þarna, er það eklki? — Með því einu að geisla fisk- inn væri hægt að lengja geymsluþolið um 2—3 daga en verulega lengur ef fiskurinn er líika kældur. Þó er hæg-t að geyma lengur eina tegund af makríl, sem er sérstaklega í Thaiiandi. En sá fiskur er soð- inn í saltpækli fyrst og getur þá eftir geislun geymzt upp und ir tvær vikur við stofuhita, sem þarna er 29 stig. Og það er rétt, að þarna er heitt. I>ó fer það eft ir árstíðum. Á monsúntímanum, sem er frá júni til októberloka, er hitastigið um 34 stig á Celsi- us og raki mikill. Hitastigið lækkar ekki niður fyrir 25 stig á næturna. Frá óktóber og fram i miðjan febrúar er hitinn 28— 30 stig, en rakinn minni og kóln ar svolííið á nóttunni. Það koona nætur, þegar hitinn fer niður í 15 stig og þá fá Thailendingar kvef. Frá marz og fram i júní er heitast, 35—40 stiga hiti. En versti tíminn til að geyma mat- væli er monsúntíminn, þvi þá er svo rakt og matur skemmist mjög fljótt. En þetta hitastig, sem ég er að tala um, er i höfuð borginni Bangkok. Norðurfrá er svalara. Ég var þar um ára- mótin í fyrra og þá þurfti að íara i peysu á kvöldin og vera í hennd á morgnana. .— Ekki hugsar maður sér Thailendinga sem mikla fisk- veiðiþjóð? — Nei, fæstir gera sér grein fyrir því, hve aflamagnið er þar mifcið. Á árinu 1970 voru Thai lendingar 13. mesta fiskveiði- þjóð heimsins og aflamagn þeirra 1,2 milljónir tonna og KÚna 1,9 milljónir. Og aflamagn þeirra af rækju var númer þrjú. Þeir veiða bæði sjávarrækju og rækta líka mikið af rækju i fersku vatni. Útflutningur á sjávarafurðum er þó ekki ýkja mikill. Aðallega er það rækja, sem flutt er út, til Japans, Bandaríkjanna og Evrópu. Ann ar útflutningsfiskur er aðallega seldur sem hráefini tii frekari vinnslu, t.d. í Japan. Lika fer eitthvert magn af sólþurrkuðum fiski til nágrannalandanna, svo sem rækja. Hún er mikið borð- uð þarna. Ennfremur er fram- leitt mikið af fiskisósu eða nampla úr ýmsum fiski og höfð út á hvers konar hrisrétti. All- ar þjóðirnar á þessum slóðum, svo sem Viet Namar, búa til svipaðar fiskisósur. — Fiskneyzla er mikil og al- menn í Thailandi og er snar þáttur i fæðu þeirra, sem búa nálægt ströndinni, hélt Guð- laugur áfram. En af eðlilegum ástæðum er ekki hægt að senda inn í landið og til Norður-Thai- lands nema sólþurrkaðan eða saltaðan og soðinn fisk. Næring arfræðilega skiptir þurrkaður fiskur miklu máli fyrir þjóðina. En einn hængur er á notkun hans. Skordýr valda miklum erí iðleikum, því þau leggjast á fiskinn, og hefur skordýraeitur verið í því sambandi mjög mis- markað eða til vinnslu. Hrein- læti er allt ákaflega bágborið, bátar, körfur og annað þvegið úr hafnarvatninu og skurða- vatni, sem er ákaflega mengað. Mjög fáir aðilar setja klór í vatnið. Þó er eitt fyrirtæki, sem hefur bækistöðvar á ýmsum stöðum og selur til Bandaríkj- anna og Japan og það hefur þokkalegt ástand, bæði hvað snertir hreinlæti og aðbúð. ferð til að geyma fisik. Geislað- ur fiskur er hvergi kominn á markað. 1 Sovétríkjunum hefur það verið gert til reynslu að setja geisluð matvæli á markað. matvælin eru þá soðinn og sett í kryddblöndur, sem hjálpa til við að gera þau geymsluhasf. Um þetta er lítið vitað og það virðist vera á tilraunastigi. Ann ars staðar er geislaður matur ekki komin á markað. I Bret- Fulltrúar á svæðafundi FAO o g Kjarnorkustofnunarinnar í Bangkok, þar sem Guðlaugur flutti yfirlitserindi um geislun á fiski. Hann er annar frá liægr i í fremstu röð. notað, jafnvel komið fyrir að menn hafii stungið fiskinum of- an í lög af þvi, til að verja hann. En nú er verið að reyna að koma í veg fyrir slíkt. í Bangkok og nágrannabænum Tonburi eru þó stórir fiskmark- aðir með ísuðum fiski og þar er úrval af fjölmörgum tegundum. — Er mikið af þessum fiski veitt í skurðum í óshólmunum? — Nei, mest er þetta sjávar- afli en líka mikið af fiski, sem hefur verið ræktaður í tjörnum, og skurðum. Thailendingar eru byrjaðir að rækta raekju í slíkum stöðvum og er mikill áhugi á að auka rækjuræktun- ina. — Annars eru gífurleg við- brigði að koma þarna og sjá meðferðina á fiskinum miðað við það sem hér er. Stærstu bát- amir eru iiklega 60—80 tonn og aðbúnaður er þar á'kaflega fá- tæklegur. Áhöfnin hefur enga aðra vistarveru en harða bekki á þiifarinu. Veitt er með mis- munandi veiðarfærum, mest þó í net. Stóru bátamir eru 4—5 daga i róðri og nota þá ís, en svo eru líka dagróðrarbátar og fer fiskurinn úr þedm beint á Kjarnorkusfiofnun Thailands. T.d. hefur allt starfsfólk höfuð- föt, sem hylja hárið. Aðrir fisk- .vinnslustaðir eru það óhreinleg- ir, að erfitt yrði fyrir þá að fara í samkeppni á mörkuðum erlendis. Heima er fiskurinn seldur ferskur á mörkuðum, þar sem sýkingarhætta er mikil. Eina bótin er, að allur matur er þrælsoðinn, nema ostrur. Hafa margir útlendingar orðið sér úti um gulu með því að borða þær. — Heldurðu að meðferðin á matvöru fari ekki að lagast? — Nei, á þessu verður varla ráðin bót næsta mannsaldur Ég held að erfitt verði að segja fólkinu að sá fiskur sé betri, sem er í umbúðum svo það get- ur hvorki skoðað hann né þef- að af honum. Thailendingar eru svo óvanir umbúðum og halda að þannig sé verið að beita þá brögðum. í þróunarlöndunum er alltaf við sömu erfiðleikana að eiga, því erfitt er að breyta mat arvenjum fólksins. — Heldurðu að geislun á fiski sem geymsluaðferð eigi þá langt í land? — Ekfkert liggur fyrir um það hvað verður úr geislun sem að- landi Mggur fyrir beiðni um að fá að setja geisluð fiskflök á markaðinn og beðið hefur verið um leyfi fyrir geislaða rækju í Bandarík j unum. — Nú er ætlunin að gera holl- ustuprófanir á geisluðum fiski á vegum alþjóðlegrar stofnunar, sem er undlrdeiM í Alþjóða- kjarnorkustófnuninni. Byrjað var á að kanna hollustu geisl- aðs hveitis, lauks, kartaflna o. fl. Og nú á að taka fyrir fisk. Y’first.jórn stofnunarinnar er í Karlsruhe. Þarna er um að ræða alþjóðlega nefnd. íslend- ingum var boðið að taka þátt í henni með öðrum Norðurlöndum en stjórnvöld ákváðu að gera það ekki. En tegundirnar, sem taka á fyrir eru þorskur, ýsa og ufsi. — Hvaða tegund'ir geisluðu þið á sínum tíma hér á Rann- sðknarstofnun fiskiðnaðarins ? — Við vorum hér með ræfcju, humarhala og þorsfc í samráði við Alþjóðakjarnorkustofnun- ina. Þeim geislunartilraunum lauk seint á árinu 1969. Og nú eru hér engar slikar tilraunir. Ef við snúum okkur aftur að framtíð geislunar á matvælum, þá geri ég ráð fyrir þvi, að þeg ar þessum hollusturannsóknum er lokið, eftir svo sem 2 ár, þá verði komnar í þetta mál hreinni linur. — Þessar rannsóknir beinast að því að vi'ta hvort geislun á matvælum hafi nokkur heilsu- spillandi áhrif. En það er annað atriði, sem er til vandræða við gelslun, heldur Guðlaugur áfram skýringum sínum. Það er Botulin-eitrun, sem sýkillinn Clostridium veldur. Afbrigði hans, sem nefnt er E, snertir fiskinn. Þessi sýkill myndar nefnilega gró, sem lág geislun vinnur ekki á. En afbrigðið E, og tvö önnur Mka, geta vaxið og framleitt eitur við hita, sem er allt niður í 3,3 stig á Celcius. Laggeislun eyðileggur aðeina lítið af gróunum, sem sýkillinn myndar. Af þessum sökum verð- ur að gæta strangasta hreinlæt- is og allur geislaður fiskvam- ingur verður að geymast í um- búðum við hita, sem er undir 3 stigum. Eiturmyndun er mis- jöfn eftir fisktegundum. Til dæmis virðist eitrið myndast fyrr í sild en ýsu, við sömu geymsluskilyrði. Magn geilsun- ar hefur lika oft óvænt áhrif. Oft veita lægri skammtar af geislun meira öryggi en hærri. Mest er framgangur geislunar þó háður hitastiginu. — Þá á geislun ekki mikla framtlíð í heitum löndum, eða hvað? — 1 hitabeltislöndunum kepp ir kælingin við geislun sem geymsluaðferð. Þannig er, að oft er hægt að geyma fisk ótrú- lega lengi með kælingu einni, því í þessum löndum er gerla- gróðurinn mjög frábrugðinn því sem finnst í Norðurhöfum. Margir telja því að kælingin skipti þessi lönd meiru en geisl unaraðferðin. Því er lögð mest áherzla á kælingu og hreinlæti. — Er þróunin þá i rétta átt hvað þetta snertir? — Ja, þróun getur tekið mer'ki lega stefnu í þróunarlöndum. Þessar þjóðir fá yfirleifit mifcla tækniaðstoð og hún miðar að því að þær geti sjálfar orðið sér út um matvæli og aukið geymsluþol þeirra. Það á að bæta mataræði þjóðarinnar. Eitt þessara landa veiddi til dæmis áður rækju og seldi 80% af henni á heimamarkaði, en nú eru 80% flutt út og 20% neytt heima. Pólkið fer því varhluta af þessari rækju. Nú má kannski segja, að í staðinn megi kaupa önnur og fjölbreyttari matvæli, en ákaflega ^ mörg lönd nota fé fremur til annars en matvælakaupa handa fólk- inu. Ekki varð ég þó var við að þetta væri í Thailandi. — Er þá ekki næringarskort- ur þar? -—• Það er áreiðanlega minna um næringarskort en í flestum öðrum löndum í kring. Landið er svo gjöfult bæði á matvæli úr dýraríkinu og jurtarifcinu. 1 Norður-Thailandi er það vanda mál, að bændur ræfcta mikið af ópíum. Er verið að reyna að fá þá til að rækta aðrar nytja- jurtir, sem gefa eitthvað af sér. En það er erfitt og þeir fara oft yfir i ópiumrækt aftur, því það er alltaf gróðavænlegast. — Eru efcki líka önnur vand- ræði þarna norður frá? — Jú, þarna eru sums staðar Skæruliðar, sem Thailendingar kalla yfirleitt „terrorista". Þeir eru mest við landamæri Cam- bodiu og Laos. 1 Suður-Thai- landi er líka eitthvað um slífct, en þar eru þetta blátt áfram stigamenn. Byltingin, sem varð í Thailandi, meðan ég var þar, fór hljóðlega fram. Margir töldu að hún hefði verið gerð til að koma einhverju lagi á efnahagslifið. En samdráttur hefur orðið í efnahagslífi Thai- lands, m.a. vegna þess að færri Bandaríkjamenn eru þar og her menin firá Suður-Vietm'am koma miklu minna þangað sem ferða- menn og til hvíldar. Við það bætist svo, að hrísgrjónaútflutn ingurinn hefur m'innkað, því önnur lönd í Suðaustur-Asiu Framh. á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.