Morgunblaðið - 05.03.1972, Page 15

Morgunblaðið - 05.03.1972, Page 15
MORGUN'BLAÐIÐ, SU'NJMUDAGUR 5. MARZ 1972 15 Stefnir Ítalía að öng- þveiti og stjórnleysi? Nýfasistar gera sér miklar vonir um kosningasigur í vor Þegar Giulio Andreotti myndaði minnihluta ríkis stjórn kristilegra demókrata á Italíu 16. febrúar s.l., gerðu flestir sér ljóst, að sú stjórn myndi ekki sitja nema skamm an tima við vöid og að þing yrði að líkindum rofið og efnt til nýrra kosninga, áður en núverandi kjörtímahdl þjóðþingsins lyki í maí 1973. En fáa hafði órað fyrir þvi, að stjórn Andreotti yrði jafn skammlif og raun ber vitni. Hún var aðeins 9 daga við völd. Þá var vantraust sam- þykkt á hana á þjóðþinginu. t>etta var skammlífasta rikis stjóm landsins frá stríðslok- um og hinn stutti valdatími hennar er glöggur spegilvott ur þess glundroða, sem kom- inn er upp í stjórnmálum ítal iu. Það var því ekki að ófyr- irsynju, að Andreotti lét rjúfa þing og ákveða almenn ar þingkosningar 7. maí í vor. Að þeim kosningum loknum er vonazt til, að línur hafi skýrzt nokkuð í stjórnmáium landsins og að unnt verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn með þingmeirihluta að baki sér, enda þótt þar kunni að verða um samsteypustjórn fleiri flokka að ræða. Slíkt væri ekki nýtt í stjórnmálum Ítaiíu á siðustu, áratugum, því að eftir strið hefur það að jafnaði verið flokkur kristilegra demókrata, sem farið hefur með völd í iand- inu, en þá yfirieitt i sam- vinnu við aðra fiokka og þá oft fleiri en einn. Italska þjóðin hefur tekið tíðum stjórnarskiptum og duttlungum stjórnmálamann- anna, sem stjómarskiptunum olliu, með jafnaðargeði yfir- leitt samfara svolítilli kald- hæðni gagnvart vafstri stjórn málamannanna og sinnt sínu daglega starfi með sarna hætti og áður. En nú hefur stjómmáiaóvissan i iandinu farið svo vaxandi, að jafnvel bjartsýnustu stjórnmálagagn- rýnendur hafa ekki komizt hjá þvi að sjá háskaleg merki þeirrar meinsemdar, sem grip ið hefur þjóðfélagið i heild. Sumir óttast, að fiokkarnir yzit til hægri eða nýfas- istar og fleiri hrifsi til sin völdin. Aðrir ihuga með ekki minni kvíða möguleikann á þvi, að kammúnistar komist í úrslitaaðstöðu í rikisstjórn- inni. Þannig hefur eitt helzta af ítölsku blöðunum skýrt frá þeirri frétt, að í frönsk- um herskólum hafi verið kann aðar herfræðilegar afleiðing- ar þess möguleika, að Italía gangi úr Atlan.tshafsbanda- iaginu en i Varsjárbandalag- ið. Siíkum bollaleggingum verður að taka með varúð,.en engu að síður hafa ítaiir í æ ríkara mæli verið að fyllast ugg um, að öryggi þeirra og veiferð kunni að stafa hætta af síversnandi stjórnmála ástandi í iandinu. Stjórnmálaerfiðleikamir og slæmt efnahagsástand eru að sönnu mikilvægir þættir i til urð þessa hugsunarháttar. En það, sem á undanförnum vik- um hefur átt hvað mestan þátt í því að gera ástandið spennuþrungið og kynda undir ótta og aðrar tilfinning ar fóiks, er sú alda afbrota og glæpa, sem að und anförrwi hefur stöðugt verið að færast i vöxt í landinu og þá einkum í iðnaðarborgun- um í norðurhluta þess. Blöð- in hafa ljáð þessum frásögn- um glæpá og afbrota mikið rúm, jafnvel skýrt frá þess- um atburðum á heilum síðum. Vel kann að vera, að nokkur æsifregnastiil af ásettu ráði hafi aukið á spennuna og ó- kyrrð almennings. En stað- reyndirnar skrökva ekki. Naumast líður svo dagur, að ekki berist fréttir af ofbeldis verkum, ránum í bönkum, verzlunum og jafnvel á einka heimilum, svo að ekki sé gleymt árásum úti á götum. Hefir þetta að sjálfsögðu haft í för með sér verulegt eignatjón og það, sem meira er, tjón á lífi og limum fólks, sem auðvitað hefur vakið enn meiri skelfingu almennings. Glæpir hafa svo sem auk- izt í öðrum löndum en á Ítalíu. En það, sem gert hef- ur núverandi glæpaöldu á Itaiíu að þjóðarvandamáli auk afbrotahliðarinnar er sú staðreynd, að hún hefur greinilega grafið undan trausti fóiks á ríkisvaldinu og jafnvel vilja ríkisins til þess að vernda þegna sina. Með þessum hætti hefur spurningin um „iög og reglu“ í þjóðfélaginu orðið að stór- pólitisku máli. Áróðurinn fyrir „sterkri stjóm" hefur fengið byr und ir báða vængi, en samtímis hefur verið blásið i glæður fyrirlitningar fyrir núver- andi stjómarfari og þvi kennt um vaxandi skálmöld í iandinu. Til þess má að veru iegu leyti rekja tilhneigingu til hægri á meðal eigenda smá verzlana og fleiri í hóp mið- stéttanna, sem vilja meiri vernd frá sterkum armi lag- anna, skipuðum fleiri og bet- ur þjálfuðum lögreglumönn- um. Óskir um innieiðingu dauðarefsingar að nýju hafa einnig tekið að heyrast frá þessum sömu stéttum. Þá hef ur jafnframt komið fram gagn rýni á nýja iöggjöf, sem tak- markað hefur heimildir til handtöku og gæzluvarðhalds á undan réttarhöldum og henni kennt um, að eftir verði fleiri forhertir glæpa- menn, sem gangi um lausir. En flokkarnir yzt til hægri hagnýta sér einnig ástandið og kenna skorti á efnahags- legum og félagslegum umbót um um vaxandi fjölda glæpa manna. Þeir staðhæfa, að ítaiska lögreglan sé hlutfalls lega sú öflugasta í heimi (sex lögreglumenn á hverja 1000 íbúa), en að aðeins 15% þeirra taki þátt í baráttunni gegn alvarlegri glæpum. Hin ir séu notaðir í „kúgunar"- aðgerðir eins og til þess að bæla niður mótmælafundi. Nýfasistar eru háværir tals menn fyrir „lögum og reglu" og þess vegna kosta þeir kapps um að fordæma sem verk rauðra hermdarverka- manna, er villi á sér heimild- ir og þykist vera íasistar, Skwnimd an-venk, sem að und- anfömu hafa verið framin á húsakynnum hjá biöðum og félögum kommúnista. En hverjum, sem þeir atburðir og aðrir svipaðir að undan- fömu hafa verið að kenna, þá eru þeir uggvæniegir fyr- irboðar um, að landið stefni i átt til stjórnleysis og póli- tísks öngþveitis. Andreotti ákvað að mynda minnihluta stjórn kristilegra demókrata einna, þegar honum hafði mistekizt að mynda að nýju samsteypu stjórn með þátttöku kristi- lega demókrataflokksins, sós- íalista, jafnaðarmanna og lýð veldissinna. Fyrri samsteypu stjórn þessara fjögurra flokka undir forsæti Colomb- os hafði farið út um þúfur vegna mismunandi afstöðu til kommúnista, tiðra verkfalla og versnandi efnahags og einnig til deilunnar um ný lög um heimild til hjónaskiln aða. Það var síðasta verkefni Andreottis sem forsætisráð- herra að ákveða 11. júní sem kjördag fyrir þjóðaratkvæða greiðslu um þetta umdeilda frumvarp. En það var ekki annað en formsatriði í raun- inni, því að vegna fyrirhug- aðra þingkosninga frestaðist þessi þjóðaratkvæðagreiðsla sjálfkrafa fram til næsta árs. Að beiðni Leone forseta mun Andreotti og stjórn hans sitja fram yfir kosningarnar. Það, sem kristilegir demó- kratar óttast nú mest er fylg istap til nýfasista í þingkosn ingunum í maí. Flokkur þeirra síðastnefndu tvöfald- aði nefnilega fylgi sitt í bæj- ar- og sveitastjórnarkosning um, sem fram fóru í fyrra- sumar á stórum hlutum Italiu, þar á meðal bæði í Róm og á Sikiley. Halda nýfasistar því fram, að með svipuðum ár angri í vor muni þeir tvo- falda tölu þingsæta sinna í fulltrúadeild þingsins, þar sem 630 þingmenn eiga sæti og fá 50 þingmenn kjörna þar í stað 25 nú. Þá hefur það ekki dregið úr bjartsýni nýfasista, að á nýafstöðnu þingi italskra konungssinna, sem einnig er flokkur langt til hægri, var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta að sameinast flokki nýfasista í kosninga- bandalagi í vor. Það er þvi ekki nema eðlilegt, að lýðræð isflokkarnir horfi með kviða fram til kosninganna. Þá verður ekki aðeins vegið að lýðræðisstoðum itaiska þjóðféiagsins frá vinstri af háifu kommúnista. öfgaflokk arnir til hægri ganga til þess ara kosninga bjartsýnir á mikinn sigur. (Þýtt og endursagt úr Observer, Neue Zijricher Zeitung o. fl.) Útboð Bæjarsjóður Keflavíkur óskar eftir tilboðum í akstur fyllinngarefnis í götur í Keflavík úr Stapafelli. Áætlað efnismagn er 16 þús. rúm- metrar. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Útboðsgögn verða afhent í bæjarskrifstof- unum í Keflavík á venjulegum skrifstofu- tíma næstkomandi mánudag og þriðjudag. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu bæjar- stjóra föstudaginn 10. marz nk. kl. 11 fyrir hádegi að þeim bjóðendum viðstöddum sem þess óska. Bæjartæknifræðingurinn í Keflavík. □DQB0QDQ Nýkomið stórkostlegt úrval. Nýir litir. Nýjar uppskriftir. Ný bók með prjóna og hekl uppskriftum. Ath. að PINGOUIN GARN þolir þvottavélaþvott. Verzlunin HOF, Þingholtsstræti 1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.