Morgunblaðið - 05.03.1972, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 05.03.1972, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 21 —- Erlend tíðindi Framh. af bls. 4 af klnverskum stofni, til sam.runa,“ skrifiar T. Rakhimov og V. Taldomskí í tímaritinu Novoje Vremja (New Times). Þeir benda á, að stefna Pek ingstjórnariniri'ar í þjóðernismálum markist af stórveldisstefnu og miði að samlögun minnihluta. f greininni kemur fram, að ókín- verskar þjóðir í Kína telja á að gizka 45 milljónir manns. Eru það Tsjúan- ar, úighúrar, Tíbetair, Dunganar, Mongólar og íleiri. Héruð þau, er þeir byggja, ná yfir rösklega helming alls landsvæðis Kínverska Alþýðulýðveld isins. Greinarhöfundar segja, að Peking stjórnin hafi fyrlr löngu látið lönd og leið allar áætlanir um að vinna bug á raumverulegu jafnréttisleysi minni- hlutanna. f héruðum þjóðernisminni hlutanna er í rauninni ekkert gert til að efla hinar borgaralegu hliðar at- vinnuveganna. Hins vegar eru byggð ir vegir og flugvellir með þarfir hers ins fyrir augum. Fólk af ókínversku bergi brotið er notað sem ófaglærður vinnukraftur, og nauðungarvinnu er beitt í stórum stíl. f reynd verða allir íbúar á svæðum þjóðernisminnihlut- anna að starfa að hemaðarmannvirkj um og vegalagningum endurgjalds- laust. í ,,Menningarbyltinigunni“ voru allir embættismenn flokks og stjórnar valda meðal minnihlutanna hreinsað ir, og allar stjórnarstofmanir, sem samkvæmt stjórnarskránni áttu að rækja sjálfstjóm ókínverskra þjóða, leystar upp. Kinverjar hafa hafið stórfellda fólksflutninga og landnám í héruðum þjóðernisminnihlutanna, Stórveldisstefna núverandi ráða- manna í Peking kemur gleggst fram í afstöðu þeirra gagmvart tungu og menningu ókínverskra þjóða, segja greinarhöfundar. Stefna Maóista mið ar að því að útrýma þjóðtungunum. Þeir vilja gera kínversku að móður- máli allra og láta þá lesa verk Maó formanns á frummálinu. Minnihlutamir hafa fyrir löngu átt að sig á áfórmum Maóista. Þeir svara aðlögunarstefnu Pekimgs með þraut- seiigri og vaxandi andspyrnu. Ósjald- an tekur andstaðan á sig hvassari myndir, allt til vopnaðs viðnáms. Þús undir manna af þjóðernismihnihlut- um hafa flúið „paradís" Maóista. Maóistar beita grimmilegri kúgun til að brjóta mótspyrnu ókinverskra þjóðia á bak aftur. Á síðari árum hef ur t.d. alda af réttarhöldum og aftök- um riðið yfir Tíbet. „Ráðamenn í Peking dubba sig upp sem skeleggustu baráttumenn fyrir frelsun kúgaðra þjóða og jafnrétti allra landa, stórra og smárra. En í reynd ástunda þeir í eigin landi stór- veldis- og þjóðrembingsistefnu sem miðar að nauðungaa’samiruna ókín- verskra þjóða“, segja þeir Rakhimov og Taldovskí að lokum. — A1‘N.“ — Chaban- Delmas Framh. af bls. 8 sparifjár. Blaðamenn, sem spurðu hann spjörunum úr, skoruðu á hann að skýra al- menningi frá eignum sínurn, og hann sagðist aðeins eiga íbúð í París, hús í Suðvestur Frakklandi og annað hús i Baskahéruðunum, en auk þess væri hann að kaupa ibúð í Bordeaux, þar sem hann er borgarstjóri. Chaban-Delmas var ekki spurður um bréfið frá Dega og heldur ekki um enn eina ásökun, sem komið hefur fram þess efnis, að hann gafi reynt að hjálpa fyr irtæki sem hefur verið dæmt í Skattasekt. Forsætisráðherr ann kvað augljóst, að árás- irnar væru persónuleg her- ferð til þess ætluð að kasta rýrð á sig og þar með stefnu stjórnarinnar. « EFTIRHKEVTURNAR Enn eru ekki öll kurl kom in til grafar þar sem talið er Vist að „Le Canard“ muni halda málinu áfram, en mikil vægt er að blaðið hefur ekki haldið því fram að forsætis- ráðherrann hafi gerzt sekur um ólöglegt athæfi, aðeins að hann hafi fært sér gróf- lega í nyt möguleika laganna. En eftirhreytur „Delmas- málsins" geta orðið afdrifa- ríkar, eklci sízt vegna þess að það fylgir i kjölfar margra annarra hneykslismála, þar sem komið hafa við sögu bygg ingafélög, tryggingafyrir tæki, eiturlyfjasalar, njósnar ar og skattsvikarar. Einnig er mikilvægt, að kosningar eru í nánd, og gert hafði verið ráð fyrir þvi að Chaban Delmas yrði flokki gaullista mikil lyfti- stöng í kosningabaráttunni végna tilrauna, sem hann hef ur gert til að koma á lagg- irnar „nýju þjóðfélagi", sem hefur fengið góðan hljóm- grunn, enda er í áætlunum forsætisráðherrans gert ráð fyrir auknu þjóðfélagslegu réttlæti, atvinnulýðræði og samvinnu vinnuveitenda og launþega. Vinsældir forsætis- ráðherrans voru einnig tald- ar geta komið gaullistum að miklum notum, en nú hafa þær dalað. Hins vegar er ekki talið ólíklegt, að fljót- lega muni fyrnast yfir málið eins og fyrri hneykslismál franskra stjórnmála, og í því sambandi minnast menn eink- um Markovich-málsins, sem reynt var að flækja Pompi- dou forseta í en því máli virð ast allir hafa gleymt, enda virðist enginn fótur fyrir þvi að forsetinn hafi verið við- riðinn það. Enn sem komið er liggja heldur ekki fyrir óræk ar sannanir um að gróusög- urnar um Chaban-Delmas séu á rökum reistar, svo að ekki er víst að lokið sé ferli hans i frönskum stjórnmálum. — Hollustu- prófanir Framh. af bls. 14 hafa aukið hrísgrjónarækt sína. Með auknu atvinnuleysi hefur svo farið að bera á skálmöld i landinu. En vegna herlaganna, sem sett voru í byltingunni, ráða stjórnvöld betur við rán og gripdeildir núna, og reyna að nota tækifærið til að uppræta sfcigamenn. — Hvað framtíðinni viðkemur þá hugsa ég að Thailendingar leiti eftir viðskiptasambandi við Kina, en ekki held ég að það verði meira en viðskiptasam- band, heldur Guðlaugur áfram. Og líklegt er að settar verði á viðskiptahömlur. Einnig verður einhver takmörkun á rekstri 1 erlendra fyrirtækja, en í Thai- iandi reka ýmsar þjóðir fyrir- tæki, svo sem Danir, Þjóðverj- ar o.fl. Búizt var við hömlum á innflutningi, þegar ég för, en það lá ekki Ijóst fyrir. Áður en.við skiljusm við Guð- laug Hannesson, er rétt að geta þess, sem hann ekki nefndi sjálfur, að hann var fulltrúi á svæðafundi á vegum Alþjóða matvælastofnunarinnar og Kjarnorkustofnunarinnar í Bangkok í desember og var þar kjörinn til að flytja yfirlitser- indi um geislun á fiski. Þennan svæðafund sóttu sérfræðingar frá mörgum löndum í Suðaust- ur-Asíu, allt frá Burma til Jap- ans og var mikið rætt um geisl- un á margs konar matvælum. — E. Pá. Tilboð óskast í stangaveiði á vatnasvæði Veiðifélags Flóamanna. Bjóða skal i fyrsta lagi í veiðina allt veiðitímabiliö 1972, í öðru lagi í veiði einstaka mánuði á veiðitímabilinu. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum sé skilað til formanns félagsins, Harðar Sigurgríms- sonar, Hoiti Stokkseyrarhreppi, fyrir 15. marz. Nánari upplýsingar hjá formanni og Bjarna Eiríkssyni, Mikla- holtshelli. Sími um Selfoss. PÁSKAFERÐIN í ÖRÆFASVEIT 5 dagar — 30. marz — 3. apríl Hin vinsæla páskaferð okkar í Öræfasveit verður farin á skírdagsmorgun og komið aft- ur á annan páskadag. i Ekið verður um Suðurlandsundirlendi allt til Kirkjubæjarklausturs og gist þar fyrstu nótt. Síðan haldið að Núpsstað og Lóma- gnúp, yfir Skeiðarársand og til Þjóðgarðsins í Skaftafelli. Gist næstu tvær nætur að Hofi í Öræfasveit. Ferðast um helztu staði í Ör- æfasveitinni, m. a. Jökullónið á Breiðamerk-- ursandi, Svínafell, Fagurhólsmýri og Ing- ólfshöfða. Heitur matur framreiddur úr sérstökum eld- húsbíl til hagræðis fyrir þá, sem þess óska. Verð: Kr. 2.800, m/gistingu. — Kr. 4.600,00 m/gistingu og mat. [i . , Kynnizt töfrum Örœfa- I.F sveitar um páskana ÚLFAR .JACOBSEN \ FERÐASKRIFSTOFA HF., Austurstræti 9. — Sími 13499. gceðingur á gott skilið hestafoður reiðhestablanda Við bjóðum r»u mjög góða reiðhesta- blöndu, mjöl eða köggla. Blandan inniheldur steinefni, salt og öll þau vítamínefni, sem eru hestinum nauðsynieg. í blöndunni er mikið af hveitiklíði, völsuðum höfrum og Melasse. Blandan verður því mjög lystug folaldablanda Höfum einnig ungviðisbtöndu fyrir folöld MKheykogglar í 50 kg sekkjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.