Morgunblaðið - 05.03.1972, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.03.1972, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 23 Fundu milljónafjársjóð í skipsflaki frá 1743 I OKTÓBER sl. lauk fimm ára leit brezka lögmannsins Rex Cowan að hollenzka fjársjóðsskipinu Hollandia, sem sökk árið 1743 með mik- inn silfurfarm um borð. Hol- landia var 500 lesta Austur- Indíafar og sökk við Scilly- eyjar, sem eru suður af Lands End á Englandi. Það liggur á 100 feta dýpi. Cowan og froskmenn hans hafa þegar náð upp mörg þúsund silfurpeningum, þrem fallbyssum og ýmsum öðr- um verðmætum. Fallbyssurn- ar eru merktar eiganda Hollandiu, sem var Amster- dam-útibú hollenzka Austur- Indíafélagsins. Hver pening- ur er allt að 100 sterlings- punda virði (um 20 þús. ísl. kr.). Cowan segir, að enn sé ómögulegt að spá um hversu mikils virði flakið sé, en í því felist örugglega mikil auðæfi. Hann hefur fengið fullan björgunarrétt frá hol- lenzku ríkisstjórninni og fjársjóðnum verður skipt milli hans og þeirra sex manna, sem vinna með hon- um. Þeir greiða þó hollenzku stjórninni nokkurn hluta af ágóðanum. Cowan gerir ráð fyrir að það muni taka a.m.k. eitt og hálft ár að ná öllum farmi skipsins upp á yfirborðið, því hann ætlar sér ekki bara að hirða auðæfin, heldur vill hann varðveita alla forngripi, sem finnast í flakinu. Froskmennirnir fara sér því mjög hægt og gæta þess að eyðileggja ekkert, sem gæti haft sögulegt gildi. Margir silfurpeninganna, sem búið er að ná upp, bera ártalið 1742, og hafa því verið slegn- ir árið áður en skipið sökk. Eins og með aðra fjársjóði, sem finnast á hafsbotni, verður haldinn strangur vÖrður um flakið af Hol- landia til að vernda það fyrir óprúttnum froskmönnum, sem hefðu ekkert á móti því að næla sér í nokkur þúsund silfurpeninga og önnur verð- mæti. — Við höfum lagt mikla vinnu í að finna þetta flak, segir Cowan. — Það tók okk- ur þriggja ára legu yfir bók- um, skjölum og kortum og tveggja ára linnulausa leit neðansjávar áður en við fundum Hollandiu. Lagaleg staða okkar er alveg ljós. Við verðum að skýra yfir- völdunum frá því, sem við finnum, en það er algjörlega okkar eign. Hver sá, sem reynir að mata krókinn með því að stela úr skipinu, mun mæta harðri andstöðu og verða dreginn fyrir rétt. liiiplilpp5* Cowan ræðir við tvo af froskmö nnnm sinum, sem eru nýkomnir upp á yfirborðið. A iestarhler- anmn fyrir framan þá er hrúga af silfur peningum. Einn froskmannanna k enmr böndum á fallbyssu. Sýnishorn af siifrinu, ■ Cowan, fjórði frá vinstri, og félagar hans skoða þriggja vikna afrakstur. Silfurpeningarnir á borðimi eru um 300 þúsund punda virði (um 60 millj. ísl. kr.) og þeir eiga eftir að sækja tugi þúsunda |>eirra í viðbót. Peningarnir á Iwrðinu eru 3000 talsins, svo þeir félagar fá eitthvað fyr- ir sinn snúð. Tveir félaganna skoða þrjár fallbyssur, sein þeir hafa náð upp á yfirborðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.